NT - 19.04.1985, Blaðsíða 5
n
Föstudagur 19. apríl 1985
Blaðll
Helgin framundan
LA: Sýningar á Edith Piaf
um helgina
■ Um helgina er 19.-21. sýn-
ing á söngleiknum Edith Piaf
eftir Pam Gems. Uppselt hefur
verið á allar sýningar til þessa
og ráðgert er að sýna a.m.k.
fram í maílok.
Edda Þórarinsdóttir leikur
aðalhlutverkið, Sigurður Páls-
son leikstýrði, Guðný Björk
Richard gerði leikmynd og
Viðar Garðarsson lýsti, en 9
manna hljómsveit í sýningunni
stjórnar Roar Kvam. Þar að
auki koma fram 9 leikarar og
tveir dansarar.
Sýningarnar verða á föstu-
dags-, laugardags- og sunnu-
dagskvöld kl. 20.30.
Blómarósir í Borgarfirði
■ Á laugardaginn 20. apríl
verður sýning á leikritinu
„Blómarósir" eftir Ólaf Hauk
Símonarson á vegum leikdeild-
ar Ungmennafélags Reykdæla
að Logalandi kl. 21.00, og
sömuleiðis er ráðgerð sýning á
Blómarósum kl. 21.00 á
þriðjudag.
Leikstjóri er Bjarni Stein-
grímsson, en hann hefur áður
leikstýrt sýningum fyrir Ung-
mennafélag Reykdæla, má þar
nefna Mann og konu og Gullna
hliðið.
Söngur er mikill í leikritinu
Blómarósum og stjórnar hon-
um Sigurður Guðmundsson frá
Kirkjubóli.
Miðapantanir eru í síma
5120 og 5125.
Rokkhjartað í Bæjarbíói
■ Samtök áhugaleikfélaga
halda leiklistarhátíð í Monaco
um mánaðamótin ágúst/sept.
Fulltrúi íslands á þessari hátíð
verður Leikfélag Hafnarfjarð-
ar með söngleikinn „Rokk-
hjartað slær“. Á hátíðinni leik-
ur hver hópur á sínu móður-
máli, og er því mikilvægt að
áhersla sé lögð á sjónrænan
þátt sýningarinnar og ekki
spillir að tónlistin skipi veiga-
mikinn sess.
Rokkhjartað hefur verið
sýnt tíu sinnum í Bæjarbíói í
Hafnarfirði við góðar undir-
tektir áhorfenda. 11. sýningin
verður í kvöld, föstudagskvöld
19. apríl og 12. sýningin laug-
ardagskvöldið 20. apríl. Sýn-
ingarnar hefjast kl. 20.30.
Miðapantanir allan sólarhring-
inn í síma 50184.
Gæjar og píur
■ Nú styttist óðum í það að
sýningum Ijúki á Gæjum og
píum. Sýningar verða í kvöld
(föstudagskvöld) og á sunnu-
dagskvöld. Uppselt hefurverið
á flestar sýningar verksins.
Kardemommubærinn
■ Tvær sýningar á Karde-
mommubæ Thorbjörns Egners
verða um helgina, á laugardag
og á sunnudag og hefjast þær
báðar kl. 14.00. Stöðugt er
uppselt á Kardemommubæ-
inn.
Valborg og bekkurinn
■ Leikritið Vaiborgogbekk-
urinn eftir Danann Finn
Methling er nú sýnt á Litla
sviði Þjóðleikhússins. Næsta
sýning verður á sunnudags-
kvöld og hefst kl. 20.30. Leik-
húsgestum gefst kostur á að fá
létta máltíð að dönskum hætti
fyrir sýningu gegn afar vægu
verði.
Dafnis og Klói
■ Ballett Nönnu Ólafsdóttur
verður sýndur á laugardags-
kvöld í Pjóðleikhúsinu. Ball-
ettinn er saminn við tónlist
Maurice Ravels. Þetta er 8.
sýning á verkinu.
Klassapíur
■ Alþýðuleikhúsið sýnir
Klassapíur eftir Karyl Churc-
hill laugardaginn 20. apríl kl.
20.30. í Nýlistasafninu,
Vatnsstíg 3 b. Síminn í miða-
sölu er 14350.
