NT - 08.06.1985, Page 21
JLjUl_______Útlönd
Finnskum gíslum í
Líbanon hótað lífláti
Sidon-Sameinuðu þjóðirnar-Reuter
■ Suður-Líbanonher shita,
sem ísraelsmenn styðja, tóku í
gær 22 finnska friðargæslumenn
í gíslingu og hótuðu að drepa þá
nema friðargæslusveitir Sam-
einuðu þjóðanna sleppi úr haldi
ellefu Amal-hermönnum úr
Suður-Líbanonhernum.
Shitarnir ásökuðu finnsku
hermennina um að hafa gert
árás á bækistöð Suður-Líbanon-
hers og handtekið þar tólf
hermenn. Friðargæslusveitirnar
neita þessu algjörlega og segja
að friðargæsluhermenn eigi
aldrei upptökin að átökum.
Samkvæmt frásögn William
Callaghan yfirmanni í friðar-
gæslusveitunum handtóku shit-
arnir fyrst fimm Finna í bæki-
stöð þeirra í Qantara í Suður-Lí-
banon skammt frá yfirráðasvæði
ísraelsmanna þar. Síðar hand-
tóku þeir nítján Finna til viðbót-
ar þegar þeir komu til bæki-
stöðvarinnar frá höfuðstöðvum
sínum í Norður-ísrael. Tveir
Finnar voru síðar látnir lausir til
að skýra frá atburðunum.
Javier Perez De Cuellar aðal-
ritari Sameinuðu þjóðanna fór í
gær á fund fulltrúa ísraels hjá
SÞ og bað hann um aðstoð
ísraelsmanna við að fá Finnana
leysta úr haldi. ísraelsmenn
styðja Suður-Líbanonher og
segjast vilja að hann sjái um
öryggisvörslu í syðsta hluta Lí-
banons eftir að ísraelsmenn
hafa flutt allan her sinn á brott
þaðan.
Þótt takmörkuð átök milli
hermanna friðargæslusveitanna
og Amal-shita hafi áður átt sér
stað í Líbanon er handtaka
Finnanna talin mun alvarlegri
en fyrri átök. Þegar NT fór í
prentun í gær höfðu þeir enn
ekki verið látnir lausir.
Japanir óttast
Rauða herinn
■ Kozo Okamoto var vel fagnað við komuna til Líbýu. Nú óttast
japanska lögreglan að hann grípi til vopna að nýju.
Herhestar dýrir í rekstri
Stokkhólmur-Reuter
■ Sænska ríkisstjórnin hefur
falið sænska hernum að athuga
hvort nokkur möguleiki sé á því
að leigja hestana sem notaðir
eru á hersýningum og við önnur
opinber tækifæri, í sparnaðar-
skyni.
Embættismenn ríkisstjórnar-
innar áætla að með þessu móti
yrði unnt að spara ríflega 1,7
milljónir sænskra króna. Hest-
arnir yrðu seldir til einkastofn-
ana sem væru viljugar til að
leigja hernum hesta hvenær sem
þeirra væri þörf.
Tokyo-Reuter
■ Yfirmaður japönsku lög-
reglunnar, Sadatoshi Suzuki,
sagði í gær að hann óttaðist að
japanski skæruliðahópurinn,
sem hefur kallað sig Rauða
herinn, hefji nú nýia ofbeldis-
herferð eftir að Israelsmenn
slepptu einum af forystumönn-
um hópsins, Kozo Okamoto úr
haldi í seinasta mánuði.
Okamoto, sem er 37 ára
gamall, tók þátt í morðárás
þriggja japanskra borgarskæru-
liða á flugvellinum í Tel Aviv
árið 1972. Skæruliðarnir myrtu
25 manns með vélbyssuskothríð
áður en þeir voru yfirbugaðir.
Félagar Okamotos féllu í bar-
daga við ísraelska öryggisverði
en hann var sjálfur fangelsaður.
