NT - 12.03.1985, Blaðsíða 1
Landsbanki íslands:
Leiðtogaskiptin í Sovétríkjunum:
„Ekki snöggar breytingar“
- segir Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra
■ „Ég tel, að ekki verði um
að ræða snöggar breytingar á
stefnu Sovétríkjanna, heldur
muni þær koma fram á lengri
tíma, ef einhverjar verða,“
sagði Geir Hallgrímsson utan-
ríkisráðherra, þegar hann var
spurður hvort hann teldi að
breytingar yrðu á stefnu Sov-
étríkjanna við fráfall Chern-
enkos forseta.
Geir sagðist ekki telja, að
leiðtogaskiptin hefðu áhrif á
afvopnunarviðræður risaveld-
anna, sem nú eru að hefjast í
Genf í Sviss, þar sem Gromyko
utanríkisráðherra hafi mestu
/
■ Hinn nýi leiðtogi Sovét-
ríkjanna Mikhail Gorhachev.
ráðið um utanríkisstefnuna, og
hann muni ráða henni fyrst um
sinn á meðan nýr maður væri
að festa sig í sessi.
„Það er Ijóst, að heima fyrir
búa Sovétmenn við þröngan
kost, og ef nýr leiðtogi getur
skapað meira svigrúm til að
fullnægja daglegum þörfum
fólksins, í stað áframhaldandi
vígbúnaðar, þá er ekki alveg
útilokað, að unnt sé að vonast
eftir einhverri opnun af hálfu
Sovétmanna. En um það verð-
ur ekki sagt fyrr en á reynir,"
sagði Geir Hallgrímsson.
Sjá nánar um fráfall Cheín-
enkosábls. 10-11 ogíleiðara.
Höfðar mál vegna nýtingar
Hafnarfjarðar á Thorsplani
Eignarnám, segir Landsbankinn - Hefð, segir bæjarlögmaður
■ Lögfræðingi Landsbanka
íslands hefur verið falið að
höfða mál á hendur bæjarsjóði
Hafnarfjarðar vegna Thors-
plansins svokallaða við Strand-
götu í Hafnarfirði en Hafnar-
fjarðarbær hefur um áraraðir
nýtt hluta af þessu landsvæði
undir byggingar og götur, án
þess að leysa lóðirnar til sín.
Thorsplan er í eigu Landsbank-
. ans og telur lögfræðingur bank-
ans að þarna hafi raunverulega
verið um eignarnám að ræða
sem bænum hafí borið að greiða
fyrir en bæjarlögmaður Hafn-
arfjarðar er hinsvegar þeirrar
skoðunar að þar sem engar
athugasemdir hafí borist frá eig-
endum til þess sé komin hefð
fyrtr afnotum bæjarins á spild-
um þessum.
Thorsplan, sem liggur milli
Pósts og síma og heilsugæslu-
stöðvarinnar í miðbæ Hafnar-
fjarðar, var upphaflega í eigu
Kveldúlfs h.f. en Landsbankinn
eignaðist lóðina í skuldaskilum.
Að sögn Stefáns Péturssonar,
lögfræðings Landsbankans, var
landið metið á síðasta ári og þá
kannað hvort bærinn hefði hug
á að leysa það til sín á matsverði
sem var rúrnar tuttugu milljónir.
Pví var hafnað og hefur Lands-
bankinn nú ákveðið að láta
skera úr um mál þetta fyrir
dómstólum með bótakröfu á'
hendur bæjarsj.Hafnarfjarðar.
„Hafnarfjarðarbær lítur svo á
að sumar þessara lóða séu þegar
eign Hafnarfjarðarbæjar, vegna
fyrningar, hcfðar og brostinna
forséndna á upphaflegum samn-
ingi,“ sagði Ingimundur Einars-
son, bæjarlögmaður Hafnar-
fjarðar, í samtali við NT.
Ingimundur sagði bæjarsjóð
ekki mótmæla því að Kveldúlfur
eða Landsbankinn ættu ákveðið
tilkall til hluta lóðarinnar en
spurningin væri hvað mikið.
