NT

Ulloq

NT - 25.04.1985, Qupperneq 6

NT - 25.04.1985, Qupperneq 6
Fimmtudagur 25. apríl 1985 6 Blað II Grisjun og klipping trjáí ■ Oft er nauðsynlegt að klippa tré og runna til að laga eða móta vöxt þeirra. Aðalástæðurnar fyrir því að við klippum eru I. til að yngja upp greinar og runna II. Til að komast fyrir sjúkdóma með því að klippa sýktar greinar burt og III. að grisja til að birta og loft komist berur inn í runnann eða tréð. Sé klipping nauðsynleg er best að framkvæma hana árlega þannig að hún verði jöfn og auðveldari viðfangs. Seinni hluti vetrar, á tímabilinu febrú- ar og fram í apríl-maí er hentugasti tíminn til klippinga á flestum tegund- um. Undantekningar eru t.d. birki og hlynur. Pær tegundir á að klippa fyrri part vetrar eða að sumrinu þegar vöxtur er kominn vel af stað, annars verður safarennsli úr sárunum of mikið. Þá eru ýmsir blómrunnar sem blómgast á sprotum frá árinu áður klipptir á sumrin eftir blómgun í sumum tilvikum og ennfremur eru margar víðitegundir snyrtar til og jafnaðar yfir sumarið. Nauðsynlegt er að nota lipur og beitt verkfæri við þetta iðju. Einnig er nauðsynlegt að þekkja eðlilegt vaxtarlag plöntunnar til þess að geta lagað vöxtinn og hjálpað til með klippingu í stað þess að þvinga hana eða afbaka. Klipping bætir ekki úr öllum göllum s.s. plássleysi vegna rangrar staðsetningar ofl. Þegar klippt er ætti maður alltaf að vera viss um hvað á að gera og hversvegna, en ekki vaða blint í sjóinn og ráðast að kjarrinu með eggvopnum og brytja af því þar til annar hvor aðilinn bíður lægri hlut. Flesta skrautrunna þarf yfirleitt ekki að grisja eða klippa meira en svo á hverju ári fyrst í stað en sem nemur veikbyggðum, skemmdum eða dauð- um sprotum og greinum. Þegar frá líður þarf þó árlega einnig að fjar- lægja smávegis af elstu greinunum m.a. til að veita yngri greinunt rými og fá meiri birtu inn í runnann. Þá bera margir runnar mest af blómum og berjum á yngri greinum s.s. rifs. Þar sem runnar hafa takmarkað vax tarrými getur þurft að grisja nokkuð meir. Einnig rekumst við oft á gamla runna með hálfeysknum berum grein- um, eða það gömlum að vexti þeirra er nærri lokið. Þannig runnar eru skornir að mestu niður til að þvinga fram nývöxt. Algengt er að klippa viðarplöntur til þess að fá á þær ákveðið form eða lögun í limgerði t.d. limgerðisplöntur sem settar eru niður að vori eru að öllu jöfnu lítið klipptar nema greinar og toppar séu langir og renglulegir. Þá er tekið allt að þriðjungi af sprotanum en að öðru leyti ekki klippt fyrr en næsta vor en þá er klippt kröftuglega niður. Víðitegundir eru hins vegar klipptar gróflega niður við gróður- setningu til að fá sterkar stofngreinar og þétt alveg frá jörðu. Klippingin veldur því að plönturnar skjóta fjölda aukagreina þannig að gerðið verður þétt og jafnt. Næstu ár er limgerðið mótað, klippt og jafnað inn að toppnum, annað hvort með beinum eða bogadregnum línum. Slíkum lim- gerðum er auðvelt að halda þéttum og jöfnum auk þess sem þau þola betur snjóþunga en kassalaga form. Margir freistast til að spara klipp- ingar meðan plönturnar eru litlar til að fá sem fyrst nógu hátt limgerði, og klippa síðan og klippa til að halda því í réttri hæð, loks þegar henni er náð. Slík limgerði verða gisin með fáar og langar greinar að neðan en þéttan vöndul í toppinn: Því á ekki að hleypa plöntunni upp nema um 10-20 sm á ári eftir því hve fljótvaxnar þær eru og snyrta hliðargreinar þeirra samsvarandi. Þegar réttri hæð er náð er aðeins lítið skilið eftir af árlegum vexti við hverja klippingu. Smám saman þéttist ysti greinakransinn og verður að þéttum vöndli sem erfitt er að eiga við í klippingu. Þessi vöndull er þá klipptur af, þ.e. klippt inn á eldri greinarnar, og síðan hleypt fram árlega litlum sprota þar til aftur myndast þéttur krans, o.sfrv. Ef limgerði eru gisin og/eða gömul og rótarkerfi sterkt og tegundin þolir vel klippingu (s.s. víðiteg.) er það endurnýjað með því að klippa það eða saga alveg niður undir jörð, í 10-30 sm hæð. Á mörgum runnum verður klipping og