NT - 13.04.1985, Blaðsíða 2

NT - 13.04.1985, Blaðsíða 2
01 Laugardagur 13. apríl 1985 Skipverjar á Sif SH-3 Stykkishólmi: Björguðu fjórum skipum, fá ekki björgunarlaunin Málið komið til lögfræðings ■ Áhöfnin á fiskiskipiriu Sif SH-3 frá Stykkishólmi, seni ’bjargaði fjórum skipum í höfn- inni í Hafnarfirði fyrir rúmu ári þegar skipin slitnuðu upp r ofsa- veðri,hefurekki fengið björgun- arlaun fyrir vikið og mun málið konia tií kasta dómstóla. í samtali NT við skipstjóra Sifjar, Pétur Ágústsson, sagði hann að áhöfnin heföi gert kröfu um björgunarlaun fyrir hjálp þeirra, og ennfremur um greiðslu • á skemmdum sem urðu á. skipinu. ,.Viö lögðum okkur í hættu og einnig bátinn sem við vorum á því að við yfirgáfum hann lil þess að bjarga þessum fjórum skipum." Þá sagði Pétur að ekki hefði tekist samkomulag um neinar greiðslur nenra bætur fyrir tjón sem varð á skipi þeirra. „Pað sem við hefðum í raun átt að gera var það að forða okkur í burtu og láta þessi skip afskiptalaus.“ Pétur bætti því við að hann væri sannfærður um að ef aðstoð þeirra hefði ekki notið við, hefði ekki getað farið nema á einn veg. Mál skipshafnarinnar er nú komið í hendur Skarphéðins Þórissonar lögfræðings. Hann sagði í samtali við NT að vænt- anlega yrði tekin ákvörðun um málsókn á næstu dögum, og yrði þá höfðað mál á hendur þeim tryggingarfélaögum sem liafa tekið afstöðu til málsins, en það eru Brunabótafélag íslands, Sjóvá og eitt af undir- félögum hjá Samábyrgð íslands á fiskiskipum. „Síðan verður dæmt unr þetta í fyliingu tímans“. Skarphéðinn sagði að uppi hefðu verið hugmyndir um kröfu á tryggingarfélögin allt að 300.000 krónur, en aldrei hefði sú tala þó verið nefnd. „Þau tvö tryggingarfélög sem eiga að greiða um 80% af kröfunni hafa þegar tekið afstöðu, og var þeirra svar neikvætt. Hinsvegar fóru aldrei fram viðræður við þau félög sem eiga afganginn af kröfunni," sagði Skarphéðinn að lokum. Sjómenn á ísafirði: Sáttafundur á mánudag - verkfall á Bíldudal ■ Guðlaugur Þorvalds- son ríkissáttasemjari hef- ur boðað til samninga- fundar milli Sjómanna- félags ísafjarðar og út- vegsmanna næstkomandi mánudag kl. I3. Samn- ingafundir hafa ekki verið boðaðir með öðrum sjó- mannafélögum á Vest- fjörðum, en það verður gert með hliðsjón af því, sem gerist hjá ísfirðing- um. Verkalýðsfélagið Vörn á Bíldudal hefur boðað verkfall sjómanna frá miðnætti þess 19. apíl, og nær það til áhafnar togar- ans Sölva Bjarnasonar. Nýr ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu: Ámi Kolbeins fékk stöðuna ■ Forseti íslands hefur skipað Árna Kolbeinsson í embætti ráðuneytisstjóra í sjávarútvegsráðuneytinu frá 1. maí n.k., að tillögu sjávarútvegsráðherra. Um stöðuna sóttu auk hans Jón B. Jónsson, skrifstofu- stjóri í sjávarútvegsráðu- neytinu og Rósmundur Guðnason, hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun. Arni Kolbeinsson tekur við starfinu af Jóni L. Arnalds, sem þann 1. maí lætur af störfum sam- kvæmt eigin ósk, en hann hefur gegnt starfi ráðu- neytisstjóra í 15 ár. Árni Kolbeinsson er fæddur í Reykjavík árið 1947. Hann lauk lagaprófi frá Háskóla íslands 1973 og stundaði síðan fram- haldsnám í lögfræði við Oslóarháskóla 1974-75. Árni varð fulltrúi í fjár- málaráðuneytinu árið 1973, deildarstjóri tekju- deildar frá 1977 og síðan skrifstofustjóri sama ráðu- neytis frá 1. mars 1984. Árni er kvæntur Sigríði Thorlacius, hdl. ■ Kviníettinn Ljómarnir syngur fyrir gesfi við opnun Hjálpartækjasýningarinnar á Hótel Loftleiðum í gær. Sýningin er opiti til 16. apríl. KÁ á Laugarvatni: Vörurýrnun eða bókhaldsskekkja? Hjá Kaupfélagi Árnesinga á Selfossi er nú unnið