NT - 13.03.1985, Blaðsíða 2

NT - 13.03.1985, Blaðsíða 2
w Miðvikudagur 13. mars 1985 Smíðastofurnar í Fellaskóla: Lausn ekki í sjónmáli Menntamálaráðuneytið fjallar um málið og á meðan fá 400 nemendur enga handavinnukennslu ■ Félagsmálaráðuneytið hef- ur skrifað Vinnueftirliti ríkisins bréf þar sem farið er fram á greinargerð um aðgerðir Vinnu- eftirlitsins í Fellasknla, en ná- lega 400 nemendur skólans hafa ekki fengið neina handavinnu- kennslu síðan Vinnueftirlitið lokaði tveimur kennslustofum skólans þann 8. febrúar sl. Bréf Félagsmálaráðuneytis- ins mun vera í framhaldi af bréfi sem Ragnhildur Helgadóttir, menntamálaráðherra, ritaöi Félagsmálaráðuneytinu, nteð ósk um skýringu á málinu, en áður hafði skólastjóri Fellaskóla óskað eftir afskiptum ráðuneyt- isins af þessu máli. Það sem vefst hins vegar fyrir ráðuneytinu er kostnaðurinn vegna endurbótanna, en sam- kvæmt lögum fellur hann í hlut viðkomandi sveitarfélags. Skólaskrifstofa Reykjavíkur telur aftur á móti, að þetta sé mál ráðuneytisins, þar sem ný lög og reglugerðir um vinnuum- hverfi séu komin frá hinu opin- hera, og því eigi það að standa straum af kostnaði þeim, sem hlýst af þeim endurbótum, sem nauðsynlegar eru. Kennarar Fellaskóla sam- þykktu síðan ályktun í síðustu viku, sem þcir sendu til fræðslu- ráðs. Þar harma þeir, að málið skuli vera komið í þann hnút, sem það er í, og skora á fræðsluráð að hlutast til um að finna lausn á því. Fræðsluráð hefur þó enn ekki fjallað um skólastofurnar, m.a. vegna þess, að fundi, sem vera átti á mánudag, var frestað. Vinnueftirlitið gerði fyrst at- hugasemd við smíðakennslu- stofurnar tvær í fyrravor, og fór fram á að endurbætur yrðu gerðar, þannig að hægt yrði að uppfylla kröfur um meðferð á opnum eldi og lífrænum leysi- efnum. Þeim kröfum hafði ekki verið sinnt og þess vegna greip Vinnueftirlitið til þess ráðs að loka stofunum. Var farið fram á, að lögð yrði fram áætlun um endurbætur, áður en stofurnar yrðu opnaðar á ný. Mörgum hefur þótt Vinnueftirlitið sýna óþarflega mikla hörku í máli, þessu, þar sem sérstakar fjár- veitingar þurfi til þess að gera endurbæturnar og fjárveitinga- kerfið sé þungt í vöfum. Eyjólf- ur Sæmundsson forstöðumaður Vinnueftirlitsins var spurður hvort svo væri. „Ástæðan fyrir því, að gripið var til lokunar í þessu tilviki er sú, að aðilar málsins hafa ekki fengist til að leggja fram tillögur um úrbætur. Við höfum gert ákveðnar kröfur og höfum fylgt þeim eftir með þeim ákvæðum, sem lög gera ráð fyrir. Við höfum tjáð forsvarsmönnum skólans, að einföld yfirlýsing þeirra um, að ekki verði unnið með opnum eldi og lífrænum leysiefnum í stofunum nægi til þess að fallið sé frá lokuninni. Sú yfirlýsing hefur ekki borist. Við höfum verið reiðubúnir til samkomulags og þar með tel ég ekki, að við höfum verið ósveigjanlegir," sagði Eyjólfur. Að athuguðu máli taldi skóla- stjóri Fellaskóla ekki til neins að skrifa undir slíka yfirlýsingu, þar sem þá ætti enn eftir að leggja fram áætlunina um endurbætur. Ein af kröfum Vinnueftirlits- ins var um uppsetningu á örygg- isrofa og var farið eftir henni. Það var hins vegar ekki talin næg ástæða til þess að aflétta banninu á notkun kennslustof- anna tveggja. Leigubílstjórar: Við brutum ekki bíl- rúður Steindórsbíla ■ Fjórir bílstjórar af Hreyfli og einn af BSR hafa sent NT athugasemd vegna frétta af at- burðum síðastliðins laugardags- kvölds þar sem þeir neita alfarið að eiga nokkurn þátt í framrúðubrotum í Steindórsbíl- um umrætt kvöld. í athugasemd leigubílstjór- anna er þess getið að þeir muni fara fram á opinbera rannsókn á umræddu atviki „og þá skulu menn svara fyrir fullyrðingar um morötilraunir, ofbeldi og annað svívirðilegt orðbragð". I frétt NT á mánudag er sagt frá því þegar nokkrir leigubíl- stjórar eltu tvo sendibíla af Steindórsplani með þeim af- leiðingum að framrúður beggja sendibílanna brotnuðu. í yfir- lýsingunni tilgreina leigubíl- stjórarnir heimildir fyrir að rúð- urnar hafi brotnað eftir að þeir voru komnir í mörg hundruð metra fjarlægð frá sendibílun- um. Tófan styður Jón Baldvin! ■ Hið íslenska tófuvinafélag lætur sig varða fleiri mál en nafn þess bendir til. Dropun- um hefur borist yfirlýsing frá félaginu, undirrituð af forseta þess, Sigurði Hjartarsyni, og fer