NT - 13.03.1985, Blaðsíða 23
Miðvikudagur 13. mars 1985 23
Þýskaland:
Atli á óskalistanum
- hjá Kremer þjálfara Fortuna Dusseldorf
- Kicker fer mjög lofsamlegum orðum um hann eftir helgina
Atli Eðvaldsson í búningi Fortuna Dússeldorf.
Knattspyrna:
England og Þýskaland
■ Úrslit í leikjum í ensku Hughes og Whiteside
knattspyrnunni í gær: komu Man. Utd. í 2-0 en
Mark Falco skoraði fyrir
1. deild: Tottenham. Við þessi úr-
Sunderland-Watford... 1-1 sllt aukaSt lUJOg llkur
Tottenham-Manchester Unit . 1-2 MancheSter á SÍgrÍ í deild-
2. deild: inni
Carlisle-Birmingham...2-1
rrcTs""mpton.::: í! 1™^™.
Shrewsbury-Huddersfield ... 5-1 Bikarkeppnin:
Bayer Urd. -Werder Bremen . 2-1
_ .. , Búndeslígan:
Athygli vekur góour Slg- Schalke-Leverkusen.......4-2
Ur Man. Utd. á Tottenham. Kaiserslautern-Mannheim ... 1-1
■ Kicker, knattspyrnuritið víðfræga, fer mjög lofsamlegum
orðum um íslenska knattspyrnumanninn Atla Eðvaldsson í nýjasta
tölublaði sínu, sem kom út nú eftir helgina. Blaðið segir að
„íslendingurinn" hafi leikið afar vel á miðjunni hja Dússeldorf að
undanförnu, reyndar einn fárra sem væri góður í liðinu um þessar
mundir. Þá segir blaðið að Atli sé félagi sínu afar trúr, og honum
finnist mjög sárt hve liðinu gangi illa og hve áhorfendur séu fáir.
lilaöiö hefur eftir Atla, að hann hafi hug á að leggja þá tillögu fyrir
aðalstjórn félagsins að framvegis verði heimaleikir félagsins leiknir
á hinum gamla velii félagsins, þar sem liðið æfir, sem tekur
„aðeins" 35 þúsund áhorfendur. „Það er niðurdrepandi að leika,
eins og um síðustu helgi, á velli sem tekur 60 þúsund manns með
7 þúsund áhorfendur. Ef við leikum á litla vellinum kemur
stemmningin upp hér í Dússeldorf á ný.“ - Kicker getur þess einnig
að mikil fjárhagsvandræði hrjái nú Fortuna Dússeldorf, og óvíst sé
um framtíð félagsins. Blaðið segir að allmargir leikmenn félagsins
séu með lausa samninga frá og með vorinu, og getur þess að þrátt
fyrir að ekki hafi verið endurnýjaðir samningar við neinn enn, sé
vitað að „íslendingurinn" sé efstur á óskalistanum yfir þá leikmenn
sem þjálfarinn Willibert Kremer vill hafa áfram.
NT sló á þráðinn til Atla í gær í tilefni þessa:
„Þetta er farið að ganga
betur. Maður er farinn að leika
fleiri en einn leik í einu í sömu
stöðu. Þjálfarinn hefur látið mig
spila allar stöður á vellinum í
vetur, fyrir utan markvörð.
Þetta er fjórði leikurinn hjá mér
á miðjunni, og það gengur mjög
vel, þetta er mín staða og
þarna hef ég spilað nær alla
mína tíð."
Nú rennur samningur þinn út
í vor, hefurðu fengið tilboð frá
öðrum liðum, eða endurnýjarðu
samninginn við Dússeldorf?
„Ég ætla að reyna að einbeita
mér núna að knattspyrnunni.
Það er mikið um að vera í mars,
mikið af erfiðum leikjum og ég
ætla að hugsa bara um það fram
í apríl. Þá kemur jafnan hreyf-
ing á þessi mál, og þá sé ég betur
hvar ég stend."
Mikið hefur verið talað um
alls konar vandamál hjá Dúss-
cldorf, hefur það snert þig illa?
„Já, auðvitað. Það byrjaði
fyrir ári þegar við fórum til
Kóreu og fengum allir einhvern
vírus. Liðið í heild náði sér
ekki eftir þetta í fyrra, og við
fengum 4 stig út úr næstu 15
leikjum. Út af því var allt á
núlli, stjórnin sprakk og ný tók
NT-vidtal við Sigurð Jónsson:
„Sýndi umtalsverða
knattspyrnuhæfileika"
- sagði Howard Wilkinsson stjóri Wedesday um Sigurð
Frá Heimi Bergssyni fréttamanni NT í Eng-
landi:
■ Sigurður Jónsson lék sinn
fyrsta leik með aðalliði Sheffield
Wednesday á mánudaginn,
gegn Leicter.
