NT - 08.06.1985, Page 5
Laugardagur 8. júní 1985 5
IlU Fréttir
Sumarvinna skólafólks:
Astandið er mjög gott
á höfuðborgarsvæðinu
■ Auðveldara virðist vera fyr-
ir skólafólk að fá vinnu í sumar
heldur en undanfarin sumur.
Færri eru skráðir hjá Ráðning-
arstofu Reykjavíkurborgar og
Atvinnumiðlun námsmanna en
í fyrra og í Kópavogi er fátt
skólafólk sem ekki hefur fengið
starf.
Rúmlega 400 hafa látið skrá
sig hjá Atvinnumiðlun náms-
manna, sem mun vera aðeins
færra en á sama tíma í fyrra, að
sögn Soffíu Karlsdóttur hjá
miðluninni. Um 130 náms-
mönnum hefur verið útveguð
atvinna frá því miðlunin tók til
starfa 2. maí, en 110 á skránni
hafa sjálfir fundið sér vinnu.
Atvinnumiðlunin hættir þann
30. júní, sagði Soffía. Vonast er
til að þá verði búið að útvega
öllum þeim sem eru á skrá
atvinnu, en þó sagði hún að á
undanförnum árum hefðu ein-
hverjir orðið eftir.
Fyrirkomulagið hjá miðlun-
inni cr þannig að eftir að at-
vinnurekandi hefur óskað eftir
starfsfólki frá miðluninni, velja
starfsmenn úr skránni náms-
mann sem virðist henta vel.
Námsmaðurinn er Iátinn vita og
hefur þá samband við atvinnu-
rekandann. Soffía sagði að mis-
langur tími liði frá því að náms-
maðurinn skrái sig þangað til
hann fengi vinnu, allt frá einum
degi og upp í rúma viku. Þetta
er áttunda árið sem atvinnu-
miðlunin starfar.
Umsóknir um sumarvinnu hjá
Reykjavíkurborg eru um 200
færri en í fyrra að sögn Gunnars
Helgasonar hjá Ráðningarstofu
borgarinnar. Rúmlega 1100
hafa sótt um vinnu og hefur 600
verið úthlutað starfi hjá borg-
inni. Auk þess hefur um 100
verið útveguð vinna hjá at-
vinnurekendum. Enn eru þó
eftir um 150 einstaklingar 16 ára
og eldri á skrá, að sögn
Gunnars.
„í>að er tiltölulega mjög gott
ástand hér,“ sagði Hrafn Sæ-
mundsson, atvinnumálafulltrúi
Kópavogs, um ástandið þar.
„Við vitum ekki um marga 16-
17 ára unglinga sem ekki hafa
fengið sumarstarf.“
Hrafn sagði að búið væri að
ráða í allar sumarstöður hjá
bænum og sömuleiðis leit út
fyrir að atvinnurekendur hefðu
þegar fengið þann mannskap
sem þá vantaði og væru þeir svo
til hættir að hafa samband við
hann. Sagðist Hrafn núna vísa
aðallega á Atvinnumiðlun
námsmanna. Hann sagði að
Vinnuskólinn tæki við 14-15 ára
unglingum og fengju allir á þeim
aldri að komast að þar.
Illa gekk að fá upplýsingar
um ástandið hjá skólafólki í
Hafnarfirði. Pétur Kristbergs-
son, afleysingamaður í atvinnu-
miðlun Hafnarfjarðarbæjar,
sagði þó að ástandið væri sæmi-
legt. Helsta vandamálið, að sögn
Jónu Sigursteinsdóttur, sem
vinnur á atvinnumiðluninni,
tengist unglingum fæddum
1969. Þau eru gengin upp úr
vinnuskólanum, en eiga erfitt
með að fá vinnu annars staðar.
■ Mæðgurnar Birgitta Spur og Hlíf Sigurjónsdóttir við eitt
verkanna á sýningunni. NT-mynd: Sverrir
Sigurjónsvaka í
Listasafni ASÍ
■ Þann fyrsta desember á síð-
asta ári stofnaði Birgitta Spur,
ekkja Sigurjóns Ólafssonar
myndhöggvara, sérstakt lista-
safn Sigurjóns. Safnið er til
húsa í vinnustofu og á heimili
listamannsins á Laugarnestanga
70, Reykjavík.
Til að annast rekstur og upp-
byggingu safnsins hefur verið
stofnaður Styrktarsjóður Lista-
safns Sigurjóns Ólafssonar. Af
því tilefni verður efnt til sér-
stakrar Sigurjónsvöku sem hefst
með opnun sýningar á verkum
listamannsins í Listasafni ASÍ.
