NT - 04.04.1985, Qupperneq 27
Fimmtudagur 4. apríl 1885 27
Frakkar taka upp
hlutfallskosningu
París-Reutcr
■ Sósíalistastjórnin í Frakk-
landi ákvað endanlega í gær að
taka upp hlutfallskosningar í
þingkosningununum á næsta ári
í stað einmenningskjördæma
þar sem þingmenn hafa verið
kosnir með einföldum meiri-
hluta.
Samkvæmt gömlu kosninga-
reglunum, sem hafa verið í gildi
í meira en 20 ár, taldist sá
frambjóðandi rétt kjörinn sem
fékk meira en helming atkvæða
í kjördæmi sínu. Ef enginn fékk
hreinan meirihluta var kosið
aftur á milli tveggja efstu fram-
bjóðendanna.
Hægrisinnaðir stjórnarand-
stöðuflokkar eru á móti breyt-
ingunum og segja nýja kerfið,
þar sem 5% atkvæða nægja til
að ná manni á þing, leiða til
glundroða eins og á sjötta ára-
Kínverjar bjartsýnir á
f ramtíð stækkaðs EBE
Peking-Reuter
■ í fráttaskýringu fréttastofu
Nýja Kína nú í vikunni kemur
fram að Kínverjar telja að fyrir-
huguð stækkun Efnahagsbanda-
lags Evrópu muni efla bandalagið
og bæta samkeppnisstöðu þess
gagnvart Bandaríkjunum og Jap-
an auk þess sem stækkunin muni
auka áhrif Evrópu á alþjóðavett-
vangi.
Fréttastofan spáir því, að þrátt
fyrir þá hagsmunaárekstra og þau
vandamál sem innganga Spánverja
og Portúgala í EBE muni valda,
muni stækkun bandalagsins úr 10
ríkjum í 12 efla Evrópuríkin og
opna fyrir þeim nýja markaði.
Kínverjar benda á að á samein-
uðu markaðssvæði EBE verði eftir
stækkunina 320 milljón manns og
að þessi ríki hafi samanlagt í hönd-
um sínum 40% af heimsverslun-
inni. Tengsl Spánverja og Portú-
gala við þjóðir Suður-Ameríku
muni einnig aðstoða bandalagið
við að afla sér nýrra markaða í
Suður-Ameríku.
Sósíalistar fengu hreinan
meirihluta í þingkosningunum
1981 eða 283 sæti af 491.
Flokknum er spáð miklu fylgis-
tapi í næstu kosningum. Stjórn-
arandstæðingar segja að sósía-
listar vilji nú taka upp
hlutfallskosningar til að draga úr
tapi sínu á þingi svo að þeir hafi
möguleika til að stofna nýja
stjórn eftir kosningarnar í sam-
vinnu við miðflokka.
Kólerufarald
ur í Sómalíu
Nairobi-Rcuter
■ Stjórnvöld í Sómalíu
hafa beðið erlend ríki og
alþjóðastofnanir um aðstoð
við að berjast við kólerufar-
aldur sem þegar hefur leitt til
dauða um 600 manns í flótta-
mannabúðum í norðanverðu
landinu.
Að sögn ríkisútvarpsins í
Sómalíu eru um fimm hundr-
uð flóttamenn nú helsjúkir
úr kóleru í flóttamannabúð-
unum og óttast menn að
sjúkdómurinn eigi eftir að
breiðast enn frekar út. Yfir-
maður flóttamannaaðstoðar-
innar í Sómalíu, Yusuf Abdi
Shirdon, segir að dauðsföllin
af völdum kólerunnar hafi
byrjað í lok mars í flótta-
mannabúðum nálægt Harg-
eisaborg. Frá því 27. mars til
31. mars létust um fjögur
hundruð manns og síðan
hafa um tvö hundruð dáið.
Hargeisa-borg hefur verið
sett í sóttkví til að reyna að
koma í veg fyrir að kóleran
berist til annarra staða. Sam-
kvæmt upplýsingum frá
flóttamannastofnun Samein-
uðuþjóðanna eru um 700.000
flóttamenn í Sómalíu.
Flóttamennirnir koma aðal-
lega frá Eþíópíu.
■Mitterand Frakklandsforseti
hefur nú ákveðið að flokki sín-
um sé heillavænlegast að breyta
yfír í hlutfallskosningakerfí fyrir
næstu þingkosningar.
tugnum þegar enginn stjórn-
málaflokkur fékk hreinan meiri-
hluta. En Pierre Joxe innan-
ríkisráðherra segir þetta alrangt
þar sem núverandi kosninga-
kerfi hafi alls ekki leitt til
stöðugleika, þvert á móti hafi
stjórnarbreytingar orðið sneggri
og öfgafyllri en hefði orðið sam-
kvæmt hlutfallskosningakerf-
inu.
Minni mengun á bað-
ströndum í Frakklandi
París-Reuter
■ Mengun á frönskum bað-
ströndum hefur minnkað mikið
á síðustu tveimur árum og bað-
strendumar eru öruggari fyrir
fólk, sem vill baða sig á þeim,
að sögn heilbrigðisráðherra
Frakklands, Edmond Hervex
og umhverfísráðherrans, Hug-
uette Bouchardeau.
Ráðherrarnir sögðu á blaða-
mannafundi nú í vikunni að um
80% af frönskum ströndum
uppfylltu nú kröfur Efnahags-
bandalagsins um litla mengun í
stað 74% árið 1983. Þeir sögðu
að markmiðið væri að minnka
mengunina svo mikið fyrir árið
1990 að þá verði hægt að baða
sig við allar strendur við
Frakkland.
