NT - 16.03.1985, Blaðsíða 9
Laugardagur 16. mars 1985 9
Guösþjónustur í Reykjavík-
urprófastsdæmi sunnudag-
inn 17. mars 1985.
Árbæjarprestakail
Barnasamkoma í Safnaðar-
heimili Árbæjarsóknar kl.
10.30. Guðsþjónusta í Safn-
aðarheimilinu kl. 2.00. Org-
anleikari Jón Mýrdal. Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
Ásprestakall
Barnaguðsþjónusta kl.
11.00. Guðsþjónusta kl.
2.00. Þriðjudag 19. mars,
aðalfundur safnaðarfélags
Ásprestakalls í Safnaðar-
heimili Áskirkju kl. 20.30.
Miðvikudag: Föstumessa kl.
20.30. Sr. Arni Bergur Sig'ur-
björnsson.
Breiðholtsprestakall
Barnaguðsþjónusta kl.
11.00. Messa kl. 14.00 í
Breiðholtsskóla. Sr. Lárus
Halldórsson.
Bústaöakirkja
Barnaguðsþjónusta kl.
11.00. Sr. Sólveig Lára
Guðmundsdóttir. Guðsþjón-
usta kl. 2.00. Organleikari
Guðni Þ. Guðmundsson.
Fundur Bræðrafélags Bú-
staðakirkju mánudagskvöld
kl. 20.30 í Safnaðarheimil-
inu. Æskulýðsfundur þriðju-
dagskvöld kl. 20.00. Félags-
starf aldraðra miðvikudag kl.
2-5. Föstumessan á miðviku-
dag fellur niður að þessu
sinni. Sr. Ólafur Skúlason.
Digranesprestakall
Barnasamkoma í Safnaðar-
heimilinu við Bjarnhólastíg
kl. 11.00. Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 11.00.
Biblíulestur í Safnaðarheim-
ilinu fimmtudagskvöld kl.
20.30. Sr. Þorbergur Krist-
jánsson.
Dómkirkjan
Laugardag: Barnasamkoma
i kirkjunni kl. 10.30. Sr.
Agnes M. Sigurðardóttir.
Messa kl. 11.00. Mikill tón-
listarflutningur. Organleik-
ari Helgi Pétursson. Dóm-
kórinn syngur, söngstj. Mar-
teinn H. Friðriksson. Sr.
Þórir Stephensen. Kl. 2.00
föstumessa. Litanían sungin.
Sr. Hjalti Guðmundsson.
Landakotsspítali: Messa kl.
10.30. Organleikari Birgir
Ás Guðmundsson. Sr. Hjalti
Guðmundsson.
Elliheimiliö Grund
Guðsþjónusta kl. 14.00. Sr.
Stefán Snævarr fyrrverandi
prófastur prédikar. Félag
fyrrverandi sóknarpresta.
Fella- og Hólaprestakall
Laugardag: Barnasamkoma
í Hólabrekkuskóla kl. 14.00.
Sunnudag: Barnasamkoma í
Fellaskóla kl. 11.00. Sr.
Hreinn Hjartarson.
Fríkirkjan í Reykjavík
Guðsþjónusta kl. 14.00. Sr.
Kristinn Ágúst Friðfinnsson,
útgáfustjóri Skálholts,
messar. Fríkirkjukórinn
syngur undir stjórn Pavels
Smid. Fimmtudag 21. mars,
föstumessa kl. 20.30. Föstu-
dag 22. mars Biblíulestur kl.
20.30. Fermingarbörn komi
laugardaginn 23. mars kl.
14.00. Bænastund í Fríkirkj-
unni virka daga (þriðjud.,
miðvikud., fimmtud. og
föstud.) kl. 18.00 og stendur
í stundarfjórðung. Sr. Gunn-
ar Björnsson.
Grensáskirkja
Barnasamkoma kl. 11.00.
Guðsþjónusta með altaris-
göngu kl. 14.00. Organleik-
ari Árni Arinbjarnarson.
Kvöldvaka fyrir aldraða
fimmtudagskvöld kl. 20.00.
Æskulýðsstarf föstudag kl.
17-19. Sr. Halldór S.
Gröndal.
Hallgrímskirkja
Barnasamkoma og messa kl.
