NT - 08.06.1985, Blaðsíða 9

NT - 08.06.1985, Blaðsíða 9
Bikarkeppnin að hefjast: GD Fjörutíu sveitir eru skráðar í keppnina ■ Metþátttaka er í Bikar- keppni 1985. Alls eru 40 sveitir sem taka þátt í keppninni að þessu sinni. Þar af 16 sveitir frá Reykjavík og 24 utan Reykja- víkur. Dregið hefur verið í 1. umferð Bikarkeppni. Sú sveit sem talin er upp á undan, á heimaleik og skal sjá um fram- kvæmd leiksins. Spiluð eru 40 spil milli sveita, í 4x10 spila lotum. Jón Hauksson Vestm.eyjum - Friðrik Sigurðsson Reykjv. Eiríkur Jónsson Akranesi - Þórarinn Sófusson Hafnarf. Einar Sigurðsson Hveragerði - Zarioh Akureyri Karl Logason Reykjavík - Örn Einarsson Akureyri Jón Stefánsson Akureyri - SigmundurStefánss. Reykjav. Úrval Reykjavík - Jón Ingi Ragnarsson Kópav. Þórarinn Sigþórsson Reykjav. - Sigtryggur Sigurðsson Rvk. Heimir Hjartarson Suðurn. - Bjarki Tryggvason Sauðárk. Þessum leikjum skal vera Iok- ið fyrir 26. júní. Einnig hefur verið dregið í 2. umferð Bikarkeppni. Eftirtald- ar sveitir leika saman: Unnar A. Guðms. Hvammst. - Jón G. Gunnarss. Hornafirði Arnar Geir Hinriksson ísafirði - Stefán Pálsson Reykjavík Heimir/Bjarki - Þórarinn B. Jónss. Akureyri Karl L./Örn E. - Jón Baldursson Reykjavík Jón Hjaltason Reykjavík - Geirarður Geirarðss. Rvk. Eggert Sigurðsson Stykkish. - Úrval/Jón Ingi Myndband h/f Reykjavík - Grímur Thorarensen Kópav. Aðalsteinn Jónsson Eskifirði - Suðurgarður h/f Selfossi Þorvaldur Pálmason Borgarf. - Brynjólfur Gestsson Selfossi Bragi Jónsson Reykjavík - SigurðurB. Þorsteinsson Rvk ísak Ö. Sigurðsson Reykjav. - Einar Sig./Zarioh Þórarinn S./Sigtryggur - Gísli Torfason Suðurnesjum Jón Stef./Sigmundur - Eiríkur J./Þórarinn Sóf. Eggert Karlsson Hvammst. - Eðvarð Hallgrímsson Skagas. Jón Hauksson/Friðrik Sig. - Anton R. Gunnarsson Rvk. Kristján Jónsson Blönduósi - Þórður Sigfússon Reykjavík 2. umferð skal vera lokið fyrir 17. júlí og 3. umferð skal vera lokið fyrir 14. ágúst. Bikarkeppni Bridgesambands íslands Eins og komið hefur fram, hefur nú verið dregið í 1. og 2. umferð Bikarkeppni Bridge- sambands íslands 1985. 40sveit- ir eru skráðar til leiks að þessu sinni, sem er mesti fjöldi frá upphafi í Bikarkeppni sveita. Fyrirkomulagið er þannig byggt upp, að spilaður er einn 40 spila leikur milli sveita. Sú sveit sem talin er upp á undan, á heimaleik og sér um fram- kvæmd leiksins, svo og móttökur aðrar (útvegun á gistingu ef nauðsyn krefur, veitingar og áhöld o.fl.) ef fyrirkomulag býð- ur upp á það. Ef við tökum sem dæmi í þessu sambandi, að sveit frá ísafirði á að ieika á Fá- skrúðsfirði, þá gefur auga leið, að slík athöfn krefst aðeins meir en að heiisast, spila og kveðjast. Þar spilar hinn mannlegi þáttur stórt hlutverk og skyldur gest- gjafans eru meiri (og sjálfsagð- ar). Þessi áminning er rituð af gefnu tilefni, því það hefur því miður gerst í Bikarkeppni, að gestrisni landans hefur brugðist, þannig að gestirnir sem voru langt að komnir sátu eftir með sárt ennið (og tapaðan leik) er 40 spilunum var iokið. Þetta má ekki gerast, í dæminu sem nefnt er hér á undan. Annað lögmál gildir um leiki á stöðum eins og Reykjavík eða Akureyri. Þar geta allir menn bjargað sér, þó þeir slái