NT - 13.03.1985, Blaðsíða 24
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendingu sem leið ir til
fréttar í blaðinu og 10.000 krónurfyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Sídumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 16300
Kvcldsimar: askrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495
■ Bencdikt Bogason gjald-
keri nemendafélags MH.
Fulltrúar stjórnmálaflokkanna útskýra stefnu flokka sinna fyrir væntanlegum kjósendum.
NT*mynd Ari.
Jóhannesarvaka í Hamrahlíðarskóla
■ Það er í mörg horn aö líta
hjánemendum Menntaskólans
við Hamrahlíð þessa dagana,
þrátt fyrir fáa kennara og stutt-
an skóladag meginþorra nem-
enda.
Jóhannesarvaka stcndur nú
yfir og þá hafa allir nemendur
nóg að gera. Sem dæmi um
það sem fram fer, má nefna
fundi með stjórnmálamönn-
um, tölvuvædda hjónabands-
miðlun sem starfrækt er fyrir
nemendur o.fl. Að sögn Ág-
ústar Hrafnkclssonar yfirmiðl-
ara hjá hjónabandsmiðluninni
er um brautryðjendastarf að
ræða, og ckki vissi liann um
neina slíka hérálandi.
Tehús hinnar rísandi sólar
hefur notið mikilla vinsælda
meðal nemenda. en þaö er
starfrækt af fimm hressum te-
aðdáendum. Stemmningin yfir
■ Austurlensk stemmning í kennaraverkfalli hjá MH-ingum. Testofan ber nafnið Testofa hinnar rísandi sólar. m myndir ah.
■ Útvarp MH. Frá vinstri:
Ólafur Sigurðarson tæknimað-
ur, Einar Sigurmundsson og
Sveinn R. Eiríksson.
nein áhrif á Jóhannesarvöku
að öðru leyti en því að dagskrá-
in er lengri og viðameiri. „Það
stafar af því, að fyrst var
ákveðið að dagskráin yrði
mestmegnis á kvöldin og eftir
að skóla lýkur en með upp-
sögnum kennara höfum við
fengið meiri tíma, og höfum
einnig verið með uppákomur
fyrir þá nemendur sem ekki
eru í tímum sökum forfalla
kennara."
Hver er tilgangurinn með
starfsdögum á borð við Jó-
hannesarvöku?
„Jóhannesarvaka er ekki
eingöngu hugsuð sern
skemmtun, heldur er líka um
fræðslu að ræða. Jóhannesar-
vakan er líka vel til þess fallin
að lyfta skólalífinu upp úr
grámyglulegu skammdegi
hversdagsleikans," sagði
Benedikt að lokum.
tehúsinu er ósvikin austur-
lensk, og meira að segja var
fengin snælda mcð alvöru mús-
ík frá kínverska sendiráðinu.
Tebollinn kostar fimmtán
krónur, og er hægt að velja um
l() mismunandi tegundir af te.
Stjórnmálamenn liafa lagt
lcið sína í húsakynni M.H. og
einmitt í gær þegar blaðamenn
NT voru staddir í skólanum
var fundur þar sem fulltrúar
stjórnmálaflokkanna útlistuðu
fyrir skólanemum stefnur og
viðhorf flokka sinna.
Lcikrit, myndbandasýning-
ar, danskennsla í amerískum
dönsum og ýmislegt fleira var
nemendum boðið upp á í gær
við góðar undirtektir.
NT tók Benedikt Bogason
gjaldkera nemendafélags
M.H. tali og sagði hann að
kennaradeilan hefði ekki haft
Febrúarmánuður:
Atvinnu-
lausum
fækkaði
um
helming
■ Atvinnuleysisdagar í febrú-
armánuði voru nú um 30 þúsund
ogerþaðumhelmingi lægri tala
en i sama mánuði í fyrra og
sömuleiðis nær helmingi færri
dagar en í janúar s.l., þótt
áhrifa sjómannaverkfalls væri
að nokkru farið að gæta í at-
vinnuleysi flskvinnslufólks síð-
ari hluta febrúarmánaðar.
Atvinnuleysi í febrúar jafn-
gilti því að l .400 manns hefðu
verið á atvinnuleysisskrá allan
mánuðinn, en það svarar til
l ,2% af áætluðum mannafla á
vinnumarkaði, samkvæmt yfir-
liti vinnumálaskrifstofu félags-
málaráðuneytisins. Af þessum
l .400 voru um 400 á höfuðborg-
arsvæðinu, og eru þeir nær
helmingi færri en í janúar. Það
hlutfall á í grófum dráttum við
öll kjördæmi landsins. Um
helmingur atvinnulausra voru
konur og hefur atvinnulausum í
þeirra hópi fækkað meira milli
mánaða en í hópi karlanna.
Grindavík er nær eini staður
landsins þar sem atvinnulausum
fjölgaði milli mánaða, úr 31 í
janúar í 46 í febrúar, þar af 41
kona. Atvinnulausum í Kefla-
vík hafði hins vegar fækkað um
helming milli mánaða, en þeir
voru enn margir eða 115 talsins.
Það er svipuð tala og á Akur-
eyri, þar sem flestir voru at-
vinnulausir, miðað við staði
utan höfuðborgarsvæðisins. Þá
vekur athygli að 15 hafa verið
atvinnulausir á ísafirði í febrú-
ar, þar af helmingur karlar - en
ísafjörður er - sem Vestfirðir
yfirleitt - staður sem sjaldan
kemst á blað þegar atvinnuleysi
er annars vegar.
Innbrot:
Spellvirki
og þjófnað-
ur íhúsi
Vélsmiðj-
unnar
■ Brotist var inn í Vél-
smiðju Síldarverksmiðj-
unnar á Akranesi í fyrri-
nótt og unnin þar veruleg
spjöll auk þess sem eitt-
hvað fémætt var haft á
brott.
Tveir menn voru hand-
teknir vegna þessa máls
seint í gærkvöld grunaðir
um verknaðinn. Þeir eru
Skagamenn á þrítugsaldri.
Að sögn lögreglu er
ekki vitað hversu mikið
férnæti hvarf úr húsinu en
svo virðist sem spellvirkj-
arnir hafi verið drukknir
og að fleiri en einn hafi
verið á ferð. Farið var í
skrifstofur fjögurra fyrir-
tækja, sem aðsetur hafaí
húsinu, og hurðir og fleira
brotið og bramlað.