NT - 13.04.1985, Síða 24
—
HRINGDU ÞÁ f Sfl\/IA 68-65-62
Viðtökumviðábendingumumfréttirallansólarhringinn.Greiddarverða 1000krónurfyrirhverjaábendingusemleiðir til
fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsinaar 18300
Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495
. ......... ... ......... ...... .......... ,MM ........- ■ J I | . ! I. ... ....... ... ....
Augu sjálfstæðismanna
mæna til formannsins
- sagði Þorgeir Ibsen, skólastjóri í Hafnarfirði á
landsfundi Sjálfstæðisflokksins
- Helena Albertsdóttir fer ekki fram á móti Friðrik
■ Reiðir ungir nienn settu svip á umræðurnar um
drögin að stjórnmálaályktun Sjálfstæðisflokksins á
landsfundinum í gær. Hver af öðrum komu þeir í pontu
og Iýstu óánægju sinni með stöðu mála og lögð var fram
verkefnaskrá 140 ungra sjálfstæðismanna, í 10 punktum,
fyrir llokkinn um hvað yrði að gera á næstunni til að
ungu fólki yrðu færðar sönnur á það að Sjálfstæðisflokk-
urinn væri ekki kerfisflokkur og höfðaði til ungs fólks.
Beindu þeir spjótum sínum einkum að ráðherrum
flokksins og eldri mönnum í forystu og sögðu mörg dæmi
þess að ráðherrar hefðu þvælst fyrir og eyðilagt góð mál
sem formaðurinn ungi hefði reynt að koma á framfæri.
Var undir þessa yfirlýsingu tekið með dúndrandi
lófaklappi í 30 sekúndur.
Það var Vilhjálmur Egils-
son, hagfræðingur VSÍ, sem
reið á vaðið og lét þessi orð
falla er hann gerði grein fyrir
punktunum 10. Aðrir ræðu-
menn tóku í sama streng og
einn lýsti því yfir að það væri
fátt í þeim drögum aö stefnu-
mörkun, sem Geir Haarde
hafði kynnt, sem upplýsti hvert
flokkurinn stefndi í raun og
veru. Þetta væri mest almennt
hjal „sem hver allaballi gæti
skrifað undir", cins og hann
orðaði það. Þá hefðu ráöherr-
arnir sýnt í innlcggum sínum í
umræðunni í fyrradag að þeir
væru mest uppteknir af fortíð-
inni, en til þess að stefna
formannsins unga næði fram
að ganga, þyrfti skarpari og
markvissari stefnumörkun en
um væri að ræða.
Þorgeir Ibsen, skólastjóri í
Hafnarfirði, sagðist hafa verið
farinn að óttast að ekki ætlaði
að gusta á þessum landsfundi,
en ungu mennirnir hefðu séð
um það. Sagðist hann ekki vita
hvort það þyrfti að slíta stjórn-
arsamstarfinu eða hvort for-
maðurinn ungi ætti að fara inn
í svona samstarfsstjórn, en það
ætti þó ekki við að hann sæti
utangarðs því „augu allra sjálf-
stæðismanna mændu til for-
manns síns og þeir yndu því
ekki að hann væri ekki innsti
koppur í búri í því samstarfi".
Taldi Þorgeir sumt í „þessu
plaggi", stjórnmálaályktun-
inni, nokkra moðsuðu og of
mikið væri af „stefna ber að"
til að hún væri marktæk. Lauk
hann máli sínu með hvatning-
arorðum til formannsins unga
í bundnu máli.
Helena Albertsdóttir sagði
Sjálfstæðisflokkinn misjafnan
eins og önnur mannanna verk
og landsfundurinn væri réttur
vettvangur til að benda á það
sem miður hefði farið. Talaði
hún um trúnaðarbrest milli
forustunnar og hins almenna
félaga. Það væri vöntun á
flokksáhuga, doði væri í starf-
inu og yngri forustan næði ekki
nógu vel til nýrra kjósenda.
Gat hún þess jafnframt að hún
tæki ekki áskorun um að bjóða
sig fram til varaformanns og
lýsti yfir stuðningi við Friðrik
Sophusson. En ef flokkurinn
gæti nýtt krafta hennar á ein-
hvern hátt þá ætti hann í henni
„hauk í horni".
