NT - 13.03.1985, Blaðsíða 10
I
Miðvikudagur 13. mars 1985 10
„Erfldleikar þjóöarbúsins
núna stafa aðallega af
aðgerðarleysi ríkisstjórnar-
innar.u
Þetta var megininntak
ályktunar miðstjórnar Samtaka
ungra framsóknarmanna, sem
samþykkt var nýlega á fundi
miðnefndarinnar í Kópavogi.
í tilefni þessa snéri NT sér til
Steingríms Hermannssonar,
forsætisráðherra og formanns
Framsóknarflokksins, og leitaði
álits hans á ályktuninni.
Ennfremur voru ýmis mál sem
ofarlega hafa verið á baugi að
undanförnu reifuð, og
Steingrímur m.a. spurður um hið
svonefnda „samráð“ við
verkalýðshreyfinguna, en eins og
flestum mun kunnugt eru
launaliðir samninga BSRB og
ASÍ lausir nú í haust.
Viðtalið sem hér fer á eftir var
tekið í síðustu viku, meðan enn
var ósamið við sjómenn.
■ ...vandi húsbyggjenda er fyrst og fremst frá liðnum tíma. Og það er ekki þessari ríkisstjórn
kenna þó að NT hafi sagt það í leiðara.
Ef fullt samráð næst
við verkalýðshreyf ing-
una fyrir haustið þá
er framtíðin björt
- Ályktun ungra framsóknarmanna; athafnir
í stað orða?
- Ég las þetta, og það er nú svo að ungir
menn eru alltaf óþreyjufullir og eiga að vera
það. Hins vegar held ég að þarna segi þeir meira
en þeir hafa ráð á.
Staðreyndin er sú að ég skipaði nokkuð fyrir
áramótin nefnd til að ganga frá frumvörpum.
Guðmundur G. Þórarinsson er formaður í þeirri
nefnd - og þeir eru búnir að skila til okkar núna
7 frumvörpum, mjög vel unnum að mínu mati.
Þetta eru ákaflega viðkvæm mál.
Við erum búnir að ræða þau í þingflokki
okkar og erum tilbúnir að afltenda nefndinni
þau aftur til meðferðar.
Ég sagði að vísu að ég vildi gjarna geta lagt
fimm þessara frumvarpa fram nú um áramótin,
en sjálfstæðismennirnir, sem hafa rætt þau líka,
eru ekki komnir eins langt og við með þau.
Ég legg á það áherslu að þessi frumvörp, alla
vega sum þeirra, fari í gegn um það þing sem nú
situr. Ég á fastlega von á að svo verði.
- Sjálfstæöismenn ekki komnir eins langt.
Áttu viö að ályktun ungra framsóknarmanna
beinist frekar gegn þingilokki sjálfstæðis-
manna?
- Ég skal ekki segja til um það. Þeir tala til
okkar beggja, og ég er út af fyrir sig ekki að
áfellast þingflokk sjálfstæðismanna - þeir hafa
verið uppteknir með kartöflumál og fleira.
- Þú átt sem sé við að ríkisstjórnin sé ekki í
biðsal dauðans?
- Ekki af þessum ástæðum. Ég held að þessi
mál gangi nokkuö vel. En það má vel vera að
hún sé það, ef að svo fer í launamálum sem
kannski horfir, en þá er miklu meira en
ríkisstjórnin í biðsal dauðans.
Þjóð með 63-64% af þjóðarframleiðslu í
erlendum skuldum hefur ekki efni á miklum
verkföllum og vandræðum á vinnumarkaðnum.
Samráð við
verkalýðshreyfinguna
- Samráðið sem hefur verið rætt um?
- Samráðið. Teningunum um það var kastað
um áramótin og boðið upp á samráð á mjög
víðtækum grundvelli. Ég er mjög ánægður með
þá samstöðu sem varð um það á milli ríkisstjórn-
arflokkanna.
Til dæmis, Sjálfstæðisflokkurinn, sem hefur
nú gjarna lagt á það miklu ineiri áherslu en við
að aðilar vinnumarkaðarins ættu sjálfir að fjalla
um sín mál, eru alveg samstíga okkur í því, enda
teljum við báðir ástandið það alvarlegt að á það
þurfi að leggja áherslu.
Ég tel til dæmis að þetta svokallaða samráð
hafi tekist betur í sjómannadeilunni heldur en
nokkru sinni fyrr að ég hef kynnst.
Þar átti ég, persónulega, fjölmarga fundi með
fulltrúum, sérstaklega sjómanna og yfirmanna
og einnig með fulltrúa útgerðarinnar, og að
sjálfsögðu sjávarútvegsráðherra. Ég tel að á
réttri stundu hafi síðan hafist formlegar viðræð-
ur sem fjármálaráðherra kom líka inn í.
Ég tel að þar hafi verið spilað út mjög
athyglisverðu tilboði af hálfu ríkisstjórnarinnar
sem vissulega leysti deiluna við yfirmenn, en því
miður ekki við undirmenn.
- Áttu þá við 2 prósentin?
- Miklu meira. Það er náttúrlega fyrst og
fremst 80 milljónir í lífeyrissjóði úr aflatrygg-
ingasjóði og 50 milljónir í fæðispeninga, líka úr
aflatryggingasjóði.
Og þar sem aflatryggingasjóður hefur tak-
markað fé, þá verður þetta að koma úr ríkis-
sjóði,afsöluskattisem ríkissjóðurendurgreiðir.
2% hækkun á skattfrádrætti sjómanna, sem
þýðir um 20 milljónir, og fleira. Þetta voru
samtals 7 liðir, en þetta voru þeir stærstu.
Nú svo er það kostnaðarhlutdeildin, sem