NT - 16.03.1985, Side 14
lít
Laugardagur 16. mars 1985 14
Sjónvarp kl. 21.35 - sunnudag
Rauðhærð
afturganga
í sjónvarpshúsinu!
■ Sigurjóna Sverrisdóttir í
DRAUGASÖGU.
■ Ný íslensk sjónvarpsmynd
er á dagskrá Sjónvarpsins á
sunnudagskvöld. Nafn mynd-
arinnar er „DRAIJGA-
SAGA“. Höfundareru (fddur
Björnsson og Viðar Víkings-
son, sem einnig er leikstjóri.
Kvikmyndatökumaður er Örn
Sveinsson. Blaðamaður NT
talaði við hann og forvitnaðist
um hvernig myndatakan í sjón-
varpshúsinu hefði gengið fyrir
sig, en í því húsi gerist myndin
aðallega. Örn sagði:
„Það var mjög skemmtileg
reynsla, að vinna við þessa
ntynd. Þetta er krefjándi verk-
efni. Myndin er tckin meira í
myrkri og aö köldlagi en geng-
ur og gerist með kvikmyndir.
Svo er hún tekin hér innan
veggja Sjónvarpsins að miklu
leyti, svo þetta er svolítið öðru-
að komast að þegar allir voru
við vinnu, og svo átti jú myndin
að meslu að gerast að nætt r-
lagi.
„Þetta gekk bara eins og í
sögu, og ég hafði gaman af að
vinna við Draugasögu. Það
þurfti töluvert að spekúlera í
lýsingu og myndatöku, því að
aðstæður voru svo sérstæðar.
Nú í dag (þriðjudag) er ég
að litgreina myndina, íhuga liti
og grófleika á filmu og annað
tæknilegs eðlis, en við, sem
höfum unnið svona mikið í
myndinni, erum ekki vel færir
að segja til um hvort myndin er
skemmtileg eða ekki. Maður
er orðinn of flæktur í málið til
að geta dæmt um það. En ég
get lofað áhorfendum því, að
þarna eru ýmsar mjög spenn-
andi senur. Það er þó ekki svo
gott að tala rnikið um efnið
fyrirfram, það getur eyðilagt
eftivæntingu áhorfendanna,"
sagði Örn Sveinsson.
Örn sagði, að stjórnunin við
upptöku myndarinnar hefði
mest hvílt á herðum Viðars
Víkingssonar.
í aðalhlutverkum eru Sigur-
jóna Sverrisdóttir og Kristján
■ Örn Sveinsson kvikmyndatökumaður (t.v.) og Viðar Víkings-
son leikstjóri og annar höfundur inyndarinnar. (NT-mynd svcrrír)
vísi verkefni en maður er vanur
að vinna."
- Nú er myndin mikið tckin
að nóttu til í Sjónvarpshúsinu.
Uröuð þiö vör við nokkurn
draugagang í húsinu?
„Nei, þaö komst enginn hús-
draugur í spilið hjá okkur,"
sagði Örn og hló. Hann sagði
að myndatakan sjálf hefði tek-
ist vel og verið lokið á um það
bil mánuði. Mikið var unnið á
nóttunni, því ekki var svo gott
Franklín Magnús. Aðrir
leikarar eru: Rúrik Haralds-
son, Þorsteinn Hannesson,
Guðmundur Ólafsson og
Kristbjörg Kjeld.
Kvikmyndatöku sá Örn
Sveinssop um. Hljóð: Agnar
Einarsson. Klipping: ísidór Her-
mannsson. Leikmynd: Gunnar
Baldursson.
„Myndin gerisl að mestu
innan veggja sjónvarpshússins.
Þar eiga sér stað dularfullir
atburðir að næturlagi og sögur
komast á kreik um ískyggilega
rauðhærða afturgöngu. Förð-
unardama og ungur nætur-
vörður sýna málinu sérstakan
áhuga," segir í kynningu Sjón-
varpsins á myndinni „Drauga-
sögu“.
■ Þorvaldur Halldórsson og börn úr sunnudagaskóla Grensás-
kirkju taka lagið í Stundinni okkar á sunnudaginn.
