NT - 09.03.1985, Síða 14
Sjónvarp kl. 18.
Stundin okkar
■ Meðal efnis í Stundinni
okkar á sunnudag kl. 18 eru
úrslit í hljómsveitakeppninni,
karateæfing, nýja keiluhöilin í
Öskjuhlíð skoðuð og forvitn-
ast um keiluspil. Söngflokkur-
inn Sexfaldar samlokur syngur
og litið verður inn hjá skáta-
flokknum Perlum. Kynnir er
Ingibjörg Sveinsdóttir og er
hún á myndinni.
Guðmundur G. Hagalín
Njörður P. Njarðvík
Útvarp kl. 16.30 - laugardag:
Bókaþáttur Njarðar P. Njarðvík
helgaður Guðmundi G. Hagalín
■ Njörður P. Njarðvík verð-
ur með Bókaþátt sinn f dag kl.
16.30 að venju. í þetta sinn er
þátturinn helgaður Guðmundi
G. Hagalín sem lést 25. febrú-
ar sl. 86 ára að aldri.
Af nógu er að taka til upp-
lestrar þar sem bækur Hagalíns
eru, því að hann var mjög
afkastamikill höfundur.
Hvorir eru hættulegri óvinirn-
ir eða „Áfram“ njósnararnir?
Laugardagur 9. mars 1985 14
■ Áfram njósnari er fyrri
laugardagsmynd sjónvarpsins
' og hefst sýning hennar kl.
21.10.
Hér er um að ræða, eins og
nafnið bendir til, eina af hinum
víðfrægu „Áfram...“ myndum,
sem mikilla vinsælda nutu í
kvikmyndahúsum hér á landi á
sínum tíma, og er þessi gerð
1965. Hún er í svart/hvítu.
Klaufabárðarnir, sem við
þekkjum svo vel, hafa nú
brugðið sér í gerfi njósnara og
er hlutverk þeirra að endur-
heimta hernaðarleyndarmál,
sem komist hefur í óvina
hendur. Leikurinn berst víða
og venju samkvæmt klúðra
þeir öllu því, sem klúðrast
getur, þó að stöku sinnum
slampist þeir óvart til að kom-
ast að einhverju sem að gagni
getur komið. En oft má varla
á milli sjá hvorir eru skaðlegri
leyniþjónustunni, sem
„Áfram" njósnararnir eiga að
heita vinna fyrir, þeir eða óvin-
irnir.
Þýðandi er Guðni Kolbeins-
son.
Tekst loks að
góma hinn f lökt-
andiskugga?
■ Það vantar ekki að þau Charlie og Daphne eru vel vopnuð.
En það þarf fleira til...
Útvarp sunnudag kl. 13.30:
Betlaraóperan endurflutt
■ 17. janúar sl. var flutt í
útvarpi Betlaraóperan eftir
John Gay. Margt þótti tíðind-
um sæta við þann flutning,
t.d. hafði útsendingin orðið
að víkja af dagskrá fyrir
stjórnmálaumræðum frá Al-
þingi í tvígang áður en hún
loks komst út á öldur ljósvak-
ans, en biðin þótti hlustend-
um þess virði, því að vel var
að útsendingu staðið og var
hún send út í steríó, fyrsta
meiriháttar leiklistarupptaka
sem útvarpið hefur flutt með
þeirri tækni. Nú á morgun kl.
13.30 verður útsendingin
endurtekin.
Betlaraóperan var frum-
flutt í London árið 1728. Hún
var samin við vinsæl dægurlög
og alþýðutónlist samtímans
og skopstældi óperur Hándels
sem voru mjög í tísku um þær
mundir. í upptöku Ríkisút-
varpsins er tónlistin hins veg-
ar færð nær nútímanum og
hefur Atli Heimir Sveinsson
valið, samið og útsett lögin,
auk þess sem hann stjórnar
flutningi þeirra.'
