NT - 16.03.1985, Síða 21
ÍTlj Laugardagur 16. mars 1985 21
LU wr Útlönd
36 milljarðar kr. til rann-
sókna og þróunarstarfsemi
Brussel-Reuter
■ Efnahagsbandalag Evrópu
(EBE) birti í vikunni umfangsmikla
áætlun um rannsókna- og þróunar-
starfsemi (R&Þ), en til þessarar áætl-
unar verður varið 1,2 milljörðum
evrópudala (36 milljarðar kr.) til að
örva vísindastarfsemi í löndum EBE.
Stærstur hluti framlagsins, eða 690
milljónir evrópudala (20 milljarðar
kr.) rennur til rannsókna næstu fjögur
árin á sviði kjarnasamruna (Controll-
ed thermonuclear fusion), en að sögn
talsmanna EBE er kjarnasamruni
örugg orkulind fyrir framtíðina og er
laus við mengunarvandamál.
Því sem eftir stendur verður veitt
til rannsókna á sviði líftækni, annarra
orkugjafa en kjarnorku og loks á
sviði aðferða við eyðingu geislavirks
úrgangs.
Aætlun þessi verður samþykkt af
aðildarríkjum EBE nú í vikunni sem
er að líða.
■ EBE hefur nú lagt fram sundurliðaða áætlun um framlög til tæknirannsókna
á ýmsum sviðum til að búa Evrópuþjóðirnar undir hátækni 21. aldarinnar.
Utanríkisrádherrafundur Norðurlanda: I -tiiumræðu
Siglingabann
á Suður-Af ríku Ly™-
Kaupmannahöfn-Reuter.
■ Ályktun sem samþykkt
var á danska þinginu verður
rædd á fundi utanríkisráð-
herra Norðurlanda sem verð:
ur síðar í mánuðinum. í
þingsályktuninni er gert ráð
fyrir því að flutningaskipum
frá Norðurlöndum verði
bannað að sigla á Suður-Afr-
íku. Frá þessu skýrði em-
bættismaður í danska utan-
ríkisráðuneytinu í gær.
I ályktuninni var danska
stjórnin hvött til samstarfs
við hin Norðurlöndin fjögur
um að draga úr viðskiptum
við Suður-Afríku og banna
fjárfestingar í landinu vegna
kynþáttamisréttisins sem þar
ríkir.
Þingsályktunin var sam-
þykkt með 61 atkvæði gegn 4,
en tlestir þingmenn miðju-
og hægriflokkanna sátu hjá.
Fundur utanríkisráðherr-
anna verður 28. og 29. mars
í Helsinki.
Bann við siglingum á Suð-
ur-Afríku myndi hafa mest
áhrif á siglingar Norðmanna,
en norska stjórnin íhugar nú
leiðir til að draga úr frakt-
flutningum til Suður-Afríku.
Svíar hafa þegar bannað
fjárfestingar í landinu og
frumvarp um sams konar
bann er til umræðu í danska
þinginu.
í ályktun danska þingsins
er einnig lagt til að framlög
til dansks styrktarsjóðs fyrir
fórnarlömb kynþáttastefn-
unnar í Suður-Afríku verði
aukin, en árleg framlög eru
nú 50 milljónir danskra
króna.
Bólivía:
Vilja sósíalíska stjórn
La Paz, Bólivíu-Reuter:
■ Helsti verkalýðsleiðtogi
Bólivíumanna hefur sagt að
óvopnaðir verkamenn geti
ekki gert byltingu, en sagði í
vikunni að verkalýðshreyf-
ingin hafi fallist á að hefja að
nýju viðræður við ríksistjórn
landsins, en allsherjarverk-
fall hefur staðið í landinu í
rúma viku.
„Það er ekki mögulegt að
taka völdin án vopnaðrar
framvarðarsveitar," sagði
Juan Lechin leiðtogi Alþýðu-
sambands Bólivíu (COB) er
hann ávarpaði mikinn fjölda
verkamanna í mótmælaað-
gerðum, en fjölmörg
sprengjutilræði hafa verið
gerð í La Paz að undanförnu.
Sósíalíska stjóm
Aðalritari Alþýðusam-
bandsins sagði að verkamenn
myndu berjast fyrir sósíal-
ískri stjórn í Bólivíu.
Lechin sagði að verkalýðs-
félögin hafi hafnað tilboði
ríkisstjórnarinnar um launa-
hækkanir og vildu fund með
forseta landsins Hernan Siles
Zuazo til að ræða launakröf-
ur.
Um 50.000 verkamenn
sem eru í verkfalli og krefjast
vísitölubindingu launa, verð-
stöðvunar og stöðugs fram-
boðs á matvælum, gengu í
mótmælagöngu í höfuðborg
landsins á fimmtudaginn og
kröfðust tafarlausrar afsagn-
ar Siles Zuazo.
Einn leiðtoga Alþýðu-
sambandsins, Pedro Solon,
sagði að 10.000 námumenn,
sem þátt tóku í mótmælun-
um, hefðu haft á sér dínamít
sem þeir myndu umsvifalaust
sprengja ef þeir Ientu í átök-
um við herinn. Því til
sönnunar sprengdu þeir
dínamítstúpur í mótmæla-
göngunni.
