NT


NT - 12.03.1985, Side 21

NT - 12.03.1985, Side 21
 ÍTF ? Þriðjudagur 12. mars 1985 21 LlU Útlönd Chernenko látinn: Reagan verður ekki viðstaddur útför Chernenkos Washinglon-Moskva-Reuter ■ Reagan forseti Bandaríkj- anna ákvað í gær að vera ekki viðstaddur útför leiðtoga Sov- étríkjanna Konstantin Chern- enkos. Þetta var haft eftir tals- mönnum Hvíta hússins í gær. í stað Reagan mun George Bush varaforseti fara til Moskvu. Útför Chernenkos fer fram á miðvikudaginn n.k. á Rauða torginu í Moskvu, en lík hans mun liggja í viðhafnarbörum í súlnasalnum. Chernenko lést á sunnudags- kvöldið klukkan 7,20, 73 ára að aldri. Hjartabilun leiddi hann til dauða en hún stafaði af lifrar- og lungnasjúkdómum að sögn TASS fréttastofunnar. Chernenko tók við af Yuri V. Andropov sem dó 9. febrúar 1984. Hann var kosinn aðalritari Kommúnistaflokksins nokkrum dögum síðar 13. febrúar. Mikhail Gorbachev, 54 ára, hefur verið kjörinn aðalritari flokksins af forsætisnefnd flokksins. Tilkynningin um kjör hans barst aðeins nokkrum klukkustundum eftir að andlát Chernenkos hafði verið tilkynnt í gær. Gorbachev kjörinn aðalritari Kommúnistaflokksins Bonn, Moskva-Rcutcr ■ Aðeins fáeinum klukku- stundum eftir að tilkynnt var um andlát forseta Sovétríkj- anna, Konsantin Chernenkos var tilkynnt að forsætisnefnd Kommúnistaflokksins hafi kos- ið Mikhail Gorbachev sem aðal- ritara flokksins. Gorbachev, sem aðeins er 54 ára að aldri, er yngsti meðlimur forsætisnefndarinnar. Hann var einróma kjörinn aðalritari. Einn helsti sérfræðingur V- Þjóðverja í málefnum Sovét- ríkjanna Wolfgang Leonard sagði í gær líklegt að Gorbachev muni lenda í átökum við flokksbræður sína í Kreml. Þeir munu takast á um stefnu Sovét- manna á mikilvægum sviðum. „Það verður innri ágreiningur í leiðtogasveit Sovétríkjanna,“ sagði Leonard, „harðlínuhauk- arnir kringum Romanov munu reyna að ná yfirhöndinni yfir hægfara félögum sem fylgja Gorbachev að málum. Það lítur út fyrir að Gorba- chev muni verða „fremstur meðal jafningja í forystusveit- inni,“ sagði Leonard. Hann tel- ur að gamli valdakjarninn sem utanríkisráðherrann Andrei Gromyko tilheyrir muni tryggja stöðu sína. Fylgismenn Gorbachevs munu leggja mikla áherslu á að áhrif hans verði tryggð allt frá byrjun því hann gæti orðið leið- togi Sovétríkjanna næstu 20 árin. Andlát Chernenkos kemur á óvart Moskva-Reuter: ■ Andlát Chernenkos kom al- menningi í Sovétríkjunum nokkuð á óvart í gær en ekki varð séð að fólk hafi komist í tilfinningalegt uppnám vegna andlátsfréttarinnar. „Drottinn himinhæða," hróp- aði eldri kona upp yfir sig þar sem hún kom út úr gúmmíversl- un við Rauða torgið. Hún flýtti sér að krossa sig en missti við það pakkana á gangstéttina. En viðbrögð hennar voru undan- tekning frá viðbrögðum flestra sem virtust taka fréttinni með jafnaðargeði. „Hvað kemur mérþað við?“ spurði miöaldra kona sem oln- bogaði sig gegnum mannþröng- ina á verslunargötunni Gorky- stræti. „Ég þarf eftir sem áður að fæða fjölskyldu mína og klæða.