Sjónvarp sunnudag kl. 17.10:
Lögf ræðingur í Hnetulundi
fór að hann fékk sjónina aftur,
en María lifir enn í sínum
formyrkvaða heimi.
í þættinum nú á sunnudag
snúa Adam og María aftur
heim í Hnetulund og hann
setur þar upp lögfræðiskrif-
stofu.
Þýðandi Hússins á sléttunni
er Óskar Ingimarsson.
■ María og Adam flytjast
aftur til Hnetulundar.
Sjónvarp sunnu-
dag kl. 18.00:
Þorvaldur
Halldórs*
son syng-
ur í Stund-
inni okkar
■ Að venju kennir ýmissa
grasa í Stundinni okkar á sunn-
udaginn, sem hefst kl. 18.
Þar leikur Lóló, sem Elfa
Gísladóttir leikur, sér við
gæludýrin sín og segir ýkjusög-
ur. Þar syngur Þorvaldur Hall-
dórsson með börnum úr
sunnudagaskóla Grensás-
kirkju. Ömar Konráð, tann-
læknir í „Litlu hryllingsbúð-
inni“ afhendir þar verðlaun
fyrir síðustu getraun og raun-
verulegur tannlæknir kemur
við sögu ásamt ungum gesti á
stounni hjá honum. Smjatt-
pattar verða á ferðinni og fleiri
gestir.
Umsjónarmenn Stundarinn-
ar okkar eru Ása H. Ragnars-
dóttir og Þorsteinn Marelsson.
Stjórn upptöku annast Andrés
Indriðason.
■ Á sunnudagkl. 17.10verð-
ur í sjónvarpi enn einn þáttur
af Húsinu á sléttunni, og þykir
mörgum enginn sunnudagur
vera nema megi ganga að þeim
sívinsæla þætti á sínum stað í
dagskránni. Jafnóðum og ein-
hverjir áhorfendur „vaxa upp
úr því“ að horfa á og fylgjast
með Ingalls-fjölskyldunni og
nágrönnum hennar í Hnetu-
lundi, koma aðrir í staðinn.
Oft hefur áhorfendum runn-
ið til rifja ýmsar raunir Ingalls-
fjölskyldunnar og bágt var að
sætta sig við að María yrði
blind á sínum tíma. Hún giftist
skólabróður sínum á blindra-
skólanum, Adam Kendall. Svo
Útvarp sunnudag kl. 15.15:
H an n san ndi ■ » Þi jóð- [
söng“ Hafnarf jarðar
Dagskrá um Friðrik Bjarnason
■ Á sunnudag kl. 15.15 er
þáttur um Friðrik Bjarnason tón-
skáld í útvarpinu. Þar flyturStef-
án Júlíusson rithöfundur minn-
ingarbrot sín um Friörik og flutt
verða lög eftir hann.
Stefán Júlíusson þekkti Friðrik
Sjónvarp sunnudag kl. 20.55:
Stiklað um í Fjörðum
■ Á sunnudagskvöld kl.
20.55 verður 20. Stiklu-þáttur
Ómars Ragnarssonar.
í þessum þætti er stiklað um
á skaganum milli Eyjafjarðar
og Skjálfanda. Meðal annars
er farið úr Höfðahverfi í fylgd
með Haraldi Höskuldssyni á
Réttarholti norður í Fjörðum,
En svo eru eyðifirðirinr Hval-
vatnsfjörður og Þorgeirsfjörð-
ur nefndir.
mjög vel, en Friðrik var fyrst
söngkennari hans í barnaskóla
og síðar voru þeir samkennarar
um árabil. Þar að auki var Stefán
góður vinur þeirra hjóna alla tíð
frá barnaskólaárunum. Það eru
þessi kynni sem Stefán ætlar að
segja undan og ofan af og í því
sambandi fljóta með nokkrar smá
sögur. Inn á nrilli verða svo leikin
nokkur kunnustu lög Friðriks, s.s.
Fyrr var oft í koti kátt, til að
tninna útvarpshlustendur á hver
er höfundur þeirra.
