NT - 04.04.1985, Page 8
Fimmtudagur 4. apríl 1985 8
LlL Skák
Skákþing
íslands,
landsliðs-
flokkur:
Lárus með örugga forystu
eftir fjórar umferðir
■ Lárus Jóhannesson hefur tekið örugga forystu
þegar fjórar umferðir hafa verið tefldar í landsliðs-
flokki á Skákþingi íslands. Lárus vann andstæðing
sinn, Hilmar Karlsson í 3. umferð og í 4. umferð
sem tefld var á þriðjudaginn gerði hann jafntefli
við Benedikt Jónasson. Staðan í mótinu er enn
nokkuð óljós en í augnablikinu skilur heill vinning-
ur Lárus og næstu menn en Ásgeir Þ. Árnason gæti
þó náð þrem vinningum takist honum að vinna
hagstæðari biðskák sína við Karl Þorsteins.
Eins og fram hefur komið
hafa sterkustu skákmenn þjóð-
arinnar ekki getað tekið þátt í
mótinu, sumpart vegna anna
og þó mestmegnis vegna þess
að þessi vetur hefur eins og sá
síðasti, verið afar annasamur
og kominn tími fyrir menn að
fá hvíld frá taflmennsku. Síð-
asta íslandsþing var, eins og
kunnugt er, haldið að hausti til
og þá tókst að fá nálega alla
bestu skákmenn þjóðarinnar
til þátttöku. Lög Skáksam-
bands íslands binda hinsvegar
þingið niður um páskaleytið
og er það um margt bagalegt
því Ijóst er að eitthvert svigrúm
þarf að vera fyrir hendi ef
stcrkustu skákmennirnir eiga
að geta tekið þátt í þinginu.
Lögin eru um þetta atriði og
raunar margt það er lýtur að
skákmálum úrelt með öllu og
sýnist mér vel koma til greina
að breyta ýmsu að því er
varðar íslandsmeistarakeppn-
ina. Þannig mætti taka upp
einhverskonar úrvalsflokk
með þátttöku 4-8 skákmanna
sem tefldu tvöfalda og upp í
fjórfalda umferð. Þótt þessi
flokkur yrði skipaður að mestu
titilhöfum þá ynni sigurvegar-
inn í næsta flokki fyrir neðan
sér þátttökurétt. Mótstíma
myndi Skáksambandið síðan
ákveða eftir aðstæðum hverju
sinni.
Urslit í 3. umferð urðu
þessi:
Benedikt-Dan biðskák
Lárus-Hilmar 1:0
Ásgeir-Gylfi 1:0
Róbert-Karl '/i'.Vi
Þröstur- Andri 1:0
Halldór-Haukur 1:0
Davíð-Pálmar 1:0
í 4. umferð urðu úrslit þessi:
Dan-Ásgeir 0:1
Lárus-Benedikt 'h:'h
Gylfí-Róbert 'h:'h
Karl-Þröstur 1:0
Andri-Halldór 1:0
Haukur-Davíð 0:1
Hilmar-Pálmi 'h'.'h
Lárus er því efstur með 3'/i
vinning eins og áður var getið
um en með 2Vi vinning er
Davíð Ólafsson. í 3.-5. sæti
eru Ásgeir, Karl og Benedikt
með 2 vinninga og biðskák.
Benedikt á óljósa biðskák gegn
Dan Hansson. í gærkvöldi
voru tefldar biðskákir en 5.
umferð hefst svo kl. 14 í dag í
Hagaskólanum.
Nokkrar skemmtilegar
skákir voru tefldar í 3. umferð.
Andri Áss Grétarsson beitti þá
hinu stórvarasama „eitraða-
peðs-afbrigði“ sem frægt varð
■ Lárus Jóhanncsson að tafli við Akurcyringinn Gylfa Þórhallsson í 1. umferð Skákþings íslands.
Lárus hefur komið skemmtilega á óvart í mótinu og hefur hlotið 3Vi vinning úr fyrstu fjórum
umferðunum.
, Helgi
Olafsson
stórmeistari
skrifar
um skák
í einvígi Fischers og Spasskís
1972. Þröstur reyndist vel með
á nótunum, valdi leið sem
gefist hefur Jan Timman vel að
undanförnu og sigraði:
Skákþing íslands
3. umferð:
Hvítt: Þröstur Þórhallsson
Svart: Andri Áss Grétarsson
Sikileyjarvörn (Najdorf-af-
brigðið)
1. e4 cS
2. Rf3d6
3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 a6
6. Bg5 e6
7. f4 Db6
8. Dd2 Dxb2
9. Hbl Da3
10. f5 Rc6
11. fxe6 fxe6
12. Rxc6 bxc6
13. Be2
■ Lúðrasveit Verkalýðsins er
nú 32ja ára og komin í hóp
viröulegra tónlistarstofnana í
bænum, í flokki með Lúðrasveit
Reykjavíkur og Lúðrasveitinni
Svaninum. Laugardaginn 30.
