NT - 16.03.1985, Page 4
r w Laugardagur 16. mars 1985 4
l Jj Fréttir
„Skýrslan vekur fleiri
spurningar en hún svarar“
- segir Þóroddur Þóroddsson, starfsmaður Náttúrugripasafnsins
■ „Skýrslan vekur upp miklu
fleiri spurningar en hún svarar,
en hún gefur okkur ábendingu.
Mér fínnst t.d. kortin sem
fylgja henni mjög einkennilega
dregin. Línurnar heföu mátt
vera bæði breiðari og beinni.
Þar eru einkennilegir hlykkir,
en Norðmennirnir hafa vænt-
anlega einhverjar skýringar á
því,“ sagði Þóroddur Þórodds-
son starfsmaður Náttúrugripa-
safnsins og fulltrúi í samráðs-
hópi heimamanna, þegar hann
var spurður um bráðabirgða-
skýrsluna, sem lögð var fram á
miðvikudag.
- Telurðu að það sé verj-
andi að byggja álver við Dys-
nes á grundvelli þess, sem
kemur fram í skýrslunni?
„Það á eftir að fara nánar út
í smáatriði fyrir hvern bónda-
bæ fyrir sig, við hverju megi
búast. Það er hvergi hægt að
' segja nákvæmlega til um áhrif
mengunarinnar, nema á þeim
bæjum, sem eru allra næst. Þar
verður ekki notaður gróður af
landinu. Þá kemur svæði þar
sem búast má við misjafnlega
miklum áhrifum. Það getur
verið, að á ákveðnum bæjum
verði menn að fara í kartöflu-
rækt og ekkert annað.
Innan ytri línunnar, sem
dregin er, er 41 bær. Þar af eru
10 bæir á austurströnd fjarðar-
ins. Það er hugsanlegt, að allir
verði fyrir einhverjum áhrif-
um, en kannski ekki nema 5,
sem verði fyrir alvarlegum á-
hrifum. Áhrifin geta líka verið
mismunandi frá ári til árs. Það fei
líka eftir búskap á hverjum
bæ, hvort það hefur eitthvað
að segja, hvort maðurinn er
með kartöflur og þrjár kýr - en
þá breytir það engu fyrir hann
- eða 30 kýr og einn kartöflu-
poka,“ sagði Þóroddur Þór-
oddsson.
„Ekki hægt að
meta skýrsluna
á þessu stigi“
- segir Sveinn Jónsson, Búnaðarsambandinu
■ Sveinn Jónsson fulltrúi
Búnaðarsambands Eyjafjarð-
ar í samráðshópnum telur, að
ekki sé hægt að meta skýrsluna
eftir þennan eina fund.
„Það eru svo mikil frávik í
skýrslu Norðmannanna og þeir
sjálfir hafa fyrirvara um 20-50%
virkni. Þess vegna finnst mér,
að við getum ekki metið hana
á þessu stigi málsins," sagði
Sveinn.
- Það er því ekki hægt að
segja hvort forsvaranlegt sé að
byggja þarna álver, eða ekki?
„Nei, það er ekki hægt út frá
þessari skýrslu. Hins vegar
vonast ég til, að þær niðurstöð-
ur verði sendar út og birtar
opinberlega, og þær verði
dregnar saman af bestu manna
yfirsýn.“
- Ertu sjálfur fylgjandi ál-
veri við Eyjafjörð?
„Það fer mjög mikið eftir
því hverjar þessar niðurstöður
verða. Mér finnst, að þær ættu
að vera leiðarljós í því,“ sagði
Sveinn Jónsson.
Álvervið Eyjafjörð?
Hvað segja heimamenn um mengunarskýrsluna?