Friðrik Bjarnason dó 1962 og
var þá 82 ára gamall. Hann hafði
frá 1908 átt heima í Hafnarfirði,
verið þar söngkennari til 1946 og
organleikari við Þjóðkirkjuna
1914-1950, eða í 36 ár. Hann var
■ Friðrik
Bjarnason tón-
skáld átti allan
sinn starfsaldur í
Hafnarflrði.
Stokkseyringur að ætt og upp-
runa og þeir Páll ísólfsson voru
bræðrasynir, báðir af Bergsætt,
en í þeirri ætt er geysilega mikið
söng- og músíkfólk. Friðrik byrj-
aði að spila og semja lög mjög
ungur, áður en hann byrjaði
skólagöngu, en hann varð kenn-
ari frá Flensborg 1904.
Friðrik Bjarnason er höfundur
„þjóðsöng" Hafnarfjarðar. Þú
hýri Hafnarfjörður, og samdi
kona hans, Guðlaug Pétursdótt-
ir, textann.
Laugardagur
16. mars.
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
7.25 Leikfimi. Tónleikar.
8.00 Fréttir. Dagskrá. Morgunorð-
Ástríður Fiaraldsdóttir talar.
8.15 Veðurfregnir.
8.30 Forustugr. dagbl. (útdr.). Tón-
leikar. 8.55 Daglegt mál.
9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar.
9.30 Óskalög sjúklinaa.
f f .20 Eitthvað fyrir alla Sigurður
Flelgason stjórnar þætti fyrir börn.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynning-
ar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.40 íþróttaþáttur. Umsjón: Ragnar
Örn Pétursson.
14.00 Hér og nu Fréttaþáttur I viku-
lokin.
15.15 Listapopp - Gunnar Salvars-
son.
'20.00 litvarpssaga barnanna:
„Grant skipstjóri og börn hans“
eftir Jules Verne.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 íslenskt mál
16.30 Bókaþáttur
17.10 Á óperusviðinu
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Á hvað trúir hamingjusam-
asta þjóð í heimi? .
20.20 Harmónikuþáttur Umsjón:
Högni Jónsson.
20.50 Sögurstaðir á Norðurlandi.
Hólar í Hjaltadal. Annar þáttur.
Umsjón: Hrafnhildur Jónsdóttir.
(Rúvak).
21.35 Kvöldtónleikar Þættir úr si-
gildum tónverkum.
22.00 Lestur Passíusálma (36).
22.15 Veðurfregnír. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Uglan hennar Minervu.
24.00 Miðnæturtónleikar.
00.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Sunnudagur
17. mars
8.00 Morgunandakt Séra Hjálmar
Jónsson flytur ritningarorð og bæn.
8.10 Fréttir.
8.15 Veðurfregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.).
8.35 Létt morgunlög Hljómsveitin
„101-strengur" leikur.
9.00 Fréttir.
9.05 Morguntónleikar
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.25 Stefnumót við Sturlunga Ein-
ar Karl Haraldsson sér um þáttinn.
11.00 Messa i Dómkirkjunni. Org-
anleikari Helgi Pétursson. Stjórn-
andi Dómkórsins er Marteinn H.
Friöriksson.
12.10 Dagskrá. Tónleikar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Forvígismaður í orði og
verki.
14.35 Frá tónleikum kammer-
músikklúbbsins í Bústaðar-
kirkju 25. nóv. sl.
15.15 Þáttur um Friðrik Bjarnason
tónskáld. Stefán Júlíusson rit-
höfundur flytur minningarbrot og
flutt verða lög eftir tónskáldið.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Um vísindi og fræði.
17.00 Frá tónlistarhátíðinni í Salz-
burg sl. sumar.
18.00 Vetrardagar Jónas Guð-
mundsson rithöfundur spjallar við
hlustendur.
18.20 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
,19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.35 Fjölmiðlaþátturinn Viðtals- og
umræðuþátttur um fréttamennsku ,
og fjölmiðlastörf. Umsjón: Hall-
grimurThorsteinsson.
20.00 Um okkur. Jón Gústafsson
stjórnar blönduðum þætti fyrir ung-
linga.
20.50 Hljómplöturabb Þorsteins
Hannessonar.
21.30 Útvarpssagan: „Folda“ eftir
Thor Vilhjálmsson. Höfundur les
(3).