grisjun að fara nokkuð eftir blómg- un þeirra. Runnar sem mynda blóm frá endum sprotanna frá árinu áður s.s. alparósir, gullregn, rifstegundir, sírenur ofl. eru fyrst stýfðir eftir að blómgun er lokið, sé talin nauðsyn að minnka hæð þeirra. Að öðru leyti eru þeir grisjaðir ef þeir verða mjög þéttir. Eru þá elstu greinarnar teknar ■ Mismunandi form limgerða: a. algengasta gerð, hæfír illa vexti plantna, b. limgerði með lóðréttar hliðar verða auðveldlega opin og gisin að neðan. Brotnu línurnar sýna betra form. Hentug lögun er einnig á c. og d. en e. sýnir nokkurnveginn þann vöxt sem bætist við árlega. ■ Grisjun trjáa Garðskálar Paradís undir plasti ■ íslenska sumarið er stutt, svalt og sjaldnast mjög sólríkt. Þessi stað- reynd hefur lengst af staðið í vegi fyrir því að suðlægar plöntur hafi þrifist hér og skartað sínu fegursta Undanfarin ár hefur þó orðið mikil breyting þar á. Heimilisgróðurhús njóta sívaxandi vinsælda enda opna þau nýjan og hlýrri heim fyrir landann, um leið og þau lengja sumarið í báða enda. Með þeim skapast nær óþrjótandi möguleikar til að rækta og hafa f kring um sig plöntur sem við sjaldnast heyrum af né sjáum nema í ferðasögum eða ævintýrum. Hugtakið gróðurhús hefur næsta víða merkingu í málinu: með því er átt við allar meira eða minna varan- legar húsgrindur klæddar efnum sem hleypa í gegn um sig birtu og yl og fullnægja þar með tveim frumþörfum plantna - þeim þremur sem á vantar, raka, mold og næringu, verðum við að sjá þeim fyrir. Af hagnýtum ástæðum verðum við að þrengja hugtakið og kljúfa það í tvennt, samkvæmt því hlutverki sem byggingin á að gegna: annars vegar gróðurskála þar sem megináhersla er lögð á mannavist en gróðurinn er að mestu sem umgjörð og uppfylling. Hins vegar er talað um gróðurhús þegar gróðurinn er aðalatriðið og á annað rými er fyrst og fremst litið sem vinnupláss fyrir þá sem sinna um hann. Þarna á milli ríkir svo að sjálfsögðu oft millibilsástand. Það mun algengast að gróðurskál- inn sé sambyggður íbúðarhúsinu og innangengt í hann - enda gefur það augaleið að notagildi hans eykst stór- um við það fyrirkomulag. Gróðurhús er hins vegar oftar sjálfstætt í garðin- um. Gróðurhús er hægt að kaupa í stöðluðum einingum en gróðurskál- ann verður yfirleitt að hanna sérstak- lega og fella að því sem fyrir er - en einnig þarna er hægt að fara bil beggja þar sem framboðið á forsniðn- um einingum er fjölbreytt. Valið verður því að ráðast af hagsýni og smekk hvers og eins. í grindina er ýmist notað timbur, ál eða stál. Þessi efni er hægt að tengja saman ellegar nota hvert fyrir sig. ( sjálfan hjúpinn er haft gler, akrýl- eða pólýkarbónplötur. Til bráða- birgða má líka notast við ódýra plastdúka eins og t.d. þolplast eða vinyl. Ein aðalregla gildir um öll gróður- hús: það verður að sækja um leyfi fyrir þeim til byggingarnefndar við- komandi sveitarfélags. Umsókninni þarf að fylgja teikning af gróðurhús- inu eða greinargóð lýsing á gerð þess ef um staðlað hús er að ræða, afstöðu- mynd og yfirlýsing nágranna um að þeir hafi ekki á móti mannvirkinu. Skynsamlegt er að leita álits trygging- arfélaga um tryggingarmál og iðgjöld. Gróðurhús geta haft áhrif á fasteigna- mat og í sumum sveitarfélögum verð- ur að greiða af þeim gjöld. Hin síðari ár er orðið algengt að gróðurskálar séu felldir inn í hús- Gróðurskálinn þarf í fyrsta lagi að rúma allt sem ætlunin er að hafa í honum og ætti því gólfflöturinn ekki að vera minni en 20 m2. í þrengri skálum er hætt við að mönnum líði líkt og í fuglabúri og njóti þess síður að dvelja í þeim. Gróðurskálarnir þurfa að rúma húsgögn, leyfa umferð og gróðurinn verður að fá pláss til þess að njóta sín og skapa þann teikningar frá upphafi og frá þeim gengið um leið og húsið er reist. í þeim tilvikum þarf ekki að fá sérstök leyfi umfram það sem fylgir byggingu íbúðarhússins. Hér verður ekki fjallað um ræktun í gróðurhúsum, nógar heimildir eru til þar um, heldur rifjuð upp ýmis atriði er varða gróðurskála sérstak- lega.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.