Stúdentaleikhúsið
■ Um síðustu helgi frum-
sýndi Stúdentaleikhúsið „Litla
prinsinn" og „Píslarsögu síra
Jóns Magnússonar," sem eru
tónverk eftir Kjartan Ólafs-
son, í leikgerð Halldórs E.
Laxness og er hann jafnframt
leikstjóri sýningarinnar.
Kjartan Ólafsson, höfundur
tónverkanna, útskrifaðist frá
Tónlistarskóla Reykjavíkur
síðastliðið vor og stundar nú
framhaldsnám við Institut de
sonologie í Utrecht í Hollandi.
Kjartan hefur auk leikhústón-
listar samið raftónlist,
kammer- og hljómsveitarverk,
og má þar m.a. nefna „Þúfu-
bjarg“, sem íslenska hljóm-
sveitin frumflutti nú í vetur.
Halldór E. Laxness leik-
stjóri hefur á síðustu sex árum
að mestu dvalið erlendis við
nám og störf í ýmsum leikhús-
um. Hann starfaði í tvö ár með
ítölskum tilraunaleikhóp og
ferðaðist með honum um Evr-
ópu. Einnig hefur hann kynnt
sér kvikmyndagerð í London
og verið við nám í nútíma-
óperuleikstjórn í Kanada.
Hann hefur leikstýrt nokkrum
verkum hjá áhugaleikhópum
bæði í Reykjavík og úti á
landi, en þetta er í fyrsta sinn
sem hann starfar með Stúd-
entaleikhúsinu.
Hlíf Porgeirsdóttir leikur
Litla prinsinn og Tómas Tóm-
asson er í hlutverki síra Jóns,
en auk þeirra koma tíu leikarar
fram í sýningunni. Á sviðinu
birtast einnig stór málverk sem
Hallgrímur Helgason gerði.
Ólafur Engilbertsson hannaði
búninga en Egill Árnason ann-
ast lýsingu.
Sýningar um helgina verða á
föstudags- og sunnudagskvöld
og hefjast kl. 21.00. Sýnt er í
Félagsstofnun stúdenta við
Hringbraut og eru miðar seldir
við innganginn. Einniger hægt
að panta miða í síma 17017
allan sólarhringinn.
Sýning Bjargar
■ Björg Þorsteinsdóttir opn-
aði sýningu á verkum sínum í
Norræna húsinu 13. apríl sl. og
verður hún opin daglega kl.
14.00-22.00 til 28. apríl.
Björg Þorsteinsdóttir er
fædd í Reykjavík. Hún stund-
aði myndiistarnám fyrst hér
heima, en síðan í Stuttgart og
París. Hún hefur haldið nokkr-
ar einkasýningar og tekið þátt
í um 200 samsýningum frá
1969 á innlendum og erlendum
vettvangi, m.a. með Félagi ís-
lenskra myndlitarmanna og fé-
laginu íslenskri grafík alþjóð-
legum sýningum víða um
heim.
Þessa sýningu á verkum sín-
um tileinkar listakonan for-
eldrum sínum, Guðnýju Árna-
dóttur og Þorsteini Davíðs-
syni.
Frá Listmunahúsinu
■ í Listmunahúsinu stendur
yfir sýning Sæmundar Valdi-
marssonar á höggmyndum úr
tré. Höggmyndirnareru um 16
talsins og eru unnar úr rekaviði
á árunum 1979-1985. Sýningin
sem er sölusýning er opin virka
daga kl. 10-18, laugardaga og
sunnudaga kl. 14-18. Lokað
mánudaga. Sýningin stendur
til 28. apríl.
Stillur í Gallerí Langbrók
■ Kristín Þorkelsdóttir opn-
ar sýningu á vatnslitamyndum
í Gallerí Langbrók á morgun,
laugardaginn 20. apríl. Sýning-
in ber nafnið Stillur.
29 myndir eru á sýningar-
skrá„ náttúrustemmningar,
flestar málaðar á síðastliðnu
sumri. Sýningunni lýkur 5.
maí.
Kristín stundaði nám við
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands í frjálsri myndlist 1951-
54. Aðalkennarar hennar voru
Sigurður Sigurðsson listmálari,
Valgerður Briem og Sverrir
Haraldsson. Kristín var að-
stoðarkennari Sverris Haralds-
sonar á kvöldnámskeiðum
MHÍ á síðasta námsári sínu.