11.00. Sr. Karl Sigurbjörns-
son. Messa fyrir heyrnar-
skerta og aðstandendur
þeirra kl. 14.00: Sr. Miyako
Þórðarson. Kvöldmessa með
altarisgöngu kl. 17.00. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson.
Þriðjudag: Fyrirbænaguðs-
jrjónusta kl. 10.30, beðiðfyr-
ir sjúkum. Miðvikudag:
Föstumessa kl. 20.30. Eftir
messuna starfar leshringur
um Lima-skýrsluna í umsjá
dr. Einars Sigurbjörnssonar.
Laugardag 23. mars: Sam-
vera fermingarbarna kl. 10-
14. Félagsvist í safnaðarsal
kl. 15.00. Kvöldbænir með
lestri passíusálms eru í kirkj-
unni alla virka daga nema
miðvikudaga kl. 18.00.
Landspítalinn: Guðsþjón-
usta kl. 10.00. Sr. Ragnar
Fjalar Lárusson.
Háteigskirkja
Messa kl. 10.00. Barnaguðs-
þjónusta kl. 11.00. Sr. Arn-
grímur Jónsson. Messa kl.
2.00. Sr. Tómas Sveinsson.
Föstuguðsþjónusta miðviku-
dagskvöld kl. 20.30.
Borgarspítalinn: Guðsþjón-
usta kl. 10.00. Sr. Tómas
Sveinsson.
Kársnesprestakall
Laugardag: Barnasamkoma
í Safnaðarheimilinu Borgum
kl. 11 árd. Sunnudag: Guðs-
þjónusta í Kópavogskirkju
kl. 2.00. Þriðjudag: Almenn-
ur fundur á vegum fræðslu-
deildar safnaðarins í Borgum
kl. 20.30. Dr. Björn Björns-
son flytur 4. erindið um sið-
fræðilegt efni og fjallar það
um tæknihyggju og siðfræði.
Fyrirspurnir og almennar
umræður. Sr. Árni Pálsson.
Langholtskirkja
Óskastund barnanna kl.
11.00. Söngur - sögur - leik-
ir. Sögumaður Sigurður Sig-
urgeirsson. Guðsþjónustakl.
2.00. Organleikari Kristín
Ögmundsdóttir. Prestur sr.
Sigurður Haukur Guðjóns-
son. Sóknarnefndin.
Laugarnesprestakall
Laugardag: Guðsþjónusta í
Hátúni 10B,9. hæðkl. 11.00.
Sunnudag: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11.00. Messa kl.
14.00. Altarisganga. Þriðju-
Jag: Bænaguðsþjónusta á
föstu. Altarisganga. Sr. Jón
Dalbú Hróbjartsson.
Neskirkja
Föstuguðsþjónusta í kvöld
kl. 8. Séra Frank M. Hall-
dórsson. Laugardag: Sam-
verustund aldraðra „eða í
ungmennafélaginu“ kl.
15.00. Guðmundur H. Garð-
arsson kynnir eitt og annað í
sjávarútvegi landsmanna og
sýnir kvikmynd. Sr. Frank
M. Halldórsson.
Sunnudag: Barnasamkoma
kl. 11.00. Guðsþjónusta kl.
14.00. Orgel og kórstjórn
Reynir Jónasson. Sr. Guð-
mundur Óskar Ólafsson.
Fimmtudag, föstuguðsþjón-
usta í umsjá sr. Lárusar Hall-
dórssonar kl. 20.00. Sr. Guð-
mundur Óskar Ólafsson.
Ath. Opið hús fyrir aldraða
þriðjudag og fimmtudag kl.
13-17. (Húsið opnað kl.
12.00).
Seljasókn
Barnaguðsþjónusta í Öldu-
:elsskóla kl. 10.30. Barna-
guðsþjónusta í íþróttahúsi
Seljaskólans kl. 10.30. Guðs-
þjónusta í Ölduselsskóla kl.
14.00. Æskulýðsfélagið Seli
heldur fund þriðjudagskvöld
kl. 20.00 í Tindaseli 3. Gest-
ur fundarins er Eðvarð Ing-
ólfsson. Fimmtudag 21.
mars, ' fyrirbænasamvera í
Tindaseli 3, kl. 20.30. Sókn-
arprestur.
