NT - 12.03.1985, Blaðsíða 10

NT - 12.03.1985, Blaðsíða 10
ffl Þriðjudagur 12. mars 1985 10 irlerBt: yfirlit Stefna Sovétríkjanna mun verða óbreytt fyrst um sinn Áhrif kynslóðaskiptanna koma fram síðar ■ FRÁFALL Chernenkos forseta Sovétríkjanna og aðal- leiðtoga Kommúnistaflokks Sovétríkjanna kom ekki á óvart. Það var strax vitað, þegar hann var kosinn leiðtogi Kommúnistaflokksins í febrú- armánuði í fyrra, að hann átti við alvarlegt heilsuleysi að stríða. Valdatíð hans gæti því orðið stutt, líkt og fyrirrennara hans, Júris Andropov, sem gegndi störfum í rúmt ár. Það kom því flestum á óvart, þegar Chernenko var valinn eftirmaður Andropovs. Almennt var það talið merki þess, að ekki hafði að sinni náðst samkomulag um neinn af hinum yngri mönnum í framkvæmdanefnd flokksins (politburo), og því horfið að þcirri bráðabirgðalausn að velja Chernenko. Sökum veikinda sinna og stutts valdatíma, fékk Ghern- enko ekki tækifæri til að marka spor í sögu Sovétríkjanna. Hann fylgdi í stórum dráttum þeirri stefnubrcytingu, sem Andropov var búinn að marka og Brésnjef að nokkru leyti á undan honum. Hún var að verulegu leyti fólgin í því að draga heldur úr miðstýringu og auka frjálsræði innan vissra atvinnugreina. Þá var í tíð Andropovs ráðist meira gegn spillingu, scm hafði myndast innan stjórnkérfisins. Þegar rætt var um liver yrði eftirmaður Andropovs bar mest á nöfnum tveggja yngri manna, Grigoris Romanov og Mikhails Gorbachev. Hvorug- ur hlaut hnossið, en margt bendir til, að Andropov hafi ætlað Gorbachev að taka við af sér. Gorbachev virðist hafa styrkt stöðu sína síðan og yfir- leitt hefur verið rætt um hann að undanförnu sem líklegasta eftirmann Chernenkos. Það styrkir þetta álit, að hann hefur nú verið boðinn til að sjá um útför Chernenkos. Gorbachev er nýlega orðinn 54 ára, fæddur í sveitaþorpi í námunda við Stavropol í Suð- ur-Rússlandi 2. mars 1931. Á þessum slóðum voru þeir upp- runnir Mikhail Suslov, sem lengi varhelsti hugmyndafræð- ingur rússneskra kommúnista, og Andropov. Gorbachev er kominn af bændafólki í báðar ættir og vann við sveitastörf í uppvextinum. Árið 1955 lauk Gorbachev laganámi við háskólann í Moskvu, en hélt að því loknu til heimahéraðs síns og hófst fljótt til forustu í flokksstarfinu þar. Á þessum árum stundaði iiann bréfaskólanám í búfræði og aflaði sér þekkingar í land- búnaðarmálum á annan hátt. Talið er, að það hafi átt sinn þátt í því, að Suslov fékk því til vegar komið, að Gorbachev var kvaddur til Moskvu og ráðinn til starfa hjá fram- kvæmdanefndinni sem sér- fræðingur í landbúnaðarmál- um. Þar vann Gorbachev sér það álit, að hann var kjörinn í framkvæmdastjórn flokksins tveimur árum síðar og var þá langyngsti maðurinn í henni. Gorbachev heimsótti Kan- ada 1983 og Bretland á síðast- liðnu hausti. Hann vann sér gott álit í þessum ferðalögum og lét m.a. Margaret Thatcher vel af viðræðum við hann. í Bretlandsferðinni var kona hans, Raisa, með honum og varð eftirlætisgoð blaðanna ekki síður en maður hennar. Ef niðurstaðan verður sú, eins og nú er spáð, að Gorba- chev tekur við af Chernenko, verða brátt mikil kynslóða- skipti, því að nú eru mörg óskipuð sæti í framkvæmda- stjórninni, og er ekki ósenni- legt, að Gorbachev skipi þau yngri mönnum. Hins vegar er því þó ekki spáð, að Gorba- chev beiti sér fyrir miklum breytingum í fyrstu. Hann muni inn á við feta í fótspor Andropovs, en í utanríkismál- um muni Gromyko verða áfram ráðamestur. Síðar meir gæti hins vegar mátt vænta rneiri breytinga. Fari svo, sem er andstætt flestum spám nú, að Gorba- chev missi af forustunni, mun valið ef til vill falla á Romanov en þó að öllum líkindum frekar á einhvern eldri mann, t.d. Victor Grishin, sem var um skeið leiðtogi verkalýðssam- takanna, en síðar flokksleið- togi í rússneska lýðveldinu, stærsta lýðveldinu innan Sovét- ríkjanna. Hann er urh sjötugt. Hins nýja leiðtoga Sovét- ríkjanna bíður erfitt hlutverk. Vígbúnaðurinn hvílir þungt á Sovétborgurum, en þeir munu þó tclja nauðsynlegt af öryggis- ástæðum