Efni óperunnar er í stuttu
máli þetta:
Herra Peachum er virðu-
legur kaupsýslumaður, sem:
hagnast á því að kaúpa þýfi af
þjófum og selja þá svo í
hendur vinar síns Lockit
fangelsisverði þegar þeir eru
ekki nægilega arðbærir. En
dag einn kemur babb f bátinn
þegar Pollý dóttir hans til-
kynnir foreldrum sínum að
hún hyggist ganga að eiga
MacHeath kaptein sem móð-
ir hennar telur einn skemmti-
legasta mann í stigamanna-
stétt. Slíkt hjónaband álítur
herra Peachum ganga þvert á
viðskiptalega hagsmuni sína
og ekki batnar ástandið þegar
á daginn kemur að MacHeath
hefur verið í tygjum við Lúsí,
dóttur Lockits.
Leikstjóri Betlaraóperunn-
ar er Hrafn Gunnlaugsson,
þýðandi Sverrir Hólmarsson
og þýðandi söngtexta Böðvar
Guðmundsson. Fjölmargir
listamenn annast flutninginn
og vísast til dagskrárb.irtingar
um þá. Tæknivinnu önnuðust
Bjarni Rúnar Bjarnason og
Hreinn Valdimarsson.
■ Lokaþáttur finnska sjón-
varpsleikritsins Flöktandi
skuggi er á sunnudagskvöld kl.
21.40 og er vonandi að hann
verði venjulegum sjónvarps-
áhorfanda skiljanlegri en ann-
ar þátturinn, en þá var býsna
erfitt að átta sig á því hvað væri
að gerast.
Það fór þó ekkert á milli
mála að óhugnaður lá í loftinu
og margar sögupersónurnar
höfðu orð á því að þær væru
hræddar. Þær töluðu um nálykt
og að allt væri að sökkva í fen.
Þetta er vísast skírskotun til
þess tíma í Finnlandi, sem
sagan á að gerast á, um alda-
mótin síðustu, en þá var breitt
bil milli ríkra og fátækra og
Finnar lutu stjórn Rússa.
En nú á morgun verður
síðasti þátturinn og þá verður
væntanlega greitt úr flækjunni
sem orðin er og leyst málið um
morðið á vændiskonunni ungu
og fallegu, Önnu, sem komin
var þrjá mánuði á leið.
Þýðandi er Jóhanna Þráins-
dóttir
Sjónvarp laugardag kl. 21.10:
Sjónvarp sunnudag kl. 21.40:
Laugardagur
9. mars.
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
7.25 Leikfimi. Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð
Ástriður Haraldsdóttir talar.
8.15 Veðurfregnir.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón-
leikar. 8.55 Daglegt mál. Endurt.
þáttur Valdimars Gunnarssonarfrá
kvöldinu áður.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ.
Sthephensen kynnir. ( 10.00
Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.)
Ósklög sjúklinga, frh.
11.20 Eitthvað fyrir alla Sigurður
Helgason stjórnar þætti fyrir börn.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.40 íþróttaþáttur Umsjón: Ragnar
Örn Pétursson.
14.00 Hér og nú Fréttaþáttur í viku-
lokin.
15.15 Listapopp - Gunnar Salvars-
son.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 íslenskt mál Jón Aðalsteinn
Jónsson flytur þáttinn
16.30 Bókaþáttur Umsjón NjarðarP.,
Njarðvík á laugardag verður helgaður!
Guðmundi G. Hagalín rithöfundi.
17.10 Á óperusviðinu Umsjón: Leif-
ur Þórarinsson.
18.10 Tónleikar. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar
19.35 Á hvað trúir hamingjusam-
asta þjóð í heimi? Umsjón: Valdís
Óskarsdóttir og Kolbrún Halldórs-
dóttir.
20.00 Útvarpssaga barnanna:
„Grant skipstjóri og börn hans"
eftir Jules Verne Ragnheiður Arn-
ardóttir les þýðingu Inga Sigurðs-
sonar (8).
20.20 Harmónikuþáttur Umsjón:
Sigurður Alfonsson.
20.50 Þorrablót íslendinga í Barcel-
ona Þáttur i umsjá Kristins R.
Ólafssonar.
21.15 „Faðir og sonur“, smásaga
eftir Bernard Mac Laverty Erling-
ur E. Halldórsson les þýðingu sína.
21.35 Kvöldtónleikar Þættir úr sf-
gildum tónverkum.
22.00 Lestur Passiusálma (30)
22.15 Veðurfregnir. Fréttir . Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Þriðji heimurinn Þáttur í umsjá
Jóns Orms Halldórssonar.
