NT

Ulloq

NT - 08.06.1985, Qupperneq 7

NT - 08.06.1985, Qupperneq 7
Laugardagur 8. júní 1985 Málsvari frjálslyndis, samvinnu og félagshyggju Útgefandi: Nútiminn h.f. Ritstj.: Helgi Pétursson. Framkvstj.: Guðmundur Karlsson Markaðsstj.: Haukur Haraldsson Auglýsingastj.: Steingrímur Gíslason Innblaðsstj.: Oddur Ólafsson Tæknistj.: Gunnar Trausti Guðbjörnsson Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavík. Sími: 686300. Auglýsingasimi: 18300 Kvöldsímar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 687695, íþróttir 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild NT. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306 Verð í lausasölu 35 kr. og 40 kr. um helgar. Askrift 360 kr. ■ Víola, generáll og fyrrum forseti. Herforingjarnir Lami Dozo og Galtieri, fyrrum forseti, og Anya, aðmíráll. Argentína: Herforingjaráðið í fangelsinu ■ Fimm hinna háttsettu sak- borninga dvelja þessa dagana í Unidad fangelsinu í miðborg Buenos Aires. Pótt salarkynn- in séu þröng og ólík fyrri bústöðum þessara herramanna hafa þeir þó ekki orðið að þola sömu niðurlægingu og skelf- ingu og þær þúsundir pólítískra fanga, sem hundeltir voru á valdatíma þeirra. Pvert á móti er þeim heilsað með virðingar- heitinu „Senor“ af fangavörð- unum, sem hlúa að þeim með kaffiveitingum og passa að þeir fái dagblögðin á réttum tíma. Hvernig verja þeir tímanum í fangelsinu? Þegar Massera, fyrrum aðmíráll er ekki að taka á móti gestum, liggur hann yfir refsilöggjöfinni, um það bil átta tíma á dag. Sígild dægrastytting refsifanga. Reyndar kemur hann ekki alveg óundirbúinn í fangelsið því á árum áður sat hann inni í tvö ár sakaður um að hafa komið eiginmanni ást- konu sinnar fyrir kattarnef. „Kostirnir við aðstöðu mína í dag eru þeir að ég veit nú hverjir eru raunverulega vinir mínir og hverjum ég get treyst,“ segir hann. Hann skoðar nú í þaula sönnunargögnin, sem Þjóðarnefndin hefur safnað saman gegn þeim félögum, til þess að reyna að finna leiðir til þess að verjast áburðinum. Reynir ekki að verja sig Videla hefur tekið annan pól í hæðina. „Það er búið að dæma mig pólítískt. Ég hirði ekki um að verja mig.“ Hann hefur ■ Graffigna, herforingi ekki ráðið sér lögfræðing og neitar að vinna með skipuðum verjanda sínum. Klefi hans er sá drungalegasti í öllu Unidad fangelsinu. Granni hans, Viola, liggur mikið á bæn og les heilagan Tómas. Hann hefur kynnt sér refsilöggjöfina í þaula og undir- ■ Lambruschini, aðmíráll býr mjög tæknilega vörn. Agosti, yfirmaður flughersins, á hinsvegar erfitt með að þola fangavistina. Hann fær sex skammta af róandi lyfjum á dag. Markmið hans númer eitt, tvö og þrjú er að sýna fram á að þáttur flughersins í baráttunni gegn „öfgaöflunum" hafi verið lítilvægur. „Við færðum alla okk- ar fanga í hendur landhersins og berum enga ábyrgð á afdrif- um þeirra", segir hann. Óþarft er að taka fram að þessi mál- flutningur hans vekur litla hrifn- ingu meðal félaga hans á saka- mannabekknum. En bjargi sér hver sem betur getur. Spila á spil Fo'rnarlömb hinnar mann- skæðu valdabaráttu Videla og Massera, frá síðasta áratug myndu eflaust hrökkva upp af öðru sinni, ef þeir sæju hvemig þessir