NT - 08.06.1985, Síða 3

NT - 08.06.1985, Síða 3
 m i7 Laugardagur 8. júní 1985 3 Lu Ll Fréttir Lánsfjárlögin komin íir nefnd í neðri deild: Þeir sem með orkumálin fara halda á fjöreggi þjóðarinnar sagði Páll Pétursson er hann hvatti til aðhalds í þeim málaflokki ■ „Peir sem meðhöndla orkumál hafa í höndunum fjöregg þjóðarinnar," sagði Páll Pétursson formaður fjár- hags- og viðskiptanefndar neðri deildar er hann mælti fyrir meirihlutaáliti nefndar- innar um lánsfjárlög. „Sem dæmi má nefna,“ sagði Páll, „að áætlanir við Blöndu miða að því að virkjunin hefji raf- orkuframleiðslu 1988, verði ekki af stóriðjusamningum, sem ég tel óskynsamlegt að gera nema kostnaðarverð fáist fyrir raforkuna. Núverandi virkjanir fullnægja hins vegar raforkuþörfinni til 1991 án stóriðju og komi Blönduvirkj- un til viðbótar dugir raforku- framleiðslan í landinu til alda- móta án nýrrarstóriðju,“ sagði Páll ennfremur. Heildarlántökur samkvæmt frumvarpinu til lánsfjárlaga eins og meirihluti nefndarinn- ar leggur þau fram nú nema 9,589 milljörðum króna og nemur hækkunin frá umfjöllun efri deildar 127 milljónum. Til A-hluta ríkissjóðs renna 110 milljónir króna, sem verja skal til rannsóknastarfsemi og nýrra atvinnugreina í landbún- aði og 10 miltjónir til kvik- myndasjóðs. Heildarlántökur til B-hluta hækka í meðförum nefndarinnar um 5 milljónir vegna endurbóta á laxeldis- stöðinni í Kollafirði. Alls fel- ast í frumvarpinu erlendar lántökur upp á 7,069 millj- arða. Páll Péturson viðhafði þau varnaðarorð sem vitnað er til í upphafi vegna þess að erlendar skuldir hefðu keyrt úr hófi fram, en meira en helmingur þeirra væri tilkominn vegna orkumála. Beislun innlendrar orku hefði ekki alltaf skilað þeim arði sem til hefði verið ætlast í upphafi, stórhugurinn hefði haft í för með sér ónýttar virkjanir en samt væri haldið áfram í sama dúr. „Virkjana- hraðinn má ekki verða til þess að við neyðumst til þcss að selja orkuna á spottprís á niðursettu verði til stórneyt- enda og velta kostnaðarhækk- ununurn síðan yfir á almenn- ing,“ sagði Páll. Hann taldi skynsamlegustu stefnuna í þessum málum vera að draga úr framkvæmdahraðanum og greiða niður skuldir eftir mætti og létta þannig á skulda- bagganum. Hann sagðist gjarna hafa viljað mæla fyrir frumvarpi þar sem ennfrekar væri dregið úr lántökum og hefði efasemdir um suma liði eins og erlenda lántöku til innlendrar kvikmyndagerðar. „Ég verð að segja eins og Marteinn Lúter, „Hér stend ég og get ekki annað“,“ voru lokaorð hans. Lífsmark í Laxá ■ Einn lax er bókaður í veiðibókinni í veiðihúsinu við Laxá í Ásum. Það sýnir að lífsmark er í ánni. Ekki var fiskurinn stór. Hanri vó 2,5 pund. - Var einhver að tala um niðurgöngufisk svona seint? Kristján Sigfús- son bóndi á Húnsstöðum sagði í samtali við Veiðihorn- ið að hann hefði fundið greinilega fisklykt leggja úr ánni í gærmorgun þegar hann fór á fætur. Hann sagðist vera viss um að miklar og góðar fréttir kæmu að norð- an eftir helgi. Þverá hefur gefið 25 25 laxar hafa fengist í Þverá það sem af er júnímánuði sagði Valgerður Halldórs- dóttir sem varð fyrir svörum í veiðihúsinu við Þverá. Stærðin á fiskunum er mjög jöfn og eru allir utan einn yfir 10 pund. Meðalstærðin er í kringum 12-13 pund. Sá stærsti sem veiðst hefur vó átján pund. Maðkurinn hef- ur gefið best og nokkrir hafa tekið Þingeying. Einn veidd- ist á Toby spún. Gjöfulustu veiðistaðirnir eru Kirkju- strengur og Kaðalstaðahyl- ur. Veiði hófst í gær í Kjarrá og eru þar sjö stangir eins og í Þverá. Elliðaárnar að fyllast af laxi Elliðaárnar eru nú að fyll- ast af laxi. í gær á hádegi voru 65 laxar komnir í kist- una fyrir ofan teljarann og verður þeim sleppt lausum á morgun. Það er því viðbúið að Davíð veiði vel ef svo fer sem horfir. Hann veiddi sex laxa síðasta sumar og sjö árið þar á undan. Kvótinn á stöng er átta fiskar og ef vel gengur er viðbúið að Davíð nái að fylla hann. Veiðin hefst á mánudag klukkan 7 um morguninn í Elliðaánum og er efalítið að margir bíða spenntir fregna af Elliðaán- um og Laxá í Kjós og Aðal- dal. Nú hefUr Philips rutt sér til rúms á VHS markaðnum með splunkunýtt myndbandstæki sem skarar fram úr hvað snertir gæði og áreiðanleika. VR6460 Philips VR 6460 er búið öllum hefð- bundnum möguleikum myndbandstækja og tveimur nýjungum sem eiga eftir að þykja ómissandi hjá öllum vídeógegg'ur- um. 1. Ffjótandi haus sem „eltir" myndbandið og kemur í veg fyrir bjögun myndarinnar, jafnvel þó spólan sé orðin Iúin og þreytt eftir endalausan snúning. 2. Sjálffeitari sem finnur besta útsend- ingarstyrk hverju sinni og losar þig þannig við að snúa of litlum tökkum með „of stórum" fingrum. Ef þú vilt fá afbragðsmyndgæði út úr myndbandstækninni er öruggast að tengja það við sjónvarp frá stærsta sjónvarpstækja- framleiðanda í heimi: Philips. kr. 46.900.-stgr. Heimlllstæki hf HAFNARSTRÆTI3 - 20455- SÆTÚNI 8-15655

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.