NT - 08.06.1985, Page 2
Bakföll
Ómarsí
Broadway
urðu til
þessað
hann
tognaði í
hálsi:
■ „Þetta eru nú bara gömul
meiðsli sem ég var að rífa upp,“
sagði Ómar Ragnarsson þegar
NT spurði hann um meiðslin
sem hann hlaut þegar hann var
að skemmta í Broadway fyrir
skömmu og ollu því að þessa
dagana gengur hann um með
stuðningskraga um hálsinn.
Ómar sagði að það hefði
verið á Broadway fyrir þrem
vikum í atriðinu Sveitaball sem
hann meiddist. Hann fær alltaf
kjaftshögg í því atriði og hendir
sér afturábak. En í þetla sinn
gleymdi hann hörðu marmara-
gólfinu og kollhnísinn sem hann
tók afturábak varof harkalegur,
með þeim afleiðingum að hann
tognaði á hálsi.
Það var hinsvegar ekki fyrr
en einhverjum dögum seinna,
þegar hann var að ýta upp
þungri hurð á flugskýli á
Reykjavíkurflugvelli, að hann
fann virkilega fyrir tognuninni
og skömmu seinna fékk hann
sér kragann.
„Ég meiddist fyrst á hálsi
þegar ég var að skemmta á
Kirkjubæjarklaustri fyrir mörg-
um árum. Ég datt þá af sviðinu
og beint á hausinn á gólfið,"
sagði Ómar.
„Ég er nú bara búinn að ýta
þessari þungu hurð upp einum
of oft og sömuleiðis detta á
hausinn í þessu atriði einum of
oft,“ sagði Ómar, sem sýnir þá
fyrirhyggju að hafa Sveitaball
alltaf síðast á dagskránni hjá
sér. En hann kvað meiðslin
ekkert slæm. „Það er aðallega
erfitt að vélrita," sagði hann og
kvaðst þurfa að standa við pikk-
ið. Þar bætist hann þó í góðan
félagsskap, því Hemingway
sjálfur stóð iðulega við ritvél-
ina.
Lauggrdagur 8. júní 1985 2
„Þettaerekkert"
- „miðað við að slíta á sér rassgatið11
„Ég hef líka átt erfitt með
svefn,“ bætti Ómar við. „En
það leysist með því að sofa á
grúfu. Þá missir maður heldur
ekki neitt úr.“
Ómar vildi gera lítið úr togn-
uninni hjá sér. „Þetta er bara
eins og hjá íþróttamönnunum
þegar þeir togna,“ sagði hann,
og kvað skemmtanirnar hjá sér
var hluta af sportiðkun sinni.
Ég hef líka alltaf lækni við-
staddan, hann Hauk Heiðar
Ingólfsson, heimilislækni í
Hafnarfirði, en hann hefur verið
undirleikari hjá mér í tólf ár.
„Ég hef nú lent í verri meiðsl-
um en þessum," sagði Ómar.
JEinu sinni í Borgarnesi datt ég
í gegnum gólfið á sviðinu og
ofan í kjallara. Það var lúga sem
ég vissi ekki af á gólfinu og í
gegnum hana fór ég. En ég lenti
vel og var bara frá í tvær eða
þrjár vikur.“
Borgarnes er líka einn af
þeim stöðum þar sem hann
hefur hent sér út í salinn. Því
sagðist hann þó sleppa á Bro-
adway, því aðstæðurnar byðu
ekki upp á það.
Ómar sagði að fyrir fimmtán
árum hefði hann lent í nokkru
sem enginn íslenskur skemmti-
kraftur hefði upplifað.
„Ég sleit rassgatið," sagði
hann. „Ég var að leika í revíu
hjá Iðnó og þess á milli jóla-
sveininn og var að detta á rass-
inn fimmtíu sinnum á dag. í
rassvasanum var ég með greiðu
sem hakkaði sig í gegn við hvert
fall og einn daginn í Iðnó, þegar
ég henti mér á rassinn, tognaði
ég í rassvöðva."
