NT - 31.08.1985, Side 1

NT - 31.08.1985, Side 1
Þing Fjórðungssam* bans Norðlendinga: Breyting á skipulagi Haraldur Ingi Haraldsson Akureyri: ■ Þing Fjóröungssambands Norðlendinga hófst að Laugum í Reykjadal á fimmtudaginn. Pinginu lauk í gærkvöldi með kvöldverðaboði Suður-Þingey- inga. Aðalmál þingsins voru annarsvegar starfshættir og skipulag fjórðungssambandsins og menntunarmál á Norður- iandi hinsvegar. Pær breytingar voru gerðar á skipuiagi sam- bandsins að 12 manna fjórð- ungsráð hefur verið lagt niður, og skipuð fimm manna fjórð- ungsstjórn. Mikil aukning á ölvunarakstri ■ Á fyrri hluta þessa árs hefur orðið veruleg aukning á bílveltum og útafakstri, þar sem slys urðu á mönnum. Voru slys þessi 104 í ár, á móti 56 að meðaltali árin 1981-84. Nær þriðjungur ökumanna í þessum umferð- arslysum reyndist hafa verið undir áhrifum áfengis. Þessar tölur koma fram í fréttatilkynningu sem dóms- og kirkjumálaráðuneytið hefur sent frá sér vegna um- ræðu í fjölmiðlum um slys af völdum ölvunaraksturs. Ennfremur segir í tilkynn- ingunni að um síðustu helgi hafi kærur til lögreglunnar í Reykjavík vegna ölvunar- aksturs verið 58 fleiri en á sama tíma á síðasta ári. Um- ferðaróhöppum þar sem ekið hafði vcrið undir áhrifum áfengis hafði fjölgað úr 69 í 82. Svipaðar tölur er að finna í Kópavogi. Þar hefur orðið veruleg fjölgun á kærum vegna ölvunaraksturs, undanfarin ár. Voru kærur 126 árið 1982, 174 árið 1983 og 264 árið 1984. Ráðuneytið rnetur svo að þessar tölur með þeim slysum, limlestingum og mannslátum sem raun ber vitni, réttlæti ekki aðeins heldur gefi fyllilega tilefni til þess að gerðar séu ráðstafan- ir til þess að draga úr ölvun- arakstri. Ungviðið horfir sem dáleitt á broddgöltinn Óskar enda nýtur hann mikilla vinsælda á heimilissýningunni. - Sjá nánar af heimilissýningunni bls. 5. NT-mynd: Sverrir. Stéttarsambandið: Afnám tolla og skatta ■ Afnám tolla og skatta á framkvæmdar- og rekstrarvörur hinna hefðbundnu búgreina. Þriggja mánaða fæðingarorlof til handa bændakonum, og for- fallaþjónustu í þeim tilfellum þegar foreldri þarf að vera fjar- verandi heimili sitt vegna veik- inda barna. Þetta er meðal þeirra máia sem aðalfundur Stéttarsam- bands bænda, sem nú er haldinn á Laugarvatni, samþykkti í gær, að krefjast af stjórnvöldum. Dagurinn í gær fór aðallega í nefndarstörf og skiluðu néfndir af sér seinnipartinn. Á meðan bændur sátu á fumlurn skoöuðu eiginkonur þeirra sig um í ná- grenni Laugarvatns. Auk ofangreindra samþykkta aðalfundarins vill fundurinn vekja athygli á ófremdarástandi sem hefurskapast þarsem ríkis- sjóður hefur ekki greitt nema helming lögboðinna framlaga, samkvæmt jarðræktarlögum, fyrir árið í fyrra. Þá beinir fundurinn þeim til- mælum til forsætisráðherra að láta gera úttekt á gildi landbún- aðar með tilliti til þjóðarörygg- is. Nánar verður greint frá fund- inum í NT á þriðjudag. Kína: Ósiðlegt skírlífi Peking-Reuter ■ Kínverskt tímarit gagn- rýndi í gær strangar giftingar- hefðir í sex afskekktum þorpum í Fujianfylki í Suð- ur-Kína þar sem hjón fá ekki að sofa saman nema á stór- hátíðum. Samkvæmt blaðinu hefur þetta leitt til margs konar ósiðsemi. Margar konur í þorpunum eru sagðar hafa hneigst til samkynja ásta og karlmenn leggjast í drykkjusýki. Hvort tveggja þykir mjög ósiðlegt í Kína. Börn eru lofuð þegar þau eru enn mjög ung en hjón fá ekki að búa saman nema í tvo til þrjá daga eftir giftingu. Konurnar fá heldur ekki að dveljast næturlangt með eig- inmönnum sínum nema við sérstök hátíðarhöld. Þá koma þær seint um nótt þeg- ar almyrkvað er orðið og hafa andlitsblæju svo að þeir fá ekki að sjá andlit þeirra. Þessir ströngu giftingarsið- ir hafa það í för með sér að íbúar þorpanna eiga við ýmis geðræn vandamál að stríða og sjálfsmorð eru algeng. Blaðið hvatti þorpsbúa til að breyta þessum ómannúðlegu siðum hið fyrsta. Trausti Þorsteinsson skólastjóri á Dalvík: Skólakostnaður allt að 70% skatttekna - hjá sveitarfélögum, er verst lætur Haraldur Ingi Haraldsson, Akureyri: ■ „Munurþéttbýlisogdreif- býlis stingur í augun. Skóla- kostnaður sem prósenta af skatttekjum þéttbýlisins er 10-12%, ámeðan beinn skóla- kostnaður í dreifbýlinu er 30- 50 prósent,“ sagði Trausti Þorsteinsson skólastjóri á Dalvík í samtali við NT í gær. Trausti vitnaði í skýrslu sem Fræðsluráð Norðurlands gerði að beiðni Sambands ís- lenskra sveitarfélaga um rekstrarkostnað grunnskóla árið 1983. Skýrslan var lögð fram í gær á þingi Fjórðungs- sambands Norðlendinga. Aðalástæða þessa sagði Trausti vera rekstrarkostnað- ur við húsnæði, þar sem fjór- um til fimm sinnum stærra húsnæði þarf í sveitum miðað við bæjarfélög. Þá nefndi Trausti kostnað vegna raf- magns og hita og aksturs- kostnað sem væri meiri en í þéttbýlinu. „Okkar er ekki að draga ályktanir á þessu stigi málsins. Okkar er að spyrja hvort þetta eigi að vera svona eða hvort breyta eigi þessu. Það er viðtekin venja í samfélag- inu að gosdrykkir eru dýrari á Ólafsfirði en í Reykjavík, en er það viðtekið að atkvæði sem barn les úti á landi eigi að vera tugum prósenta dýrara en í Reykjavík?" sagði Sturla Kristjánsson hreppstjóri í samtali við NT í gær vegna áður umræddrar skýrslu. Trausti sagði að í skýrslunni kæmi fram að 30-50% af skatttekjum sveitarfélaga væru bundin í skólakostnað. „Sveitarfélögin gegna gjald- kerahlutverki fyrir hönd ríkis- sjóðs, þar sem ríkið frystir oft um 10% af skatttekjum sveit- arfélaganna. Auk greiðslutafa í 2-3 mánuði. Af þessu leiðir að 60-70% skatttekna sveitar- félaga geta verið bundin í kostnað við skóla.“

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.