„Wilkinson iét þetta ekki
uppi fyrr en hálftíma fyrir leik-
inn. Ég var ekki í leikskránni og
það vissi þetta enginn nema ég
og framkvæmdastjórinn. Wilk-
inson sagði mér frá því á
fimmtudaginn að ég ætti að
koma inn í liðið fyrir Andy Blair
sem er meiddur," sagði Sigurð-
Þýskir punktar:
„Magath ekki öruggur
- í þýska landsliðið,“ segir Beckenbauer
Frá Guðmundi Karlssyni fréttamanni NT í
V-Þýskalandi:
■ Tony Schumacher er enn
reiður við fyrrum vin sinn,
Lothar Mattheus sem rakst illa
á hann í leik Kölnar og Bayern
Múnchen um síðustu helgi.
Þýska dagblaðið Bild hefur að
líkindum ekki haft alveg rétt
eftir Schumacher á sunnudag,
því ummæli Tonys í Kicker
eftir helgina eru á þá leið að
Mattheus hafi sparkað í hönd
hans en ekki höfuð. Tony segir
í Kicker: „Mattheus þrumaði í
höndina á mér. Maður sem
fylgir svona fast á eftir gegn
mér, og neglir svona í mig
getur ekki verið vinur minn
lengur. Það er eins gott fyrir
Mattheus að hann var ekki
hérna í Köln eftir leikinn, því
þá hefði ég leitað að honum og
fundið hann...“ Þess má geta
að Tony og Mattheus voru
taldir góðir vinir fyrir...
...Felix Magath, spilstjórn-
andi Hamburger SV, hefur
ekki staðið sig nógu vel undan-
farið, og sérstaklega þykir
frammistaða hans með þýska
landsliðinu ekki hafa verið
góð. Kicker tók málið fyrir í
útgáfu sinni eftir helgina, og
um leið og palladómar eru um
Magath og veru hans í landslið-
inu er Frans „Keisari" Becken-
bauer spurður hreint út hvort
ekki sé rétt að setja Magath út
úr liðinu? Beckenbauer svarar
því til að hann hafi ekki tekið
neina afstöðu til þessa máls
sérst'aklega, en „Felix Magath
sé ekki öruggur með sæti í
landsliðinu frekar en aðrir..."
... Ásgeir Sigurvinsson
knattspyrnumaður í Stuttgart
flutti nýverið inn í glæsilegt
hús sem hann hefur verið að
byggja. Þetta er parhús, sem
Asgeir byggði ásamt vini sín-
um í liði Stuttgart, Kurt Ni-
edermayer, sem kom ásamt
honum frá Bayern Múnchen á
sínum tíma. Niedermayer hef-
ur hins vegar enga ástæðu til
að vera glaður þessa dagana,
því hann fékk í vikunni „bláa
bréfið" frá stjórn VFB
Stuttgart, en „bláa bréfið" er
það bréf nefnt sem felur í sér
þann boðskap að félagið vilji
ekki framlengja samning við
viðkomandi...
ur í samtali við fréttamann NT
í gær. „Æfingar ganga mjög vel
og ég er alveg að komast inn í
fiesta hluti hjá liðinu. Þreyta
háði mér alls ekki í leiknum, ég
komst í gegn án þess að verða
þreyttur. Ég held að úthaldið sé
komið í gott lag."
Heldur þú að þú verðir í
liðinu gegn Luton á laugardag-
inn?
„Ég get ekki sagt til um það
með f'ullri vissu en tel jafnvel
líkur á því, það verður bara að
koma í Ijós," sagði Sigurður
sem stóð sig með mikilli prýði.
Það hefur komið mjög á óvart
hve Sigurður er fljótur að ná sér
á strik og sanna að þar er
frábær knattspyrnumaður á
ferðinni.
Howard Wilkinsson fram-
kvæmdastjóri Wednesday sagði
í blaðaviðtölum eftir leikinn:
„Ég ákvað að láta Sigurð leika
tyrsta leik sinn með aðailiðinu á
útivelii til að minnka pressuna á
honum. Það hefði verið mikið
álag fyrir hann að leika sinn
fyrsta leik á Hillsborough. Sig-
urður sýndi í þessum leik að
hann hefur umtalsverða hæfi-
leika sem knattspyrnumaður.
Það verður líka að taka með í
reikninginn að hann er aðeins
18 ára gamall."
Allar umsagnir um Sigurð
voru í þessum dúr í blöðunum í
Englandi og það er greinilegt að
Sigurður hefur heillað Tjallann
í sínum fyrsta leik.
við, og áhorfendur hættu að
mæta. Þetta er enginn grund-
völlur. Nú er verið að vinna að
umbótum, en það tekur allt
tíma. Svo renna út samningar
10 leikmanna af 18 í júní, og
menn eru óöruggir. Ég get alltaf
farið heim til íslands, ef illa fer,
en hinir hafa ekkert ef þeir
missa vinnuna og fá ekki samn-
ing annars staðar.