hún hér á eftir orðrétt: Eins og einatt áður lýsir Hið íslenska tófuvinafélag yfir full- um stuðningi við Jón Baldvin Hannibalsson, alþingismann og formann Alþýðuflokks íslands. Á undanförnum mánuðum hefur Jón Baldvin sýnt og sann- að að honum einum er treyst- andi til að verja og efla íslenska þjóðarvitund og þjóðarhag svo sæmandi sé íslenskum tófuvin- um og öðru góðu fólki. I utanríkismálum liefur Jón Baldvin einn þorað að standa uppi í hárinu á Danskinum. Hann einn hefur hótað að sparka fyrrverandi forsætisráð- herra Noregs í Reykjavíkur- höfn. Hann einn manna á Freyja hf: Setur lögbann á vörur A/S Freia ■ Sælgætisgerðin Freyja hf. hefur fengið staðfest lögbann á að norska fyrir- tækið A/S Freia dreifi hér á landi sælgætisvörum undir nafninu Freia án þess að Freyja hf. Iiafi þar hönd í bagga. Lögbanns- úrskurðurinn var kveðinn upp hjá borgarfógetaem- bættinu í Reykjavík gegn tryggingu að upphæð ein milljón króna. Samstarf hefur verið með þessum aðilum frá 1965 um dreifingu á sæl- gætisvörum A/S Freia hér á landi en þá strax gerðu Norðmennirnir tilraun til að fá nafnið Freia skráð hér á landi fyrir sælgætis- vörur. Dómstólarskáru þó úr um það 1969 að A/S Freia væri óheimilt án samráðs við Freyju hf. að auðkenna sælgætisvörur sínar hér á landi undir því nafni. Þessa niðurstöðu sætti A/S Freia sig við og hélt sala á Freia vörum áfram fyrir milligöngu Freyju hf. f árslok 1984 ákvað A/S Freia að láta reyna á hvort forsendur væru nú breytt- ar frá 1%9 og sleit sam- starfinu ið Freyju hf. og tilnefndi íslenska verslun. arfélagið sem umboös- mann sinn. Freyja hf. krafðist þá lögbannsásölu á vörum A/S Freia og það lögbann var staðfest í síð- ustu viku. ■ Hluti af því sem sýningin býður upp á, hverfa- og húsaskipulag. Arkitektúr í Ásmundarsal ■ Urn þessar mundir stendur yfir í Ásmundarsal sýning sem ber nafnið Architecture and Renewal in U.S.A. ogunnin er í samvinnu við Menningarstofn- un Bandaríkjanna. Sýningin fjallar um arkitektúr og endur- skipulagningu á gömlum bæjarhlutum. Lýst er í máli og myndum nokkrum viðfangsefnum arki- tekta í Bandaríkjunum, hverfa- skipulagningu , göngugötum, endurbyggingu gamalla húsa o.s.frv. Hefur sýning þessi farið víða um lönd og vakið athygli. Hún er opin virka daga frá kl. 10.00- 21.00. Henni lýkur á morgun og kemur og verða þá sýndar kvik- myndir þar sem sagt er frá endurbótum gamalla liúsa í Ný hlið á byggðastefnunni: Mundi innflutningur á 5.000 ógiftum konum bjarga landsbyggðinni? Norðurlöndum hefur þorað að ympra á heyrnardepru sænska utanríkisráðherrans. Hann einn hefur haft dug að segja Finnum sannleikann um Finn- landiseringu og Afgönuhlaup þeirra. Hið íslenska tófuvinafélag ítrekar því einlægan stuðning sinn við Jón Baldvin Hanni- balsson og lýsir auk þess megn- ustu vanþóknun á ítrekuðum ummælum Páls Péturssonar, alþingisntanns, fjárbónda og forseta Norðurlandaráðs, er hann hefur viðhalt um hið kjarkbólgna frumkvæði sem Jón Baldvirj hefur tekið til heilla íslensku tófunni og raunar þjóðinni allri. Með Kóreustíl Nú geta blaðamenn við Blað-Síðumúlann farið að njóta austurlenskrar matar- (tUf^ Bandaríkjunum og fjallað um hliðstæð „Torfusamtök" þar í landi. Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Spýtnarusl brennt í Breiðfirðingabúð ■ Slökkvilið Reykjavíkur var síðdegis í gær kvatt að Breið- firðingabúð þar sem einhverjir höfðu lagt eld í hrúgu af spýtna- braki úr rústum hússins. Engar skemmdir urðu vegna þessa og er helst talið að krakk- ar hafi verið hér að verki. Sern kunnugt er var Breiðfirðinga- búð rifin á liðnu ári. Gramsað í lyf jakassa ■ Brotist var inn í skúr Al- mannavarna í Mosfellsdal í fyrrinótt og gramsað þar í litlum lyfjakassa en engu stolið. Mjög óverulegar skemmdir voru unnar en innbrotsþjófur- inn hafði komist inn með því að spenna upp hurð. Skáli þessi er áhaldageymsla Almannavarna. Heyrðu Nonni, heldurðu að þær kunni að mjólka gerðarlistar á nýjan leik, en Kofinn. kóreanski matsölu- staðurinn við götuna hefur ver- ið lokaður um nokkurt skeið. Nú hefur hann hins vegar opnað aftur, og nú með nýju sniði og nýju nafni. Nafnið er Seul. og staðurinn hefur nú hækkað sig um einn klassa, og verður að teljast hinn vistleg- asti. r

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.