17.603 sýni voru tekin á síð-
asta sumri við 562 baðstaði í
Frakklandi. Nú í sumar verður
aðeins bannað að baða sig á 19
baðstöðum vegna mengunar.
Meðal annars verður ekki hægt
að baða sig við Nice, Menton og
Cagnes-Sur-Mer við Rivieruna.
Kosningar boðað-
ar á Grikklandi
Aþena-Reuter
■ Andreas Papandreou for-
sætisráðherra Grikkja hefur
skýrt frá því að hann muni leysa
upp þingið og boða til kosninga
um leið og þingi hefur samþykkt
stjórnarskrárbreytingar sem
stjórn hans hefur lagt til.
Tillögurnar um stjórnarskrár-
breytingarnar verða lagðar fyrr
þingið nú í þessari viku og búist
er við að það taki um einn
mánuð fyrir þingmenn að fjalla
um þær. Flest bendir því til að
Papandreou muni leysa þingið
upp snemma í maí og að kosn-
ingar verði mánuði síðar.
Kjörtímabil sósíalista rennur
ekki út fyrr en í oktöber en
stjórnarandstæðingar hafa kraf-
ist almennra kosninga fyrir þar
sem þeir telja kosningu forset-
ans, Sartzetakis ólöglega.
Mikill glundroði hefur ríkt í
grískum stjórnmálum frá því að
sósíalistar ákváðu að tilnefna
Sartzetakis sem forsetaefni sitt
9. mars síðastliðinn í stað Kar-
amanilis. Sartzeakis var aðeins
kosinn með 180 atkvæðum sem
er minnsti mögulegi meirihluti.
Stjórnarandstæðingar segja
kosninguna ólöglega þar sem
forseti þingsins greiddi atkvæði
í kosningunni. Peir hafa því
neitað að viðurkenna hinn nýja
forseta.
Papandreou hefur því ákveð-
ið að höggva á hnútinn og verða
við kröfum stjórnarandstæðinga
um nýjar kosningar.
Danirfábjór
yf ir páskana
Frá Guðrúnu ögmundsdóttur fréttarítara
NT í Danmörku
■ Það reyndust óþarfa
áhyggjur hjá taugaveilduðu
fólki að verkföll og vinnu-
deilur í Danmörku myndu
leiða til þess að Danir yrðu
bjórlausir yfír páskana. Að
sjálfsögðu lét verkalýðs-
hreyfíngin slíkt ekki henda
sig þar sem bjórleysi hefði
ekki síður bitnað á róttækum
verkamönnum sem atvinnu-
rekendum.
Flestir mættu til vinnu
sinnar í gær eftir tveggja
daga víðtækar verkfallsað-
gerðir sem náðu til flestra
stærstu vinnustaðanna í Dan-
mörku. Menn voru almennt
sammála um að mæta til
vinnu því að annars hefðu
þeir misst laun yfir páskana.
En mikil hreyfing mun
vera fyrir því að halda áfram
verkfallsaðgerðum og mót-
mælum þegar vinna á að
hefjast aftur eftir páska. Erf-
itt er að spá fyrir um það
hversu víðtækar slíkar að-
gerðir muni verða.
Þótt flestir mættu til vinnu
sinnar í gær var samt verk-
fallsaðgerðum haldið áfram
á einstaíca stað. Þannig urðu
miklar tafir á strætisvagna-
ferðum og verkfallsaðgerðir
komu í veg fyrir afgreiðslu á
bensíni frá bensíndreifingar-
stöðvum þannig að margar
bensínstöðvar eru að verða
uppiskroppa með bensín eða
eru þegar orðnar það.
■ Papandreou forsætisráð-
herra Gríkkja hefur nú ákveðið
að boða til nýrra kosninga strax
í sumarbyrjun þótt kjörtímabil
sósíalista renni ekki út fyrr en í
október.
Vestur-þýskur hershöfðingi:
Ekkert stríð
um helgar
Bonn-Reuter
■ Vestur-þýski herínn gefur
flestum liðsmönnum sínum frí
um helgar þar eð foríngjarnir
gera ekki ráð fyrír því að Rússar
farí að standa í árásum á laugar-
dögum og sunnudögum.
„Ég veit þegar á fimmtudags-
kvöldi hvort það verði stríð um
helgina eða ekki,“ sagði Wolf-
gang Altenburg, yfirmaður
hersins, í viðtali við tímaritið
Stern. „Ég hef því ekki minnstu
áhyggjur af því að hermennirnir'
fari heim til sín á föstudögum,“
bætti hann við.
Meirihluti hinna 495.000 vest-
ur-þýsku hermanna vinnur
fimm daga vinnuviku. Gagnrýn- •
endur þessa skipulags segja að
reynslan sýni að flest meiri hátt-
ar stríð hafi byrjað með skyndi-
árás á laugardegi eða sunnu-
degi.
En Altenburg heldur því fram
að vestræna leyniþjónustan sé
vel upplýst og myndi gefa aðvar-
anir sínar í tæka tíð auk þess
sem Sovétmenn þyrftu tíma til
að safna sínu liði.
Svo hermennirnir fá að eyða
helgunum í faðmi fjölskyldna
sinna enn um sinn.
Heyvinnuvélar frá
STOLL
STOLL dragtengdar heytætlur.
Vinnslubreidd: 4,10 m og 5,10 m.
STOLL stjörnumúgavélar.
Vinnslubreidd: 2,80 m og 3,10 m.
Nokkrar vélar frá fyrra ári fyrirliggjandi
Hafið samband varðandi verð og kjör
Vf IAM l <
Bíldshöfða 8 - Simar 68-66-55 & 68-66-80