ekki hendinni á móti kaffibolla eða svo. Þátttökugjaldið á sveit er kr. 3000. Greiðslu má koma til Ólafs Lárussonar eða senda í pósthólf 156 210 Garðabæ, merkt sendanda og nafni Bridge- sambands Islands. Þegar keppni er lokið í haust, mun Bridge- sambandið géra upp ferðastyrki sveita og deila út því fé, sem inn hefur komið í þátttökugjöldum. Einnig er brýn nauðsyn á því, að úrslit og nöfn spilara, berist skrifstofu Bridgesambandsins um leið og leik er lokið. Bregð- ist þetta, geta menn ekki búist við að áunnin stig þeirra verði skráð. Skrifstofa Bridgesambands íslands verður opin í allt sumar, milli kl. 13-16. Einnig má hafa samband við Ólaf í heimasíma 91-16538, komi eitthvað uppá. Um framkvæmd leikja er far- ið að alþjóðalögum. Komi upp ágreiningur, sem ekki leysist milli keppenda, skal það tekið frani, að keppnisstjórn Bikar- keppni er í höndum stjórnar Bridgesambandsins/fulltrúa þess. Bridgesambandið mun að- stoða fyrirliða við að útvega áhöld ef þörf krefur. Sumarbridge Skagfirðinga Sl. þriðjudag hófst Sumar- bridge hjá Skagfirðingum í Reykjavík. Spilað var í 2x14 para riðlum (28 pör) og urðu úrslit þessi: A) stig Matthías Þorvaldsson - Rögnvaldur Möller 195 Gróa Guðnadóttir - Guðrún Jóhannesdóttir 191 Árni Már Björnsson - Guðmundur Grétarsson 179 Dröfn Guðmundsdóttir - Einar Sigurðsson 177 B) Haraldur Arnljótsson - Sveinn Þorvaldsson 209 Jón Viðar Jónmundsson - Óskar Guðjónsson 165 Guðrún Hinriksdóttir - Haukur Hannesson 165 Hulda Hjálmarsdóttir - Þórarinn Andrewsson 162 Sumarbridge á þriðjudögum verður framhaldið í alít sumar. Spilað er í Drangey v/Síðumúla 35. Spilamennska hefst kl. 19.30. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Keppnisstjóri er Ólafur Lárusson. Líf og land: Gestur Ólafsson kjörinn formaður ■ Gestur Ólafsson, arkitekt, var endurkjörinn formaður Lífs og Lands á aðalfundi félagsins síðastliðinn mánudag. Aðrir í stjórn voru kosnir Einar Erlendsson, Herdís Þor- valdsdóttir, Hilmar Þór Björnsson, Ragnhildur Skarp- héðinsdóttir og Sigurður Sig- urðsson. Skrifstofa félagsins er í Garðastræti 17 í Reykjavík. Gestur Ólafsson, arkitekt. Samtökin Alþjóðleg ungmennaskipti: 20 Islendingar til útlanda á þessu ári ■ 20 íslensk ungmenni munu halda utan á þessu ári á vegum samtakanna Alþjóðleg ung- mennaskipti og álíka mörg ung- menni, víðs vegar að úr heimin- um, munu koma hingað til dvalar í sumar. Þeir sem áhuga hafa á að taka skiptinema á sitt heimili til lengri eða skemmri dvalar geta snúið sér til samtakanna. Samtökin Alþjóðleg ung- mennaskipti hafa nýlega flutt starfsemi sína frá Fríkirkjuvegi 11 í Skátahúsið á Snorrabraut 60 og er skrifstofan þeirra opin frá 13-16 daglega, sími 24617. Sam- tökin eru skiptinemasamtök sem vinna með ungu fólki á aldrinum 17-25 ára og eru þau nú að hefja sitt 25. starfsár. Ástarjátning á hljómleikum ■ Mánudaginn 10. júní verða haldnir tónleikar í Iðnó til styrktar bókaútgáfu á blindra- letri og hefjast þeir klukkan 20.30 Bygging kísilmálmverksmiðju verði ákveðin ■ Verkamannafélag Reyðar- fjarðar hefur skorað á iðnaðar- ráðherra og Alþingi að taka um það ákvörðun á þessu ári að byggja kísilmálmverksmiðju á Reyðarfirði. Aðalfundur félagsins, sem