Sýningin stendur frá 8.-30. júní
og er opin daglega klukkan
14-20. Á Sigurjónsvökunni
verður fjölbreytt dagskrá með
þátttöku tónlistarmanna,
leikara og Ijóðskálda. Aðgang-
ur er ókeypis, en tekið verður á
móti framlögum í styrktarsjóð
listasafnsins.
Á sýningunni gefst gestum
kostur á að sjá myndband með
kvikmyndinni „Hesten pá
Kongens Nytorv", en hún sýnir
Sigurjón vinna að viðgerð á
þeirri styttu árin 1941-1944.
■ Frá atriði í Draum á Jónsmessunótt. Spóli (Gísli Halldórsson) umkringdur álfum.
Aukasýningar
á Draumnum
■ Leikfélag Reykjavík-
ur mun, vegna mikillar
aðsóknar, halda þrjár
aukasýningar á Draum á
Jónsmessunótt eftir Willi-
am Shakespear. Sýning-
arnar verða haldnar dag-
ana 8., 12. og 14. júní.
Þetta verða síðustu sýn-
ingarnar á verkinu. Vegna
umfangs þess og þátttöku
nemendaleikhúss leiklist-
arskólans verður ekki
unnt að taka upp sýningar
í haust.
Fundur um
samnings-
tilboð VSÍ
■ „Lausa samninga í
haust - skýrar kröfur“ er
yfirskrift fundar sem Sam-
tök kvenna á vinnumark-
aði efna til á Hallveigar-
stöðum, 10. júní kl. 20.30.
Þar ræðir Dagbjört Sig-
urðardóttir um samninga-
málin innan ASÍ og
VMSÍ, Sigríður Kristins-
dóttir um horfur í kjara-
málum innan BSRB, og
Birna Þórðardóttir ræðir
efnið „Hvers krefjumst
við og hvernig náum við
því fram?“ Fundarstjóri
verður Margrét Pála Ól-
afsdóttir.
í frétt frá samtökunum
segir að tilboð VSÍ feli í
sér 187 króna launahækk-
un á mánuði fyrir hina
lægst launuðu. Sóknarfé-
lögum sé boðin 21,4%
hækkun á 18 mánaða
tímabili, þegar búast megi
við 45% verðbólgu á sama
tíma. Félögum úr öðrum
kvennafylkingum er sér-
staklega bent á að sækja
fundinn.
Félagsráðgjafar
stofna nýtt félag
■ Félagsráðgjafar haf stofnað nýtt félag, Hið
íslcnska félagsráðgjafafélag.
Félagsráðgjafar hafa þar til á síðastliðnu hausti
verið sameinaðir í Stéttarfélagi íslenskra félags-
ráðgjafa. Á síðast ári var ákveðið að félagið sækti
um aðild að BHM og var sú ákvörðun framkvæmd
í miðju verkfalli BSRB sl. haust. Hluti félags-
manna gat ekki unað því að afsala sér verkfalls-
rétti, taldi auk þess að félagsráðgjafar ættu frekar
samlcið með launþegum í BSRB en BHM og sagði
sig því úr SÍF. Stofnun hins nýja félags er afleiðing
þessa.
Markmið HÍF eru m.a. að berjast fyrir bættri
félagslegri þjónustu, að berjast gegn því að
einstaklingur eða fyrirtæki annist heilbrigðis- eða
félagslega þjónustu og hagnist þannig á neyð
annarra og að standa vörð um verkfallsrétinn.
Áhugamenn um barna-
bækur stofna samtök
■ Stofnfundur íslandsdeildar IBBY (Internat-
ional Board on Books for Young People) verður
haldinn í Norræna húsinu þann 11. júní, 1985, kl.
20.30.
IBBY eru alþjóðleg samtök er starfa riú í um 40
þjóðlöndum víðs vegar um heiminn. Markmið
samtakanna er að sameina þá aðila um allan heim
er vilja veg góðra bóka fyrir börn og unglinga sem
mestan. Samtökin veita H.C. Andersen verðlaunin
annað hvert ár til rithöfundar eða teiknara fyrir
framlag til barnabókaritunar
TJALDSÝNING
verður haldin í Seglagerðinni Ægi helgina 7.—
9. juni.
Hústjöld, Ægistjöld, göngutjöld.
Viðleguútbúnaður og
garðhúsgögn í miklu
úrvali.
Hagstætt verð.
efeVagerfyy
Eyjaslóð 7, Reykjavík - Pósthólf 659
Símar 14093 - 13320 Nafnnr. 9879 -1698