fyrrum fjendur drepa tímann, í mesta bróðerni, í fangelsinu með því að spila á spil. „Baráttan milli landhersins og sjóhersins er liðin tíð. Gegn okkur beinast nú árásir og við stöndum saman gegn þeim,eins og heiðursmenn," finnst Mass- era hann þurfa að úrskýra. Úr L’Express um færist stöðugt í vöxt að menn séu ráðnir með sex mán- aða uppsagnarfrest og til tíð- inda ber að þeir þurfu að vinna hann ef í odda skerst í einu fyrirtæki. Taka pokann sinn með viku fyrirvara Á meðan þessi jákvæða þró- un hefur orðið í landi er önnur saga sögð af þeim sem att er á foraðið, þeim er stundum hættulegasta starfann, sjó- mennskuna. Það er hægt að skipa þeim að taka pokann sinn með viku fyrirvara, jafn- vel þó að þeir séu búnir að starfa í áratugi og með aukinni færni, verkkunnáttu og reynslu hækka þeir ekkert í launum. Og þegar sjómenn fara í verk- fall út af þessum atriðum þá er pakkið í landi sem byggir lífs- afkomu sína á störfum þeirra með öllu áhugalaust. Engar undirskriftasafnanir, engar stuðningsyfirlýsingar, engin hástemmd viðtöl í fjölmiðlum, engar yfirlýsingar ráðamanna. Allt ber þetta að sama brunni. Þjóðin skammast sín fyrir þá undirstöðu sem hún byggir á ■ Það er ekki hægt að segja að sjómannaverkfall í Reykja- vík tröllríði fjölmiðlum þessa dagana. og reynir með öllum ráðum að leiða hana hjá sér. Ef kennari geltir Það er gamalt og nýtt vanda- mál allrar fjölmiðlunar að þeg- ar sjómenn og venjulegt ófag- lært verkafólk reynir að bæta kjör sín, þá þegja fjölmiðlar. Hluti skýringarinnar er að eig- endur blaða hafa ekki alltof mikinn áhuga á slíkum málum og þar með þeir menn sem þeir velja til að stýra þeim. Önnur ástæða er að blaðamenn koma ekki úr þessum þjóðfélagshóp- um, þekkja ekki þá menn sem þarna er um að ræða, hvað þá kjör þeirra. Blöðin rjúka hins vegar upp til handa og fóta ef kennari geltir og skýringin er einföld. Blaðamenn koma úr sama hópi og kennarar, eru skólagengnir að einhverju leyti eins og þeir, hafa sjálfir fengist við kennslu og eiga þar vini og kunningja. Á sama hátt þekkja kennarar og aðrir sem stunda sambærileg störf (lesandi at- hugi að hér er ekki verið að ráðast á kennara, þeir eru bara þægilegt dæmi) til á fjölmiðl- um, sumir þeirra hafa komið þar við, sumir þeirra hafa lært í skólum hvernig á að umgang- ast fjölmiðla og þess vegna kunna þeir að reka sín mál þannig að fjölmiðlar fjalli um málið. Sjómenn hinsvegarhafa ekki þessi tengsl. Fjölmiðla- heimurinn er þeim framandi og þeir umgangast ekki fólkið sem þar vinnur. Þannig eru þessar ástæður samvirkandi og leiða til þess að þegar sjómenn í Reykjavík fara í verkfall til að sækja sjálfsögð mannrétt- indi, mannréttindi sem nær allir hafa í landi, þá er ekkert gert úr því. Samviska þjóðar eða fljótandi korktappi Það sem ég er náttúrlega að segja hérna er, að hér á landi ríkir ákveðin stéttarskipting. Annars vegar eru þeir sem hafa aðgang að fjölmiðlum og kunna á fjölmiðlun og hluti þessa hóps kann einnig á banka- kerfið og stjórnsýslukerfið. Hins vegar eru þeir sem vinna í frumframleiðslugreinum. Gagnvart þessari skiptingu verða fjölmiðlar að vera vak- andi. Þeir eiga að vera spegill þjóðlífsins og um leið