NT - 16.03.1985, Qupperneq 24
Mjög góður afli hjá
Vestmannaeyjabátum
Kartöflubændur í Þykkvabænum vilja í rollubúskap:
■ „Það er ekki ástæða til ann-
ars en að láta sér lítast sæmilega
á þessa vertíð. Það verður víða
vart við góðan fisk á grunnslóð
hér við Eyjarnar, bæði í net og
troll, og virðist talsvert magn á
ferðinni, hvað sem svo verður
um framhaldið," sagði Óskar
Þórarinsson, skipstjóri á mótor-
bátnum Frá frá Vestmannaeyj-
um. Óskar, sem er á trolli, var
þá að landa nær fullum bát
sínum - um 50 tonnum af fiski
og þar af er helmingurinn ágætis
þorskur. „Þetta virðist vera
bjartur og fallegur fiskur -
göngulegur eins og við köllum
það,“ sagði Óskar.
Spurður sagði hann netabát-
ana vera að fiska mjög vel. „Þeir
voru eiginlega í fýlu í fyrradag
sem ekki höfðu nema 25-30
tonn, þegar aðrir höfðu þetta
upp í 60-65 tonn,“ sagði Óskar
bæði í gríni og alvöru. Enda
þykja það orðin tíðindi þegar
um 300 tonn af fiski berast í
hverja stöð í Eyjum á einum
degi.
Brúnin er því væntanlega far-
in að léttast á Vestmannaeying-
um frá því á hinum döpru
verkfallsdögum um daginn.
„Það er alltaf gaman þegar vel
fiskast og gott að geta farið að
grynnka svolítið á skuldunum. “
{ fiskvinnslustöðvunum í
Vestmannaeyjum stóð til að
vinna að flatningu í alla nótt og
full vinna verður í frystihúsun-
um í dag.
■ Landað úr Frá í Vestmanna-
eyjahÖfn í gær. NT-mynd: Inga
■ Eitt sterkasta bridgemót sem haldið hefur verið á íslandi hófst
í gærkvöldi á Hótel Loftleiðum. Keppendur eru margir mjög
sterkir, eins og ólympíumeistarinn Marten Przybora sem sést á
myndinni. NT-mynd: Sverrir
Kenna Grænmetisversluninni um og lýsa vantrausti á forstjórann
■ Kartöflubændur í Þykkva-
bæ 35 að tölu hafa sent bú-
marksnefnd Framleiðsluráðs
umsókn um að fá fullt búmark
til hefðbundins sauðfjár- og
kúabúskapar. Ástæða þessa er
léleg sala á kartöflum á liðnum
vetri en aðeins 20% af kartöflu-
uppskeru landsmanna hafa
selst og í Þykkvabæ er þetta
hlutfall enn lægra eða 14,5%.
Aðrir hafa þá selt meira en
20%.
„Við erum fyrst og femst að
benda Framleiðsluráöi á að við
búum eingöngu við kartöflur.
Þessi staða hjá okkur á Suður-
landi er fyrst og fremst Græn-
metisversluninni að kenna og
verslunin er í höndum Fram-
leiðsluráðs,“ sagði Yngvi Mark-
ússon einn kartöflubænda í
Þykkvabæ í samtali við NT.
Sagði Yngvi að undanfarið
hefði engin stjórn verið á því að
kartöflubændur í einstökum
landsfjórðungum seldu til þeirra
svæða sem þeir ættu að selja til
samkvæmt svæðaskiftingu
Grænmetisverslunarinnar.
Hafa svæðasambönd verslunar-
innar þverbrotið þessar reglur
og Þykkvabæingarsem næreinir
bænda lifa eingöngu á kartöflu-
rækt orðið illa úti vegna þessa.
Þetta og margt fleira hefði
orðið til þess að kartöflubændur
hefðu á nýafstöðnum Lands-
sambandsfundi samþykkt sam-
hljóða vantraust á forstjóra
Grænmetisverslunarinnar.
Sem fyrr segir er búið að selja
um 20% af heildaruppskeru
kartöfluframleiðenda í landinu
en það er langt undir sölu í
meðalári á þessum tíma árs.
Sölutímabilið er nú hálfnað en
nokkrar vonir eru bundnar við
að meira seljist á þessum síðari
helming þar sem heimarækt er
víðast að ganga til þurrðar.
Mikil uppskera úr heimarækt
hefur að vonum verið helsti
dragbítur á sölu kartaflna frá
bændum.
Magnús Sigurðsson í Birt-
ingaholti, formaður Lands-
sambands kartöflubænda sagði
í samtali við NT að þessi sala
jafngilti 2,5 tonnum úr hverjum
hektara sem dygði síðar fyrir
helming af útlögðum kostnaði
og væri þá alveg sleppt úr
launalið bóndans.
Hjá Framleiðsluráði og bú- ■
marksnefnd fengustþær upplýs-
ingar að hvorki hefði van-
traustsyfirlýsingin á Gunnlaug
Björnsson forstjóra Grænmet-
isverslunarinnar né umsókn
Þykkvabæinga um búmark verið
afgreiddar. Hjá Árna Jónassyni
hjá búmarksnefnd kom fram að
umsókn Þykkvabæinganna væri
ekki þannig frágengin að hún
gæti fengið afgreiðslu án þess að
frekari gögn fengjust.
■ Góð kartöfluuppskera hins
almenna borgara síðasta haust
setur stórt strik í reikninginn
hjá kartöflubændum...
NT-mynd: Róbcrt.
Flugleiðavél
í vandræðum
■ Mikill viðbúnaður var á
flugvellinum í Luxemborg í
gær, þegar Ijóst var að bilun
var í loftbremsum i væng á
einni af DC8 vélum Flug-
leiða. Vart varð við bilunina
áður en vélin hóf sig á loft.
Vélin hafði náð flugtaks-
hraða, þegar flugmönnum
barst aðvörun um bilunina
Gripið var til neyðaráætlunar
og farþegar vclarirmar
voru íluttir út um neyðarút-
gang. Áætlunin tókst giftu-
samlega, og sakaði engan.
Vélin var fullbókuð, með
249 farþega innanborðs, og
tíu manna áhöfn. Atburður-
inn átti sér stað í gærdag
klukkan 14. Farþegar sem
fara áttu með vélinni fóru
um borð í aðra vél Flugleiða
sem stödd var í Luxemborg,
og lagði sú vél af stað til
upphaflegs áfangastaðar,
Baltimore í Bandaríkjunum,
klukkan fimm í gær.
Hafa aðeins selt 14( %
en aðrir meira en 20' >/o
Morðmálið:
Játning
liggur
fyrir
■ Nítján ára gamall
piltur hefur játað á sig að
hafa orðið Jósep Liljendal
Sigurðssyni að bana, í á-
tökum sem þeim fór á
milli aðfararnótt fimmtu-
dagsins. Hefur pilturinn
viðurkennt að hafa stung-
ið hinn látna með skrúf-
járni og veitt honum þungt
höfuðhögg. Þá bar piltur-
inn eld að líkinu áður en
hann hvarf af vettvangi.
■ Samkvæmt upplýsing-
um RLR þá liggja ekki
frekari játningar fyrir um
málsatvik, önnur en þau
sem þe'gar hafa komið
fram, eru enn óljós.
Gæsluvarðhaldsúrskurður-
inngildirtil I.júní.enauk
þess hefur piltinum verið
gert að sæta rannsókn á
geði og sakhæfi.