NT - 25.04.1985, Blaðsíða 10

NT - 25.04.1985, Blaðsíða 10
Auk þess að vera með fulla verslun af úrvals húsgögnum, sýnum við í GARÐSKÁLANUM ótrúlegt úrval afhúsgögnum í: Garðinn - Garðhúsið - Sumarbústaðinn eða bara heimilið. Komið og skoðið 1 sinu rétta umhverfi Verið velkomin. Heimiliö? Sogavegi 188 Sími 37210 Fimmtudagur 25. apríl 1985 10 Blðð II Gróðursetning trjáa og runna í görðum ckki hætta á frckari frostum cr tíma- bært að fara að stinga upp beð og gróðursetja. Flestir runnar og garðtré eru seld í pottum eða með hnaus en limgerðisplöntur oft sem berrótarplöntur. Pottaplöntum liggur ekki eins mikið á að komast í jörðina og hinum ef gætt er að því að láta þær ekki þorna í pottunum. Þegar þær eru gróöursettar er gott að vökva moldina í pottinum áður til þess að hún loði betur santan þegar piantan er tekin úr honum. Ef plantan hefur staðið of lengi í pottinum er hætt við að ræturnar séu hnýttar eða uppvafðar. Slíkar rætur þarf að losa um áður en plantan er gróðursett, annars verða þær lengi að ná sér úr hnútnum og tefja vöxt plöntunnar jafnvel um nokkur ár. Fura, lerki og plöntur með stólparót eru sérlega viðkvænt fyrir slíkunt rótarflækjum. Plöntur úr pottum eða með hnaus á ekki að gróðursetja dýpra en þær stóðu áður. Gæta verður að því að þjappa vel að þeint þannig að kökkur- ■ Faglega skorið limgerði. ■ í upphafi skyldi endinn skoða. Pctta spákmæli á vel við þegar farið er að huga að gróðursetningu og skipulagi skrúðgarðsins. Það er ekki óalgcngt að sjá stórvaxin tré, sem plantað hefur veriö þétt upp viö húsvegg, byrgja fyrir allt útsýni og nánast kaffæra húsið, auk þess sem vaxtarlag trjánna er meira og minna brogað vegna plássleysis. A sama hátt er einnig varasamt að planta trjátegundum sem geta orðið stórar og miklar um sig í litlum görðum. Þegar fram líða stundirtaka þessir risar allt plássið í garðinum og varpa miklunt skugga á næsta ná- grenni. Þá er líka töluvert atriði að velja skuggþolnar plontur á þá staði sem mestur skuggi hvílir á. Þegar búið er að skipuleggja garð- inn er hægt að hefjast handa um undirbúning og gróðursctningu. Ekki er verra að vera búinn að grafa holur eða rásir að haustinu og blanda húsdýraáburði saman við moldina og planta síðan næsta vor. Þegar klaki er farinn úr jörð og ■ Þau Edda Ólafsdóttir og Helgi Sigurðsson hafa lagt alúð við garðinn sinn við Hlyngerði 4. ■ Vel ræktaður garður við Grundargerði. Runnar mynda skjólbelti. inn standi ekki uppúr yfirborði beðs- ins þegar moldin í kring sígur niður. Aspir og fleiri víðitegundir á að setja dýpra en aðrar vegna þess að þær, mynda nýjar rætur hvar sem er frá stofni þegar þeirra er þörf. en stofnar annarra trjátegunda fúna gjarnan ef þeir eru settir of djúpt í jörð. Þegar berrótarplöntur eru gróður- settar er grafin hæfilega djúp hola fyrir hverja plöntu eða rásir ef um limgerði er að ræða. Hægast er að planta eftir snúru ef um limgerði eða skjólbelti er að ræða. Millibil milli plantna í lintgerði er yfirleitt kringum 30 sm eða þrjár plöntur á metrann Ef um stærri skjólbelti er að ræða er bilið meira, allt upp í þrjá metra ntilli plantna þar sem pláss er fyrir stórvax- inn trjágróður. Ræturnar eiga að greinast jafnt til allra hliða í holunni en ef þær eru það langar að þær kuðlist í holunni er best að stytta þær strax með einhverju beittu verkfæri, þó ekki meir en nauðsynlega þarf. Plöntunni er haldið yfir miðri holunni og mold rótað jafnt að rótunum, þjappað vel að og plönt- unni hagrætt þannig að hún standi bein. Gott er að hella vatni í holuna til þess að moldin sígi vel að rótunum og fylla hana síðan af mold og þjappa henni að. Að lokum er snyrtilegra að raka í kring til að slétta beðið. Ef ekki er hægt að gróðursetja berrótarplöntur strax eftir að þær eru keyptar er best að geyma þær með því að slá þeim niður, þ.e. leggja þær í rás sem er um skóflustunga á dýpt. Önnur hlið rásarinnar er höfð lóðrétt en hin með jöfnum fláa frá yfirborði að lóðréttu hliðinni. Plönturnar eru teknar úr umbúðunum og raðað þétt hlið við hlið með ræturnar í dýpri hluta rásarinnar. Síðan er mold mok- að að og þjappað til þess að hvergi verði holrúm á milli. Best er að geyma þær þannig á skjólgóðum og skuggsælum stað. Fyrstu árin eru viðkvæmasti aldur trjánna og því mikilvægt að hlúa vel að þeint. Það er miklu ódýrara að leggja vinnu í plönturnar nokkur fyrstu árin heldur en að láta þær eyðileggjast á einum óveðursdegi fyr- ir handvömm. Ef þurrkar eru fyrstu vikurnar eftir gróðursetningu verður að vökva plönturnar og ef um stak- stæð tré er að ræða er yfirleitt sjálfsagt að setja prik við hliðina til stuðnings, sem tréð er fest við með gúmmífest- ingum eða einhverju öðru sem ekki særir börkinn, meðan plantan er að ná góðri rótfestu og styrk. Ef mikill næðingur er á trénu er rétt að slá upp skjólgrindum til að verjast verstu vindáttinni. Barrtrjám er hætt við ofþornun ef miklir næðingar eru t' þurru veðri eins og oft er seinni part vetrar. Þeim er hægt að skýla á ntargan hátt s.s. með trjágreinum og limi eða strigaskýlum. Þá er einnig mikilvægt að plönturn- ar fái nægan áburð. Gömul þumal- fingursregla er að gefa 1 gramm af tilbúnum áburði fyrir hvern lengdar- sentimetra á stærri tré. Gott er að gefa minna í hvert skipti en oftar, og varast að gefa nýgróðursettum trjám of mikið. Ef flytja á stærri og eldri tré þarf að rótarstinga þau sumrinu áður ef vel á að vera. Þá er stungið með beittri skóflu kring um tréð álíka víður hringur og lim trésins nær út frá stofninum og skera á ræturnar. Þetta er gert til þess að tréð myndi nýjar rætur nær stofninum sem koma því að notum eftir flutninginn. Næsta sumar er plantan svo stungin upp og flutt á fyrirheitna staðinn. Oft kemur til mála að fækka greinum á lauftrjám til að hindra of mikla útgufun og gæta verður vel að því að þau þorni ekki en þau þurfa mikið vatn fyrstu vikurn- ar eftir flutninginn. Þá verður einnig að gæta þess að setja rótarhnausinn ekki miklu neðar en þeir stóðu áður svo að stofninn fúni ekki.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.