NT

Ulloq

NT - 25.04.1985, Qupperneq 15

NT - 25.04.1985, Qupperneq 15
veita skjól verður að klippa reglulega og móta til þess að það verði að gagni. í flestum görðum er alltaf eitthvað um hellulögð svæði. Hægt er að velja um hinar ýmsu gerðir af hellum. Undir hellu- lögnum verður að vera frostfrítt efni - möl eða hraun - niður fyrir frostmark. Hellurnar eru lagðar á þunnt sandlag. í lóðum sem standa í halla er hæðarmunurinn gjarnan lagaður með stöllum og hleðslum. Undir og bak við hlaðna veggi og fláa verður að vera möl eða annað frostfrítt efni. Þegar kemur að plöntuvali verður smekkur hvers og eins að ráða mestu. Menn skyldu þó gera sér grein fyrir að garðurinn og plönturnar þurfa viðhald, mismikið að vísu, en alltaf eitthvað. Einnig verður að gæta að því að gróðursetja ekki trjá- tegundir sem verða hávaxnar með tímanum þar sem hætta er á að þær varpi of miklum skugga á allan garðinn, húsið, eða Iægri gróður. Fleiri atriði geta fléttast inn í hönnun garðsins s.s. lýsing,; tjarnir og pollar, gosbrunnar og; margt fleira. Efni: Við uppbyggingu skrúðgarðs koma nánast öll efni til greina. Náttúrleg efni, s.s. mold, sandur, steinar o.fl. eru meira og minna í hverjum garði. Tré- girðingar, veggir og pallar setja oft skemmtilegan svip á garða. Mikið úrval er af steyptum hell- um og steinum til hleðslu og stéttalagningar. Hjá fram- leiðendum hér á landi er hægt að fá auk venjulegra gangstétta- hellna t.d. sexhyrndar hellur, slaufulaga hellur, fiðrildi, S- steina og I-steina sem læsa sér mjög vel saman í hleðslunni o.m.fl. Brotsteinn og kubbur, með tökkum ofaná og samsvar- andi götum neðaná læsa hleðsl- unni mjög vel. Pá eru framleidd- ir grassteinar sem eru ætlaðir á svæði þar sem ekið er stöku sinnum. Eeir eru með gati í þar sem fyllt er upp með jarðvegi og sáð grasi þannig að hægt er að slá planið eins og um venjulegan grasflöt væri að ræða. U-steinar eru stórir hnullung- ar sem henta til margra hluta s.s. í tröppur, blómaker, stalla og fleira. Auk þessara gerða er auðvelt að fá steypta allskonar steina og hellur eftir sérþörfum hvers og eins. GARÐEIGENDUR NÝTT FRÁ SÁNINGU HF. Dreifum lífrænni, fljót- andi áburöarblöndu á grasflatir og trjágróöur. Inniheldur þangmjöl, köfnunarefni, fosfór og kalí auk kalks og snefil- efna. VIRKAR FLJÓTT OG VEL SÁNING HF. Hafnarfirði - sími 54031 varanlegt gróðurhúsaplast vestur-þýsk gæðavara frá Röhm og Bayer Makrolon (polycarbonat) er níðsterkt glært plastefni sem hentar íslenskri ylrækt einstaklega vel. Það býðst nú bæði í tvöföldum og þreföldum plötum með sérstakri akíýlhúð sem tryggir veðurþolið, sþegilslétt yfirborð og kemur í veg fyrir að það gulni með tímanum. Makrolon er auk þess feiknalega höggþolið, létt og einangrandi. Athugaðu eiginleika Makrolons ef þú hyggst byggj'a eða bæta gróðurhús og vilt ná hámarks hagkvæmni með fjárfestingunni. 6 mikilvægustu elginlelkar Makrolon gróðurhúsanna: ■ Öryggi - Þú eignast sterkara gróðurhús sem stenst betur vetrarstorma og tryggir um leið meira öryggi í ræktun. ■ Orkusparnaður - Þú eignast gróðurhús þar sem orkunotk- unin minnkar um þriðjung til helming, miðað við einfalt gler (fer eftir plötuþykktum). ■ Óbrjótanlegt - Þú þarft ekki að óttast slæm veður, fok eða jafnvel steinkast af mannavöldum - Makrolon brotnar ekki. ■ LJósstreymi - Með akrýlhúðinni hefur tekist að skapa yfirborð sem heldur veðrunaráhrifum í lágmarki (ca. 2% birturýrnun á 10 árum) og kemur í veg fyrir að plastið gulni fyrir áhrif útfjólublárra sólargeisla. ■ Sveigjuþol - Þú getur bogalagt plöturnar og þar með byggt braggagróðurhús sem vegna léttari undirstöðugrindar getur aukið birtumagnið til plantanna um 10%. miðað við hefð- bundinn gróðurhúsabyggingastíl. ■ Uppsetning - Þú getur auðveldlega klætt gróðurhúsið sjálfur. Verð frá kr. 330,- pr. m2 Tæknflegar upplýslnqar tvöfalt prefalt Plötubvkkt mm 4.5 6 8 10 10 Plötubreldd mm 1980 1980 1980 1980 1980 Plötulenqd mm Allt að 6000 fvrir allar aerðir Þynqd kq m! 1.0 1.3 1.7 2.0 2.0 Uósstrevmi % ca, 80 80 80 80 70 Hltaelnangrun WÁn2 K-alldl 3.9 36 3.3 .3.1 2.9 ''Mlnnkun hlta- tapsI % 33 38 44 47 50 ''Mlðaö vlð elnfalt gler pr. flatarelnlngu. okron Síðumúla 31 108 Reykjavfk sími 33706 |ple/igler| |einkaumboð|

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.