að könnun á stórfelldri vörurýrnun sem fram kom við vörutalningu í útibúinu að Laugarvatni en tald- ir eru möguleikar á að ástæðan sé bókhaldsskekkja eða önnur mistök við skráningu birgða. Að sögn Sigurðar Kristjánsson- ar kaupfélagsstjóra á Selfossi er búist við að niðurstaða rann- sóknar liggi fyrir innan skamms. Vörurýrnunin kom fram við talningu síðastliðin áramót og var um tíma talað um að rýrnun- in næmi yfir 10% af veltu útibús- ins eða á aðra milljón króna. Sigurður Kristjánsson kaup- félagsstjóri sagði að þegar væri búið að reikna skekkjuna veru- lega niður. Er Sveinn gleyminn? ■ Það risu margir skeleggir sauðfjárbændur í pontu á undirbúningsfundi fyrir stofn- um Landssamtaka sauðfjár- bænda í vikunni og mikill ein- hugur ríkti á fundinum. Meðal áhersluatriða þarna voru markaðsmál dilkakjötsins sem sífellt lætur í minni pokann gagnvart hvítu kjöti og annarri „djönk“-fæðu nútímans. Sigurður Jónsson bóndi tók til máls og skýrði frá heimsókn sinni norður í Hólaskóla í þessu samhengi. Þar var nógur matur á borðum en allt saman hvítt kjöt, kjúklingar og svín en hvergi fannst biti af sauða- keti. „Það skyldi þó ekki vera að sauðfjárræktarráðunautur- inn fyrrverandi hafi svona alveg gleymt sínu fyrra starfi,“ sagði Sigurður en Sveinn Hallgríms- son sem tók við skólastjóra- stöðunni í fyrra eftir að hafa verið ráðunautur Búnaðarfé- lagsins um langt skeið, hló út í sal með öðrum fundargestum. Einhversstaðar heyrðist svo hvíslað; honum hefurbara þótt svona vænt um blessuð lömdin. Hoxha gleymt ■ Fyrir skemmstu skýrðum við frá andláti maóískrar hreyfingar á íslandi og sögðum þá að nú virtist fokið í flest skjól rótttæklinga nema hvað Albaníukommar berðust enn fyrir byltingunni. Nema hvað. En heldur eru hoxistar orðn- ir veikburða, því þegar lands- lýð barst á öldum ljósvakans sú harmafregn að hinn mikli leiðtogi Envher Hoxha ein- valdur í Albaníu væri látinn, þá heyrðist ekki múkk frá nokkrum hér heima og hvergi sást flaggað í hálfa stöng. Nú hefur Dropateljari fyrir því heimildir að enn séu í það minnsta kosti ein hjón tilheyr- Alþingi: Bjórinn úr nefnd - meirihlutinn samþykkur ■ Allsherjarnefndneðrideild- ar Alþingis afgreiddi í gær bjór- fumvarpið og mælti meirihluti nefndarinnar með því að það yrði samþykkt. Nefndin gerði þó breytingar- 'tillögur. Meðal tillagna meiri- hlutans má nefna að bjór verði aðeins seldur í áfengisverslun- um og að styrkleiki bjórs verði ekki yfir 5%. Frumvarpið fer til 2. umræðu í neðri deild eftir helgi. Bankaráð Útvegsbankans: 4 á móti afnámi bííafríðindanna ■ Meirihluti bankaráðs Út- vegsbankans felldi á fundi sín- um á miðvikudag tillögu um að nema úr gildi fyrri samþykkt ráðsins um breytt fyrirkomulag bílastyrkja bankastjóranna. Tillaga þessi var borin fram af Arnbirni Kristinssyni fulltrúa Alþýðuflokksins. Eftir harð- vítugar umræður greiddu full- trúar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Alþýðubandalagsins atkvæði gegn henni. Eg þarf nú meira en einn sjónvarpsþátt til að fræða þig um ágæti Sjálfstæðisflokksins Bryndís mín. andi samtökum hoxista. Hvort þau sömu eigi aftur á móti flaggstöng er allt annað mál. En heldur hafa það verið vonbrigði öllum sönnum vin- um sósíalisma föður Stalins að á fundi Alþýðubandalagsins í Reykjavík, höldum á dánar- dægri síðasta stór-stalínistans, var ekkert á andlátið minnst. í stað þess að sýna Hoxha þá virðingu að rt'sa úr sætum og drúpa höfði heyrðist skrafað um inngöngu í Annað Alþjóðasambandið, - sam- band sem áður hét að í væri hent uppkeyptu krata-leiguþýi auðvaldsins í heiminum. r

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.