23.15 Hljómskálamúsík Guðmund-
ur Gilsson kynnir.
24.00 Miðnæturtónleikar Umsjón:
Jón Örn Marinósson.
00.50 Frétlir. Dagskrárlok.
Næturútvarp frá Rás 2 til kl.
03.00.
Sunnudagur
10. mars
9.00 Fréttir.
9.05 Morguntónleikar
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Stefnumót við Sturlunga Ein-
ar Karl Haraldsson sér um þáttinn.
11.00 Messa í kirkju óháða safnað-
arins Prestur: Séra Baldur Krist-
jánsson. Organleikari: Jónas Þórir.
Hádegistónleikar.
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Leikrit: „Betlaraóperan" eftir
John Gay Þýðandi: Sverrir Hólm-
arsson. Þýðandi söngtexta: Böðv-
ar Guðmundsson. Tónlist: Atli
Heimir Sveinsson valdi og samdi.
Leikstjóri: Hrafn Gunnlaugsson.
Leikendur: Róbert Arnfinnsson,
Guðmundur Jónsson, Harald G.
Haralds, Þórhallur Sigurðsson,
Emil Gunnar Guðmundsson, Helgi
Björnsson, Karl Ágúst Úlfsson,
Hrafn Gunnlaugsson, Þuríður
Pálsdóttir, Sigrún Hjálmtýsdóttir,,
Sigrún Edda Björnsdóttir, Edda,
Þórarinsdóttir, Sigurjóna Sverris-
dóttir, Ása Svavarsdóttir, Kristin
Ólafsdóttir, Maria Sigurðardóttir
og Pétur Einarsson. Undirleik arm-
ast Sinfóniuhljómsveit Islands
undir stjórn Atla Heimis Sveins-
sonar. Aðrir hljóðfæraleikarar eru:
Guðmundur Ingólfsson, Björn
Thoroddsen, Skúli Sverrisson,
Reynir Sigurðsson, Þórir Baldurs-
son, Guðmundur Steingrimsson,
Jóhann G. Jóhannsson, Graham
Smith, Rúnar Þórisson, örn
Jónsson, Rafn Jónsson, Hjörtur
Howser, Þorleifur Gíslason, Jón
Sigurðsson og Árni Áskelsson.
(Áður flutt í janúar sl.)
15.45 Lúðrasveitin Svanur leikur
Kjartan Óskarsson stjórnar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Um vísindi og fræði Lungna-
æxli og reykingar. Þorsteinn
Blöndal yfirlæknir flytur sunnu-
dagserindi.
17.00 Frá Mozart-hátíð í Baden-Ba-
den i fyrra
18.00 Vetrardagar Jónas Guð-
mundsson rithöfundur spjallar við
hlustendur.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
"18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Fjölmiðlaþátturinn Viðtals- og
umræðuþáttur um fréttamennsku
og fjölmiðlastörf. Umsjón: Hall-
grímur Thorsteinsson.
20.50 Um okkur Jón Gústafsson
stjórnar blönduðum þætti fyrir
unglinga.
20.50 íslensk tónlist
21.30 Útvarpssagan: „Morgun-
verður meistaranna" eftir Kurt
Vonnegut Þýðinguna gerði Birgir
Svan Símonarson. Gisli Rúnar
Jónsson flytur (24).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Kotra Umsjón: Signý Pálsdótt-
ir. (RÚVAK).
23.05 Djassþáttur - Jón Múli Árna-
son.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
nv
Laugardagur
9. mars
14:00-16:00 Léttur laugardagur.
Stjórnandi: Ásgeir Tómasson.
16.00-18.00 Milli mála Stjórnandi:
Helgi Már Barðason.
Hlé
24:00-24:45 Listapopp Endurtekinn
þátturfrá rás 1. Stjórnandi: Gunnar
Salvarsson.
24:45-03:00 Næturvaktin Stjórnandi:
Margrét Blöndal.
Rásirnar samtengdar að lokinni
dagskrá rásar 1.
Sunnudagur
10. mars
13:30-15:00 Krydd í tilveruna.
Stjórnandi. Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir.
15.00-16.00 Tónlistarkrossgátan.