að geta staðið jafn- fætis Bandaríkjunum. Meðan Bandaríkjastjórn stefnir að yfirburðum á hernaðarsviðinu, ■ Chernenko munu Rússar sætta sig við þungar byrðar vegna vígbún- aðarins. Það mun vafalaust geta haft veruleg áhrif á hina nýju stjórn, hver viðbrögð vest- rænna þjóða verða. Stefni þau að bættri sambúð og viðskipt- um við Sovétríkin og Austur- Evrópuríkin yfirleitt, mun því vafalaust vel tekið í Moskvu og draga úr þeirri tortryggni, sem þar ríkir og er m.a. arfur frá heimsstyrjöldunum tveim- ur. Það veltur því ekki á vald- höfunum í Moskvu einum, hvernig málin þar þróast. ATH.: Meðfylgjandi grein Þórarins Þórarinssonar var skrifuð áður en sagt hafði verið frá kjöri Gorbachevs í embætti aöalrit- ara Koinmúnistaflokksins, en eins og lesendur sjá, telur Þór- arinn það lang líklegasta möguleikann, þannig að grein- in heldur að fullu gildi sínu. Lífshlaup Chernenkos Chernenko var ekki mikið þekktur á þessum tíma, því að hann reyndi ekki neitt til þess að skyggja á foringja sinn. Þvert á móti reyndi hann að láta sem minnst á sér bera. Það kom því nokkuð á óvart, þegar Brésnjef beitti sér fyrir því 1978, að Chernenko fékk sæti í Politburo en nokkru áður var hann orðinn einn af tíu riturum eða framkvæmda- stjórum flokksins. Það var Ijóst á þessum árum, að Brésnjef treysti Chernenko betur en öðrum og ætlaði hon- um að taka við formennskunni af sér. Andropov varð honum hins vegar hlutskarpari þegar þar að kom. Chernenko tókst hins vegar að halda stöðu sinni sem annar valdamesti maður flokksins, en það dæma menn af myndum, sem teknar voru af fulltrúum í Politburo á þeim tíma. Myndirnar þykja merki um hvernig fulltrúarnir standa í valdastiganum. Sennilega hefur valið á Chernenko verið einróma í Politburo. Gömlu mennirnir hafa stutt hann, en yngri mennirnir ekki lagt til sam- keppni við hann, enda þótt líklegt, að hann stæði ekki lengi í vegi þeirra sökum aldurs. Chernenko var aðeins 13 mánuði í valdastóli en hann dó úr hjartabilun á sunnudags- kvöldið 10. mars klukkan 7,20 73ja ára að aldri ■ Konstantin Chernenko var fæddur í Síberíu, 24. sept- ember 1911. Hann var af bændaættum og virðist ekki hafa hlotið mikla menntun í uppvextinuni. Annars segirlít- ið af honum á þeim tíma. Þess er getið, að hann hafi verið landamæravörður á árunum 1930-1933, en þá hafi hann orðið starfsmaður flokksins í hcimahéraði sínu og sennilega haft að aðalstarfi að vekja hugmyndafræðilegan áhuga flokkssystkina sinna. Á árunum 1943-1945 sótti hann skóla fyrir væntanlega flokksleiðtoga og bendir það til, að hann hafi þá verið ’oúinn að vinna sér það álit að vera vel fallinn til fræðilegrar leið- sagnar. Nám hans réði því hins vegar, að hann kom lítið við sögu styrjaldarinnar. Fyrst eftir skólanámið ber ekki mikið á Chernenko , en 1948 er hann sendur til Molda- víu til starfa á vegum flokksins þar. Tveimur árum seinna tók Brésnjef við flokksforustunni í Moldavíu, og eftir það tekur vegur Chernenkos að vaxa. Hann verður strax handgeng- inn Brésnjef og það hélst áfram, þótt Brésnjef færi á undan honum frá Moldavíu. ■ Eftir andlát Brésnjefs varð Yuri Andropov hlutskarpari í valdabaráttunni innan Kommúnistaflokksins þrátt fyrir að Chernenko hafi verið Brésnjefhandgengnari. Andropov lést 9. febrúar 1984 eftir aðeins 15 mánaða setu í sæti æðsta valdamanns Sovétríkjanna. Chernenko sat aðeins 13 mánuði í þessum sama valdastól. Hann lést á sunnudagskvöldið 10. mars 73ja ára að aldri. Þegar Brésnjef fékk það hlutverk 1956, að hafa eftirlit bæði með þungaiðnaðinum og hergagnaiðnaðinum, kvaddi hann Chernenko frá Moldavíu og gerði hann að persónulegum ráðunaut sínum. Eftir að Brésnjef varð for- maður Kommúnistaflokksins 1964 máttu hann og Chern- enko heita óaðskiljanlegir. Chernenko fylgdi Brésnjef á nær öllum ferðum hans utan- lands og innanlands og varð brátt eins konar staðgengill hans .ef Brésnjef forfallaðist. Þetta varð enn meira áberandi eftir að heilsu Brésnjefs tók að hraka.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.