Svo hafa blöðin gert úlfalda
úr mýflugu. Auðvitað dregur
þetta úr mönnum og það kemur
niður á liðinu og frammistöðu
þess. Nú er einhver ró að færast
yfir þetta.
Annars er rckstur knatt-
spyrnuliðs erfiður í Dússel-
dorf. Þetta ci mikil yfirstéttar-
borg enda oft nefnd „Litla
París". Ef ckki gengur vel hættir
fólk að mæta. Annars staðar
hafa öll félög aðiia sem styrkja,
sum mjög sterka, en hér hjálpar
enginn nema vel gangi."
Ætlarðu að legggja það fyrir
stjórnina að þið farið að leika á
gamla vellinum til að ná upp
stemmningu?
„Já, það þarf aðeins að ílikka
upp á gamla völlinn. Hann er í
miðri borginni og bæði nást
fleiri áhorfendur þar, og mikiu
meiri stemmning. Vlingernbro-
ich Stadion tekur um 35 þúsund
manns, og er völlur félagsins.
Rhein-Stadion er í eigu borgar-
innar og er of stór þegar fáir
mæta."
Og framtíðin skýrist ekki hjá
þér fyrr en í apríl?
„Nei, margir leikmenn fengu
nýja samninga til skamms tíma
með því að fallast á 11% kaup-
lækkun. En ég hafði engan
áhuga á því. Ef ég sem við
félagið á ný vil ég hafa eitthvað
skýrt um það að taka eigi á
málunum, og að staðið verði
almennilega að þessu í framtíð-
Bogdan fór utan
- til að fá á hreint hvort hann
fær að starfa áfram hér á landi
■ Bogdan Kowalczyk
Iandsiiðsþjálfari í hand-
knattleik fór í gærmorgun
til Hollands í boði Arnar-
flugs. Arnarflug mun að-
stoða Bogdan þaðan til
Póllands. Þar mun Bogdan
ræða við pólska ráðamenn
um áframhaldandi störf sín
hér á landi.
Pólsk yfirvöld hafa ekki
enn tekið ákvörðun um
hvort Bogdan skuli fá leyfi
til að starfa áfram á íslandi
fram yfir heimsmeistara-
keppnina í handknattleik,
A-flokk. Keppnin verður
haldin í febrúar 1986 í
Sviss.
Bogdan fer utan í því
augnamiði að fá afgreiðslu
málsins flýtt. Hann fór í
gærmorgun til Amsterdam
og ætlaði að halda beint
áfram þaðan til Varsjár.
Hann mun koma aftur til
íslands sömu leið á fimmtu-
dagskvöld.
Einn talsmanna HSl
sagði í samtali við NT, að
ekki væru þar verulegar
áhyggjur af því að Bogdan
fengi ekki leyfið. Meiri
áhyggjur væru af því hve-
nær leyfið fengist. Hefði
Geir Hallgrímsson utan-
ríkisráðherra meðal annars
skrifað pólskum aðilum
vegna þessa máls.
Bogdan Kowalzyck.
— 1x2
28. leikvika - leikir 9. mars 1985
Vinningsröð: 1XX ■ X2X - XX1 - 1XX
698 86279(6/io)+ 89840(<ýio)+
61474(4/io)+ 87347(6/io) 54096(4/io)-úr27. viku.
2. vinningur: 10 réttir- - kr. 1.434.00. -
294 11535 41721 54198+ 86240+ 90027 35505(450)
3733+ 15187 41722+ 54364+ 86245+ 90393 41208p4o)+
3904 15498 42187+ 54374+ 86273+ 90704 41637(4öo)
5296 16167 43698 57047+ 86992 91037 52055(4öo)
5307 17535 44477 57129+ 87207 91712+ 58734(4öo)+
6974 18751 44621 61477+ 87344 92447 63386(4öo)+
6978 19273 44743 63057 87348 93906 88398(45o)
7442 35954 45021 63286 87709+ 94354 90112(44 o)
7782 38257 46736 64557+ 88993+ 94422 183150(4öo) +
9081 38258 47932 64684+ 89836+ 94425 Úr27. viku:
9086 39260 51318+ 66356 89838+ 94427
9094 40243+ 51908 66360 89839+ 95634 50209
9635 40246+ 52515 85211 89844+ 95829+
9923 40858 53837 85951+ 89919 165768
Kæruírestur er til 1. apríl 1985 kl. 12.00 á hádegi. Kærur skulu vera
skriflegar. Kærueyöublöö fást hjá umboðsmönnum og á skrifstofunni í
Reykjavík. Vinningsupphæöir geta lækkaö, ef kærur veröa teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seöla (+) verða að framvísa stofni eöa senda
stofninn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrir lok
kærufrests.
GETRAUNIR - Iþróttamiöstööinni - REYKJAVÍK