Seltjarnarnessókn
Barnasamkoma í Sal Tón-
skólans kl. 11.00. Sóknar-
nefndin.
Hvammstangakirkja
Messa verður f Hvamms-
tangakirkju n.k. sunnudag
kl. 14.00. Barnaguðsþjón-
usta verður kl. 11.00. Séra
Guðni Þór Ólafsson.
Bridgehátíðin hafin: r
Danskur Islendingur
meðal þátttakendanna
■ Þegar þessi orð koma fyrir
augu lesenda NT er Bridgehá-
tíð 1985 komin á fulla ferð á
Hótel Loftleiðum og níutíu og
sex spilarar eru að láta þreyt-
una líða úr sér eftir átök föstu-
dagskvöldsins.
Fjörutíu og átta pör taka
þátt í tvímenning Bridgehátíð-
ar og er það mesta þátttaka frá
upphafi, það stafar aðallega af
því að nú taka fleiri erlend pör
þátt en áður. Sérstaklega virð-
ist Bridgehátíð hafa vakið
mikla athygli í Danmörku því
7 pör koma þaðan. Landsliðs-
pörunum þrem, Möller-
Blakset, Auken-Kock og
Kalkerup-Möller, var sérstak-
lega boðið á mótið af móts-
höldurum en þar utan koma
fjögur pör sem mynduð eru af
ungum spilurum.
Islendingar hafa að vísu séð
tvo af þeim spilurum oft áður,
íslendingana Skafta Jónsson
og Sævar Þorbjörnsson en þeir
eru nú báðir búsettir í Kaup-
mannahöfn. Raunar mun Sæv-
ar hafa verið iðinri við að vekja
athygli yngri spilara Dana á
þessu móti og árangurinn er nú
kominn í Ijós.
En í þessum hópi er raunar
þriðji íslendingurinn, þó færri
viti af honum. Sá heitir Jon
Jonsson og er einn af bestu
spilurunt Dana af yngri kyn-
slóðinni. En í rauninni er hann
íslenskur ríkisborgari þó hann
hafi aðeins einu sinni áður
komið til íslands. Föðurafi
hans var nefnilega íslendingur
sem fluttist til Kaupmanna-
hafnar og giftist danskri konu
en hélt íslenska ríkisborgara-
réttinum og hann gekk í arf til
sonar hans og sonarsonar. Jón
hefur þó spilað í dönskum
landsliðum yngri spilara, m.a.
í liðinu senr árið 1983 varð
jafnt því sænska á Norður-
landamóti yngri spilara 1983
en tapaði titlinum á óhagstæðu
stigahlutfalli.
Fyrir þá sem ganian hafa af
því að velta fyrir sér ættar-
tengslum má einnig geta þess
að Jens Auken, landsliðsmað-
ur Dana, sem venjulega spilar
við Stig Werdelin. er yngri
bróðir Sven Auken, en Sven er
nú varaformannskandidat
Jafnaðarmannaflokksins
danska og þykir líklegur sem
arftaki Ankcr Jörgensen þegar
fram líða stundir.
Ég ætla að láta frekari um-
fjöllun um Bridgehátíð 1985
bíða þar til eftir helgi en þá
verður sagt ítarlega frá úrslit-
um og gangi mála í NT.
Bridgefélag Mennta-
skólans að Laugarvatni
Nýlokið er Butlcr-tvímenningi
félagsins. Var keppni hörð og
jöfn. 10 pör mættu til Ieiks.
Úrslit urðu
1. Skúli Sæland -
Kjartan Ingvarsson ' 158
2. Gunnlaugur Karls. -
Ingólfur Haraldsson 157
3. Sigurjón H. Björns. -
Agnar Ö. Arason 153
4. Eiríkur Jónsson -
Sigurpáll Ingibergs 146
5. Gunnar Þ. Jóhanness. -
Jón Valgeirsson 138
Fyrir áramót var haldin aðal-
sveitakeppni með þátttöku að-
eins 5 sveita.
Sveit Stig
1. Eiríks Jónssonar 89
2. Agnars Arasonar 70
3. Gunnars Þ. Jóhannessonar 55
Auk Eiríks í-sigursveitinni spil-
uðu Sigurpáll Ingibergs, Guðjón
Stefánsson og Hermann Þ. Erl-
ingsson. Var þctta í fjórða skipti í
röð sem Hermann vinnur keppn-
ina.
