NT - 16.03.1985, Side 2
Laugardagur 16. mars 1985 2
■ Stefán P. Mikaelsson: „Hef ■ Einar Pálsson: „Vesen ef
misst alla kennslu.“ ekki verða próf.“
Önnin fallin ef deila
leysist ekki fljótt!
■ „Ég hef misst alla kennslu,"
sagði Stefán P. Mikaelsson
nemi á 5. önn í MH er NT hitti
Laugarvatn:
Frumsýna
Sjö stelpur
■ Nemendafélag Mennta-
skólans að Laugarvatni
frumsýndi um helgina
leikritið Sjö stelpur eftir
Erik Thorstensson í þýð-
ingu Sigmundar Arnar
Arngrímssonar. Leik-
stjóri er Bjarni Ingvars-
son. Sýningar verða sem
hér segir: Aratungu -
mánudag, M.H. miðviku-
dag, Selfossbíó - fimmtu-
dag, Akranes - um helg-
ina.
hann að máli í skólanum í gær.
Þar var hann í óða önn að mála
listaverk á einn vegg skólans,
ásamt félaga sínum Einari Páls-
syni, sem einnig er á 5. önn, en
þeir eru báðir með myndlist
sem val.
Töldu þeir félagar allar líkur
á því að önnin væri fallin ef
deilan leystist ekki innan tíðar.
„Þetta væri dálítið vesen ef það
yrðu ekki próf“ eins og Einar
orðaði það. Þeim fannst báðum
alveg rétt hjá kennurum að
ganga út og þeir styddu þá, en
vildu samt gjarnan að deilan
leystist sem fyrst og kennurum
yrði borgað almennilega. „Þá
fáum við líka almennilega
kennara" bætti þriðji nemand-
inn við sem þarna var staddur
og benti á að eins og launakjör-
um væri nú háttað þá gætu
skólarnir ekki keppt við hinn
almenna vinnumarkað um bestu
starfskraftana.
Borgin hundsar Búseta:
Engin svör enn bor-
ist um lóðaúthlutun
■ Á borgarráðsfundi sem
haldinn var s.l. þriðjudag lögðu
fulltrúar Kvennframboðs, Fram-
sóknarflokks og Alþýðubanda-
lags fram fyrirspurn þess efnis,
hvað ylli þeim drætti sem orðinn
er á svari við lóðaumsókn
Búseta fyrir byggingu 56 íbúða.
Að sögn Guðrúnar Jónsdótt-
ur, fulltrúa Kvennaframboðsins,
þá hefur það dregist óeðlilega
að svara lóðaumsókn Búseta
sem barst borgarráði í júlí á
síðasta ári. Sú beiðni var síðan
ítrekuð í janúar, og þá tilteknar
lóðir í Grafarholti, þar sem
úthlutunar var óskað. Sagði
Guðrún að Búseti hefði engin
svör fengið enn sem komið er,
þótt sífellt væri verið að afgreiða
lóðir inni í borgarráði, bæði til
fjölbýlis- og einbýlishúsa. En
Búseti getur ekki sótt um lán til
byggingarframkvæmda fyrr en
samtökin hafa fengið lóðaút-
hlutun.
Nýrtogari
- nýtt nafn
■ Nú virðist sem Landsbank-
inn hafi lagt á hilluna áform sín
um að taka beinan þátt í útgerð
landsmanna, a.m.k. í bili, því
bankinn hefur nú selt þennan
eina togara sem hann átti.
Þetta var togarinn Bjarni Herj-
ólfsson sem Landsbankinn
eignaðist á sínum tíma á nauð-
ungaruppboði. Það var Ut-
gerðarfélag Akureyringa sem
festi kaup á togaranum og
verður hann nú væntanlega
skírður upp og gefið nafn í
samræmi við aðra togara Ak-
ureyringar. Nöfn Akureyrar-
togaranna enda öll á -bakur
svo sem kunnugt er; Sléttbak-
ur, Harðbakur o.s.frv.