Okamoto var í hópi 1150
palistínskra og líbanskra skæru-
liða sem ísraelsmenn létu úr
haldi í seinasta mánuði í skipt-
um fyrir þrjá ísraelska
hermenn.
Suzuki sagði á fundi yfir-
manna öryggissveita japönsku
lögreglunnar að Rauði herinn
hefði ekki sagt skilið við vopna-
baráttuna og það væri hætta á
því að hann gripi aftur til hryðju-
verka.
Það er álitið að japanski
Rauði herinn hafi um þrjátíu
félaga sem stefna að því að
koma á fót miðstöðvum víðs
vegar um heiminn til að hleypa
af stað vopnaðri heimsbyltingu.
Ekki er vitað hvar Okamoto
heldur sig núna. Hann fór fyrst
til Lýbíu eftir að honum var
sleppt úr haldi en síðan er talið
að hann hafi e.t.v. farið til
Sýrlands.
Níu félagar í japanska Rauða
hernum eru í útlegð í Norður-
Kóreu. Þar hafa þeir dvalist frá
því árið 1970 þegar þeir rændu
japanskri flugvél og þvinguðu
flugmenn hennar til að fljúga til
Pyongyang höfuðborgar Norð-
ur-Kóreu. Eldri bróðir Kozo
Okamotos er í hóp þessara níu
útlaga.
■ Mehmet Ali Agca í fylgd lögreglumanna. Treglega gengur að leiða sannleikann í Ijós í skotmálinu
gegn Jóni Páli páfa.
Réttarhöldin yfir páfaskotmanni:
Agca skiptir enn um skoðun
Róm-Reuter
Vopnalaust
svæði við
landamæri
Nicaragua?
Amsterdam-Reuter
■ Stjórnvöld í Nicaragua hafa
lagt til að komið verði á vopna- ,
iausu svæði mcðfram öllum
landamærum Nicaragua. Þau
hafa beðið ríki Mið- og Suður-
Ameríku um aðstoð við að
koma á slíku svæði til að binda |
enda á átök við landamærin.
Varaforseti Nicaragua, Serg-
io Ramirez Mercado. sagði á
blaðamannafundi fyrr í þessari
viku að stjórn Nicaragua myndi
biðja Contadora-ríkin svoköll-
uðu, Mexíko, Kólombíu, Ven-
ezúela, Panama,og fleiri ríki um
að gerast aðilar að eftirlitsnefnd
sem myndi fylgjast með því að
engin vopn yrðu á vopnalausa
svæðinu við landamærin.
Varaforsetinn lofaði friðar-
frumkvæði Contadoraríkjanna.
Hann sagði að Nicaraguamenn
hefðu verið tilbúnir til að skrifa
undir friðartillögur Contadora
á seinasta ári en þá hefðu
Bandaríkjamenn sagt stjórn-
völdum í E1 Salvador og Hond-
uras að neita að skrifa undir.
Þess vegna hefði ekkert orðið
úr friðarsamkomulaginu.
Ramirez sagði heimsókn sína
til fimm Evrópuríkja mjög ár-
angursríka til að afla stuðnings
vegna viðskiptabanns Banda-
ríkjamanna í Nicaragua.
■ Mehmet Ali Agca, Tyrkinn
sem skaut á Jón Pál páfa sagði í
gær að bæði Búlgarir og Tyrkir
hefðu verið með í samsærinu
gegn páfa en sagði mjög óljóst
frá með hvaða hætti það hefði
verið, þar eð hann hélt því fram
að honum hefði verið hótað af
sovéskum og búlgörskum leyni-
þjónustumönnum.
Agca hafði áður mótmælt því
að Búlgarir væru viðriðnir
morðtilraunina en skipti um
skoðun að afloknum hádeg-
isverði.