■ Viðbrögð Eyfirðinga við bráðabirgðaskýrslunni um mengun frá hugsanlegu álveri eflir.
við Eyjafjörð, sem kynnt var á miðvikudag, voru á ýmsa lund. Eitt eru þó flestir NT ræddi við fjóra fulltrúa úr samráðshópi heimamanna eftir fundinn með
sammála um, og það er að skýrslan gefi ekki eins skýr svör og menn vonuðust kannski staðarvalsnefnd og spurði þá álits á skýrslunni. Fara viðtölin hér á eftir.
„Mengunarsvæðið
er miklu minna“
- segir Jón Sigurðarson
■ „Höfuðniðurstaða mín er
sú, að svæðið þar sem einhver
áhrif geta orðið, er miklu
minna en verið hefur í al-
mennri umræðu hér. Menn
hafa látið frá spr í ræðu og riti,
að það sé verið að stofna í
hættu landbúnaðarhéruðunum
suður af Akureyri. En það er
langt frá því. Það er búið að
þrengja hringinn verulega."
Þetta sagði Jón Sigurðarson
fulltrúi atvinnumálanefndar
Akureyrar. Hann sagði, að
önnur niðurstaða væri sú, að
búið væri að afmarka svæðið,
sem þyrfti að kanna miklu
nánar, og því væri ekki hægt
að segja til um áhrif mengunar-
innar þar.
- En telurðu, að á þessari
stundu sé hægt að segja hvort
það sé fýsilegur kostur að reisa
álver þarna?
„Nei, ég mundi ekki treysta
mér til að segja já eða nei, með
mengunarþáttinn í liuga, fyrr
en ég hef fengið endanlega
skýrslu. Þetta er í raun og veru
bara vinnuplagg."
- Verður lokaskýrslan
eitthvað öðruvísi?
„Hún verður nokkuð mikið
ákveðnari, en hún fríar engan
frá því að taka persónulega
afstöðu til málsins," sagði Jón
Sigurðarson.
„Lakari niðurstaða en
ég gerði ráð fyrir"
- segir Ólafur Vagnsson
■ Ólafur Vagnsson fulltrúi
Náttúruverndarnefndar Eyja-
fjarðarsýslu gagnrýndi þann
stutta fyrirvara, sem var á boð-
un fundarins, þar sem heima-
mönnum hefðu ekki borist
gögnin fyrr en í síðustu viku.
En telur hann, að það sé fýsi-
iegt að byggja álver við Eyja-
fjörðinn, á grundvelli þeirra
gagna, sem lögð voru fram á
fundinum?
„Það eru líkur á því, að
menn túlki það nokkuð hver
með sínum hætti, eftir því
hvernig þeir eru stemmdir í
málinu. Mér finnst þetta vera
lakari niðurstaða, en ég háfði
gert ráð fyrir. Það er stærra
svæði innan þeirra marka, þar
sem menn telja hættu á tjóni
fyrir gróður og dýralíf. Mér
finnst þetta því ekki fýsilegur
kostur. Hins vegar er það
matsatriði. Sumir telja
kannski, að það geri lítið til þó
að búskapur leggist niður á
einum tuttugu jörðum.“
- Þannig að þú ert á móti
álverinu á grundvelli þessara
upplýsinga?
„Já, ég myndi segja það“.
- En ertu almennt á móti
álveri á þessum stað?
„Ég hef alltaf verið með
efasemdir fyrir þetta svæði.
Hér er staðviðrasamt og ég hef
alla tíð verið hræddur um, að
niðurstaðan yrði frekar nei-
kvæð hér, miðað við önnur
svæði, þar sem ekki er eins
samfelldur gróður og búskap-
ur, og þar sem einnig er meiri
loftdreifing á mengunarefnun-
um. Það er staðviðrið, sem
gerir það að verkum, að þarna
verður mikil mengun á mjög
ákveðnu svæði,“ sagði Ólafur
Vagnsson.