haldinn var 17. maí, benti á að brostinn væri á fólksflótti frá byggðunum við Reyðarfjörð og óhjákvæmilegt sé að bregðast við því og treysta byggðina með nýsköpun atvinnulífs. Þar munu hljómsveitin „Hálft í hvoru“, Arnþór og Gísli Helgasynir og Helgi E. Krist- jánsson flytja efni af nýútkom- inni hljómplötu Gísla Helga- sonar, „Ástarjátningu". Elín Sigurvi nsdóttir flytur lög eftir Sigfús Halldórsson við undirleik höfundar, Kristín Liljendal syngur nokkur lög og kynnir á tónleikunum verður Magnús Ólafsson. Allur ágóði rennur til styrktar bókaútgáfu á blindraletri. Tónlistarviðburður í Njarðvíkum um helgina Frá frétlaritara NT í Keflavík ■ Tveir bæir, Njarðvík og Fitjar í Noregi, hafa á undan- förnum árum haft með sér vinabæjartengsl, sem felast í heimsóknum sveitarstjórn- armanna á tveggja ára fresti. Önnur samskipti fara eftir því hvað til fellur hverju sinni, og hafa íbúar bæjanna farið hóp- ferðir í heimsókn hvor til annars. Sumarið 1980 fór Lúðrasveit Tónlistarskóla Njarðvíkur í heimsókn til Fitja. Árlega, fyrir hver jól, fær grunnskóli Njarðvíkur sent jólatré frá barna- og unglinga- skólanum í Fitjum. Að þessu sinni munu koma og heimsækja Njarðvík tvær ungar stúlkur, Sólveig Strömme sópran og Laila Kristín Helland píanóleikari, frá Fitjum í Noregi, í boði Tónlistarskóla Njarðvíkur. Með þeim í förinni er faðir Sólveigar og amma hennar sem er söngkennari í Noregi og hefur kennt Sólveigu söng frá upphafi. Þær munu halda tónleika ásamt tveimur nemendum úr söngdeild Tónlistarskóla Njarðvíkur, þeim Guðmundi Sigurðssyni tenór og Maríu Guðmundsdóttur sópran ásamt Sveinbjörgu Vilhjálms- dóttur píanóleikara, f Ytri- Njarðvíkurkirkju mánudaginn 10. júní og í Norræna húsinu fimmtudaginn 13. júní en þar verða þær norsku einar með tónleika. Þetta er því tónlistarheim- sókn nr. 2 sem vinabæjarsam- starf Njarðvíkur og Fitja í Noregi hefur leitt af sér, og forvitnilegt að vita hversu vel þessu unga fólki tekst til, ásamt tónlistarfólki okkar, eft- ir helgina. Laugardagur 8. júní 1985 9 Kvenfélag Bústaðasóknar Gróðursetning á vegum Bandalags kvenna fer fram fimmtudagsvöld 13. júní. Hitt- umst við kirkjuna kl. 19.30 og takið með ykkur kaffi. - Fund- ur út af sumarferðinni verður 20. júní kl. 20.30. Guðþjónustur í Reykjavíkur- prófastsdæmi sunnudaginn 9. júní1985. Árbæjarprestakall Guðsþjónusta í safnaðarheimili Árbæjarsóknar kl. 11.00 árd. Organleikari Jón Mýrdal. Sr. Guðmundur Þorsteinsson. Áskirkja Guðsþjónusta kl. 11.00. Sr. Guðmundur Karl Ágústsson, sóknarprestur í Ólafsvík préd- ikar. KórarÓlafsvíkurkirkjuog Áskirkju syngja undir stjórn David Woodhouse og Kristjáns Sigtryggssonar. Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson. Breiðholtsprestakall Messa kl. 11.00 árd. í Breið- holtsskóla. Organleikari Daníel Jónsson. Sr. Lárus Halldórsson. Bústaðakirkja Guðsþjónusta kl. 10.00 árd. Organleikari Guðni Þ. Guð- mundsson. Sr. ÓlafurSkúlason. Dómkirkjan Messa kl. 11.00. Dómkórinn syngur, organleikari Marteinn H. Friðriksson. Sr. ÞórirSteph- ensen. Landakotsspítali Messa kl. 10.00. Organleikari Birgir Ás Guðmundsson. Sr. Þórir Stephensen. Elliheimilið Grund Messa kl. 10.00. Sr. Lárus Hall- dórsson. Fella- og Hólakirkja Guðsþjónusta kl. 11.00. Organ- leikari Guðný Margrét Magnús- dóttir. Sr. Hreinn Hjartarson. Neskirkja Guðsþjónusta kl. 11.