í febrúarmánuði var haldinn
einskvölds Risatvírnenningur rpeð
þátttöku 18 para. Úrslit urðu:
Stig
1. Ásmundur Örnólfsson -
Sigþór Sigþórsson 178
2. Sigurjón H. Björnsson -
Agnar Arason 175
3. Róbert D. Boulter-
Helgi Einarsson 173
4. Skúli Sæland -
Kjartan Ingvarsson 171
5. Hermann Þ. Erlingsson -
Guðjón Stefánsson 154
Næstu verkefni félagsins verða
að halda hraðsveitakeppni og
aðalsveitakeppni með barómeter
fyrirkomulagi.
Bridgedeild Breiðfirðinga
Bræðurnir Bjarni og Sveinn
Jónssynir sigruðu örugglega í
aðaltvímenning félagsins með
góðum endaspretti, og þegar
Halldór Jóhannesson og Ingvi
Guðjónsson, sem héldu forust-
unni nær allt mótið, gáfu eftir
í lokin skutust Bragi Erlends-
son og Ríkharður Steinbergs-
son í annað sætið.
Lokaröð efstu para varð
þessi:
Bjarni Jónsson -
Sveinn Jónsson 880
Bragi Erlendsson -
RíkharðurSteinbergss. 691
Halldór Jóhannesson -
Ingvi Guðjónsson 611
Gísli Víglundsson - Þórarinn Árnason 590
Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 523
Baldur Árnason - Sveinn Sigurgeirsson 474
Hans Nielsen - Lárus Hermannsson 473
Birgir Sigurðsson - Öskar Karlsson 454
Næsta mót á vegum félagsins
er hraðsveitakeppni og hefst
hún næsta fimmtudagskvöld.
Bridgedeild
Húnvetninga
Eftir 10 umferðir af 13 í
aðalsveitakeppni félagsins er
staða efstu sveita þessi:
Jón Oddsson 152
Valdemar Jóhannsson 151
Halldóra Kolka 149
Hreinn Hjartarson 144
Kári Sigurjónsson 128
Bridgedeild
Hreyfils og Bæjarleiða
Sveit Cyrusar Hjartarsonar
vann hraðsveitakeppni félags-
ins sem lauk í vikunni. Loka-
röðin varð þessi:
Cyrus Hjartarson 247
Birgir Sigurðsson 242
Anton Guðjónsson 229
Gísli Sigurtryggvason 207
Mikael Gabrielsson 170
Bridgedeild
Rangæinga
Eftir 10 umferðir í aðal-
sveitakeppni félagsins er stað-
an þessi:
Lilja Halldórsdóttir 207
Gunnar Helgason 204
Gunnar Alexandersson 199
Sigurleifur Guðjónsson 194
Bridgefélag
Reykjavíkur
Aðaltvímenningskeppni
B.R. 1985 lauk sl. sunnudag.
Spá manna um spennandi
lokasprett reyndist rétt, því
efsta sætið skipti nokkrum
sinnum um eigendur. í næst-
síðustu umferð náðu þeir Stef-
án Pálsson og Rúnar Magnús-
son afgerandi forustu, sem þeir
héldu í síðustu umferðinni og
eru þeir því tvímenningsmeist-
arar B.R. þetta árið. Er þetta
glæsilegur árangur hjá þessum
ungu spilurum og mun vera
þeirra fyrsti meiri háttar móts-
sigur, en ekki kæmi á óvart
þótt fleiri fylgdu í kjölfarið.
Að venju voru flest okkar
beztu pör með í slagnum, sem
gerir sigur þeirra félaga enn
eftirtektarverðari. Er þeim
óskað til hamingju með sigur-
inn.