22.00 Tónleikar.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Galdrar og galdramenn.
Umsjón: Haraldur I. Haraldsson.
(RÚVAK)
23.05 Djassþáttur. - Tómas Einars-
son.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
Nf
Laugardagur
16. mars
14:00-16:00 Léttur laugardagur.
Stjórnandi: Ásgeir Tómasson.
16.00-18.00 Milli mála Stjórnandi:
Helgi Már Barðason.
Hlé
24:00-24:45 Listapopp Endurtekinn
þáttur frá rás 1. Stjórnandi: Gunnar
Salvarsson.
24:45-03:00 Næturvaktin Stjórnandi:
Kristín Björg Þorstiensdóttir.
Rásirnar samtengdar að lokinni
dagskrá rásar 1.
Sunnudagur
17. mars
13:30-16:00 Krydd í tilveruna.
Stjórnandi. Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttir.
16:00-18:00 Vinsældalisti hlust-
enda rásar 2.20 vinsælustu lögin
leikin. Stjórnandi: Ásgeir Tómas-
son.
Laugardagur
16. mars
16.00 íþróttir Umsjónarmaður: Bjarni
Felixson.
18.30 Enska kanttspyrnan.
19.25 Þytur í laufi 2. Flökkulíf Bresk-
ur brúðumyndaflokkur i sex
þáttum. Þýðandi: Jóhanna Þráins-
dóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Við feðginin Breskur gaman-
myndaflokkur í þrettán þáttum.
Þýðandi: Þrándur Thoroddsen.
21.05 Kollgátan Fjóröi þáttur sþurn-
ingakeþpni Sjónvarpsins. Gestir:
Vilborg Sigurðardóttir og Ævar
Kjartansson. Umsjónarmaður: III-
ugi Jökulsson. Stjórn upptöku: Við-
ar Víkingsson.
21.30 Djasssöngvarinn (The Jazz
Singer) Bandarisk söngvamynd frá
1980. Leikstjóri: Michael Curtis.
Aðalhlutverk: Neil Diamond, Laur-
ence Olivier, Lucie Arnaz, Catlin
Adams og Sully Boyar. Ungur
maður kemst til frægðar og frama
sem dægurlagasöngvari. Faðir
hans er strangtruaður og er hátta-
lag sonarins mjög á móti skapi.
Þýðandi: Kristmann Eiðsson.
23.30 Dagskrárlok.
Sunnudagur
17. mars
17.00 Sunnudagshugvekja.
17.10 Húsið á sléttunni 17. Vegir
réttvfsinnar Bandarískur
framhaldsmyndaflokkur. Þýðandi:
Óskar Ingimarsson.
18.00 Stundin okkar Umsjónar-
menn: Ása H. Ragnarsdóttir og
Þorsteinn Marelsson. Stjórn upp-
töku: Andrés Indriðason.
18.50 Hlé.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Sjónvarp næstu viku. Um-
sjónarmaður: Guðmundur Ingi
Kristjánsson.
20.55 Stikiur 20. í fjörðum i þessum
þætti verður stiklað um eyðibyggð-
ir á skaganum milli Eyjafjarðar
og Skjálfanda t.d. Látraströnd,
Þorgeirsfjörð og Hvalvatnsíjörð.
Umsjónarmaöur: Ómar Ragnars-
son.
21.35 Draugasaga Ný sjónvarps-
mynd eftir Odd Björnsson og Viðar
Víkingsson sem einnig er leikstjóri.
Aðalhlutverk: Sigurjóna Sverrisdótt
ir, Kristján Franklín Magnús, Rúrik
Haraldsson, Þorsteinn Hannes-
son, Guðmundur Ólafsson og
Kristbjörg Kjeld. Kvikmyndataka:
Örn Sveinsson. Hljóð: Agnar Ein-
arsson. Klipping: ísidór Her-
mannsson. Leikmynd: Gunnar
Baldursson. Myndin gerist að
mestu innan veggja sjónvarps-
hússins. Þar eiga sér stað dularfullir
atburðir að næturlagi og sögur
komast á kreik um ískyggilega
rauðhærða afturgöngu. Förðunar-
dama og ungur næturvörður sýna
málinu sérstakan áhuga.
22.45 Dagskrárlok.