NT - 04.04.1985, Page 2
Fimmtudagur 4. apríl 1985
Gömlu góðu
dagarnir
endurwaktir:
■ Nú er útlit fyrir að reynt
verði að endurvekja góðu
gömlu dagana þegar söngva-og
dxgurlagakeppnir voru árviss
viðburður því að Wilhelm
Wessman, aðstoðarhótelstjóri á
Hótel Sögu, og Magnús
Árvissar dægurlaga
keppnir í burðarlið
Kjartansson, hljómlistarmaður,
hafa stofnað þrjú sameignarfé-
lög sem hafa þann tilgang að
standa fvrir söngva-og dægur-
lagakeppnum.
Wilhelm Wessman sagði í
samtali við NT að vinna að
þessum fýrirtækjum væri á
undirbúningsstigi og ekki væri
enn hægt að segja til um hvernig
staðið yrði að þessum keppnum.
í Lögbirtingarblaðinu 3. apríl
1985 kemur fram að nöfn fyrir-
tækjanna eru íslenska söngva-
keppnin sf., Dægurlagakeppni
íslands sf. og Söngvakeppni ís-
lands sf., en að sögn Wiihelms
er tilgangurinn með stofnun
þriggja fyrirtækja sá að geta
síðar valið á milli nafna á
keppnirnar.
Norræna útflutningsfélagið:
fslenskt gjall
sent til Kanada
- þar sem það verður m.a. að grillkolum
Áskriftarherferð NT í fullum gangi:
Vel á þriðja þúsund nýir
áskrifendur frá áramótum
■ Áskrifendum NT hci’ur
fjölgað verulega frá áramótum.
Nýir áskrifendur eru vel á þriðja
þúsund. Á Akureyri er 112%
aukning áskrifenda, á Selfossi
eru aukningin 100% og í
Grindavík 200%.
Áskriftarherferð NT heíur
verið í gangi frá janúarlokum
og hafa um 20 manns staðið að
henni, þar á meðal 10-15 ung-
menni sem hafa hringt um allt
land og boðið áskrift að blaðinu.
Svörun hefur verið góð, um
■ Hópurinn sem staðið hefur
að áskriftarherferðinni. Annar frá
vinstri er Kjartan Ásmundsson
útbreiðslustjóri þá Haukur Har-
aldsson, markaðsstjóri. Lengst
til hægri er Guömundur
Karlsson, framkvæmdastjóri.
NT-mynd: Arni Bjarna
30% af þeim sem hringt var í á ■ Brynhildur Jónsdóttir
höfuðborgarsvæðinu gerðust stjórnaði símhringingum á
áskrifendur að NT og víða hefur kvöldin.
SVÖrun VCrÍð enn betri. NT-mynd: Ami Bjama
■ Norræna útflutningsfé-
lagið er að undirbúa útflutn-
ing á heilum skipsfarmi af
brunagjalli til Kanada og fer
farmurinn væntanlegá utan
um næstu mánaðamót.
Kaupandinn er Lava Mar-
keting Ltd., sem er fyrírtæki
Vestur-Islendinga, og verður
gjallið m.a. notað í fram-
leiðslu á grillkolum. Norr-
æna útflutningsfélagið hefur
þegar sent tilraunasendingu
: af gjallinu til Kanada og
líkaði það vel.
Gjalltakan fer fram í landi
Hlíðardalsskóla og er talið,
að þar sé það í nægilega
miklu magni til að vinna það
í stórum stíl. Það er fyrirtæk-
ið Miðfell, sem hefur verið í
gjallvinnslunni fyrir Norræna
útflutningsfélagið.
Hugmyndir eru einnig
uppi um að fullvinna gjallið
hér á landi og voru gerðar
tilraunir með það í vetur. En
til þess að svo megi verða,
þarf meiri tækjakost en hér
er til.
Hækkar áburðar-
verðið um 80%
„Vona að svo verði ekki,“
segir landbúnaðarráðherra
en ekkert er öruggt
Sagaogframhald
■ Vestur í Bændahöll eða
Hótel Sögu við Hagatorgið
safnaðist saman múgur og
margmenni og skóf innan úr
ekki færri glösum síðdegis í
gær. Tilefnið var vígsla á
nýrri álmu bændahallarinnar
þar sem Sögu-gestir fá að
dvelja í náinni framtíð.
En nú velta menn fyrir sér
nafni á nýja hlutanum til
aðgreiningar frá þeinr gamla.
Til samans heitir þetta allt
Hótel Saga en það er annar
hlutur.
Nú hafa gárungarnir fund-
ið upp að þetta framhald á
Sögu heiti náttúrlega Fram-
haldssaga og er þá bara eftir
að uppnefna gamla hlutann.
Einhverjum þætti kannski
við hæfi í öllum þeim her-
skara lúinna bænda sem
þarna eiga erindi að höllin
sjálf heiti Gamli bærinn.
Nú eða bara Söguspaug...