Nú vænta menn þess fastlega
að nýi togarinn verði látinn
heita í höfuðið á seljandanum
og skírður Landsbakur. Til
munu þó þeir sem vilja breyta
rithættinum örlítið og stafsetja
nafnið með p-i, Landspakur.
Veldur Shogun
leigubílaskorti?
■ Það getur verið varhuga-
vert að ætla sér að taka leigubí!
á Akureyri á miðvikudags-
kvöldi, a.m.k. með stuttum
fyrirvara. Það fengu fulltrúar
staðarvalsnefndar að reyna í
vikunni, þegar þeir ætluðu að
halda til móts við flugvélina,
sem átti að flytja þá suður til
Reykjavíkur. Hópurinn var
seinn fyrir og þegar pantaðir
voru þrír bílar á Bifeiðastöð
Oddeyrar, fengust þær upplýs-
ingar að enginn væri inni. Einn
bíll kom þó eftir drykklanga
stund og flutti hluta hópsins út
á völl. Enn ieið og beið og|
hinir fengu engan bíl. Þegar
rúmar 15 mínútur voru svo í
brottför vélarinnar, var
pöntunin ítrekuð. Enn var
_________ Fréttir___________________
„Stíllinn virðist einfaldur
en margt býr undir niðri“
- um Helga Ólafsson stórmeistara í skák
■ Tveir íslenskir stórmeistarar að tafli. Helgi Ólafsson hefur leikið fyrsta leiknum í skák sinni við
Guðmund Sigurjónsson á afmælismóti Skáksambands íslands fyrir skörnmu.NT-mynd: Ámi Bjama
■ Flestir íslenskir skákunn-
endur og e.t.v. margir erlendir
líka hafa lengi búist við að
Helgi Óiafsson bættist í hóp
alþjóðlegra stórmeistara. Tit-
illinn hefur hins vegar látið
lengur á sér standa en menn
vonuðust til. Um hæflieikana
hafa engir efast. Skýringanna
er e.t.v. að leita í því að Helgi
hefur undanfarin ár ekki teflt
mikið á alþjóðlegum mótum,
nema Ólympíumótum. Tveim
af þrem áföngu að titlinum
náði hann á alþjóðlegum skák-
mótum á fslandi á síðasta ári.
í keppnisskák gilda flóknar
reglur um styrkleikamælingar
og titla. Skákmeisturum eru
reiknuð svokölluð Elo stig með
ákveðnum aðferðum og skák-
mótum er raðað í styrkleika-
flokka eftir skákstigum kepp-
enda. Síðan er reiknað út
hversu marga vinninga skák-
maður þurfi að hljóta á móti
eftir styrkleikastigi hvers móts.
Nái menn þrívegis ákveðnum
lágmarksárangri hljóta þeir tit-
il alþjóðlegs skákmeistara og
nái menn síðan aftur þrívegis
tilteknum árangri eru þeir út-
nefndir stórmeistarar. Á mót-
inu í Kaupmannahöfn voru 7
vinningar þessi lágmarks-
árangur og þá vinningatölu
tryggði Helgi sér með sigrinum
í síðustu umferðinni. Einn
þessara áfanga þarf að nást í
opnu móti og tveir í lokuðu og
gildir það jafnt um titla al-
þjóðameistara og stórmeist-
ara.
Þessi tilhögun var tekin upp
tiltölulega seint, en eftir þess-
um reglum hafa bæði Helgi og
Guðmundur Sigurjónsson
unnið titla sína. Þegar Friðrik
Ólafsson var að skjótast upp á
stjörnuhimininn voru Elo stig
ekki komin til sögunnar, en
nefnd á vegum FIDE, Al-
þjóðaskáksambandsins, út-
hlutaði þessari æðstu gráðu
skákmannsins og gerði strang-
ar kröfur. Friðrik var útnefnd-
ur stórmeistari meðan hann
sat að tafli á millisvæðamóti í
Portoroz, en þar vann hann sér
rétt til þátttöku í 8 manna
kandidataeinvígi um réttinn til
að skora á heimsmeistarann.