“ Flokkur kvenna í vinnufötum birtist von bráðar og sópaði burt snjónum af gangstéttinni við Kremlarmúrinn við Rauða torgið þar sem látnir leiðtogar Sovétmanna hvíla. Nokkrum mínútum síðar komu lögreglumenn á vettvang og rýmdu torgið rauða. ■ Á Rauða torginu stuttu áður en tilkvnnt var um andlát Konstantin Chernenkos forseta Sovétríkjanna. Almenningur tók tilkynningunni með jafnaðargeði en virtist þó nokkuð undrandi. Símamynd Polfoto. Límdur við reiðhjólið Oxford-Reuter ■ Hjólreiðamaðurinn Martin Scarrott varð fyrir mjög óþægilegri reynslu nú um daginn. Einhver hafði borið súperlím á stýrið á hjólinu hans þannig að hann festist við það þegar hann hjólaði af stað út á fjölfarna umferðargötu í Oxfort. Scarrott, sem er tvítugur sjónvarpssölumaður, skildi hjólið eftir gæslulaust í hálf- tíma á meðan hann fór og ræddi við viðskiptavin. Þegar hann kom aftur, brá hann sér á bak og hjólaði af stað eftir fjölfarinni götu að hættuleg- um gatnamótum. Þar þurfti han að hægja á sér en þá kom í ljós að hann gat ekki heml- að þar sem hendurnar voru fastar við stýrið. Honum tókst samt að bjarga lífi sínu með því að hjóla upp á gang- stéttina þar sem hann fékk slæma byltu. Síðan reyndi hann að losa sig frá hjólinu en það tókst ekki fyrr en hann hafði haltr- að á sjúkrahús þar sem lækn- ar notuðu efnablöndu til að leysa upp límið. Bandarísk aðstoð við Mali Bamako-Reuter ■ Bandaríkjamenn hafa skuldbundið sig til að senda nú þegar 60.300 tonn af mat- vælum til Afríkuríkisins Mali þar sem nú er mikil hungurs- neyð vegna þurrka. Að auki hafa Bandaríkja- menn lofað að láta Malimenn fá 7,9 milljón dollara í þróun- araðstoð nú þegar og 18 milljón dollara til viðbótar á næstu þremur árum. Mali er eitt af tíu fátækustu löndum heims. Landið var frönsk nýlenda þar til fyrir 25 árum. Nýjar fjölda- grafir í Perú Huanta, Perú-Reuter. ■ Bændur nálægt Huantaborg í Suðaustur-Perú hafa fundið nýjar fjöldagrafir með að minnsta kosti þrjátíu líkum. Skærur milli stjórnarher- manna og skæruliða maoista í Sendero Luminoso (Stígnum skínandi) eru algengar á þessu svæði. Þar hafa áður fundist þrjár fjöldagrafir með um hundrað líkum. Næstum því fimm þúsund manns hafa látið lífið í innan- landsátökum frá því skæruliðar maoista hófu stríð sitt gegn stjórninni fyrir fimm árum. Frídögum fjölgað vegna umferðar Kairó-Reuter. ■ Egypsk stjórnvöld hafa ákveðið að taka upp tveggja daga frí í hverri viku fyrir starfs- menn ráðuneyta í stað eins dags áður. Ástæðan fyrir þessari ákvörð- un stjórnvalda er sögð vera gífurlegur umferðarþungi og umferðarteppur í Kairó þar sem um 14 milljónir manna búa. Embættismenn hafa hingað til aðeins fengið frí á föstudögum sem er helgidagur múhameðstrú armanna. En nú mun hluti þeirra að auki fá frí á fimmtu- dögum og aðrir á laugardögum. Embættismennirnir verða þó eftir sem áður að vinna 36 stundir á viku. BLAÐBERA VANTAR BIRKIMELUR, GRENIMELUR, HAGAMELUR, AÐALLAND, ALALAND, ÁLFALAND, ÁRLAND, BRAUTARLAND, KJARRVEGUR, MARKARVEGUR, LAUGAVEGUR l!l EINNIG VANTAR BLAÐBERA A BIÐLISTA í ÖLL HVERFI : 1 tU 'f • !!?. ~i tTLÍij .............. !! * m 1Þ’ * • • • i ii i !1 | j' * j;.* jív Síðumúlil 5. Sími 686300

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.