NT - 25.04.1985, Page 16

NT - 25.04.1985, Page 16
Sumarblóm ■ Þegar talað er um sumar- blóm er yfirleitt átt við einærar jurtir sem sáð er seinni hluta vetrar, ýmist inni, í reiti eða úti á vorin. Þær þroskast og bera blóm yfir sumarið og deyja að haustinu, lifa yfirleitt ekki nema 6-9 mánuði. Tvíærar plöntur eru einnig notaðar sem sumarblóm. Með kynbótum hefur tekist að fá fram mörg afbrigði af þeim sem bera blóm strax fyrsta sumarið. Mismunur á æviskeiði plantna er oft landfræðilegs eðlis og tengdur veðurfari. Þannig eru margar fjölærar í tempruðu loftslagi en einærar hér af því hve viðkvæmar þær eru fyrir frostum. Ljónsmunn- ar vetrast t.d. suður í löndum en haga sér sem einærar þegar norðar dregur og vetur verður kaldari. Sumarblóm má nota á marg- víslegan hátt. Nokkrar tegund- ir er hægt að þurrka að haust- inu án þess að blómin missi lögun eða lit og eru gjarnan notuð til skreytinga. Þau eru þá venjulega skorin af áður en þau verða alveg fullþroska, bundin í vendi og hengd upp til þerris í skugga á loftgóðum stað. Ýmis hávaxin sumarblóm má nota sem limgerði yfir sumarmánuðina, eða sem baksvið fyrir önnur lágvaxnari. Einærar klifurplöntur geta klifrað upp eftir rimlum eða neti og hulið þannig veggi og girðingar. Lágvaxin sumarblóm eru gjarnan notuð í jaðra, mjó beð meðfram girðingum og veggj- um eða umhverfis runn.a. í steinhæðir má planta sumarblómum inn á milii fjöl- ærra plantna vegna litauðgi þeirra seinni hluta sumars. Flestar fjölærar steinhæða- plöntur eru ættaðar ofan úr háfjöllum og blómstra snemma vors og fyrri hluta sumars. Þá er sumarblómum oft plantað í ker og kassa til að skreyta glugga, svalir o.fl. Sumarblóm geta myndað litrík beð af hvaða stærð og lögun sem er og möguleikar í útfærslum nánast ótæmandi en vert er að hafa í huga að þau þurfa mikla sól. Án hennar blómstra þau ekki en verða mjög rýr og teygð í vexti. Beð sem eru innan við 1,5 m á breidd er auðvelt að hirða. Ef þau eru breiðari verður að hafa stiklur í þeim svo hægt sé að athafna sig við útplöntun og hirðingu. Stór beð njóta sín best ef þau hafa eitthvað baksvið, t.d. limgirð- ingu, vegg eða eitthvað slíkt. Sumarblómum er yfirleitt plantað út seinni part maí eða í byrjun júní. Bil milli plantna er nokkuð breytilegt eftir því hve stórvaxnar þær eru en algengast er að það sé 15-dU sm. Ef plönturnar eru mjög þurrar í kössum eða pottum verður að vökva þær vel áður en þær eru teknar úr svo að rætur skaðist ekki illa. Ekki má hrófla við rótum meira en nauðsyn krefur. Gera skal nægilega stórar holur fyrir ræt- urnar og moldina sem þeim fylgir. Rétt er að planta fast þ.e. þrýsta moldinni að rótun- um til að koma þeim sem best í samband við jarðrakann, en þó ekki það fast að eðlileg öndun raskist. Niðurröðun tegunda og lita er smekksatriði hvers og eins en þó verður að huga að því að velja saman þá blómliti og stærðir sem skapa best heildar- samræmi. Enginn einn litur má „skyggja" á hina en það eru helst gulu og hvítu litirnir sem eru hættulegir í þeim efnum. Sumarblóm sem standa þétt í beði hafa stuðning hvert af öðru og þarf því ekki að binda upp nema hávaxnari tegundir. Þær er nauðsynlegt að binda upp áður en þau falla undan veðrum. Einu sinni til tvisvar í mán- uði er rétt að vökva með áburðarvatni. Leysa má upp 15 gr. af blönduðum garð- áburði í 101. af vatni og vökva með því hvem fermetra beðs. Vökva þarf vel og oft fyrst eftir útplöntun en síðan einu sinni í viku ef ekki rignir. Þá er oft mikil vinna fólgin í því að halda beðunum hreinum og lausum við illgresi. SUÐURLANDSBRAUT 32 SIM! 82033 zbro Sumargleði með verkfærum frá okkur Sumar undirbúningur MAJOR FÆRÐU HJA OKKUR s I garðinum

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.