NT - 08.06.1985, Síða 8

NT - 08.06.1985, Síða 8
 i\i Laugardagur 8. júní 1985 8 LlL Lesendur hafa ordid Utvarpsþættir í sjónvarpinu Reykjavík 6.6. ■ Það er alveg með eindæm- um, hvað sjónvarpinu tekst misjafnlega að gera innlenda þætti. í gærkvöldi var sjón- varpsáhorfendum boðið upp á innlendan þátt, sem var svo lélegur að ég efast unr að nokkurn tíma hafi verra efni verið sýnt í sjónvarpinu. Ég á hér auðvitað við þáttinn ,um kaup á notuðum bílum, sem tveir lögfræðingar sáu um. Á þessum þætti voru tveir megingallar, sem hvor um sig hefði átt að nægja til þess að koma í veg fyrir að þátturinn kæmist inn á dagskrá, ef þeir menn sem dagskránni ráða væru starfi sínu vaxnir. f fyrsta lagi voru flestir sjón- varpsáhorfendur litlu nær um það hvað ber að varast í sam- bandi við bílaviðskipti, vegna þess uppskrúfaða lögkróka- máls sem notað var í þættinum. Forráðamönnum sjónvarpsins ætti að vera það Ijóst ekki síður en öðrum landsmönnum að lögfræðingar tala saman á sérstöku máli, sem oft á tíðum er óttalega klúðurslegt og al- menningi er ekki gefið að skilja. í öðru lagi var þessi sjón- varpsþáttur þannig upp byggður, hann hefði passað mun betur til flutnings í út- varpi. Hér gera forráðamenn sjónvarpsins sig seka um ná- kvæmlega sömu skyssuna og þegar þeir ákváðu spurninga- þáttinn sem Illugi Jökulsson stjórnaði í vetur og varð flest- unr landsmönnum að athlægi fyrir yfirþyrmandi lélegheit. Það vill nefnilega svo til að sjónvarpsefni þarf að vera myndrænt í víðari skilningi en svo að tveir uppáklæddir lög- fræðingar með hálstau, skiptist á um að fylla út í skerminn. Sjónvarpsþáttur sem ekki er hægt að horfa á með öðru en eyrunum, á satt best að segja betur heima í útvarpi. „Sjónvarpshlustandi“ ■ Bréfritara finnst að fremur ætti að sýna myndir af bflum en lögfræðingum í bflaþætti. Belta- sektir? Gísli hringdi ■ Mér skilst að alþingismenn vilji ekki taka upp sektir við því að nota ekki bílbelti. Mér finnst það alveg fáránlegt að vera að setja lög um belta- skyldu án þess að nokkur viðurlög séu við brotum. Það hefur löngu sýnt sig fyrir bragðið nennir fólk ekki að hafa fyrir því að spenna á sig bílbeltin og sumir sem ann- ars myndu nota bílbelti veigra sér við að spenna þau, vegna þess að gert er grín að lög- hlýðni þeirra, eða spurt hvort þeir séu bíihræddir. Spennum beltin og sektum þá sem ekki gera það! ■ Spennum beltin, segir bréfritari. ■ Ég hef sannast sagna ekki verið hrifinn af Alþýðubanda- laginu um dagana, en nú er svo komið að ég kemst ekki hjá að setja hér á blað hól unr Ragnar Arnalds, sem virðist ætla að taka að sér að svæfa bjórfrum- varpið á Alþingi. Úr því sem komið er held ég að þjóðaratkvæðagreiðsla sé skásta lausnin. Þá er þó alla- vega von til þess að hægt sé að koma vitinu fyrir þjóðina og koma þannig í veg fyrir að áfengisbölið geri endanlega út af við unglingana okkar. Það er hörmulegt til þess að vita að jafnvel meirihluti þjóð- kjörinna alþingismanna skuli nú ætla að koma þjóðinni á endalaust bjórfyllirí. Vita mennirnir ekki að við eigum við nógu stórt áfengisvanda- mál að stríða nú þegar? Halda þeir að ástandið muni batna þegar allir vinnustaðir verða fullir af bjór og meirihluti ís- lendinga meira eða minna drukknir í vinnunni? Halda þeir að skólastarfið muni koma til með að ganga betur þegar unglingarnir fara að taka áfengi með sér inn í skólastof- una? Það verður að beita öllum ráðum til að koma í veg fyrir að bjórinn verði leyfður. Það væri versta óhapp sem komið hefði fyrir þjóðina og miklu verra en t.d. einokunarversl- unin. Bindindismaður Hvað á veisl- an að kosta? ■ Verður þetta algeng sjón í skólastofum? Dísa skrifar ■ Nú skilst manni að borgar- stjórn Reykjavíkur ætli að halda borgarbúum einhverja dýrindis veislu í tilefni af tvö- hundruð ára afmælinu. Manni skilst líka að hátíðahöldin eigi að standa út allt afmælisárið eða því sem næst. En hvað skyldi allt gamanið kosta, og hver á að borga þetta allt saman? Mér skilst að borg- arstjórinn sé ekki tilbúinn að gefa neinar upplýsingar um það. Það er þó varla til sá ein- staklingur sem ætlar að halda upp á afmælið sitt, sem ekki reynir að hugsa aðeins út í það fyrirfram hvað veislan muni kosta og ég trúi ekki öðru en Davíð Oddsson mundi reyna að reikna það út líka ef hann ætlaði að halda afmælisveislu fyrir sjálfan sig og þyrfti að borga úr eigin vasa. Ég verð að segja að ntér finnst það alveg fáránlegt að ekki skuli gerð fjárhagsáætlun fyrirfram, eða getur það virki- lega verið að þessum mönnum finnist það ekki skipta neinu niáli fyrst þeir eiga ekki pen- ingana sjálfir. ■ Afmælisveislan verður m.a. á Arnarhóli, en hvað á hún að kosta? Skrífíð til: NT Lesendasíðan Síðumúla 15 108 Reykjavík ...eða hringið í síma 686300 milli kl. 13og 14 Bjór í skóla- stofunni?

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.