NT - 31.08.1985, Blaðsíða 3
Sex herskip
til íslands
Reuter
■ ísland mun koma við sögu í
umfangsmestu flotaæfingum sem
haidnar hafa verið á Atlantshaf-
inu, síðan í seinni heimsstyrjöld.
Gert er ráð fyrir að skipalest sem
telur ellefu skip hafi viðkomu á
íslandi á leið sinni yfir Atlantshaf-
ið. Fimm skipanna eru kaupskip
með birgðir fyrir iönd Atlantshafs-
bandalagsins. Þeim til fylgdar eru
fimm herskip og ein freigáta,
kanadísk að uppruna.
Nú eru fjórar flotadeildir á
hraðri siglingu til Norður-Atlants-
hafsins, þar sem æfingaskipulagið
gerir ráð fyrir því að aukin ókyrrð
eigi sér stað í Evrópu. Pegar líður
á fyrstu viku í september, er gert
ráð fyrir því að stríð brjótist út í
Evrópu.
Alls eru það níu þjóðir sem þátt
taka í æfíngunum. Ráðamenn Ati-
antshafsbandalagsins hafa sagt að
ekki verði gert ráð fyrir notkun
kjarnorkuvopna í æfingunum, þar
sem cinungis er um að ræða vernd-
un á skipalest á sigiingu yfir
Atlantshaf. Æfingarnar eru nefnd-
ar Ocean Safari 85.
Bílvelta
■ Volkswagen sendi-
ferðabíll fór útaf veginum,
og valt, í Norðurárdal í
Skagafiröi í gærmorgun.
Bíllinn er talinn gjörónýt-
ur, og allir sem voru í
honum voru fluttir með
sjúkrabifreið til Akureyr-
ar. Þrennt var í bílnum,
og mun ökumaður vera
talsvert slasaður.
Verið var að hefla veg-
inn þegar slysið varð, og
því lausamöl mikil. í sam-
tali NT við lögreglu á
Sauðárkróki kom fram að
ekki hefði verið hægt að
yfirheyra ökumann vegna
meiðsla. Ekkert kom fram
sem bendir til hrað-
aksturs.
■ Svona var umhorfs eftir sprenginguna. Motturnar voru ekki nægileg vöm og lyftust undan
sprengingunni. Stórgrýtið kastaðist í allar áttir. Innfellda myndin sýnir einn bílinn sem varð fyrir grjóti.
NT-myndir Guðlaucur
Sprengjuregn á
Seltjarnarnesi
Ellefu bílar skemmdir. Engin meiðsl á fólki
■ Ellefu bílar skemmdust
þegar stórgrýti rigndi yfir þá,
eftir sprengingu á Seltjarnarnesi
í fyrradag. Verktakafyrirtækið
Gunnar og Guðmundur sf. var
að sprengja fyrir íbúðarhúsnæði
fyrir Byggung.
Alls voru settar tíu hleðslur
af dýnamíti í jafnmargar holur.
Breitt var yfir holurnar með þar
til gerðum mottum, yfirbreiðsl-
an reyndist ófullnægjandi, og
lyftust motturnar með þeim af-
leiðingum að stórgrýti rigndi
yfir nærliggjandi hús og bíla. Á
bílastæði við Nesskip voru
margir bílar og uröu ellefu
þeirra fyrir skemmdum. Þá
skemmdist lyftari og útidyra-
hurð á húsnæði Nesskip var illa
farin eftir stórgrýti sem kastað-
ist á hana.
Að sögn lögreglu á Seltiarn-
arnesi varð gífurlegur hvellur
þegar sprengingin varð. Mesta
mildi var að ekki skyldi neinn
verða fyrir grjótinu sem flaug í
allar áttir. Sprengingum var
hætt á fimmtudag, eftir að
óhappið yarð, en þær hófust að
nýju í gær.
I nágrenni við sprengingar-
svæðið er fjöldinn allur af þjón-
ustufyrirtækjum, og var margt
um manninn þegar sprengt var.
Sprengjumennirnir voru alls
óviðbúnir þessu óhappi, og
sluppu með skrekkinn og grjót-
ið þjótandi urn eyru sér.
Fiskeldi:
Dýralæknir
til starfa
■ Forseti íslands, Vigdís
Finnbogadóttir, hefur skipað
Árna M. Mathiesen, dýralækni,
í embætti „dýralæknis fisksjúk-
dóma" en það embætti var
stofnað með lögum nr. 61, 27.
júní sl. Árni tekur við starfinu
l. september.
Til embættisins er stofnað
vegna aukningar í fiskirækt hér
á landi. Skal Árni sinna sjúk-
dómsgreiningum og reglu-
bundnu eftirliti með fisksjúk-
dómum.
í greinagerð með frumvarpi
því sem lagt var fram í vetur um
stofnun embættisins segir:
„Fiskirækt er viðkvæm og
vandasörh atvinnugrein sem
krefst bæði vísindalegrar þekk-
ingar og reynslu. Þar sem fisk-
sjúkdómar gerast nú æ ágengari
er brýn nauðsyn á að hafa
kerfisbundið eftirlit með fisk-
eldisstöðvum í landinu og fyrir-
byggja að sýktum fiskum sé
dreift milli stöðva og út í hina
villtu náttúru landsiTfs.“
Árni stundaði dýralæknisnám
við Royal Schooí of Vetinary
Studies í Edinborg í Skotlandi,
og lauk í sumar M.Sc. prófi í
fisksjúkdómafræðum við Stirl-
ing Úniversity í Skotlandi.
■ Árni M. Mathiesen dýralæknir.
NT-mynd Ámi Bjama
NYRIADA STATION
VEL: 1300 CM3 72 HO. 4 GIRA
254.600
VEL: 1500 CM3 77 HO. 4 GIRA
269.000
VÉL: 1500 CM3 77 HÖ. 5 GÍRA
288.800
Söludeild opin
í dag kl. 1-4
ATH. Tökum vei með
farna Lada bíla uppí.
< BIFREIÐAR OG LANDBUNAÐARVELAR HF.
' 11 f - Gs eiTnimi m «mrnn « im m m « A ^
SUÐURLANDSBRAUT 14 S.: 38600 S. SOLUDEDLD: 31236