NT - 31.08.1985, Blaðsíða 4
Lögfræðingur
Vinnumálasamband samvinnufélaganna
óskar aö ráða lögfræðing til starfa.
Starfssvið hans er að vinna við kjarasamn-
inga og vinnumarkaðsmálefni.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrrri störf sendist framkvæmdastjóra Vinnu-
málasambands samvinnufélaganna Ármúla
3,108 Reykjavík fyrir 10. september n.k., er
veitir nánari upplýsingar.
Vinnumálasamband samvinnufélaganna.
deild vegna tölvukaupa.
Æskilegt er að umsækjendur hafi góða
undirstöðumenntun.
Hér er um að ræða lifandi starf fyrir réttan og
áhugasaman aðila.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð
hjáStarfsmannahaldi, Ármúla3, sími 81411.
Starf í Brunadeild
Óskum eftir að ráða starfsmenn í Brunadeild
til almennra skrifstofustarfa.
Æskilegt að umsækjendur geti byrjað sem
fyrst og hafi til að bera færni í skrifstofustörf-
um.
Umsóknareyðublöð og upplýsingar hjá Starfs-
mannahaldi, Ármúla 3, sími 81411.
Samvinnutryggingar g.t
Frá Grunnskólanum í
Mosfellssveit
Nemendur Varmárskóla (6-12 ára) komi í
skólann sem hér segir:
10-12 ára nemendur, mánudaginn 9. sept-
ember kl. 10.00.
7-9 ára, mánudaginn 9. september kl. 13.00.
Forskólanemendur verða boðaðir bréflega.
Nemendur gagnfræðaskólans (13-15 ára)
komi í skólann mánudaginn 9. september kl.
9.00.
Skólastjóri.
Kynningarstarf
Kennarasamban JTslands óskar eftir að ráða
fulltrúa í hálft starf til starfa fyrir kynningar-
nefnd og stjprn KÍ. Starfið felst m.a. í
dreifingu upplýsinga til kennara svo og
samskipturfiitrjð fjölmiðla.
Umsóknarfrestur er til 15. september n.k. og
miðað við ráðningu til eins árs frá 1. október
1985.
Skriflegar umsóknir sendist á skrifstofu KÍ,
Grettisgötu 89, 105 Reykjavík, merktar
„Kynningarstarf."
Upplýsingar um starfið og launakjör veitir
Guðni Jónsson áskrifstofu KÍ, sími 91 -24070
og 12259.
Stjórn KÍ.
Laugardagur 31. ágúst 1985 4
■ „Ætli ég fari ekki í Hollý «
sagði Bjarni og sendi stelpunum
tvírætt bros.
■ „Það má bóka það að við förum aftur til Ítalíu næsta sumar,« sögðu þær Helga og Kristín og sukku
síðan í eigin dagdrauma.
Sumarið er búið
Skólarnir byrja eftir helgi
■ Sumarið er búið. Það er
ótrúiegt, sólin skín dag eftir
dag, en eftir helgina fara að
sjást ungmenni með skólatöskur
á bakinu. Grámyglulegur hvers-
dagsleikinn er tekinn við,
sumarkaupið búið, tískufötin
komin utan á kroppinn og
ævintýri haustsins eru í
vændum.
' Fyrstu skóladagarnir eru allt-
af spennandi, svo ekki sé talað
um ef maður er að byrja í nýjum
skóla. Það þarf að mæla út
félagana og litla dæluverkið tek-
ur oft stökk um allan brjóstkass-
ann og rómantísk haustkvöld
eru planlögð með feimnissvip
og roða í kinnum.
En hvað segja unglingarnir í
miðbænum. NT brá sér í flottar
gallabuxur og leðurjakka og
skokkaði niður á Lækjartorg og
tók nokkratali, allirvoru hressir
en dálítið spenntir yfir kvöld-
inu, því í vændum var uppskeru-
hátíð sumarsins.