mars hélt hún sína 16. vortón-
leika, sem á síðari árum hafa
verið árviss viðburður, og jafn-
an með hefðbundnu sniði, en
þó með efnisskrá sem sífellt er
að þróast. Því á fyrri árum var
byltingin og baráttan efst á
baugi hjá Lúðrasveit Verkalýðs-
ins, jafnt á tónleikum sem á
kröfugöngum 1. maí, og það
var byltingarbrestur í blæstrin-
um. En nú er þetta allt orðið
Lúðrasveit Verkalýðsins
miklu „raffíneraðra", og Nall-
inn heyrist ekki lengur né stórar
„KR-spyrnur“ í blæstri og
hljómi. Raunar hefur Lúðra-
sveitin elst og slípast með kynni
sínum og fyrrverandi trompet-
ista, Jóni Múla, sem er síungur
í anda þótt árunum fjölgi.
Hjartað er æ nieir í gamla
jazzinum og þótt hann heyrist
stundum ennþá „tala gegnum
vinstra munnvikið" þá er það
mest um jazz líka. Gamall jazz
og útsetningar slíkra laga eru
einmitt talsvert áberandi í efnis-
skrá Lúðrasveitar Verkalýðsins
- hvað er öreigamúsík ef ekki
jazzinn? - og Lúðrasveitin er
meira að segja komin með eigin
stórhljómsveit sem spilaði þrjú
lög eftir hlé (þær heita „Big-
band“ í faginu).
Driffjöðrin í Lúðrasveit
Verkalýðsins er stjórnandinn,
Ellert Karlsson, sem stýrt hefur
tónsprota þar síðan 1977. Ellert
mun hafa alist upp undir tónlist-
arlegum handarjaðri Oddgeirs
Kristjánssonar í Vestmannaeyj-
um, og þeim uppalanda til heið-
urs enduðu tónleikarnir á laug-
ardaginn á ágæta lúðrasveitar-
útsetningum Ellerts á nokkrum
alþekktum og vinsælum lögum
Oddgeir.
Ellert Karlsson er samt ekki
eini útsetjari sveitarinnar, þvf
Jóhann Ingólfsson, 1. klarin-
etta, útsetti fyrir lúðrasveitina
tónlist Johns Williams fyrir
kvikmyndina Stjörnustríð; og
tókst það dável. Það er annars
merkilegt að tónlist í geim-
myndum skuli bera svo mikinn
keim af tónlistinni í gömlu
kúrekamyndunum, og korna þó
kúrekar og geimstríð upp í hug-
ann í sömu andrá af fleiri ástæð-
um.
Eins og vænta mátti sagði Jón
Múli ipargt spaklegt og
skemmtilegt í kynningum sínum,
enda margsjóaður í sögu jazz og
annarrar tónlistar, og þ.á.m.
það, að Leroy Anderson hefði
samið Iagið „The Syncopated
Clock“ í bragga á Skólavörðu-
holtinu þar sem hús templarai
stendur nú. En á plöfuumslagi
segist hann (að sögn Jóns Múla)
tala 10 tungumál, og þ.á.m.
íslensku reiprennandi. Allt ntun
þetta vera satt ncma með ís-
lenskuna, því hana gat hann
aldrei lært.
Lúðrasveitir hafa verið
þekktari að öðru en því gegnum
tíðina að spila hreint, og oft
hafa þær verið meira bendlaðar
við kraftmikla sönggleði en
fíngerða hljóma eða tónvefi.
Lúðrasveit Verkalýðsins revnd-
ist hins vegar bæði vel samstillt
og all kurteis á þessum tónleik-
um; hafi mér þótt fullmikill
gangur á köflum mátti vafalaust
kenna það frekar útsetningum
en spilamennsku. Útsetningar
fyrir lúðrasveitir virðast mér
hafa breyst verulega að stíl
síðan Sousa leið: Þær voru áður
litríkar, en eru nú orðnar þykk-
ari og meira um „túttí“ og stóra
hljóma. Hinir snjöllu útsetjarar
Lúðrasveit Verkalýðsins
mættu hins vegar hafa það í
huga, að með svo ágætt hljóð-
færi sem lúðrasveitin er, mætti
t.d. gera miklu meira úr lögum
Count Basie og Duke Ellington
en gert er; og var þó One
O’Clock Jump prýðilega spilað.