Kristín er þekkt af störfum
sínum á sviði hagnýtrar mynd-
listar en heldur nú fyrstu einka-
sýningu sína á sviði frjálsrar
myndlistar.
Sýning á Mokka
■ Haukur Gunndórsson
opnaði nýlega myndlistarsýn-
ingu á pastelverkum í Mokka-
kaffi á Skólavörðustíg. Sýning-
in stendur í mánuð.
Kringum 20 verk eru á sýn-
ingunni, aðallega pastelmynd-
ir, en sumar eru unnar með
kolum. Sýninginersölusýning.
Gallerí Borg
■ ÁlaugardagopnarHaukur
Dór Sturluson sýningu í Gall-
erí Borg við Austurvöll, og
stendur hún til 28. þessa mán-
aðar.
Á sýningu Hauks verða um
40 teikningar, en óvissa ríkir
enn um nákvæmlega hversu
margar myndir verða sýndar,
þar sem verkföll í Danmörku
hafa tafið heimkomu verkanna
og listamannsins.
Langt er síðan Haukur Dór
hefur haldið hér sýningu á
teikningum og er því eftirvænt-
ing ríkjandi meðal myndlista-
áhugamanna.
Sýning Hauks verður opnuð
laugard. 20. þ.m. og stendur
aðeins í rúma viku.
Listasafn íslands
■ í dag föstud. 19. apríl kl.
17.30, verður opnuð í Lista-
safni íslands yfirlitssýning á
verkum Jóhannesar Jóhannes-
sonar listmálara.
Jóhannes er fæddur í
Reykjavík. Hann lauk sveins-
prófi í gull- og silfursmíði frá
Iðnskólanum í Reykjavík 1945
og fór síðan í myndlistarnám
til Bandaríkjanna og síðar á
Ítalíu.
Fyrsta sýning Jóhannesar
var í Listamannaskálanum
1946, en síðan hefur hann
haldið margar sérsýningar og
tekið þátt í samsýningum bæði
á íslandi og erlendis. Hann
vann við gullsmíðar til ársins
1972, en síðan hefur hann
helgað sig málaralistinni, jafn-
framt því sem hann hefur starf-
að við Listasafn íslands.
Jóhannes var einn af frum-
kvöðlum septembersýning-
anna. Hann hefur látið félags-
mál myndlistarmanna mikið til
sín taka.
Á sýningunni eru alls 134
verk. Af þeim eru 118 verk
unnin í olíu, gvass, collage og
vatnsliti auk 16 gull- og silfur-
gripa. Elsta verkið á sýning-
unni er frá 1938, en það yngsta
er frá þessu ári. Sýningunni er
einkum ætlað að sýna þróun
Jóhannesar sem listmálara.
Sýningin mun standa til 19.
maí og verður hún fyrst um
sinn opin daglega frá kl. 13.30
til 22.00, en eftir það frá kl.
13.30-16.00 á virkum dögum,
enkl. 13.30 til 22.00 umhelgar.
Syngjandi fjölskyldur
í Garðabæ
■ Bel Canto kórinn í Garða-
bæ heldur tónleika í Lang-
holtskirkju sunnudaginn 21.
apríl. Tónleikarnir hefjast kl.
16.00. Skólakór Garðabæjar
syngur einnig nokkur lög á
tónleikunum.
Stjórnandi Bel Canto kórs-1
ins og Skólakórs Garðabæjar '
er Guðfinna Dóra Ólafsdóttir
tónmenntakennari.
Bel Canto kórinn var stofn-
aður haustið 1981. Stofnfélag-
ar voru unglingar sem áður
höfðu sungið í Skólakór
Garðabæjar og foreldrar nokk-
urra þeirra. í dag eru í kórnum
35 félagar.
Á tónleikunum verður sung-
in kirkjuleg tónlist eingöngu,
íslensk og erlend, allt frá 15.
öld til dagsins í dag. Organleik-
ari verður Gústaf Jóhannesson
en flautuleikari Kolbeinn
Bjarnason.
Söngför Söngfélags
Skaftfellinga
■ Um þessa helgi fer Söngfé-
lag Skaftfellinga í Reykjavík í
söngferð til Austurlands og
mun halda þar þrenna tón-
leika.