Ítalía og aftur Ítalía
„Gvööd, ætlarðu að tala við
okkur,“ sögðu stöllur tvær sem
höfðu lagt reiðhjólunum við
ágætan bekk á torginu. Ekki
sögðust þær hafa mikið að segja,
en annað kom á daginn. Pær
heita Helga Bertelsen og Kristín
Ólafsdóttir, það var Helga sem
byrjaði.
„Ég var á spítala í allt sumar,
að vinna sko. Ég skúraði Landa-
kotsspítala að hluta, var á hand-
lækninga- og augndeild.
Nei, ertu vitlaus, ég fékk ekki
að sprauta, hefði hvort sem er
ekki fundið neinar æðar, en það
var gaman að skúra, sjúkling-
arnir voru flestir hressir. Þarna
voru ungir strákar sem voru
iðnir við að stríða manni. Nei,
ég varð ekki skotin í neinum, en
sumir læknanemarnir voru
sætir, það vantaði ekki.
Ég var að koma frá Ítalíu og
nú er þetta litla kaup sem ég
hafði búið, svo ég verð að vinna
eitthvað með skólanum, því ég
ætla aftur til Ítalíu næsta sumar.
Það er sko æði að vera þar.
Strákarnir þar eru miklu hress-
ari og skemmtilegri en hér
heima.“
„Já, ég var líka á Ítalíu,“
sagði Kristín, „en ég var ekki á
Landakoti heldur vann ég norð-
ur í landi. Ég var að uppvarta á
hótelinu á Laugum í Reykjadal.
Það voru aðallega útlending-
ar sem komu þangað og þeir
gáfu manni þjórfé, eins og þeir
eru vanir í útlöndum. Það var
stundum 300 kall á kvöldi.
Veturinn leggst ágætlega í
mig, enda fer ég til Austurríkis
í vetur, til að heimsækja ömmu,
og svo fer ég náttúrlega á skíði.
Nei, nei, það er ekkert mál að
fara til útlanda tvisvar á ári,
mamma mín er nefnilega flug-
freyja.“
Sláttumaður
Bjarni Felix Bjarnason var að
sniglast í kringum stelpurnar á
torginu. Hann sagðist hafa unn-
ið hjá Véladeild Reykjavíkur-
borgar.
„Ég var sláttumaður, akandi
á vélknúinni sláttuvél. Nei, það
þarf ekki próf á svoleiðis tæki,
þú keyrir bara í hringi og slærð
gras.
Ég fór ekki til útlanda í
sumar, hafði það bara gott hér
heima í góða veðrinu. Núna í
vetur ferég í fjórða bekk M.R.,
þar sem ég er á málabraut. Ég
get varla sagt að ég stefni að
neinu ákveðnu, nema þá helst
að verða löggiltur iðjuleysingi.
í kvöld? Ætli ég fari ekki bara
í Hollywood á eftir stelpunum. “
Leiðinlegt í sveitinni
„Ég var í sveit og það var
hundleiðinlegt,“ sagði Birna
Helgadóttir 14 ára. „Ég var
óheppin með stað og var aðal-
lega höfð í inniverkum. Kaupið
var alveg sæmilegt, ég kvarta
ekki yfir því, en það var leiðin-
legt að þurfa að hanga inni og
þurrka af og vaska upp alla
daga.
Eg fór aldrei í bæinn um
helgar, var þarna í 82 daga og
svo var haldið ball kvöldið sem
ég fór í bæinn, ferlega svekkj-
andi.“
Vinkona Birnu heitir Helga
P. Finnsdóttir og hún var að
passa hann Eyjölf Kára frá
klukkan 9-4.
„Hann er skemmtilegur, en
stundum ansi duttlungafullur
greyið.
Ég passa hann sennilega tvö
kvöld í viku, til að fá mér
einhvern pening fyrir fötum og
bíóferðum. Já, ég kaupi mér
dálítið af fötum, ég vil ekki vera
eins og drusla í skólanum."
,Hann er ansi duttlungafullur greyið,“ sagði Helga um Eyjólf Kára. Birna Helgadóttir brosti bara að raunum barnapíunnar.