NT - 09.03.1985, Blaðsíða 9

NT - 09.03.1985, Blaðsíða 9
aðrir minnihlutaflokkar voru mun stórtækari. Fjárhagsáætlun Félagsmálastofn- unar er ávallt viðamikil og beiðnir hennar fjölmargar ár hvert. Ráðið eyðir miklum tíma til að fjalla um áætlunina og afgreiðir hana fyrir sitt leyti. Ýmislegt sem samþykkt var þar hefur komist í gegnum hreinsunareld- inn, annað ekki eins og gengur. Við fórum þá leið að endurflytja einungis fáeinar þeirra nú, en studdum að sjálfsögðu þær sem aðrir flokkar endurfluttu við afgreiðslu fjárhags- áætlunar. Styrkir Við gerðum allnokkrar breytinga- tillögur við styrki til félagsmála, og náðu sumar þeirra fram að ganga í borgarráði áður. Við gerðum tillögu um að hækkað yrði framlag til Kvennaathvarfs, að í stað 625 þúsund kæmi 700 þúsund en athvarfið bað um 837 þúsund. Athvarfið hefurfylli- lega sannað tilverurétt sinn en rekst- urinn hefur orðið viðameiri en að- standendur gerðu ráð fyrir. í bréfi til borgarstjórnar í september kemur fram að á því ári höfðu dvalist í athvarfinu 149 konur og 177 börn og þurfti því að fjölga starfsfólki. Við gerðum tillögu um 125 þús. kr. til Sjálfsbjargar. Félagið heldur uppi öflugu félagsstarfi sem kostar mikla 'peninga, má nefna námskeiðahald, ferðalög, útgáfustarfsemi og upplýs- ingaþjónustu. Ennfremur gerðum við tillögu um að barnastúkur í Reylcja- vík fengju 30 þúsund í stað 0 króna en þær eru þrjár talsins. Allir gæslu- mennirnir starfa í sjálfboðavinnu en starfsemin er fólgin í fundastörfum, leikjum, ferðalögum en börnin eru 150 talsins. Pá teljum við rétt að íbúasamtök Skuggahverfis sitji við sama borð og önnur íbúasamtök og fengju 10 þúsund krónur í síað 4 þúsunda. Jafnréttisnefnd Við lögðum til að jafnréttisnefnd borgarinnar fengi umbeðna fjárhæð 315 þúsund krónur í stað 215 þúsund. Nefndin hefur loksins ráðið starfsfólk innan og utan nefndarinnar til að vinna ákveðin verk. Hins vegar bólar ekki á ráðgefandi tillögum nefndar- innar til borgarstjórnar sem henni var falið að gera fyrir tveimur árum. Hvað ætli dvelji framgang þess máls? Nefndin hefur ekki haft varamenn fyrr en eftir samþykkt fjárhagsáætlun- ar og vonandi styrkir það tengsl nefndarinnar við borgarstjórn að einn þeirra er borgarfuiltrúi. Aðstöðugjöld lækki Vil ég nú fara nokkrum orðum um aðstöðugjöld sem ég hef geymt mér. Við gerðum að tillögu okkar að annar iðnaður og landbúnaður sæti við sama borð og fiskiðnaður þ.e. að gjaldskrá lækki úr 1% og 1,3% í 0,65. Þessi lækkun myndi þýða minni tekjur í borgarsjóð um 30 milljónir króna að í stað 548 milljóna komi 518 milljónir. Þá gerðum við ráð fyrir að bensín- skatturinn yrði hærri en hér var áætlað. Rökin eru þau að bensín hefur þegar hækkað, og á líklega eftir að hækka enn meira. Borgin hafði miklar tekjur af drátt- arvöxtum á síðasta ári, en þeir urðu 24 milljónir króna umfram áætlun. Laugardagur 9. mars 1985 9 Reynslan er að dráttarvextirnir hafa verið vanreiknaðir undanfarin ár og gerðum við ráð fyrir 10 milljónum til viðbótar við áætlun meirihlutans. Bruðlað á skrifstofu borgarlæknis. Varðandi liðinn hreinlætis- og heil- brigðismál höfum við tvær breytinga- tillögur til lækkunar. í fyrsta lagi að áætla minna í snjómokstur og hálku- eyðingu þar sem tíðarfar hefur verið með eindæmum gott, að í stað 40 milljóna komi 34 milljónir. Þá lögð- um við til lækkun um 700 þús. krónur á skrifstofu borgarlæknis. Launakostn- aður þar er 1.968.382 krónur til fjögurra starfsmanna en áætíað er næstum jafnmiklu til aukavinnu og afleysinga eða 1.698.491. Hér er eitthvað illa á málum haldið. Sparn- aðarnefnd lagði til að heimild sem fyrir er til ráðningar háskólamenntaðs fulltrúa yrði felld niður, og er ástæðu- laust að hafa hann í áætlun verði hann ekki ráðinn. Hjá heilbrigðiseftirlitinu eru stöðugildi 9. Þar er aukavinna aðeins 500 þúsund alls eða 55 þúsund á hvern starfsmann en hjá borgar- lækni er hún hins vegar 340 þúsund ef miðað er við fimm stöður. Mikil aðkeypt verkfræðivinna Er þá komið að gatna- og holræsa- deild. Fyrst varðandi skrifstofukostn- að. Við lögðum til að hann lækkaði um 4 milljónir. Yrði 18.480 í stað 22.480 milljónir. Um er að ræða 17,8 stöðugildi sem kosta 6.344.000 krónur. Annar kostnaður er samtals 16.136.000, krónur af því er aðkeypt verkfræðivinna 7,8 milljónir eða meira en til allra starfsmannanna 18 á skrifstofu. Allt virðist þetta há- spennt í meira lagi. ■ Joanna Pacula og William Hurt í aðalhlutverkunum í Gorkí garðinum, ágætis austantjaldsþriller. þess að skátahreyfingin hans Androp- ovs sé með. Og hér er KGB ógurlegt apparat, sem allir eru hræddir við og (sem allir hata, ekki síst óbreyttir lögreglumenn eins og félagi Arkady. Svo er það annað: Myndin virðist Háskólabíó: Freistingar fyrir félaga Arkady ■ Gorkí garðurinn (Gorky Park). Bandaríkin 1983. Handrit: Dennis Potter, eftir samnefndri skáldsögu Martin Cruz Smith. Leikendur: Wil- liam Hurt, Lee Marvin, Joanna Pacula, Brian Dennehy, Michael Elphick, Ian Bannen. Leikstjóri: Michael Apted. í Gorkí garðinum er öllu snúið á hvolf. Sögusviðið er Moskva, þar sem þrjú ungmenni finnast myrt og lim- lestuð á hinn hroðalegasta hátt, grafin undir snjónum í garði þeim, sem myndin dregur nafn sitt af. Aðal- persónan er sem sé rússneskur leyni- lögreglumaður. Og eins og allar leyni- löggur er hann góði maðurinn. Vondi maðurinn í þessu tilviki reynist vera Bandaríkjamaður. Svo mikið um það. Að öðru leyti er þessi mynd eins og hver önnur sakamálamynd, sem ger- ist í stórborgum vesturlanda, eða svo gott sem. Hér reynist glæpurinn nefnilega vera tengdari stjórnkerfinu en glæpir fyrir vestan múrinn, sam- kvæmt hugmyndafræði bandarískra kvikmynda. Svona almennt séð. Félagi Arkady Renko fær það hlut- verk að komast að hinu sanna í málinu, og eftir því sem hann nálgast sannleikann, verður ráðgátan flókn- ari og það hitnar æ meira undir rassinum á honum. En hann er sannur Sovétmaður og stenst allar freisting- ar, sem á vegi hans verða, dollara og fleira. Félagi Arkady er ekki í KGB, því ágætis félagi, en að sjálfsögðu er ekki hægt að gera kvikmynd um Rússa án gera ráð fyrir því, að Rússar séu annað hvort allir gerspilltir svarta- markaðsbraskarar, eða skulum við segja flestir, sem hafa vestræna mun- aðarvöru eins og smokka í stöflum í óhrjálegum vistarverum sínum, eða þá hundleiðir á kúguninni heima fyrir og eigi sér þann draum æðstan að fa> a vestur yfir. Allir nema félagi Arkady. Nokkur einföldun á staðreyndum lífsins. En látum það vera. Myndin er ágætis skemmtun, haganlega gerð og vel leikin. Aldrei er hún of spennandi, en hún er heldur aldrei leiðinleg. Framvindan er hæg, en það er alltaf einhver undiralda, sem hrifsar mann með sér. Og það er meira en margur leikstjórinn getur státað af. Guðlaugur Bergmundsson. 80% hækkun Varðandi nýbyggingu gatna og hol- ræsa gerðum við tillögu um lækkun upp á 47 milljónir króna í stað 392.444.000 kæmi 345.400.000 krón- ur sem er þó ærið. Skv. áætlun meirihlutans hækkar þessi liður um 54% frá áætlun síðasta árs en um 80% frá útkomu. Við teljum að hluti af vestursvæði Grafarvogs geti beðið þar sem ekki sýnist þörf fyrir 748 íbúðir á næsta ári sé miðað við eðlilega fjölgun. Við gerðum ennfremur til- lögu um 2 milljóna kr. lækkun til skrifstofukostnaðar og sameiginlegs kostnaðar undir liðnum umferðar- mál. Meirihlutinn úti að aka Varðandi borgarskrifstofur í Aust- urstræti og Skúlatúni lögðum við til að leigubifreiðir og bifreiðastyrkir lækkuðu um 10%, en hann er áætlað- ur tæpar 7 milljónir á þessum tveimur stöðum. Nauðsynlegt er að veita aðhald í þessu máli. Á síðasta kjör- tímabili gagnrýndi Davíð Oddsson harðlega þáverandi meirihluta fyrir eyðslu og óráðsíu í þessu efni og orðaði það svo að meirihlutinn væri úti að aka. En sagt er að sagan endurtaki sig, og núverandi meirihluti er enn meira úti að aka. Lokaorð Fjárhagsstaða borgarinnar er með miklum blóma eftir skattpíningu síð- asta árs, hækkun þjónustugjalda og minni verðbólgu. Framkvæmdir verða með mestu móti ef verðlagsþró- un verður borginni hagstæð. Mestu fjármagni til einstakra byggin,;a er varið í Borgarleikhúsið 60 milljónum kr. Þá er hugsað vel fyrir væntanleg- um þörfum íbúa í Grafarvogi með byggingu skóla og dagvistarheimilis, á meðan aðrir eru settir aftur fyrir sem lengur hafa beðið og á ég þar við íbúa í Vesturbæ og Ártúnsholti, en þar eru börnin keyrð í skólarútu í annað hverfi. Á sama tíma er meiri- hlutinn í ham að losa sig við annað, eins og Skíðaskálann í Hveradölum og togara Bæjarútgerðarinnar. Ghbusa JL ir l\EW HOLLAIND rúllubindivéliii á vetrarkjörum Stillanleg baggastærö. Fastur kjarni. Stillanlegur þéttleiki. New Holland gæði Verð kr. 275.000.- Hagstæðir greiðsluskilmálar LÁGMÚLI 5, SÍMI 81555

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.