Ómar sagðist ætla að nota
kragann á föstudagsskemmtun-
inni í Broadway. Sagðist hann
ætla að bregða honum upp í
atriðinu Hott hott á hesti og
mæla jafnvel með notkun kraga
fyrir suma hestamenn. Síðasta
skemmtun Ómars í Broadway
var á föstudaginn en hann kvað
ekki aðgerðarleysi lirjá
sig, þar sem Sumargleðin er að
fara af stað og auk þess tekur
hann þátt í sparaksturskeppni
og rallkeppnum í sumar.
■ Árckstur varð á mótum Bíldshöfða og Höfðabakka í gær um klukkan 14. Bensinn sem sést á
myndinni ók í veg fyrir vörubifreiðina. Ökumaður fólksbifreiðarinnar var fluttur á slysadeild en meiðsli
hans VOrU ekki Veruleg. NT-mynd: Sverrir
v-V'1'
..-V... I
.............. A
Láttu nú ekki svona Davíð. Það verður að snyrta borgina fyrir afmælið.
Kvennaframboðið
fer í fót Davíðs
■ Kvennaframboðskonur í
borgarstjórn Reykjavíkur
urðu að vonum reiðar yfir
móðgandi ummælum hátt-
virts borgarstjóra á fegurðar-
samkeppainni um daginn,
þegar hann lét að því liggja
að þær væru allar ferlega
Ijótar og ókvenlegar, en
þorði ekki að segja það.
Borgarfulltrúarnir mótmæltu
þessu með því að dubba
sig upp í hlutverk
„fegurðardísa" á fundinum á
fimmtudag, og með því að
leggja fram alls kyns bókanir
í fimmaurabrandaralíki. í
bókun fulltrúanna um Stang-
arholtsmálið var þetta m.a.
að finna:
„Svona mál finnast okkur
alveg hræðileg. Hugsa sér að
borgarstjórinn og félags-
málaráðherra skuli vera farn-
ir að rífást um einhver týnd
mæliblöð. [...] Er ekki bara
best, að þið ráðið þessu. Við
erum alveg hlutlausar."
Mörgum þykir sem
Kvennaframboðskonur hafi
skotið nokkuð yfir markið
með framferði sínu, og þær
hafi í raun verið engu betri
en borgarstjóri sjálfur.
Finnst mönnum að þær hefðu
átt að láta nægja að bóka
mótmæli í upphafi fundar,
en taka síðan málefnalega
afstöðu til mála, eins og þær
hafa gert fram til þessa.
Davíð borgarstjóri hafði lík-
lega bara rétt fyrir sér, þegar
hann sagði, að konurnar
hefðu orðið sjálfum sér til
minnkunar.
ára afmælishátíð
á næsta ári
■ „Ég er 25 ára stúdent í dag og Prinsinn er 25 ára svo þú verður
að taka mynd af okkur saman,“ sagði Ómar Ragnarsson við Árna
Bjarna, Ijósmyndara NT, þegar hann vildi taka mynd af kraganum.
Svo hér eru þeir félagarnir saman.
Hafskip tapaði
95 milljónum kr.
■ Þrátt fyrir, að umsvif Haf-
skips hf. hafi aldrei verið meiri
en á síðasta ári, varð 95 milljón
króna tap á rekstri félagsins.
Megin ástæður taprekstrarins
eru taldar vera brottfall flutn-
inga fyrir varnarliðið að upphæð
um 85 milljónir króna og geng-
istap upp á 135 milljónir króna
á árinu.
Þetta kom fram á aðalfundi
Hafskips, sem haldinn var í
Reykjavík í gær. Þar kom fram,
að velta félagsins nam um 944
milljónum króna, sem er 63%
meira en á árinu á undan.
Félagið flutti 235 þúsund tonn,
sem er 45% meira en 1983. Á
fundinum kom einnig fram auk-
in bjartsýni um rekstur félagsins
á þessu ári, í kjölfar erfiðleika á
síðari hluta 1984.
Hafskip stóð fyrir nýju 80
milljóna króna hlutafjárútboði,
sem samþykkt var á hluthafa-
fundi þann 9. febrúar síðastlið-
inn, og seldist það allt upp á
skömmum tíma.
