NT - 13.03.1985, Blaðsíða 8
Lesendur hafa ordid
Miðvikudagur 13. mars 1985 8
Skrifið til:
... eða hringið í
síma 686300
milli kl. 13 og 14
Lesendasíðan
Síðumúla 15
108 Reykjavík
Sunnudaninn 24. fchrúar i Gainla Bió kl. 17.00 og 20.00.
Alþingismenn eiga
að framkvæma
vilja meirihlutans
Hættum norrænni
samvinnu strax
irMAWXC^^SlA.I'LMUNTWÍfASTAf HElMirontoUUNNAÍ *
Cn-rvu MHuj.lMra I MIOT T-ft. « ogtMlu
■ Bréfritari er ánægður með Jón Baldvin og Árna Johnsen.
■ Ég vil lýsa ánægju minni
með þá Jón Baldvin og Árna
Johnsen og framkomu þeirra á
nýyfirstöðnu Norðurlanda-
þingi hér í Reykjavfk. Að vísu
eru þeir ekki nægilega róttæk-
ir, þrátt fyrir jákvæðar yfir-
lýsingar í garð hinna Norður-
landabúanna.
Það er tími til kominn að við
slítum norrænu samstarfi sem
er ekkert annað en hégómlegur-
uppskafningsháttur einu sinni
á ári. Hvað eigum við sameig-
inlegt með þessum þjóðunt,
alls ekki neitt. Norðmenn eru
lagstir í gróðavímu olíufundar-
ins, Svíar hafa meira en nóg að
glíma við vandamál sín og
finna upp fleiri, Danir hafa
bjór og Finnar heimta afsökun-
■ Fað hefur komið í ljós í
tveimur nýlegum skoðana-
könnunum að um það bil tveir
þriðju hlutar þjóðarinnar vilja
fá almennilegan bjór irin í
landið. Það verður fróðlegt að
fylgjast með hversu stór þessi
meirihluti þarf að verða til
þess að hinir háttvirtu alþingis-
menn okkar íslendinga átti sig
á því að þeim ber að vinna
störf sín í samræmi við vilja
meirihluta landsmanna, í stað
þess að standa vörð um hags-
muni einhverra minnihluta-
hópa.
I’að er reyndar mjög undar-
legt að hlutföllin með og á
móti bjórnum skuli vera svo
allt önnur innan Alþingis en
þau eru meðal þjóðarinnar í
heild. Það virðist sem sé alls
ekki víst að mcirihluti alþingis-
manna sé bjórnum fylgjandi
þótt svo sé um tvo þriðju hluta
Islendinga.
Þetta bendir ótvírætt til þess
að alþingismenn séu sjóðbull-
andi vitlaust úrtak af þjóðinni,
svo notað sé skoðanakannana-
mál. Sé svo hlýtur að vera stór
spurning hvort ekki þarf að
breyta kosningafyrirkomulag-
inu og koma málum svo fyrir
að alþingismenn séu sannir
fulltrúar þjóðarinnar sem þeir
eiga að vinna fyrir. Þetta mætti
t.d. gera á þann hátt að alþingis-
menn væru dregnir úr þjóðskrá
með tilviljunaraðferð, líkt og
lagt er til að gert verði með
útvarpsráð í útvarpsfrumvarpi
Kvennalistans. Best gæti ég
trúað að við fengjum betri
þingmenn með því móti.
Bjórvinur
■ Tveir þriðju hlutar þjóðarinnar vilja bjórinn, segir brélritari.
arbeiðnir út af smávægilegum okkur úr norrænni samvinnu,
yfirsjónum sem ekki skipta viðgetumeflaustséðumokkar
neinu máli. mál sjálf, án aðstoðar „frænd-
Ég tel að við ættum að segja þjóða" okkar.
■ Eru strætisvagnarnir
■ ■ m m stundum á undan áætlun?
Stræto of
snemma á ferðinni
■ Það er undarlegt hversu
oft það kemur fyrir að strætó
sé á ferðinni á vitlausum
tímum. Stundum kveður svo
rammt að þessu að maður fær
á tilfinninguna að þeir tímar
sem auglýstir eru af hálfu SVR,
séu einu tímarnir sem ekki
þýði að ætla að ná strætó.
Nú er þetta sem betur fer
ekki alltaf svona og þeir bíl-
stjórar eru vissulega til sem
halda áætluninni býsna vel. í
rauninni er kannski ekki hægt
að setja mikið út á það þótt
vagnarnir séu nokkru seinna á
ferðinni en auglýst er, því
auðvitað getur alltaf eitthvað
komið upp á sem seinkar þeim.
Hitt er öllu verra þegar
vagnarnir eru á undan áætlun,
- leggja kannski af stað einni
eða tveim mínútum fyrr frá
endastöð heldur en þeir eiga
að gera og svo er keyrt í
hvínandi hvelli til þess að bíl-
stjórinn geti veríð fimm mínút-
um lengur í kaffi en hann ætti
að vera.
Einkum er þetta bagalegt á
kvöldin og um helgar þegar
ferðir eru sjaldnar. Þá geturðu
sem hægast lent í því að þurfa
að bíða í hálftíma eða vel það
vegna þess eins að bílstjörinn
var orðinn svo kaffiþyrstur.
Þess vegna ágætu vagnstjórar
SVR, reynið endilega að halda
áætlun og umfram allt verið
ekki á ferðinni fyrr en á tilsett-
um tíma.
Farþegi
Frábærar sýningar hjá
Lawson og aðventistum
Hafnarfírði 8. mars 1985.
■ Á miðvikudaginn sá ég
frétt í NT um sýningarnar i
Gamla bíói. Ég er svolítið hissa
á viðbrögðum Edntunds Bell-
ersen því þessar sýningar hafa
sannarlega verið frábærar.
Það er langt í frá að þetta séu
„einfaldar túristamyndir".
David Lawson er skemmtileg-
ur fyrirlesari og verulega góður
Ijósmyndari. Þeir sem ekki
hafa séð þessar sýningar hafa
misst af athyglisverðum sýn-
ingum.
Það er greinilegt að David
Lawson er trúaður maður og
trúir Biblíunni, og er að vekja
athygli á áreiðanlcika hennar,
en þeir sem e.t.v. kæra sig ekki
um kristindóm og Biblíuna
þurftu ekki að verða fyrir von-
brigðum varðandi Egyptaland,
Líbanon og Babýlon. Það var
greiniiegt að David Lawson
var vel heima á þessum slóðum
og notaði mestan hluta sýning-
arinnar í fróð leik um þær.
Það á ekki að hafa þurft að
taka neinn 3 sýningar til þess
að komast að því að aðventist-
ar stóðu að þessu með David
Lawson, það var upplýst þegar
sæti voru pöntuð hverjum sem
vita vildi.
Ég vil þakka bæði David
Lawson og aðventistuni fyrir
þessar stórglæsilegu sýningar
og finnst meira en tímabært að
vekja athygli á áreiðanleik
Biblíunnar.
Svona í lokin vil ég taka það
fram að ég er ekki aðventisti.
Gunnar Ingibergsson,
Hal'narfírði.
Aðventistar auglysa fyrir
lestraröð um fornminjar:
Fyrirlestrarnir
reyndust
trúarsamkomur
FORTÍÐARINNAR