Fyrstu tónleikarnir verða á
Seyðisfirði föstudagskvöldið
kl. 21.00. Á laugardag kl.
15.00 syngur kórinn í Egils-
staðakirkju, en á Eskifirði
laugardagskvöld kl. 21.00.
Söngstjóri kórsins er Violeta
Smidova og undirleikari er Pa-
vel Smid. en þau munu einnig
leika saman fjórhent á píanó.
Þá er með í förinni ungur
söngvari Friðrik S. Kristinsson
frá Eskifirði, og mun hann
flytja nokkur einsöngslög.
Þau Violeta Smidova og
Pavel Smid eru Austfirðingum
að góðu kunn, því þau störf-
uðu á Eskifirði og Reyðárfirði
í n okkur á við tónlistarkennslu
og kórstjórn.
Tónleikar í
Ytri-Njarðvfkurkirkju
■ Á morgun, laugardag,
verða tónleikar í Ytri-Njarð-
víkurkirkju. Þar munu þau
Ragnheiður Guðmundsdóttir
söngkona, Þórarinn Sigur-
bergsson gítarleikari og Kjart-
an Már Kjartansson fiðluleik-
ari flytja verk eftir ýmsa höf-
unda t.d. Bach, Hándel,
Gershwin og fleiri. Einnig
munu þau flytja íslensk lög,
spænska gítartónlist og negra-
sálma.
Ragnheiður, Þórarinn og
Kjartan eru kennarar við tón-
listarskólana í Njarðvík og
Keflavík og er ætlunin að halda
tónleika víðar á Suðurnesjum
á næstunni. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 17 og verða aðgöngu-
miðar seldir við innganginn.
Ungir norrænir
einleikarar
■ Sunnudaginn21. aprílleik-
ur sænski óbóleikarinn Helen
Jahren í Norræna húsinu ásamt
Láru Rafnsdóttur píanó-
leikara.
Þetta eru aðrir tónleikar í
tónleikaröðinni Ungir norræn-
ir einleikarar, sem hleypt var
af stokkunum síðastliðinn
sunnudag.
Helen Jahren þykir frábær
óbóleikari, enda var hún nteð-
al sigurvegaranna í tónlistar-
keppni ungra tónlistarmanna í
Osló 1984. Á efnisskránni
verða bæði gömul og ný verk,
en Helen Jahren hefur fengið
orð fyrir að vera snillingur í að
túlka nútímaverk og hafa ýms-
ir skrifað verk fyrir hana.
Tónleikarnir hefjast kl.
20.30 á sunnudagskvöld og
verða miðar seldir við inngang-
inn.
Tvennir tónleikar
Tónlistarskólans
■ Tvennir tónleikar verða
haldnir á vegum Tónlistarskól-
ans í Reykjavík um helgina.
Þeir fyrri verða í Norræna
húsinu á morgun, laugardag-
inn 20. apríl, kl. 17.00. Þar
mun Kór Tónlistarskólans
flytja verk eftir Brahms og
Mozart undir stjórn Marteins
Hunger Friðrikssonar.
Ennfremur mun Skólakór Kárs-
ness syngja undir stjórn nem-
enda úr tónmenntakennara-
deild skólans.
Síðari tónleikarnir verða í
Bústaðakirkju sunnudaginn
21. apríl kl. 18.00. Þar mun
hljómsveit skólans leika úndir
stjórn Guðmundar Emilssonar
verk eftir Sjostakóvitsj, Bozza
og Haydn.
Aðgangur er ókeypis og öll-
um heimill.
Vortónleikar
S Tónlistarskóli Hafnar-
fjarðar efnir til fjögurra vor-
tónleikaánæstunni. Þeirverða
dagana 21. apríl, 5. maí, 11.
maí og 25. maí.
Fyrstu tónleikarnir verða á
sunnudaginn 21. apríl kl. 14.00
í sal skólans, Strandgötu 32
Hafnarfirði. Það eru sameigin-
legir burtfarar-tónleikar þeirra
Trausta Thorberg Óskarssonar
og Trausta Kristjánssonar,
sem báðir ljúka fullnaðarprófi
frá skólanum í gítarleik undir
handleiðslu kennara síns Ey-
þórs Þorlákssonar gítar-
leikara.