„Bæjarsjóður fór fljótlega að
taka sneiðar af þessu landi án
nokkurra mótmæla af hálfu eig-
endanna og því telur bæjarsjóð-
ur sig hafa hefð fyrir þessum
spildum," sagði Ingimundur.
„Peir verða auðvitað að verja
sig með einhverjum hætti og því
bera þeir við fyrningu," sagði
Stefán Pétursson. „En í raun-
inni hafa þeir tekið landið eign-
arnámi og þeim ber að greiða
fyrir það.“
■ „Úr einu leikhúsi í annað“ var það fyrsta sem blm. datt í hug er Sigríður Þorvaldsdóttir tók sæti fyrir Kristínu Halldórsdóttur á
Alþingi í gær til tveggja vikna. Henni á vinstri hönd er Kjartan Jóhannsson niðursokkinn í skjöl. NT-mjnd: An
Sigríður Þorvaldsdóttir leikkona tekur sæti á Alþingi:
„Ekki með sviðsskrekk“
■ „Ég var nú ekki með
sviðsskrekk, en óneitanlega
hafði ég dálítinn hjartslátt þeg-
ar ég settist," sagði Sigríður
Þorvaldsdóttir, leikkona, sem
í gær tók sæti á, Alþingi í
fjarveru Kristínar Halldórs-
dóttur.
Kristín getur ekki sótt þing-
fundi á næstunni vegna anna á
öðrum vettvangi og sömu sögu
er að segja um 1. varamann
hennar. Því tekur Sigríður sæti
á Alþingi sem 2. varamaður
Kvennalistans. í stuttu spjalli í
gær sagðist hún vera með eitt
mál sem hún gjarnan vildi
vinna að en það er, að fatlað
fólk eigi jafngreiðan aðgang
að sýningum í Þjóðleikhúsinu
og aðrir. Að sögn Sigríðar er
þetta ekki mjög kostnaðarsöm
tillaga, það mun vera til sam-
þykkt fyrir fjárveitingu til
þessa máls, en á skortir að
málinu sé fylgt eftir. Verður
tillaga hennar lögð fram í dag
og er þar m.a. gert ráð fyrir að
fjárveitingar sl. þriggja ára til
þessa átaks verði nýttar til að
koma því í framkvæmd.
I
Úrslitakeppnin í körfu:
Njarðvík
í úrslit
- Haukar fá þriðja ieikinn
■ „Mér er alveg sama
hvort við mætum Haukum
eða Val í úrslitunum. Þetta
er bara spurningin uni það
hvaða lið verður lið mars-
mánaðar,“ sagði Gunnar
Þorvarðarson þjálfari
Njarðvíkinga eftir að þeir
höfðu lagt KR að velli öðru
sinni í undanúrslituin Is-
landsmótsins í körfuknatt-
leik í gær.
Haukar, sein ináttu þola
eins stigs tap gegn Val í
Hafnarfírði fyrir helgi,
hefndu sín nú í Laugardals-
höll með eins stigs sigri.
Þar þarf því þriðja leikinn.
Um hvað
snýst leigu-
bíladeiian?
- sjá bls.3
Sprengju-
hótun
í Eyjum
■ „Það gerðist ekkert klukk-
an sex nema það að kannski
hefur einhver hlegið úti í bæ,“
sagði verkstjóri hjá Vinnslu-
stöðinni í Vestmannaeyjum
þegar NT innti hann eftir
sprengjuhótun sem frystihúsinu
barst klukkan hálf sex í gærdag.
Var húsið tæmt í tuttugu mínút-
ur.
Klukkan hálf sex hringdi
maður, að því er talið er ein-
hvers staðar úr Vestmannaeyja-
bæ, og tilkynnti með einkenni-
legri röddu að klukkan 6 myndi
springa sprengja í vinnslusaln-
um. Að ráði lögreglu var húsið
rýmt en þar vinna nær 200
manns. Aðspurður taldi verk-
stjóri, sá sem NT ræddi við í
gær, að sá sem hringdi hafi verið
ódrukkinn.
Klýfur út-
varpslaga-
frumvarpið
stjórnina?
-sjá bls.2