Ríkisstjórn landins berst
við verðbólgu sem er 3400%
á ári, en hún hefur boðið
165% launahækkun á lág-
markslaun og 30 daga verð-
stöðvun á nauðsynjavörum.
Ríkisstjórnin hefur hótað
að lýsa yfir neyðarástandi og
hefur sagt að verkalýðshreyf-
ingin stefni að því að steypa
forseta landsins af stóli og
koma í veg fyrir kosningar
sem eiga að fara fram í júní,
en þeim hafði verið flýtt um
eitt ár.
Óðaverðbólgan hefur
minnkað kaupmátt launa gíf-
urlega og hefur kaupmáttar-
rýrnunin valdið miklum sam-
félagslegum óróa. Aðeins
tvö og hálft ár er liðið sfðan
herinn fór frá völdum og
borgaralegt lýðræði komst á
í landinu.
Efnahagskreppan stafar
að miklu leyti af hnignun
námuiðnaðarins sem er ein
helsta atvinnugrein landsins.
Embættismenn segja orsök
hnignunar námuiðnaðarins
vera úrelt tækni, ónógar
rannsóknir og slæm áætlana-
gerð síðustu tuttugu árin.
Ofan á efnahagskreppuna
bætist skuldakreppa því er-
lendar skuldir eru gífurlegar.
—m—
AÐALFUNDUR
Hf. Eimskipafélags íslands uerður haldinn
í Súlnasal Hótel Sögu,
fimmtudaginn 18. apríl 1985, kl. 14:00.
-----— DAGSKRÁ----
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 14.gr.
samþykkta félagsins.
2. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram
á aðalfundi, skulu vera komnar skriflega
í hendur stjórnarinnar eigi síðar
en sjö dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar að fundinum uerða afhentir
hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa
á skrifstofu félagsins í Reykjauík frá 12. apríl.
Reykjauík, 16. mars 1985
STJÓRNIN
EIMSKIP
*
Sharon sér eftir að hafa
ekki látið drepa Arafat
París-Reuter
■ Ariel Sharon, fyrrver-
andi varnarmálaráðherra
ísraels, segir að einu mis-
tök ísraelsmanna við inn-
rásina í Líbanon 1982 hafi
verið að leyfa Yasser
Arafat, leiðtoga frelsis-
samtaka Palestínuaraba,
að sleppa lifandi burt.
Sharon hélt því fram í
viðtali við franskt vikurit
að hernaðaraðgerðir ísra-
elsmanna í Líbanon hefðu
verið gagnrýndar vegna
þess að það hefði ekki
verið réttur stjórnmála-
flokkur sem hóf þær. Ef
Verkamannaflokkurinn
hefði hafið stríðið myndi
fólk kalla það mikinn sigur
í mikilvægu stríði.
Sharon sagði: „í raun
og veru voru aðeins ein
höfuðmistök í Líbanon
sem við hefðum aldrei átt
að gera: Leyfa Arafat að
sleppa frá Trfpóli þegar
Sýrlendingar sátu um
hann... Við hefðum átt að
gera ráðstafanir sem hefðu
leitt til dauða hans. í
hreinskilni sagt voru það
mistök hjá okkur að leyfa
honum að lifa.“
Arafat var ásamt her-
flokkum sínum fluttur frá
Trípóli í desember 1983
undir franskri vernd.
Sharon sagði að Arafat
hefði einnig getað látið
lífið fyrr þegar PLO drógu
herlið sitt burt frá Beirút
en þá stóðu ísraelsmenn
við loforð um að leyfa
PLO að hverfa frið-
samlega á brott.
Sharon, sem nú er versl-
unar- og iðnaðarráðherra
í ísrael sagði að það væri
enginn möguleiki á friði
í Mið-Austulöndum svo
lengi sem hryðjuverka-
starfsemi PLO væri enn
við lýði. Alvarlegar friðar-
viðræður gætu ekki breytt
þessu. Hann sagði friðar-
viðræður við Hussein Jor-
daníukonung útilokaðar
þar sem hann hefði leyft
PLO að setja upp skrif-
stofur í Jordaníu. Það væri
engin ástæða til þess að
ísraelsmenn afhentu
Hussein konungi nein
landsvæði. Auk þess væri
Jórdanía í raun og veru
aðeins hluti ísraels. Jór-
danía eins og hún væri nú
í dag næði yfir um 25% af
ísrael.
Sharon sagðist ekki
telja að gyðingar hefðu
skyldur gagnvart nokkrum
nema guði. Hann bætti
við: „Mér finnst því ekki
nein ástæða til að sýna
neina undanlátssemi gagn-
vart neinum."
HUSGOGN OG V
INNRÉTTINGAR co cn flO
.SUÐURLANDSBRAUT 18 OO Oíí wO
„Saturno“ leðursettin eftirspurðu fást nú í tveimur
Íitum. Verð kr. 67.500.-