Neskirkja
■ Samverustund aldraðra
verður á morgun, laugardag.
Þá verður farið að Höfða Borg-
artúni frá kirkjunni kl. 15.
Þátttaka tilkynnist kirkjuverði
kl. 17-18 í dag í síma 16783.
Séra Frank M. Halldórsson.
Laugardagskaffi
Kvennahúss
■ Á laugardag verður á
dagskrá í Kvennahúsinu
„Hvernig miðbær“ - Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir fer með
okkur í skoðunarferð í máli og
myndum um miðborgir nokk-
urra nágrannalanda. Kaffi á
könnunni eins og venjulega.
Sumarfagnaður
Húnvetningafélagsins
■ Sumarfagnaður Húnvetn-
ingafélagsins í Reykjavík verð-
ur haldinn laugardaginn 20.
apríl í Domus Medica. Fagn-
aðurinn hefst kl. 21.00. Karla-
kórinn Lóuþrælar kemur í
heimsókn - norðan úr Húna-.
vatnssýslu - og syngur kl.
21.30 . Hin vinsæla hljómsveit
Upplyfting leikur fyrir dansi.
Fjölmennum og fögnum
sumri.
Útivistarferðir
■ sunnudagur21.aprilkl.13
Snókafell-Lambafell. Létt
ganga um leyndardómsfulla
staði á Reykjanesskaga.
Lambafellsgjáin skoðuð o.fl.
Ath. breytta áætlun. Verð 350
kr. frítt f. börn m. fullorðnum.
Brottför frá BSÍ, bensínsölu.
(í Hafnarf. v. kirkjug.)
Aðalfundur Útivistar verður
haldinn mánudaginn 22. apríl
kl. 20.30 að Hótel Sögu, hliðar-
sal. Venjuleg aðalfundarstörf.
Austurríki brottför 24. maí,
19 daga ferð. Gönguferð um
fjallahéruð Múhlviertel. Dvöl
í Vín og við fjallavatnið Zell
am See. Einstakt tækifæri fyrir
Útivistarfélaga og fjölskyldur
þeirra. Uppl. á skrifst.
Lækjarg. 6a, sími 14606
(símsvari).
Áth. Útivistarskálinn í Básum
Þórsmörk er opinn til gistingar
smærri og stærri hópum. Pantið
tímanlega. Sjáumst.
Ferðafélagið Útivist
Dagsferðir Ferðafélags
íslands
■ 1. Klukkan 10.30 verður
skíðaganga úr Bláfjöllum í
Grindaskörð. Gengið verður í
um 5 klst.
2. Klukkan 13.00 - Gengið
frá Þríhnjúkum í Kristjánsdali.
Létt gönguleið í Reykjanesfól-
kvangi, komið niður á nýja
Bláfjallaveginn í Kristjánsdöl-
um.
Brottför í ferðirnar frá Um-
ferðarmiðstöðinni austanmeg-
in. Farmiðar eru seldir við bíl.
Frítt fyrir börn í fylgd fullorð-
inna.
Ath.: Gönguferð verður á
Esju sumardaginn fyrsta.
Helgarferð í Tindfjöl! 10.-
12. maí.
Kvöldvaka 24. apríl. Björn
Th. Björnsson segir frá Þing-
völium.
■ Kvöld í Öskjuhlíð.
Vatnslitamynd eftir Kristínu Þorkelsdóttur ág.’84.
Föstudagur 19. apríl 1985 5 Blað II
■ Listafólkið er allt kennarar
við tónlistarskólana í Njarðvík
og Keflavík.
Afmælistónleikar
■ Á morgun, laugard. 20.
apríl heldur Lúðrasveit Hafn-
arfjarðar 35 ára afmælistón-
leiíca sína í Bæjarbíói í Hafnar-
firði kl. 14.00.
Fjölbreytt efnisval verður á
þessum afmælistónleikum
lúðrasveitarinnar, bæði inn-
lend og erlend verk.
I tilefni afmælisins hyggst
Lúðrasveit Hafnarfjarðar
halda í tónleikaferð til Þýska-
lands og Austurríkis á þessu
ári.
