NT - 08.06.1985, Page 22
8. júní 1985 22
2. deild kvenna:
Keppni hafin
■ Stjarnan sigraöi Hverageröi
l-2 á útivelli í l. umferð B-riðils
2. deildar kvenna í knattspyrnu
í gærkvöldi. Hrund Grétars-
dóttir og Bryndís Hákonardótt-
ir skoruðu mörk gestanna, en
Lilja Ólafsdóttir svaraði fyrir
Hveragerði.
Pá unnu Haukar Selfoss á
útivelli 0-3 með mörkum Helenu
Önnudóttur (tvö) og Hrafnhild-
ar Gunnarsdóttur. Fram sigraði
ÍR 2-0. Kristín Þorleifsdóttir og
Hafdís Guðjónsdóttir gerðu
mörkin.
í A-riðli sigraði Víkingur FH
í Firðinum 0-2. Hjördís Jóns-
dóttir skoraði bæði mörkin.
McEnroe steinlá
■ Svíinn Mats Wilander sigr-
aði John McEnroe nokkuð
óvænt í undanúrslitum einliða-
leiks karla í undanúrslitum opna
franska meistaramótsins í tennis
í gær. Lokatölur urðu 6-1, 7-5
og 7-5. Mótlætið fór mjög í
taugarnar á McEnroe, sem nær
sjaldan að sýna sínar bestu hlið-
ar á leirvöllum, eins og þeim í
París. Var hann orðinn svo
æstur í síðustu lotunni að hann
braut spaða sinn er Wilander
náði að jafna 5-5.
Wilander, sem vann þetta
mót 1982 aðeins 17 ára að
aldri, mætir Ivan Lendl í úr-
slitunum. Lendl vann keppnina
í fyrra og var frekar snöggur að
afgreiða Jimmy Connors í hin-
um undanúrslitaleiknum. Úrslit
þar 6-2, 6-3 og 6-1.
í einliðaleik kvenna mætast
Martina Navratilova og Christ
Evert Lloyd. Navratilova sigr-
aði v-þýsku stúlkuna Claudiu
Kohde-Kilsch 6-4 og 6-4 í
undanúrslitum og Evert Lloyd
sigraði hina 15 ára gömlu Bagri-
elu Sabatini frá Argentínu 6-4
og 6-1.
■ Tony Knapp á æfingu með landsliðshópnum fyrir Skotaleikinn. Flestir sömu leikmenn eru með
nú, að Pétri Péturssyni frátöldum og ólíklegt má telja að Sigurður Jónsson (fyrir miðri mynd) geti
leikið vegna meiðsla. mJ.Ln
Þessi M.Bens Unimog er til sölu á bílasölunni Blik. Ekinn 32 þús. km ný
dekk, 6 manna hús, klæddur og í góðu ásigkomulagi. Skipti möguleg á
ódýrari. Uppl. í sím 99-7334 f.h.
%
&
LANDSSAMTOK
HJARTASJÚKLINGA
l’ósihólf H.ts - i '2 1 Rcykiavík
Minningarkort Landssamtaka hjartasjúklinga
fást á eftirtöldum stöðum:
Reykjavík Skrifstofa Landssamtaka hjartasjúklinga, Hafnarhúsinu
Bókabúð ísafoldar, Austurstræti,
Reynisbúð, Bræðraborgarstig 47
Versl. Framtíðin, Laugavegi 45
Bókabúð Vesturbæjar, Víðimel 35.