Hlustendum er gefinn kostur á að
svara einföldum spurningum um
tónlist og tónlistarmenn og ráða
krossgátu um leið. Stjórnandi: Jón
Gröndal.
16:00-18:00 Vinsældalisti hlust-
enda rásar 2 20 vinsælustu lögin
leikin. Stjórnandi: Ásgeir Tómas-
son.
Laugardagur
9. mars.
16.30 íþróttir Umsjónarmaður: Ing-
ólfur Hannesson.
18.30 Enska knattspyrnan. Umsjón-
armaður: Bjarni Felixson.
19.25 Þytur í laufi. 1 Landbúnaðar- <
sýningin Breskur brúðumynda-
flokkur, framhald fyrri þátta í sjón- j
varpinu um félagana fjóra: Fúsa í
frosk, Móla möldvörpu, Nagg og
Greifingja. Þýðandi: Jóhanna Þrá-
insdóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Við feðginin Áttundi þáttur.
Breskur gamanmyndaflokkur í
þréttán þáttum. Þýðandi: Þrándur
Thoroddsen.
21.10 Áfram njósnari (Carry on
spying) s/h. Bresk gamanmynd frá
1965. Leikstjóri Gerald Thomas.
Aðalhlutverk: Kenneth Williams,
Barbara Windsor, Bernard Cribb-
ins og Charles Hawtrey. Áfram-
flokkurinn æðir yfir Evrópu og allt
til Alsír til að endurheimta hernað-
arleyndarmál sem lent hefur í
óvinahöndum. Þýðandi: Guðni
Kolbeinsson.
22.35 Franski fíkniefnasalinn II
(The French Connection II) Banda-
rísk biómynd frá 1975. Leikstjóri
John Frankenheimer. Aðalhlut-
verk: Gene Hackman, Fernando
Ray, Cathleen Nesbitt og Bernard
Fresson. Popey Doyle, rannsókn-
árlögreglumaður í New York, held-
ur til Marseilles til að komast fyrir
rætur heróínsmygls til Bandaríkj-
anna. Myndin er sjálfstætt fram-
hald „Franska fíkniefnasalans"
. sem sjónvarpið sýndi 12. janúar
s.l. Þýðandi: Bogi Arnar Finnboga-
son.
Myndin er ekki við hæfi barna.
00.40 Dagskrárlok.
Sunnudagur
10. mars.
16.00 Sunnudagshugvekja Séra
Hjalti Þorkelsson flytur.
16.10 Húsið á sléttunni 16. Nýir
siðir Bandariskur framhalds-
myndaflokkur.
17.00 Saga lífsins Endursýning
Sænsk fræðslumynd gerð af Lenn-
art Nilsson. Með smásjármyndum
og annarri flókinni kvikmyndatækni
er sýnt hvernig egg og sæði
myndast, frjóvgun í eggrás kon-
unnar og vöxtur fósturs i móðurlífi.
Þýðandi og þulur: Jón O. Edwald.
18.00 Stundin okkar Umsjónar-
menn: Ása H. Ragnarsdóttir og
Þorsteinn Marelsson. Stjórn upp-
töku: Andrés Indriðason.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Sjónvarp næstu viku Umsjón-
armaður: Guðmundur Ingi Krist-
jánsson.
20.50 Glugginn Umsjónarmaður:
Sveinbjörn I. Baldvinsson. Stjórn
upptöku: Tage Ammendrup.
21.40 Flöktandi skuggi Lokaþáttur.
Finnsk sjónvarpsmynd í þremur
hlutum, gerð eftir sakamálasögu
eftir Bo Carpelan. Þýðandi: Jó-
hanna Þráinsdóttir. (Nordivision -
Finnska sjónvarpið)
22.35 Von og vegsemd. Edward
Elgar, 1857-1934 Bresk heimilda-
mynd um tónskáldið Edward Elgar
og verk hans. Myndinni var lokið
árið 1984, en þá var liðin hálf öld
frá láti þessa merka tónskálds.
Rakin er ævi Elgars í máli og
myndum og Sinfóníuhljómsveit
Birmingham leikur kafla úr verkum
hans, Simon Rattle stjórnar. Þýð-
andi: Jóhanna Þráinsdóttir.
00.05 Dagskrárlok