í sinni fínustu gerð myndar
takt- og hljómahlutinn strigann
sem einleikshijóðfærin mála á,
en ryðjast ekki fram með þung-
rokks-tilþrifum. Munurinn á
æðri jazzi og frumstæðri dægur-
tónlist nútímans er ekki síst sá,
að hin síðarnefnda nálgast
óðum upphaf sitt, trumbuslátt-
inn, en hin fyrrnefnda byggir
hljóma og laglínur yfir púlsi
sem er án þess að heyrast sér-
staklega.
Hlutverk Lúðrasveitar Verka-
lýðsins er mikið, því auk sinna
árlegu tónleika „sem ylja göml-
um lúðrageggjurum“, eins og
ég held að kynnirinn hafi orðað
það, blæs hún lífi í hópgöngur
fólksins 1. maí og 17. júní, oft
við erfiðar veðurfarslegar að-
stæður, og kemur fram annars
staðar þar sem þörf er á hressi-
legri tónlist. Eitthvert dagblaðið
hélt því meira að segja fram að
hún hafi átt sinn þátt í að leysa
BSRB-deiluna með því að spila
utan við „Karphúsið", hvað sem
nú átt var við með því.
En Lúðrasveit Verkalýðsins
hefur einnig hið þriðja hlutverk:
Að vera vettvangur fyrir félags-
líf og spilamennsku ungs fólks
„á öllum aldri“, sem hefur gam-
an af því að spila á hljóðfæri.
S.St.
Danskt kvöld
í kjallaranum
■ Þjóðleikhúsiö, litla sviðið:
Valborg og bekkurinn eftir Finn
Methling. Þýðing: Þrándur
Thoroddsen. Leikmynd: Stígur
Steinþórsson. Leikstjóri: Borg-
ar Garðarsson.
Borgar Garðarsson kveður ís-
lenskt leikhúslíf - a.m.k. um
sinn - með því að setja upp í
kjallara Þjóðleikhússins sýn-
ingu á þessum einþáttungi Finns
Methlings, hins mikilvirka
danska leikskálds. Methling er
vel menntaður leikhúsmaður,
hefur samið ókjörin öll af
leikritum löngum og stuttum,
ekki færri en 60, að.sögn leik-
skrár, fyrir svið, útvarp og
sjónéarp. Methling er nú hátt á
sjötugsaldri. Eitt leikrita hans,
Ferðin til skugganna grænu, var
sýnt hér fyrir hartnær tuttugu
árum, einleikur sem Herdís
Þorvaldsdóttir fór með, rórnuð
sýning á sinni tíð. Annað mun
ekki hafa sést hér á sviði eftir
þennan þrautreynda frænda
vorn.
Valborg og bekkurinn er
snotur leikþáttur, ekki frumleg-
ur. en ber ósköp geðfelldan
boðskap sem snýr að gamla
fólkinu: Látið ekki grafa ykkur
lifandi, njótið lífsins nteðan
kostur er! - Valborg gamla sest
á garðbekkinn og ræðir við
hann um líf sitt, manninn sinn
sáluga og börnin sem nú eru
stór og vilja fyrir alla muni
hindra að mamma gamla fari út
í hopp og hí. En Vaíborg hefur
einmitt eignast vin, hann Kalla,
hann er hress og rauður í þokka-
bót. Þetta segir hún bekknum 1.
maí. Og bekkurinn tekur öllu
vel, örvar og hvetur Valborgu,
þau dansa og syngja. Sannar-
lega „hyggeligt".
Þennan litla og uppbyggilega
skemmtunarleik fóru Guðrún
Stephensen og Karl Ágúst Úlfs-
son með af kankvísi, hlýju og
fjöri svo að hann skilaði sér hið
besta á sviði leikhúskjallarans.
Borgar Garðarsson hefur stund-
að eftir að ná jafnvægi í leikinn,
milli persónanna tveggja, og
tekist það vel. Leikmyndin má
varla fábrotnari vera að vísu, að
minnsta kosti vardanskaflaggið
heldur snautlegt. Harmoníku-
leikarar eru Reynir Jónasson og
Sigurður Alfonsson, sá síðar-
nefndi þandi dragspilið á annarri
sýningu sem ég sá á sunnu-
dagskvöldið. Lögin eru mörg
hver kunnug ísiendingum, en
líklega öll dönsk, enda mjög
reynt að laða fram danskan
andblæ í sýninguna.
Guðrún Stephensen er eins
og sköpuð til að leika Valborgu.
Hún léði gömlu konunni í senn
þá hlýju og reisn sem ákjósanleg
er. Ég held að Guðrún sé stöð-
ugt vaxandi leikkona. í
minningunni stendur hún upp
úr í hinu vanburða verki Jóns
Laxdals í fyrra, og nú bætir hún
góðri fjöður í hatt sinn með
meðferðinni á Valborgu gömlu.
Og meðal annarra orða: Skyldu
ekki skophlutverk henta henni
vel?
Karl Ágúst hefur mér lengi