Seltjarnarnes Margrét Sigurðardóttir, Nesbala 7
Kópavogur Bókaversl. Veda, Hamraborg 5
Hafnarfjjörður Bókabúð Böðvars, Strandgötu 3
Grindavík Sigurður Ólafsson, Hvassahrauni 2
Keflavík Bókabúð Keflavíkur, Sólvaliagötu 2
Rammar og Gler, Sólvallagötu 11
Sandgerði Pósthúsið
Selfoss Selfoss Apótek, Austurvegi 44
Hvolsvöllur Stella Ottósdóttir, Norðurgarði 5
Ólafsvík Ingibjörg Pétursdóttir, Hjarðartúni 36
Grundarfj. Halldór Finnsson, Hrannarstíg 5
fsafjörður Urður Ólafsdóttir, Brautarholti 3
Versl. Leggur og Skel
Versl. Guliauga
Vestmannaeyjar Skóbúð Óskars Ó. Lárussonar, Vestmannabraut 23
Akureyri
Gísli J. Eyland, Víðimýri 8.
Landsliðshópurinn fyrir leikinn gegn Spáni 12. júní:
Gunnar Gísla og
Sveinbjörn valdir
- í stað Péturs Péturssonar og Sigurðar Jónssonar sem leikur varla
■ Tony Knapp, landsliðsþjálfari,
valdi í gær 17 manna hópinn fyrir
landsleik Islands gegn Spáni í undan-
keppni HM 12. þessa mánaðar. Tveir
nýir leikmenn komu inn í hann frá
leiknum gegn Skotum á dögunum, þeir
Gunnar Gíslason, KR og Sveinbjörn
Hákonarson, ÍA.
Þeir koma í stað Péturs Péturssonar,
sem fékk áminningu í Skotaleiknum og
er því kominn rneð of mörg refsistig til
að geta leikið með, og Sigurðar Jóns-
sonar. Sigurður er að vísu með í
hópnum, en afar ótrúlegt er að hann
geti leikið vegna meiðsla þeirra sem
hann hlaut í umræddum leik. Allir
aðrir eru valdir aftur nú. Athygli vekur
að Lárus Guðmundsson, sem leikur
með Bayer Uerdingen, er ekki heldur
í hópnum að þessu sinni, enda mun
einhver misklíð hafa komið upp á milli
hans og Knapp.
Hópinn skipa því eftirtaldir:
Markmenn:
Bjarni Sigurðsson, Brann 9 landsleikir
Eggert Guðmundsson, Holmstad 1 landsleikur
Aðrir leikmenn:
Árni Sveinsson, ÍA 48 landsleikir
ísiand'Spánn U-21 árs 11. júní:
Sigurliðið óbreytt
Atli Eðvaldsson,
Fortuna Dússeldorf 37 landsleikir
Guðmundur Steinsson, Fram 3 landsleikir
Guðmundur Þorbjörnsson, Val 33 landsleikir
Gunnar Gíslason, KR 13 landsleikir
Janus Guðlaugsson,
Fortuna Köln 32 landsleikir
Magnús Bergs,
Eintract Braunschweig 15 landsleikir
Ómar Torfason, Fram 17 landsleikir
Ragnar Margeirsson, ÍBK 15 landsleikir
Sigurður Grétarsson,
Iraklis Saloniki 15 landsleikir
Sigurður Jónsson,
Sheffield Wedensday 5 landsleikir
Sveinbjörn Hákonarson, ÍA 2 landsleikir
Sævar Jónsson, Val 22 landsleikir
Teitur Þórðarson, Yverdon 39 landsleikir
Þorgrímur Þráinsson, Val 10 landsleikir
Landsliðshópurinn mun koma saman
á Hótel Loftleiðum síðdegis á mánudag
og dvelja á hótelinu þar til leikurinn
hefst á miðvikudag kl. 20. Æfingar
verða daglega, þar af tvær á þriðjudag.
TIL SÖLU
Volkswagen árg. 72 1200 model.
Litur: Brúnsanseraður. Biilinn þarfnast
viðgerðar og selst þvi mjög Ódýrt. í
honum eru einnig mjög góðar græjur sem
geta selst sér ef út í það er farið.
