NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 12.03.1985, Qupperneq 9

NT - 12.03.1985, Qupperneq 9
Þríðjudagur 12. mars 1985 9 Norræn samvinna: Kostar helming af rekstri Reykjavíkur ■ Samkvæmt áætlunum Norðurlandsráðs kostar norr- æn samvinna á þessu ári um 1,5 milljarð íslenskra króna. Þar af kostar menningarmála- samvinnan 521 milljón króna. Til samanburðar má geta þess að fjárhagsáætlun Reykjavík- ur fyrir þetta ár hljóðar upp á 3,1 milljarð króna, og því ligg- ur nærri að norræn samvinna kosti um helming af rekstri borjgarinnar á árinu. A Norðurlandaráðsþinginu i síðustu viku var samþykkt 1,7 milljarða fjárhagsáætlun fyrir norrænt samstarf á næsta ári. Er talið að á föstu verðlagi nemi aukningin um 3% ntiðað við árið áður. Þetta verður því mun minni aukning heldur en undanfarin ár, en í norskum krónum talið ferfaldaðist hinn almenni hluti fjárhagsáætlunar Norðurlandaráðs frá 1978 til 1985. Hingað til hefur fjárhags- áætlun Norðurlandaráðs verið skipt í tvennt. almenn verkefni og menningarmál. Á þinginu í síðustu viku var hins vegar samþykkt sú breyting að fram- vegis verði um eina heilsteypta áætlun að ræða, og verður fyrsta áætlunin með því móti fyrir árið 1987. Þessi breyting helst í hendur við flutning höfuðstöðva Norðurlandaráðs frá Osló og sameiningu þeirra við menningarmálaskrifstof- una í Kaupmannahöfn, en þessi sameining er talin munu spara árlega um 14 milljónir í rekstarkostnað. Framlag íslands til starfsemi Norðurlandaráðs er um 0,9% í ár, eða 13,5 milljónir ís- lenskra króna. Aðeins rekstur Norræna hússins í Reykjavík kostar á þessu ári um 11,5 milljónir króna. Fyrir utan þá peninga sem hér hafa verið nefndir standa framlög Norðurlandaþjóð- anna til efnahagssamvinnunn- ar sem ákveðið var að efna til í síðustu viku. Finnar og Danir með hagvaxtarforustuna ■ Finnland og Danmörk verða að líkindum sigurveg- arar í hagvaxtarkapphlaupi Evrópuríkja á þessu ári. IFO- stofnunin í Munchen hefur spáð því að þjóðarframleiðsla Finna vaxi á árinu um 3,5%, en þjóðarframleiðsla Dana um 3%. Norðurlöndin tvö höfðu ennfremur forustuna á síðasta ári, þá með um 4% aukningu þjóðarframleiðsl- unnar. Næst á eftir Danmörku, og líklega mjög nálægt, verða í ár Svíþjóð, Italía og Austur- ríki. IFO-stofnunin spáir því að meðalhagvöxtur í Evrópu á árinu verði um 2,4%. Gengi. Þetta magn afnokkrum myntum fyrir einn doilara 0.4 ------1----1- 1980 -I------1-----L 85* 1980 85* 1980 —i 200 L— —i— -i——i—i 85* 1980 85 ’Fnday'sciose. Dollarinn heldur flugi Hvað gera seðlabankastjórar Evrópu? ■ Seðlabankastjórar nokk- urra stærstu iðnríkja heims hittast enn á ný í Basel í Sviss í þessari viku. Umræðuefnið verður það sama og áður, yfir- burðastaða Bandaríkjadollars á alþjóðagjaldeyrismarkaði. Síðustu aðgerðir þessara bankastjóra til að lækka ögn flugið á dollaranum - tveggja milljarða sala á dollurum í lok febrúar - höfðu takmörkuð og skammvinn áhrif. Dollarinn er aftur orðinn jafnsterkur og fyrr. Nú spyrja bankastjórarnir án efa hver annan hvort nauð- synlegt sé að grípa til öflugri aðgerða en nokkru sinni, eða hvort frekari tilraunir til að hefta klifur grænu myntarinnar séu fyrirfram dauðadæmdar. Afstaða Bandaríkjastjórnar sjálfrar skiptir höfuðmáli í þessu sambandi. Svo lengi sem stjórnin tregðast við að veita hemlunaraðgerðum iið, þá telja rnargir sérfræðingar engra breytinga að vænta. Sumir embættismenn stjórnarinnar virðast a.m.k. hlynntir aðgerð- um. Paul Volcker,seðlabanka- stjóri