NT - 03.03.1985, Blaðsíða 18
■ Hann var einn af þessum
Norðmönnum með dellu fyrir
íslandi. Nú er hann orðinn
Islendingur og ekki laus við
dellunaenn. HannheitirMats
Wibe Lund og flestum dettur
eflaust í hug ljósmyndir þegar
nafniðernefnt. Ogljósmyndir
hafa svo sannarlega spiiað
stóra rullu í lífi Mats og gera
það enn. Hann rekur
umfangsmikla Ijósmyndastofu
að Laugavegi 178 auk þess sem
liann er sífellt á þönum út um
allt að taka myndir við
möguleg og ómöguleg
tækifæri.
Þessar glæsilegu myndir
voru valdar úr miklu safni hans
sem nær ríflega aftur á sjötta
áratuginn.
„Égerfædduroguppalinn í
Osló, nánar tiltekið upp á
Holmenkollen. já svo að segja
með skíðin á fótunum." Mats
ætti örugglega erfitt með að
skrökva til um uppruna sinn
því þrátt fyrir ágæta íslenskuna
fer þó ekki milli mála að hér er
norskur íslendingur á ferð.
Strax eftir stúdentspróf var
Mats farinn að taka myndir
fyrir blöð og tímarit auk þess
sem hann skrifaði textann
sjálfur. Á þessum árum birtust
greinar og myndir eftir hann í
norskum, sænskum, þýskum
og bandarískum blöðum.
Árið 1956 kom hann í annað
skiptið til íslands og fór þá vítt
og breitt um landið og tók
myndir. Hann fór snemma að
taka myndir fyrir íslensku
flugfélögin og fékk í staðinn
ódýrar ferðir á milli íslandsog
Noregs og heimsóknirnar
hingaðurðuæfleiri. Áárunum
1960 til 1962 stundaði hann
nám í Ijósmyndun við fagskóla
í Köln í Þýskalandi og hafði
þar að auki unnið við
loftmyndatöku fyrir norska
herinn á meðan hann gegndi
herþjónustu.
Maður með jafn mikla
íslandsdellu og Mats hlaut að
enda í faðminum á íslenskum
kvenmanni. Sú heitir Arndís
Ellertsdóttir og var við
hjúkrunarnám í Noregi þegar
það ævintýrið hófst. Seinna
fluttu þau hingað heim og Mats
hélt áfram að taka myndir.
Fyrst opnaði hann stofu í
Lágmúla í Reykjavík og vann
þar ásamt landa sínum þar til
hann flutti stofuna yfir
Kringlumvrarbrautina og er
nú eins og áður segir með
vinnustofu sína til húsa að
Laugavegi 178.
Auk þess að taka mikið af
portrait nryndum fæst hann við
myndatökur úr lofti og byggir
þar vafalítið á þeirri reynslu
sem hann öðlaðist í
herþjónustunni á sínum tíma.
„Mér finnst að
loftmyndirnar hafi mikið
sögulegt gildi. Þetta eru
heimildir um byggðarlög og
vandinn er að fá hvert einasta
hússem allraskýrast fram. Ég
reyni að fljúga í svona tvö til
MatsWibe Lund