Þær reglur gilda reyndar enn í
dag að sigur á millisvæðamóti
þýðir sjálfkrafa að menn eru
sæmdir stórmeistaratitli.
Hinn nýi stórmeistari, Helgi
Ólafsson, byrjaði skákferil
sinn í Vestmannaeyjum, þar
sem hann bjó í æsku. Hann
fluttist til meginlandsins eftir
gos og gerðist brátt virkur í
skákinni á landsmælikvarða.
Hann tilheyrir nýrri og sterkri
kynslóð skákmanna sem kom
fram á árunum eftir heims-
meistaraeinvígið í skák í Laug-
ardalshöllinni; auk hans eru
fremstu fulltrúar þessarar kyn-
slóðar Jón L. Árnason og
Margeir Pétursson og litlu
yngri er Jóhann Hjartarson.
Þessir fjórir skipuðu aðallið
íslands á síðasta Ólympíu-
móti, og var liðið í stigum talið
eitt af þeim 10 sterkustu sem
þátt tóku í mótinu og árangur-
inn var ekki langt frá að vera í
samræmi við það.
Eins og fyrr segir hefur Helgi
upp á síðkastið teflt mest
innanlands. Hann varð fyrst
íslandsmeistari 1978 eftir ein-
vígi við Hauk Angantýsson.
Hann var um tíma reglulegur
gestur á alþjóðlegu skák-
mótunum sem um hríð voru
haldin í Lone Pine í Bandaríkj-
unum og þar öðlaðist hann titil
alþjóðlegs meistara 1978. Síð-
an varð nokkurt hlé á fram-
gangi hans og ferill hans var
nokuð skrykkjóttur. Hann
varð þó aftur íslandsmeistari
1981, en þá var sterkasta ís-
landsmót sem haldið hafði ver-
ið fram til þessa. Lengi vel lá
það orð á Helga að hann væri
geysilega hæfileikaríkur skák-
maður, sem gæti unnið hvern
sem væri á góðum degi en ætti
allra manna erfiðast með að
þola tap. Hafi hann átt við
þann veikleika að stríða hefur
hann rjátlast af honum með
aukinni reynslu. En þegar öllu
er á botninn hvolft verða menn
líklega ekki sterkir skákmenn
nema þeir séu tapsárir.
Guðmundur Arnlaugsson,
sem manna mest skrifar um
skák á íslandi hefur lýst skák-
stíl Helga með þeim orðum að
hann búi yfir fágaðri tækni og
veitist auðveldar flestum öðr-
um íslenskum skákmönnum að
ná betra tafli út úr byrjuninni,
og oft nægi honum lítill ávinn-
ingur til sigurs. Hann lendi
sjaldan í tímahraki en haldi
andstæðingum sínum við efn-
ið með hótunum, þannig að
gjarna lendi þeir í tímahraki.
„Þótt skákstíll hans virðist á
studnum einfaldur býr margt
undir,“ segir Guðmundur Arn-
laugsson.
Bandaríkjaforseti fús
að ræða við Gorbachev
enginn bíll inni og enginn svar-
aði stöðinni. í því ók lögreglu-
bifreið framhjá Hótel KEA,
þar sem fulltrúarnir biðu, og
þá datt einhverjum það snjall-
ræði í hug að fá verði laganna
til aðstoðar. Þeir brugðust við
af alkunnum höfðingsskap og
staðarvalsnefndarmenn kom-
ust út á völl í tæka tíð. Ekki
fengust fréttir af verustað
leigubílstjóra bæjarins, en
menn gerðu því helst skóna,
að þeir sætu allir heima í stofu
og horfðu á Shogun.
Ég hef alltaf verið barngóður - vinurinn!