(X). Sr. Frank M. Halldórsson. Miðviku- dag, fyrirbænamessa kl. 18.20. Sr. Frank M. Halldórsson. Far- seðlar í Vestfjarðaferðimar 24. júní og 4. júlí eru tilbúnir til afgreiðslu hjá kirkjuverði milli kl. 5 og 6 næstu daga. Fríkirkjan í Reykjavík Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Guðspjallið í myndum. Barna- sálmar og smábarnasöngvar. Afmælisbörn boðin sérstaklega velkomin. Sunnudagspóstur handa börnunum. Framhalds- saga. Við hljóðfærið Pavel Smid. Bænastundir eru í Frí- kirkjunni þriðjud., miðvikud., fimmtud. og föstudag kl. 18.00 og standa í stundarfjórðung. Sr. Gunnar Bjömsson. Grensáskirkja Guðsþjónusta kl. 11.00. Organ- leikari Jón G. Þórarinsson. Sr. Halldór S. Gröndal. Hallgrímskirkja Messa kl. 11.00. Sr. Karl Sigur- björnsson. Þriðjudag kl. 10.30 fyrirbænaguðsþjónusta, beðið lyrir sjúkum. Landsspítalinn Messa kl. 10.00. Sr. Karl Sigur- björnsson. Háteigskirkja Messa kl. 11.00. Sr. Amgrímur Jónsson. Kópavogskirkja Guðsþjónusta kl. 11.(X). Sr. Ámi Pálsson. Langholtskirkja Messa kl. 2.00. Biskup íslands herra Pétur Sigurgeirsson préd- ikar. Sr. Pétur Maack og sr. Hjalti Guðmundsson þjóna fyrir altari. Messutón eftir Þorkel Sig- urbjömsson. Kórfólk og organ- istar sjá um söng, kórstjóm og orgelleik, en leikið verður á org- eliðfrákl. 1.00. Laugameskirkja Laugardag 8. júní, guðsþjónusta Hátúni 10B, 9. hæð kl. 11.00. Sunnudag: Guðsþjónusta kl. 11.(X). Sr. Helgi Hróbjartsson prestur í Hrísey messar. Þriðju- dag, bænaguðsþjónusta kl. 18.1X). Sóknarprestur. Seljasókn Messa í Ölduselsskóla kl. 11.00. Fyrirbænaguðsþjónusta fimmtu- dag 13. júní í Tindaseli 3 kl. 20.30. Sóknarprestur. Fríkirkjan í Hafnarfirði Guðsþjónusta kl. 11.00. Organ- leikur og kórstjórn Þóra Guð- mundsdóttir. Sr. Einar Eyjólfs- son. Þing bankamanna: Ahersla verði lögð á raunhæfar kjarabætur - bankamenn hafa dregist aftur úr ■ 34. þing Sambands íslenskra bankamanna, sem haldið var ný- lega, telur, að bankamenn hati dregist aftur úr ýmsum launþeg- ahópum í launum. Skorar þingið á stjóm og samninganefnd sam- bandsins að snúa þeirrí þróun við, þar sem störf bankamanna verði sífellt verðmætarí með auk- inni tæknivæðingu. í ályktun þings bankamanna um kjaramál er stjórn SÍB hvött til að leggja mesta áherslu á að ná fram raunhæfum kjarabótum, og er í því sambandi bent á grunnkaupshækkanir, aukiö flokkaskrið, aukið starfsaldurs- álag og sérsamninga vegna tækni- væðingar í bankakerfinu. Þingið telur nauðsynlegt, að komið verði á þeim kaupmætti launa, sem var í september 1982 og að hann verði tryggður. Bankamenn ályktuðu einnig um húsnæðismál og telja, að endurskoða þurfi grundvöll láns- kjaravísitölu. Hún þurfi á hverj- um tíma að vera í samræmi við tekjur launþega, þannig að tryggt sé að greiðslubyrði vegna húsn- æðislána þyngist ekki. Jafnframt þurfi að leiðrétta það misgengi, sem þegar hafi myndast. Þing bankamanna skorar þá á stjórn SÍB að taka aukinn virkan þátt í umræðu stjórnvalda og annarra launþegasamtaka um launamál vinnumarkaðarins.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.