landsins, átti að sumu leyti frumkvæðið að aðgerðun- um í febrúarlok með hvatning- um sínum við bandaríska þing- nefnd 26. febrúar. Evrópskir seðlabankar gripu boltann á lofti daginn eftir, hófu stórsölu á dollurum með þeim af- leiðingum að þessi sterkasti gjaldmiðill heims féll um 5% á tveimur klukkustundum. En bandaríski seðlabankinn sat hjá og fylgdi í engu eftir yfirlýs- ingum Volcker með áþreifan- legum hætti. Reagan forseti og Regan starfsmannastjóri munu beita sér gegn beinni íhlutun bandaríska seðlabankans sem bitna myndi á dollaranum. Bandaríkjastjórn sér eflaust þann kost við afskiptaleysið að hinn geysisterki dollar, í sam- vinnu við 8% raunvexti, dreg- ur stöðugt að sér erlent fjár- magn inn á bandarískan fjár- málamarkað. Þetta erlenda fjármagn hefur til þessa nægt til að fjármagna sívaxandi við- skiptahalla Bandaríkjanna. En hallinn er að sínu leyti afleið- inga af stöðu dollarans. Þannig hefur samkeppnisstaða banda- rískra fyrirtækja fariö hríð- versnandi á síðustu árum, sem bæði hefur komið fram í aukn- um innflutningi til landsins og minnkandi útflutningi frá land- inu. Sem dæmi má nefna að innflutningur erlendra fata- framleiðenda á bandarískan markað óx um 21% í fyrra, sem lyfti markaðshlutdeild þeirra í 40%. Verslun með hátæknivörur hefur ætíð verið Bandaríkjamönnum hagstæð, en í ár er talið að hún verði rétt í jafnvægi. Talið et að vöru- skiptahalli Bandaríkjanna í ár verði 140 milljarðar dollara, en að viðskiptahallinn, efheld- ur fram sem horfir, gæti verið kominn í 300 milljarða dollara árið 1990. Ytt undir viðskiptastríð? Til þess að vinna gegn við- skiptahallanum hefur Banda- ríkjastjórn freistast til að grípa í sívaxandi mæli til beinna og óbeinna innflutningshafta. Þannig er haft eftir Fred Bergsten, stjórnanda Institute for International Finance í Washington, að þessi stjórn hafi hert innflutningshöft meira en nokkur önnur stjórn Bandaríkjanna síðan á þriðja áratug aldarinnar. Er ekki að efa að þessar ráðstafanir séu þeim Reagan og félögum þvert um geð. Sumir óttast að nýju höftin kunni fyrr eða síðar að leiða til gagnráðstafana ann- arra ríkja, eða hreins viðskiptastríðs, sem hafa myndi alvarlegar afleiðingar fyrir alla milliríkjaverslun. Afleiðingarnar af stöðu doll- arans eru annars flóknari en svo að þeim verði gerð tæm- andi skil. Þannig hjálpar doll- aráklifrið Reagan-stjórninni við að halda niðri verðbólgu í landinu. Á sama hátt eykur ■ Það gekk glymrandi vel hjá Glit í fyrra, en starfsfólk þar vinnur að því að baeta um betur í ár. NT-mjnd: Róbcn. Leirvörugerð brýtur af sér samkeppnina klifrið verðbólguvanda ýmissa Evrópuríkja. Þessi ríki fá í staðinn aukna eftirspurn eftir útflutningsvörum sínum, og meiri hagvöxt. En í þessari viku snýst málið um getu seðlabanka Evrópu til að hafa áhrif á þróunina. Yms- ir benda á að bankahópur þar sem ríkasti bankinn - í Vestur- Þýskalandi - á samtals um 35 milljarða dollara, geti litlu ráð- ið til langs tíma á markaði þar sem viðskiptin eru um 200 milljarðar dollara á dag. Byggt á Kconomist, Reutcrsog Newsweek. ■ Á sama tíma sem lækkandi tollar, föst gengisskráning og stóraukinn innflutningur hafa gert innlendum iðnaði erfitt fyrir, þá virðast a.m.k. tvær smærri iðngreinar hafa átt góðu gengi að fagna. Þetta eru leirvöruiðnaður og skraut- vörugerð. Veltuaukning í þess- um greinum á fyrstu níu mán- uðum ársins í fyrra varð hvorki meiri né minni en 89% og 84% frá sömu mánuðunum árið áður. Stærsta