Frekari uppl. í síma 18300 (Jakob)
frá leiknum á móti Skotum
■ Eins og vænta mátti gerði Guðni
Kjartansson, landsliðsþjálfari, engar
breytingar á liðinu frá ieiknum gegn
Skotum í síðasta mánuði, er hann valdi
16 manna hóp leikmanna undir 21 árs
Spænsku leikmennirnir:
Komaá
morgun
■ Spænsku landsliðin í knattspyrnu,
sem leika við íslendinga í næstu viku,
eru væntanleg til landsins á morgun,
sunnudag. Ekki er enn víst hvort
tengiliðurinn Rafael Gordillo muni geta
leikið með landsliði sínu í HM-Ieikn-
um á miðvikudag, vegna meiðsla sem
hann hlaut nýlega.
Gordillo byrjaði feril sinn sem vinstri
bakvörður en er nú ómissandi hlekkur
á miðjuspili Spánar og lék flestalla leiki
liðs síns á Evrópumeistarakeppninni í
fyrra. Hann hefur leikið á sjötta tug
landsleikja.
Geti hann ekki leikið mun Enrique
Ramos frá Atletico Madrid líklega
taka stöðu hans. Ramos varfastamaður
í liði Spánar í undankeppni HM 1982,
en meiddist illa skömmu fyrir sjálfa
úrslitakeppnina. Síðan þá hefur hann
átt erfitt með að festa sig í sessi í liðinu,
var t.d. ekki með í Frakklandi í fyrra.
til þátttöku í landsleiknum gegn Spán-
vérjum. Sá leikur er liður í Evrópu-
keppni þessa aldursflokks og fer fram
á Kópavogsvelli næstkomandi þriðju-
dag.
Leikurinn gegn Skotum vannst 2-0
og eru íslendingar þar með komnir
með tvö stig í þessum riðli. Spánverjar
eru efstir með þrjú stig, þannig að
íslenska liðið verður að vinna það
spánska til að eiga raunhæfa möguleika
á sigri í riðlinum.
Leikmennirnir, sem fá það erfiða
hlutverk, eru þessir:
Markmenn:
Birkir Kristjánsson, ÍA
Friðrik Friðriksson, Fram
Aðrir lcikmenn:
Ágúst Már Jónsson, KR
(eldri leikmaður)
Andri Marteinsson, Víkingi
Björn Rafnsson, KR
Guðni Bergsson, Val
Halldór Áskelsson, Þór
Ingvar Guðmundsson, Val
Jón Erl. Ragnarsson, FH
Kristinn Jónsson, Fram
Kristján Jónsson, Þrótti
Loftur Ólafsson, Þrótti
(eldri leikmaður)
Mark Duffield, KS
Ólafur Þórðarson, ÍA
Pétur Arnþórsson, Þrótti
Þorsteinn Þorsteinsson, Fram
Ágúst Már og Loftur eru í hlutverki
„öldunganna“, en í hvoru liði mega
vera tveir leikmenn eldri en 21 árs.
Líkt og A-landsliðið mun þetta
landslið vera í æfingabúðum síðustu
dagana fyrir leik. Þeir halda til Lauga-
vatns á sunnudag og munu dvelja þar
við æfingar og annan undirbúning fram
á þriðjudagskvöld.
■ Halldór Áskelsson fagnar marki
gegn Skotum. Gerir hann það einnig á
móti Spánverjum?
Vann á rothöggi
■ Michael Spinks varði heimsmeist-
aratitil sinn í léttþungavigt í hnefaleik-
um í 10. sinn í röð, er hann bar sigurorð
af Jim McDonald í átta lotum í Las
Vegas í fyrrakvöld. Leikurinn var
stöðvaður er ein og hálf mínúta var
liðin af áttundu Iotunni, en Spinks
hafði þá slegið McDonald niður í
þriðja skiptið í keppninni. Þetta var 27.
sigur Spinks í röð og þar af hefur hann
19 sinnum unnið á rothöggi. Fyrir
sigurinn fékk Spinks 150.000 dollara og
McDonald fékk 35.000 fyrir sína
frammistöðu.