1 upphafi umræðunnartalaði
Friðrik Sophusson um það að
þeir tímar væru að baki þegar
að landsfundir hefðu vakið at-
hygli vegna innbyrðis sundr-
ungar flokksins. Þingflokkur-
inn stæði heill um stjórnina en
þótt flokkurinn væri
þýddi það ekki að
hans ætti að draga dám
„Við eigum að tala tæpitungu-
laust, þetta er landsfundur
Sjálfstæðisflokksins en ekki
ríkisstjórnar Steingríms Her-
mannssonar".
Var hann tekinn á orðinu af
þeim sem á eftir komu í ræðu-
stól.
Bláu aug-
un þín..
■ Friörik Sophusson og
Davíð Oddsson stinga
saman nefjum á lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins.
NT-mynd: Sverrir.
Um 600-700 konur atvinnulausar í mars vegna sjómannaverkfallsins?
Fjórðungur alls atvinnu-
©
leysis á Norðurl. eystra
■ Mars er fyrsti mánuðurinn
á þessu ári þar sem skráð
atvinnuleysi er meira en í sömu
mánuðum árið 1984 og er
ástæða þess; fyrst og fremst
að leita til verkfalls sjómanna.
Tveir þriðju hlutar atvinnu-
lausra í mánuðinum voru kon-
ur og 81% af öllu skráðu
atvinnuleysi var úti á lands-
byggðinni, enda koma áhrif af
stöðvun fiskveiða harðast nið-
ur þar.
Skráð atvinnuleysi í mars
jafngilti því að um 2.100 manns
hafi verið atvinnulausir allan
mánuðinn, eða sem svarar
1,88% af mannafla á vinnu-
markaði í landinu, og var það
um þriðjungi meira en í febrú-
ar. Meira en fjórðungur at-
vinnulausra í mánuðinum -
alls 558 - eru skráðir á
Norðurlandi eystra, þar af 350
konur, samanborið við 208 og
þar af 63 konur í febrúar.
Svipaða sögu er að segja af
Norðurlandi vestra og Aust-
fjörðum þar sem tala atvinriu-
lausra var nú samtals 473
manns á móti 164 í febrúar.
Þar af voru konur 276 saman-
borið við aðeins 72 í febrúar.
Á Vestfjörðum var atvinnu-
leysi nær ekkert (20 manns) í
mánuðinum fremur en venju-
lega og á Vesturlandi nær ein-
skorðaðist það við konur á
Akranesi. í Vestmannaeyjum
gætti atvinnuleysis sömuleiðis
eingöngu hjá konum. Á
Suðurlandi fækkaði atvinnu-
lausum í kringum fjórðung, en
fjölgaði nokkuð á Suðurnesj-
um, fyrst og fremmst í Kefla-
vík og Sandgerði, þar sem
mikill meirihluti atvinnulausra
voru konur.
Hollustuvernd ríkisins
tekur af skarið:
Reykingar bann-
aðar á fundum
bæjarstjórnar
■ Sveitarstjórnarmönn-
um er óheimilt að reykja á
fundum sínum. Sú er að
minnsta kosti skoðun
Hollustuverndar ríkisins.
Deilur hafa staðið um
það innan bæjarstjórnar
Vestmannaeyja hvort
heimilt væri að neyta tó-
baks á bæjarstjórnarfund-
um og atkvæðagreiðslur
hafa farið fram þar um.
Það er hins vegar Ijóst
orðið að bæjarstjórnin
hefur ekkert úrskurðar-
vald í þessu máli. Á bæjar-
stjórnarfundi 3. apríl s.l.
var lesið upp svar Holl-
ustuverndar ríkisins við
fyrirspurn bæjarstjórnar-
innar um hvort reykingar
væru heimilar á fundum.
Að fengnu áliti Heil-
brigðis- og trygginga-
ráðuneytisins gaf Holl-
ustuverndin þá yfir lýsingu
að reykingar hlytu að telj-
ast óheimilar á fundum
bæjarstjórnar, samkvæmt
lögum.