Efstu 10 pörin urðu:
stig
1. Stefán Pálsson -
Rúnar Magnússon 547
2. Hjalti Elíasson -
Jón Baldursson 505
3. Símon Símonarson -
Jón Ásbjörnsson 471
4. Einar Jónsson -
HjálmtýrR. Baldurs. 468
5. Aðalsteinn Jörgensen -
Valur Sigurðsson 460
6. Stefán Guðjohnsen -
Þórir Sigurðsson 433
7. Ásmundur Pálsson -
Sigurður Sverrisson 409
8. Ólafur Lárusson -
Oddur Hjaltason 369
9. Jón Páll Sigurjónsson -
Sigfús Örn Árnason 273
10. Guðmundur Pétursson -
Hörður Blöndal 260
Tafl- & bridge klúbburinn
Nú er lokið aðal-sveita-
keppni T.B.K. nteð sigri sveit-
ar Gests Jónssonar. Ásamt
Gesti eru í sveitinni þeir Sigfús
Örn Árnason, Sigtryggur Sig-
urðsson, Sverrir Kristinsson,
Ragnar Magnússon og Sigur-
jón Tryggvason.
Annars urðu endanleg úrslit
þessi:
sveit stig
1. Gests Jónssonar 192
2. Antons Gunnarss. 156
3. Gísla Tryggvasonar 140
4.-5. Þorsteins Kristjánssonar
og
Auðuns Guðm. 131
Fimmtudaginn 21. mars
hefst fjögurra kvölda Baro-
meterskeppni félagsins og
hefst eins og venjulega kl.
19.30 að Domus Medica.
Væntanlegir þátttakendur
láti skrá sig sem fyrst eða eigi
síðar en á mánudagskvöld
18/3 n.k. hjá eftirtöldum að.il-
um: Þátttökufjöldi miðast við
36 keppnispör.
Tryggvi í símum 24856 eða
36744
Bragi í símum 30221 eða
19744
Frá Bridgedeild
Skagfirðinga
34 pör mættu til leiks í 4
kvölda Mitchell-tvímennings-
keppni hjá félaginu, sem hófst
sl. þriðjudag. Eftir 1. kvöldið,
eru eftirtalin pör í efstu sætum:
N/S: stig
1. Margrét Jensdóttir-
Eggert Benónýsson 450
2. Gústaf Björnsson -
Rúnar Lárusson 428
3. Esther Jakobsdóttir -
Hjálmar Pálsson 406
4. Björn Hermannsson -
Lárus Hermannsson 401
5. Hildur Helgadóttir-
Karólína Svcinsdóttir 393
A/V: stig
1. Guðni Kolbeinsson -
Magnús Torfason 426
2. Gísli Steingrímsson -
Guðm. Thorsteinss. 418
3. Arnar IngólfSson -
Magnús Eymundsson 418
4. Guðrún Hinriksdóttir -
Haukur Hannesson 414
5. Sigmar Jónsson -
Vilhjálmur Einarsson 408
Meðalskor í báðunt áttum
364 stig
í næstu umferð verður slöngu-
raðað eftir árangri.
Bridgedeild
Barðstrendingafélagsins
Staðan eftir 18 umferðir í
barómeterkeppni félagsins:
stig
Guðmundur Jóhannsson -
Jón Magnússon 177
Björn Þorvaldsson -
Þorgeir Jósefsson 156
Ragnar Þorsteinsson -
Helgi Einarsson 155
Ragnar Hermannsson -
Hjálmtýr Baldursson 133
Friðjón Margeirsson -
Valdimar Sveinsson 127
Næstu 6 umferðir verða spil-
aðar mánudaginn 18. mars og
hefst keppni stundvíslega kl.
19.30. SpilaðeríSíðumúla25.
Hinn kunni bridgespilari,
Sveinn Helgason bókari hjá
Brunabótafélagi íslands, lést
sl. mánudag. Raunar var
Sveinn mun þekktari sem
íþróttamaður, en hann var
fastamaður í landsliði íslands,
bæði í knattspyrnu og hand-
knattleik á árunum kringum
1950 og margfaldur íslands-
meistari með Val í þessum
greinum.
Þó Sveinn hafi lítið spilað
keppnisbridge á síðustu æviár-
um sínum hafði hann mikinn
áhuga á íþróttinni og fvlgdist
með öllum mótum sem hann
gat komið við. Sérstaklega
hafði hann ánægju af því að
fylgjast með ungu kynslóðinni
taka sína fyrstu slagi við spila-
borðið og udnirritaður minnst
með þakklæti þeirra stunda
sem Sveinn sat við hliðina á
honum og fylgdist með og
uppörvunarorðum sem hann
lét falla.
■ Sveinn Helgason.