ítalskir verjendur þeirra
þriggja Búlgara sem ákærðir
hafa verið vegna þessa máls
mótmæltu fullyrðingu Agca og
að loknu stuttu réttarhléi neit-
aði Agca að svara spurningum.
Réttarhöldunum var þá frestað
fram á þriðjudag.
Laugardagur 8. júní 1985 21
■ Þessir tyrknesku karlmenn hafa veriö pyntaöir af tyrkneskum
meöbræörum sínum en í París stendur nú yfír skelfíleg sýning á
pyntingartækjum.
Pyntingartækja-
sýning í
París-Reuter
■ Vesalings fertugi sálfræð-
ingurinn rak upp skelfingaróp
þegar viðkvæmir fingurgómar
hans snertu flugbeitt egg ryðg-
aðrar sagar. „Að hugsa sér að
slíkt skaðræðisvopn hafi verið
notað til að flá fólk lifandi,"
hrópaði hann.
Sálfræðingurinn fertugi var
einn gesta á sýningu á pynting-
artækjum sem sett hefur verið
upp í þeim tilgangi að fá skelfda
sýningargesti til liðs við baráttu
gegn pyntingum. Hann sagði að
forvitnin hefði dregið sig á sýn-
inguna og að hún hefði haft
mjög óþægileg áhrif á sig. Hann
gæti alls ekki skilið hvernig
svona grimmd væri möguleg.
Á alla vegu voru hinir hræði-
legustu hlutir sem blóðþyrstir
og heittrúaðir sadistar og brjál-
æðingar allra alda hafa fundið
upp. Fórnarlömbin voru allt frá
venjulegum glæpamönnum,
pólitískum föngum, mönnum
sem höfðu trúarafstöðu sem fór
í bága við hina opinberu afstöðu
kirkjunnar til manna sem brutu
gegn „almennri siðsemi". Við
hlið hvers sýningargrips voru
nákvæmar útlistingar á því
hvenær og hvernig pyntingar-
tækin höfðu verið notuð og
ekkert skilið eftir handa ímynd-
unaraflinu.
Sýning þessi er haldin í Galer-
ie de Nesle á Signubökkum í
herbergjuin sem hönnuð hafa
verið eins og dýflissur.
Mannréttindasamtökin Am-
París
nesty International standa
ásamt fleirum að sýningunni.
Þegar forstöðumaður sýningar-
innar var spurð að því hvort
sýningin væri ekki einurn of
viðbjóðsleg sagði hún að til-
gangurinn hefði verið sá að
vekja meðvitund fólks um að
pyntingar tilheyrðu síður en svo
sögunni heldur ástundaðar af
fullum krafti. Líkamlegar pynt-
ingar væru enn til staðar og í
enn ógnvænlegra formi, pynt-
ingar sem skildu ekki eftir nein
sýnileg ummerki á fórnarlamb-
inu eins og þegar menn væru
sprautaðir heilarýrnunarefnum.
Hún benti og á að fallöxin og
skelfilegt kyrkingarhálsjárn
hefðu enn verið notuð í Frakk-
landi og á Spáni um miðjan
sjöunda áratug þessarar aldar.
Eitt pyntingartækjanna á sýn-
ingunni, oddhvass trépíramídi
sem fórnarlambið er hvað eftir
annað neytt til að setjast á, er
enn í notkun í Suður-Ámeríku,
að því er flóttamaður nokkur
frá Chile sagði í viðtali í tengsl-
um viðsýninguna. Flóttamaður-
inn sagði og að enginn kæmi
samur maður út af sýningu sem
þessari og að tilfinningalegt áfall
sýningargesta hlyti að leiða til
þess að menn fylltust baráttu-
vilja til að uppræta þetta krabba-
mein mannkynsins eins og hann
orðaði það.
Talsmenn mannréttindasam-
takanna Amnesty International
segja að um 60 ríki í heiminum
ástundi pyntingar.
Umsjón: Ragnar Baldursson og Margrét Rún Guðmundsdóttir