Stjórnandi Lúðrasveitar
an
Lúðrasveitin Svanur
■ Á morgun, laugardag,
heldur Lúðrasveitin Svanur
sína árlegu vortónleika í Há-
skólabíói. Lúðrasveitina skipa
nú tæplega 50 manns.
Efnisskráin er fjölbreytt að
venju, má þar nefna verk eftir
Mendelssohn, Kees Vlak,
Khachaturian o.fl. Einleikari á
óbó verður Kristján Þ. Step-
hensen.
Big-band Svansins leikur
nokkur lög. Einnig kemur
fram á tónleikunum lúðrasveit
tónmenntaskóla Reykjavíkur
Kvikmyndin „Martha“
sýnd í Norræna húsinu
■ Sunnudaginn 21. apríl kl.
16.00 verður danska gaman-
myndin „Martha“ sýnd í Norr-
æna húsinu á vegum kvik-
myndaklúbbsins Norðurljóss.
Martha er gamall ryðkláfur,
sem eigandinn hefur leigt út til
siglinga í gríska eyjahafinu.
Dag nokkurn þarf eigandinn á
því að halda, og þá kárnar
gamanið.
Leikstjóri myndarinnar er
Erik Balling, en með aðalhlut-
verk fara Poul Reichardt, Ove
Sprogöe, Morten Grúnwaald
o.fl. Myndin er frá 1967. Hún
er í litum og með dönsku tali.
Aðgangskort kvikmynda-
'klúbbsins frá því í haust gilda á
sýninguna, en auk þess má
kaupa miða við innganginn.
Kvikmyndasýningar MÍR
■ Laugardaginn 20. og sunn-
udaginn 21. apríl verða kvik-
myndasýningar í nýjum sýnin-
garsal MÍR að Vatnsstíg 10 og
hefjast báða dagana kl. 16.00.
Sýndar verða heimildarkvik-
myndir frá síðustu heimstyrj-
öld og fyrstu árunum eftir
styrjaldarlok í Sovétríkjunum.
Mánudaginn 22. apríl kl. 20.30
verður þess minnst á sama
stað, að liðin eru 115 ár frá
fæðingu V.I. Lenins. Sýnd
verður hin fræga kvikmynd
Mikhaíls Romm „Lenin í okt-
óber“.
Aðgangur að kvikmynda-
sýningunum er.öllum heimill.
■ Svipmynd úr Bláfjöllum
Hafnarfjarðar er Hans Ploder
Fransson, og eru þetta 21.
tónleikarnir, sem hann stjórn-
ar hjá Lúðrasveit Hafnarfjarð-
ar.
Tónleikar Lúðrasveitar
Stykkishólms
■ Lúðrasveit Stykkishólms
heldur tónleika í Félagsheimili
Stykkishólms sunnudaginn 21.
apríl kl. 15.00.
Efnisskráin er fjölbreytt,
bæði erlend og innlend lög.
Stjórnandi lúðrasveitarinnar
er Daði Þór Einarsson og
kynnir verður Ellert Kristins-
son. Einnig mun yngri deild
lúðrasveitarinnar leika nokkur
lög undir stjórn Hafsteins Sig-
urðssonar. Lúðrasveit Stykkis-
hólms er að undirbúa tónleika-
ferð um Vestfirði, sem verður
farin 21.-24. júní n.k.
og leika sveitirnar eitt lag sam-
eiginlega.
Tónleikunum sem hefjast kl.
14 stjórnar Kjartan Óskarsson
en Sæbjörn Jónsson stjórnar
Big-bandi Svansins og lúðra-
sveit Tónmenntaskóla Reykja-
víkur.
Rangæingafélagið
i Reykjavík
■ Rangæingafélagið í
Reykjavík heldur aðalfund
sinn að Hallveigarstöðum
laugardaginn 20. apríl og hefst
hann kl. 14.00. Dagskrá er
skv. félagslögum.
Kynnt verður væntanleg af-
mælishátíð félagsins að
Heimalandi 4. maí nk., bygg-
ing orlofshúss að Hamragörð-
um og sumarferðalag.
Stjórnin.
■ Friðþjófur Helgason Ijósmyndari á Morgunblaðinu undirbýr uppsetningu mynda sinna, ásamt
starfsmanni Listasafns alþýðu.