í frétt frá Hafskipi segir, að
félagið hafi smám saman verið
að ná fótfestu í erlendum stór-
verkefnum, og miðað við áætl-
anir yfirstandandi árs sé fyrirsjá-
anlegt, að rekstrartekjur félags-
ins tvöfaldist á árinu 1985 frá
fyrra ári.
Efri deild starfsöm og einhuga:
Stjórnarráðið í
Seðlabankahúsið?
■ „Það var mikil samstaða um
þetta mál, og þar fóru menn
ekki eftir flokkslínum," sagði
Eyjólfur Konráð Jónsson í gær
eftir að þau tíðindi höfðu gerst
að efri deild Alþingis hafði sam-
þykkt með miklum meirihluta,
að athugað yrði hvernig æskileg-
ast sé, að nýta Seðlabankahúsið
nýja og sérstaklega hvort það
hentaði stjórnarráðinu. Jafn-
framt ályktaði deildin að stöðva
bæri allar framkvæmdir við
húsið, sem ekki væru þegar
samningsbundnar. Neðri deild
fær nú málið til umfjöllunar.
Eyjólfur Konráð, sem var
fyrsti flutningsmaður tillögunn-
ar, sagði að það lægi fyrir að
Seðlabankinn nýtti húsnæðið
ekki allt, þar væru a.m.k. lausir
600 fermetrar. Hann sagði að
umsvif bankans ættu að fara
minnkandi í framtíðinni en ekki
vaxandi, t.d. væri bankinn nú
laus við afurðalánin.
En hvað á að vera í Seðla-
bankahúsinu? Eyjólfur benti á
að utanríkisráðuneytið hefði
farið fram á lóð undir nýbygg-
ingu við Arnarhólinn, en sér
virtist að það ætti að geta flutt
starfsemi sína í Seðlabankahús-
ið. „Reiknistofnun bankanna
hefur ekkert að gera með svo
dýrt húsnæði," sagði hann.
Fjárhags- og viðskiptanefnd
efri deildar hafði fyrir afgreiðsl-
una í dag mælt einróma með
samþykkt þingsályktunarinnar.
Lokatölur í atkvæðagreiðslunni
urðu 13:4. Þess má geta að
nánast mun vera búið að semja
um allt verk sem óunnið er við
Seðlabankabygginguna.
Menntamálaráðherra:
Fóstrumálin
eru kjaramál
■ Vandamál dagvistarstofnana
eru fyrst og fremst kjaralegs eðlis
og samningaviðræður standa yfir
milli fjármálaráðuneytisins og
BSRB, sem fer með samnings-
umboð fyrir Fóstrufélag íslands.
Inn í þær viðræður getur mennta-
málaráðherra ekki blandað sér,
frekar en hver annar þingmaður.
Þetta var inntakið í löngu svari
Ragnhildar Helgadóttur mennta-
málaráðherra við fyrirspurn Krist-
ínar Kvaran um það hvað ráðherr-
ann hyggst gera til lausnar hinum
brýna vanda sem við dagvista-
stofnunum landsins blasir. Þá
benti ráðherrann á að flestar fóstr-
ur landsins væru í störfum hjá
sveitarfélögum en ekki ríki.
Guðrún Helgadóttir, Kristín
Halldórsdóttir, Jóhanna Sigurðar-
dóttir, Steingrímur Sigtússou og
Kristín Kvaran gerðu harða hríð
að ráðherranum og töldu svör
hans út í hött. Þau töldu öll að
Alþingi bæri skylda til að marka
stefnu í þessum málum og sjá til
þess að fylgt væri fram lögum um
dagvistarstofnanir, þar sem kveðið
væri á um að þær skyldu vera í
stakk búnar til að sinna uppeldis-
legum skyldum sínum og stuðia að
alhliða þroska barnanna sem þar
dveldu. Þaðgerðu þessarstofnanir
ekki svo undirmannaðar sem þær
væru, og meðan þannig væri ástatt
að lagt væri á börn að eiga að
bindast allt upp í 10 uppalendum á
einu ári.