NT - 16.03.1985, Blaðsíða 13
Laugardagur 16. mars 1985 13
í næsta mánuði. Þeir hafa þó
gefið sér smá tíma til hvíidar
og var hann notaður til að taka
upp nokkra sjónvarpsþætti...
Squeeze endurvakin
Hljómsveitin Squeeze hefur
verið vakin til lífs á ný og eru
flestir upphaflegu meðlimirnir
með í upprisunni.
Þessar upplýsingar eru hafð-
ar eftir A&M plötuútgáfunni
og þótt fréttir séu enn óljósar
virðist sem í hinni nýju útgáfu
verði Chris Difford og Glenn
Tilbrook sem á sínum tíma
stofnuðu hljómsveitina, ásamt
Jools Hoiland á hljómborð og
Gilson Lavis á trommur. Enn
er óljóst hvort John Bentley
bassaleikari tekur þátt í ævin-
týrinu.
Dire Straits á faraldsfæti
Knofler og félagar leggja
upp í meiri háttar tónleikaferð
um Bretland á sumri komandii.
Tónleikarnir hefjast í Birm-
ingham í lok júní en á pró-
gramminu eru 10 konsertar á
Wembley-leikvanginum og
mun Karl Bretaprins verða
■ Difford og Tilbrook ætla að hlcypa nýju lífí í Squeeze.
gestur á fyrstu tónleikunum,
en allur ágóði af þeim rennur í
sérstakan styrktarsjóð sem ber
nafn hans.
David Byron látinn
David Byron, fyrrum söngv-
ari vinsælustu þungarokk-
hljómsveitar „dauðakynslóð-
arinnar", Uriah Heep, fannst
látinn á heimili sínu í síðustu
viku.
Byron varð 37 ára gamall en
hætti sem söngvari í UH árið
1976. Til stendur að halda
sérstaka minningarhátíð. Ekki
er vitað hvernig dauða hans
bar að höndum en Mike Box,
fyrrum félagi hans í UH, sagði
að fréttin hefði haft djúp áhrif
á meðlimi hljómsveitarinnar.
Uriah Heep hefur verið á tón-
leikaferðalagi „og við höldum
því áfram því þannig hefði
David viljað hafa það," sagði
Mike Box, sem lék með David
Byron í ein 15 ár.
■ Sprellararmr i Etron Fou Leloublan troða upp i Safarí á
fímmtudaginn keinur.
■ Oxmá koma í fyrsta skipti fram í Reykjavík eftir frækilega
Iiollandsferð, en þeir fóru í frækilega isafjarðarferð að hinni
lokinni.
Söngvakeppni Hollywood og Sóló sf:
Guðjón
vann!
■ Guðjón Guðmundsson
sigraði í söngvakeppni Holly-
wood og Sóló sLsem haldin var
í Hollywood um síðustu helgi.
Stakk hann því af með aðal-
vinninginn, 20 tíma í upp-
tökusal.
1 öðru sæti varð Sigurður
Dagbjartsson en þriðja sætíð
hreppti eina stúlkan sem tók
þátt í keppninni, Sigríður
Björgvinsdóttir. Guðjón er
nemandi í Ármúlaskólanum
og hefur verið viðloðandi
músík, meira og minna,
undanfarið og troðið upp á
framhaldsskólakeppnum.
Keppnin þótti takast í alla
staði vel og var húsfyllir og vel _____________________________
það. Hljómsveitin Rikshaw lek Sigurvegarinn kampakátur að lokinni verðlaunaafhendingu.
undir fyrir keppendur og fyrir* s r NT.m,nd:A,
dansi á eftir.
■ Jóhanna Steinunn songkona i Dá í sveiflu í Safarí á dögunum.