Fréttaljósmyndir og ís-
lenskar blaðal jósmyndir
■ Hin árlega verðlauna-
myndasýning, „World Press
Photo“ verður opnuð í Lista-
safni ASÍ föstudaginn 19. apríl
kl. 20.30. íslenskir blaðaljós-
myndarar verða nú með á sýn-
ingunni í fyrsta skipti.
Sýningin verður opin til 1.
maí. Opnunartími safnsins er
virka daga kl. 14.00-20.00 og
um helgar kl. 14.00-22.00.
Broadway:
Ríó-tríó treður upp í Broad-
way um helgina bæði föstu-
dags-, og laugardagskvöld.
Hljómsveit Gunnars Þórðar-
sonar leikur og söngvarar með
hljómsveitinni eru Björgvin
Halldórsson, Þuríður Sigurð-
ardóttir og Sverrir Guðjóns-
son. Sunnudag verður lokað í
Broadway. Broadway er til
húsa að Álfabakka 8, og sím-
inn er 77500.
Hótel Saga:
Súlnasalurinn verður lokað-
ur vegna einkasamkvæmis á
föstudagskvöld. Á laugardags-
kvöld verður almennur dans-
leikur, og skemmtiatriði -
Söguspaug sem nýlega var
■ hleypt af stokkunum. Mímis-
bar verður opinn alla helgina,
og skemmtir dúett Andra og
Sigurbergs gestum með léttri
tónlist. Hótel Saga er til húsa
við Hagatorg, og síminn er
20221.
Hótel Borq:
Almennur dansleikur verð-
ur á vegum laganema bæði
föstudags og laugardagskvöld.
Diskótek verður að vanda og
leikið tií klukkan þrjú eftir
miðnætti. Sunnudagskvöldið
verður það hljómsveit Jóns
Sigurðarsonar sem leikur fyrir
gömlu dönsunum. Hótel Borg
er við Pósthússtræti 10, og
síminn er 11400.
Glæsibær:
Almennir dansleikir verða í
Glæsibæ bæði föstudags og
laugardagskvöld. Hljómsveit-
in Glæsir leikur fyrir dansi.
Ölverið verður opið alla helg-
ina, og geta gestir keypt þar
bjórlíki bæði föstudags og
laugardagskvöld fram til
klukkan 3 eftir miðnætti.
Sunnudagurinn verður einnig
með í reikningnum hjá Ölver-
inu, og verður þá opið til
klukkan eitt eftir miðnætti.
Glæsibær er í Álfheimum og
síminn er 685660.
ur diskótek bæði föstudags- og
laugardagskvöld. Opið er til
klukkan þrjú eftir miðnætti og
barinn opinn að venju. Leik-
húskjallarinn er við Hverfis-
götu og síminn er 19636.
Naustið:
Gestum Naustsins gefst
kostur á að bragða á sérrétta-
matseðli þeim sem enski mat-
reiðslumeistarinn David Wilby
útbjó fyrir Naustið á meðan
hann dvaldist hériendis í boði
staðarins. Föstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld leik-
ur hljómsveit Guðmundar Ing-
ólfssonar fyrir dansi og breska
blúsdrottningin Beril Bryden
mun skemmta gestum sínum
með söng. Naustið er við Vest-
urgötu 6-8, og síminn er 17759.
Óðal:
Skálafell
Hótel Esju:
Föstudags og laugardags-
kvöld mun dansband Kristjáns
leika fyrir dansi. Á sunnudag
mæta síðan Guðmundur
Haukur og Þrösfur og Ieika
létt lög fyrir gesti. Hótel Esja
er við Suðurlandsbraut 2, oger j fQ ffjQ ■
Skálafell á 9. hæð. Síminn er .......J
'82200.
Diskótekið verður opið frá
klukkan tíu bæði föstudags- og
laugardagskvöld. Þá opnar
grillið einnig klukkan tíu og
geta gestir glatt innri mann
með matföngum. Óðal er við
Austurvöll, og síminn er
11630.
Leikhús-
kjallarinn:
í Leikhúskjallaranum. verð-
Það verður mikió um að
vera að vanda hjá aðstandend-
um og gestum Traffic um helg-
ina. Föstudagskvöld verður
opið ti! klukkan 3 eftir mið-
nætti, með aldurstakmörkun-
um 16 ár. Laugardag veröur
einnig opið til klukkan 3. New
módels verða með tískusýn-
ingu á fatnaði frá Ping Pong.