og rótgrónasta leir- vörufyrirtæki landsins er Glit h.f. Ragnar Kjartansson, myndhöggvari, stofnaði fyrir- tækið árið 1958. Nú starfa hjá Glit um 20 manns. Veltan á síðasta ári varð um 20 milljónir króna, - meiri að raunvirði en nokkurt fyrri ára. „Við komum nteð ntikið af nýjungum, sem hittu vel í mark,“ sagði Orri Vigfússon, framkvæmdastjóri Glits, um velgengni fyrirtækisins á síð- asta ári. Sérstaklega var nýrri popplínu vel tekið hér á heima- markaði; það var á þessum markaði sem söluakningin varð mest í fyrra. Ég held að við höfum aukið okkar hlut- deild í þessum markaði á ár- inu, og af því erum við mjög hreyknir," sagði Orri. Auk heimamarkaðarins sel- ur Glit eiginlega á tveimur öðrum mörkuðum, erlendum markaði og svo túristamark- aðnum hér innanlands, „sem er afskaplega ólíkur hinum báðum" að því er Orri segir okkur. Á túristamarkaðinum er mest selt af munum sem bera þjóðlegt svipmót, gjarnan skreyttum íslensku hrauni, sem lengi einkenndi fram- leiðslu Glits. Bein sala á er- lendan markað datt niður í 15% af heildarsölunni í fyrra, en hafði mest orðið 35%. Orri sagði að vegna óhagstæðra skilyrða hefði þessum markaði verið lítið sinnt á síðasta ári. En hvaða líkur eru á að leikurinn frá því í fyrra verði endurtekinn í ár? „Eg geri ráð fyrir að heimamarkaðurinn muni standa nokkurn vegin í stað næstu mánuði, en vaxa aftur í haust,“ sagði Orri Vig- fússon. „Hins vegar held ég að það verði stöðug aukning á ferðamannamarkaðnum. Við erum að undirbúa nýjar línur sem við höldum að muni slá í gegn.“ Sífelld vöruþróun er grund- vallarboðorð í leikvöruiðnað- inum, „Ef við erum ekki sífellt að koma með einhverjar nýj- ungar, þá vill engin verslun við okkur tala. En þetta gerir það að verkum að það er afskap- lega gaman að vera í þessu, og spennandi," sagði Orri Vigfús- son að lokum. Nýtt framleiðslu- met í Svíþjóð ■ Sænsk iðnaðarframleiðsla náði nýju hámarki á síðasta ári. Þar með var lokið eins konar „töpuðum" áratug, þar sem iðnaðarframleiðslan rétt hjakkaði í sama fari eða minnkaði. Árið 1984 varð iðn- aðarframleiðslan í fyrsta skipti meiri en hún varð árið 1974, og munaði 5% á þessum árum. Samdrátturinn upp úr 1974 hefur aðallega verið kenndur við olíukreppuna. Sænsk iðn- fyrirtæki brugðust við hinum aukna kostnaði sem varð vegna olíuverðhækkana á sama hátt og í ýmsum öðrum löndum, með því að draga úr framleiðslu. Lítils háttar bati varð 1979-80, en á eftir fylgdi tveggja ára samdráttur. Núver- andi bati hófst um haustið 1982; aukning iðnaðarfram- leiðslunnar 1982-83 varð 5%,en 1983-84 um 7%. á nvítu býdur hlutafé ■ Bókaforlagið Svart á hvítu býður nú rúmlega 40% af upp- haflegu hlutafé félagsins til kaups á almennum markaði. Heildarupphæð þessa hlutafj ár er 230 þúsund krónur. Líkur eru á að enn meira hlutafé verði falt hjá félaginu innan skamms því stjórn þess hefur ákveðið að leggja til við hlut- hafafund að upphaflegt hlutafé verði nær því tvöfaldað. Svart á hvítu hefur starfað í þrjú ár. Fyrstu tvö árin gekk félaginu illa, vegna samdráttar í bókasölu í landinu bæði árin. Þá hlóðust upp skuldir, sem félagið er enn að glíma við, og liggja að baki hlutafjárútboð- inu. í fyrra vænkaðist hagur Svarts á hvítu verulega. Þá varð rekstrarhagnaður félags- ins rúm milljón króna. Stjórn félagsins er sannfærð um að kaup á bréfum þess núna sé arðvænleg fjárfesting sem eigi eftir að skila sér margföld til baka á fáum árum.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.