NT - 16.03.1985, Qupperneq 3
Laugardagur 16. mars 1985 3
■ Thor Vilhjálmsson og Lárus Ýmir Óskarsson taka á móti
rússneska kvikmyndaleikstjóranuni Andrei Tarkovský á Keflavík-
urflugvelli seinni partinn í gær. ni mynd Sverrir.
Allir í háskólann:
Málþing með An-
drei Tarkovský
■ Sovéski kvikmyndaleik-
stjórinn Andrei Tarkovský kom
til landsins síðdegis í gær í
þriggja daga heimsókn, í boði
nefndar sem við hann er kennd.
Tarkovský verður viðstaddur
málþing, sem haldið er honum
til heiðurs í hátíðarsal Háskóla
íslands og hefst núna kl. 10
fyrir hádegi. Par mun Tarkovský
flytja erindi um líf sitt og starf
og svara spurningum þátttak-
enda eftir því, sem tíminn leyfir.
Öllum er heimill aðgangur.
Hingaðkoma Tarkovskýs er
endapunkturinn á glæsilegri
kvikmyndahátíð, þar sem allar
kvikmyndir hans hafa verið
sýndar, og í gærkvöldi var hann
viðstaddur sýningu á síðustu
mynd sinni, Nostalgiu, í Há-
skólabíói.
Fiskvinnslufólk krefs mannsæmandi launa og atvinnuöryggis:
„Helvíti hart að
við skulum bera
svo lítið úr býtum“
Eðlilegt að taka tillit til mikilvægis og ábyrgðar starfa
■ „Eðlilegt er að meira tillit
sé tekið til ábyrgðar starfs-
greina þegar rætt er um laun.
Verðmæti sjávarafurða mun
vera um 70-80% útflutnings-
tekna og er það helvíti hart að
við sem að þessari verðmæta-
sköpum vinnurn, skulum bera jafn
lítið úr býtum og raun ber
vitni,“ segir m.a. í yfirlýsingu
sem „Félag verkafólks við fisk-
iðnað“ (FVVF) hefur sent frá
sér, þar sem lýst er megnustu
óánægju með hvað kaupmáttur
launa fiskvinnslufólks hefur
rýrnað.
Eftir 10 ára starf í fiskvinnslu
segir FVVF mánaðarlaunin
Hvítir máfar frumsýndir
Frá Jóhanni Hanssyni, Seyðisfirði
■ Hvítir máfar, kvikmynd
Stuðmanna, var frumsýnd á
Seyðisfirði í gærkvöld við
góðar undirtektir áhorfenda.
Pegar haft var tal af nokkrum
frumsýningargestum í hléi
lýstu þeir mikilli ánægju með
myndina.
Myndin var sýnd í Félags-
heimilinu Herðubreið, en
verulegar endurbætur höfðu
verið gerðar á húsinu svo
sýningin mætti takast sem
best.
Kvikmyndagerðarmenn-
irnir, sem komu til Seyðis-
fjarðar um kvöldmatarleytið
og þáðu kvöldverðarboð
bæjarstjórnar, tóku á móti
frumsýningargestum upp úr
kl. 8 í gærkvöld og buðu upp
á léttar veigar.
Jakob Magnússon. einn
kvikmyndagerðarmann-
anna, sagði við það tækifæri
að Seyðisfjörður hefði orðið
fyrir valinu eftir að flogið
hefði verið yfir alla staði á
Austurlandi, en sagði að ef
til vill hefði áhugi Valgeirs,
sem ættaður er frá Seyðis-
firði, átt þátt í staðarvalinu.
Kvikmyndin verður sýnd í
Reykjavík í kvöld.'
14.925 kr. ámánuði. Aðgefnum
5.500 kr. meðalbónus til viðbót-
ar verði upphæðin 20.425 kr. á
mánuði. Afþeirri upphæð saxist
hins vegar af ýmsum ástæðuni;
Bónus falli oft niður vegna lítils
hráefnis og eins sé á löggiltum
frídögum. Þá sé fiskvinnslufólk
iðulega tekið af launaskrá í
lengri eða skemmri tíma á ári
eftir geðþótta atvinnurekenda
og geti það atvinnuieysi varað
frá nokkrum vikum upp í mán-
uði. Þegar upp sé staðið geti
meðal mánaðarlaunin því farið
niðurfyrir 19 þús. krónur.
FVVF lýsir stuðningi við
breytingartillögu við lög nr. 19
frá 1979, sem liggur fyrir Al-
þingi. Nái hún franr að ganga sé
ekki hægt að segja fiskvinnslu-
fólki upp nema tvisvar á ári og þá
aðeins hálfan nránuð í senn.
Hið ótrygga atvinnuástand fisk-
vinnslufólks geri það að verkum
að fólk sjái sér ekki fært að
stoppa neitt í þessari atvinnu-
grein, sem þó krefjist vandvirks
og hæfs starfsfólks.
„Fyrir gjaldeyrisöflun okkar
fyrir þjóðarbúið krefjumst við
mannsæmandi launa fyrir dag-
vinnu og atvinnuöryggis," segir
að lokum í yfirlýsingunni.
Flaggskip allra flaggskipa — aðeins einn bíll til
Við sýnum um helgina og næstu daga glæsivagninn Nissan Cedric V6 station Wagon SGL.
Vélin er nýjasta Nissan vélin: 3000 cc bensínvél, 6 strokka, V6, 148 hestöfl meö yfirliggjandi knastásum. Vélin hefur hlotið
ainróma lof um heim allan.
Of langt mál yröi að telja hér upp hina ótal mörgu aukahluti sem bíl þessum fylgja. Sjón er sögu ríkari. Komið og lítið á
þennan bíl sem aðeins er til einn af á Íslandi.
Sýnum jafnframt fjölda annarra nýrra Nissan og Subaru bíla laugardag og sunnudag kl. 14 — 17.
INGVAR HELGASON HF.
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560.