Bændamafían
vex og dafnar
■ Nú, þarna í framhalds-
sögunni vænta Stéttarsam-
band bænda og Framleiðslu-
ráð þess að fá nokkurt pláss
fyrir starfsemi sem hefur
verið aðþrengd til fóta hjá
Jónasi búnaðarmálastjóra.
Einhverjir hafa haft á orði
að bændamafían vaxi og
dafni á sama tíma og bænd-
um í landinu fækkar. Og
þykjast hneykslaðir yfir.
Nema hvað.
Auðvitað reynir íslenskur
Iandbúnaður að halda höfða-
tölunni (í stað þess að týna
tölunni) og fær þess vegna
nýja liðsmenn í setuliðið
jafnharðan og einhverjir
hverfa úr starfsliöinu.
Við minnumst svo Gunna
Thor þegar höllin stækkar.
Sagan segir að upphaf Sögu
hafi verið í borgarstjórnartíð
hans þegar þeir Þorsteinn frá
Vatnsleysu og borgarstjórinn
hittust á gangi og þann fyrr-
nefnda vantaði lóð fyrir
bændasamtökin. Ogfékkþar
sem þeir stóðu, höfðingjarn-
ir.
sjónvarpsins til þess að segja
sína skoðun á björgunarmál-
um á íslandi, eða einhverju
því sem fólki liggur á hjarta.
Það mætti byrja með því að
þulur sjónvarpsins gætu sagt
sitt álit á útvarpslögum sem
hafa verið til umræðu, eða
einhverju öðru.
■ Vandi áburðarverksmiðj-
unnar er nú á borði ríkisstjórn-
arínnar en fyrirsjáanlegt er að
áburður hækki um 80% nú á
þessu vori verði ekkert að gert.
Kuabændur á Suðurlandi hafa
nú farið fram á opinbera rann-
sókn á högum og rekstri verk-
smiðjunnar og sagði Bjarni
Guðmundsson aðstoðarmaður
Landbúnaðarráðherra í samtali
við NT að til stæði að ráðast í
slíka rannsókn.
I samtali NT við Jón Helga-
son landbúnaðarráðherra kom
fram að ekkert er enn hægt að
segja til um hvort komið verði í
veg fyrir þessa miklu hækkun
með aðstoð stjórnvalda við
verksmiðjuna en málið var rætt
í ríkisstjórninni í vikunni og
Alit Páls
veðurfræðings
■ Páll Bergþórsson veður-
fræðingur var með orðsend-
ingu til alþjóðar í lok veður-
fréttatíma sjónvarpsins á
þriðjudagskvöld. Páll benti
fólki á að tíðrætt væri um
samræmdar björgunarað-
gerðir, en fólk gleymdi oft
fífldirfsku manna á mörkum
lífs og dauða á fjöllum uppi.
Innlegg Páls um björgun-
armál var áhugavert, og væri
gaman að fá fleiri starfsmenn
Sigurgangan stöðvuð
- Alþýðuflokkurinnhefurstöðvastviðrúm20%
verður aftur á borði hennar eftir
páska.
Guðmundur Lárusson for-
maður félags Kúabænda á
Suðurlandi sagði í samtali við
NT að bændur teldu það ófært
að röng fjárfesting með dollara-
lánum sé velt út í verðlagið en
talið er að 80% hækkun
áburðarverðs orsaki um eða yfir
6% hækkun landbúnaðarvara
til neytenda.
Verðlag búvara hefur hækkað
um 30% síðastliðið verðlagsár
og er sú hækkun talin eðlileg á
áburðinum en bjartsýni er talin
að hann hækki ekki eitthvað
meira en það þó til komi aðgerð-
ir stjórnvalda. Meðan ekki er
komið áburðarverð eru tak-
mörk á því að menn geti leyst út
áburð úr verksmiðjunni og hafa
einhverjir komið tómhentir frá
verksmiðjunni vegna þessa.
Tillagaumathvarf
fyrir unga ffíkni-
efnaneytendur:
Vísað til
ríkisstjórnar
■ Samcinað þing ákvað í síð-
ustu viku að vísa tillögu
Kvennalistans um athvarf fyrir
unga fíkniefnaneytendur til
ríkisstjórnarinnar.
1 tillögunni, sem flutt var af
Guðrúnu Agnarsdóttur, Krist-
ínu Halldórsdóttur og Sigríði
Dúnu Kristmundsdóttur var
lagt til að fela heilbrigðisráðu-
neytinu að skipa 3 manna nefnd
sem legði fram ákveðnar tillög-
ur um það hvernig best sé að
veita athvarf og heilbrigðis- og
félagsþjónustu þeim börnum og
unglingum yngri en 18 ára sem
eru illa haldin, andlega og lík-
amlega, vegna fíkniefnaneyslu.
í nefndaráliti allsherjarnefnd-
ar sem fjallaði urn tillöguna
kemur fram að ekki sé ástæða til
að skipa 3 manna nefnd til að
sinna þessu verkefni. því þegar
sjarfi að þessu stjórnskipuð
nefnd sem hafi skilað
miklum upplýsingum og tillög-