Sunnudag verður skemmtun
fyrir yngsta aldurshópinn, og
hefst hún klukkan 15 og stend-
ur fram til klukkan 18. Traffic
er við Laugaveg 116 og síminn
er 10312.
I
Kópurinn:
Hljómsveit Birgis Gunnars-
sonar leikur fyrir dansi um
helgina. Breska blúsdrottning-
in Beryl Bryden mun koma í
heimsókn og þenja raddbönd-
in. Líf og fjör verður í Kópa-
kránni alla helgina. Kráin
verður einnig opin til klukkan
eitt á sunnudag. Kópurinn er
við Auðbrekku 12, og síminn
er 46244.
Þórscafé:
Föstudags-, laugardags- og
sunnudagskvöld skemmtir
Þórskabarett gestum Þórscafé,
og kabaretthljómsveitin leikur
fyrir dansi. Anna Vilhjálms og
Einar, úr Pónik og Einar,
syngja lög úr þekktum söng-
leikjum öll kvöldin. Sunnudag-
urinn hefur nokkra sérstöðu
eins og vanalega. þar sem
ferðahátíð verður í Þórscafé á
vegum Arnarflugs, og hefst
gamaniðklukkansjö. Þórscafé
er við Brautarholt 20ogstminn
er 23334.
Safarí:
Ríó:
Það verður diskótek föstu-
dags- og laugardagskvöld að
venju í Safarí um helgina.
. Opið frá 10-3 eftir miðnætti.
Safarí er við Skúlagötu 30 og
síminn er 11555.
Sigtún:
Opið báða aðaldaga helgar-
innar, föstudags- og laugar-
dagskvöld frá klukkan 10-3.
Grillið verður opið frá klukkan
tíu bæði kvöldin. Sigtún er við
Suðurlandsbraut og síminn er
685733.
Nú er heldur bctur orðin
breyting á högum þeirra Ríó-
manna eins og kemur fram í
blaðinu. Umsókn um vínveit-
ingarleyfi er nú langt komin í
afgreiðslu. Föstudag verður
opið til klukkan þrjú og hljóm-
sveitin Goðgá leikur fyrir
dansi. Laugardag verður einn-
ig opið til klukkan þrjú og
Goðgá heldur uppi stuðinu. Þá
verða ýmsar uppákomur um-
helgina, en ekki tímabært að
skýra frá þeim enn. Opið til
eitt á sunnudag. Síminn er
46500.
Hollywood: Ypsilon:
Á föstudag verður diskótek
á tveimur hæðum. Hollywood-
models flytja frumsaminn dans
sinn „Sól rís". Á laugardag
verður almennurdansleikurog
opið til klukkan þrjú eftir
miðnætti. Pilot-kvöld verður á
sunnudag í tilefni afmælis
verslunarinnar Pilot. Tísku-
sýning verður og sýnd föt frá
versluninni. Á efri hæðinni
skemmtirsöngsveitin Hálft í ,
hvoru. Hollywood er í Árinúla Á rft'l n ■
15 og síminn er 81585. " 1 *
Diskótekið verður á fullu
alla helgina undir stjórn þeirra
Krissa Fredd og Móses. Kráin
verður opin alla helgina með
lifandi músík. Opið verður til
klukkan þrjú eftir miðnætti
um helgina, én kráin til klukk-
an eitt á sunnudagskvöld.
Ypsilon er til húsa við Smiðju-
veg 4 og síminn er 72177.
Klúbburinn:
Opið verður á öllum hæðum
í Klúbbnum um helgina og
geta gestir hlustað á fjögur
diskótek föstudag og laugar-
dag. Klúbburinnervið BorgáT-
tún 32, og síminn er 35355.
Föstudagskvöld verða
gömlu dansarnir á dagskrá hjá
þeim Ártúnsmönnum, og leik-
ur hljómsveitin Drekar fyrir
dansinum. Laugardag verður
lokað vegna einkasamkvæmis.
, Ártún er til húsa að Vagnhöfða
i 11 oa símínn er 685090.