Eigið hverfi sem tákn
fyrir eitthvað stærra
Sænski rithöfundurinn Jacques Werup í Norræna húsinu í dag
■ „Ég hef einu sinni áður komið til íslands. Mig minnir að það
hafi verið 1974, þegar veturinn var sem svartastur um miðjan
janúar. Ég lék á saxófón á þessum árum og kom til að spila undir
Ijóðalestur sænskra og íslcnskra Ijóðskálda. Þetta var svona
nokkurs konar ljóða kabarett, sem var mjög nýstárlegt þá. Við
ferðuðumst um landið og það kom alls staðar fullt af fólki. Ég man
að við komum líka fram hérna í Norræna húsinu og það er
sérkennileg tilfinning að sitja hérna aftur og að koma hér fram. Ég
ætla að nota daginn til að velta fyrir mér hvað hefur gerst þessi ár
sem liðin eru síðan ég var hérna síðast.“
Það er sænski rithöfundurinn
Jacques Werup, sem hefur
orðið. Hann les upp úr verkum
sínum í Norræna húsinu í dag á
bókmenntakynningu á vegum
sænskudeildar Háskólans. Wer-
up er Skánverji, uppalinn í
Malmö og býr nú úti í sveit í
Suðaustur-Skáni. Þ.e. þegar
hann er í Svíþjóð. Hann er
mikill ferðalangur og undan-
farna vetur hefur hann dvalið í
París.
„Ég var orðinn þreyttur á mínu
eigin tungumáli og hafði þörf
fyrir að kynnast nýju menning-
arumhverfi og læra nýtt tungu-
mál. Ég hef skrifað margar
bækur og ég var hræddur við
stöðnun, sérstaklega hvað varð-
ar málnotkunina. Það er hollt
fyrir rithöfund að kynnast nýju
tungumáli. Maður er þvingaður
til að byrja að hugsa hluti upp á
nýtt. Utlendingur lendir á á-
kveðinn hátt utangarðs. Maður
týnir sjálfsímyndinni og verður
að finna hana upp á nýtt. Það er
hollt fyrir manneskju sem lifir
af málinu ef svo má segja.
Sjálfur er ég rithöfundur sem á
mjög létt með að skrifa og slíkt
vekur alltaf tortryggni. Ég hef
orðið tortrygginn út í sjálfan
mig af þessum sökum. Þess-
vegna hefur verið gott fyrir mig
að hvíla mig á sænskunni og
takast á við hana upp á nýtt.
Núna fæst ég lítið eitt við þýð-
ingar úr frönsku yfir á sænsku.“
Werup hefur skrifað 14
bækur, 7 skáldsögur og 7 ljóða-
bækur, og telur gott fyrir skáld-
sagnahöfund að aga tungutak
sitt af og til við ljóðagerð. En
um hvað fjalla sögur hans?
Hann reynir að skýra það með
nokkrum orðum. „Sú saga mín
sem hefur fengið bestar móttök-
NT-mynd: Ámi Bjama
Jacques Werup.
ur er „Casanovas senare resor."
Þar greinir frá Casanova dagsins
í dag, afkomanda þess, sem
uppi var á 17. öld. Hann ferðast
um gjörvallan heiminn og leitar
að hinni altæku ást. Ég held að
höfuðtemað í mínum sögum sé
heimþráin, leit mannsins að ein-
hverjum miðpunkti heimsins.
Slíkur miðpunktur er ekki til að
mínu mati. Hann er helst þar
sem þú hefur vaxið upp.“ Og
Werup setur fram heimspeki
sem lætur kunnuglega í íslensk-
um eyrum.
„Sá sem býr í Stokkhólmi eða
New York telur gjarna að hann
búi nær atburðunum en ég sem
bý upp í sveit á Skáni. En þetta
er ekki þannig. Það er í þínu
hverfi sem hlutirnir gerast.
hvort sem það er Stokkhólmur,
eða sveit á Skáni. Ég reyni að
fjalla um það sem ég þekki af
eigin reynslu og gera það tákn
fyrir eitthvað stærra."