samviska þess. Eiga ekki bara að fljóta með straumnum eins og kork- tappi gerir þegar honum er hent í vatn. Baldur Kristjánsson. Nýtt þinghús strax ■ Breytingar á þingsköpum Alþingis eru af hinu góða svo langt sem þær ná. Nauðsynlegt er að takmarka ræðutíma vegna fyrirspurna til ráðherra og vegna þingsályktana enda er ljóst, að þar er oft á ferðinni tilraun þingmanna til þess að vekja á sér athygli, fremur en að sinnt sé löggjafarstörfum. Raunar er ljóst, sérstaklega með það þing, sem nú situr í huga, að vinnu við löggjafarstörf er varla sinnt sem skyldi og þarf kannski engan að undra. Það hefur tíðkast lengi manna á meðal og í fjölmiðlum að hallmæla þinginu og þingmönnum og finna því flest til foráttu, sem þaðan kemur. Margt er þar ofmælt, en annað ekki og trúlega munu breytingar á þingsköpum þar sem settar eru skorður við tækifærum til þess að stunda sýndar- mennsku, færa þá umræðu í sanngjarnan farveg. Hinu er ekki að leyna, að þingmenn hafa sjálfir kallað yfir sig þessa umræðu með því að þora ekki að skapa sér viðeigandi vinnuaðstöðu við löggjafar- störf og verða fyrir bragðið sjálfvirkar maskínur fyrir embættismannakerfið. Fimm ár eru nú liðin síðan Alþingi samþykkti þingsályktunartillögu um húsakost Alþingis. í tilefni af eitt hundrað ára afmæli Alþingishússins samþykkti þingið að fela forsetum þess að efna til samkeppni og leita eftir útboðum í smíði viðbótar- byggingar við húsið, sem hýst gæti starfsemi þingsins og þingmennina á sómasamlegan hátt. Alla, sem inn í þinghúsið koma nú, rekur í rogastans við að sjá þær aðstæður, sem þingmenn og starfsfólk þingsins búa við og þegar grannt er skoðað, er engin furða að mál dragist á langinn eða mönnum þyki lítið til starfa þingsins koma. Þing- menn eru nú hýstir í fimm eða sex húsum umhverfis gamla þinghúsið. Þingflokkarnir fá að ráða sér einn starfsmann hver, en aðra sérfræðiþjónustu er ekki um að ræða. Þingmenn starfa svo í ótal nefndum og ráðum út í bæ, sem er annar handleggur, en svo sannarlega ekki hvað minnst vandamálið, en þessir sömu menn eiga svo að hafa í fullu tré við embættismannavaldið í landinu, sem semur orðið flest öll lagafrumvörp og heldur hjá sér öllum upplýsingum um gang mála. Þingmenn hafa ekki há laun miðað við þá vinnu, sem á þá er lögð. NT er með þessu ekki að taka undir þær fáránlegu launagreiðslur sem dæmi hafa verið birt um undanfarnar vikur vegna launa til þingmanns í fullri vinnu vegna álsamninganna, heldur er hér verið að tala um hinn „óbreytta þingmannw. Þeir virðast veigra sér við að taka við sómasamlegum launum vegna umtals sem það gæti vakið og þeir virðast einnig veigra sér við að byggja sómasamlega yfir sig og búa svo um hnútana, að þeir hafi yfirsýn yfir gang mála. Á meðan fer embættismannavaldið sínu fram. NT skorar hér með á þingmenn að dusta rykið af samþykktinni frá 1981 um húsakost Alþingis og hrinda málinu í framkvæmd. Ljóst er að mikill tími og stórfé hefur farið til spillis vegna þess, að þingmenn eru störfum hlaðnir við algjörlega ófull- nægjandi vinnuaðstæður. Á meðan sitja allir Nordalirnir í nýju húsunum sínum og hlæja að þeim.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.