NT - 31.08.1985, Síða 5
Laugardagur 31. ágúst 1985 5
Heimilið:
„Byrjunin lofar góðu“
Póra og Sigurður. Langt að komin.
NT-mynd: Svenir
að vera, tískusýningar og
margskonar uppákomur sem
gleðja bæði unga og aldna enda
finna þar flestir eitthvað við sitt
hæfi.
Blaðamaður NT ræddi við
nokkra aðila í gær, sem eru með
bása á sýningunni og að sögn
þeirra voru þeir mjög ánægðir
með hvernig sýningin hefur far-
ið af stað, aðsókn væri mikil og
áhugi ríkjandi meðal almenn-
ings á þessu. Það má því segja
að byrjunin lofi góðu.
■ Ámi Elvar á sínum stað eins og venjulega en hann hefur átt sitt fasta hom á síðastliðnum
heimilissýningum, þar sem hann teiknar andlitsmyndir af fólki á staðnum.
_______________________ NT-mynd: Sverrir.
Tveggja og 3ja
herbergja íbúðir á
2,1 >3 milljónir
■ Áætlað kostnaðarverð
þeirra 2ja og 3ja herbergja
íbúða sem nú er verið að byggja
sem söluíbúðir fyrir aldraða
Reykvíkinga er á bilinu 2,1 til 3
milljónir króna, samkvæmt nú-
ildandi byggingarvísitölu.
búðir þessar eru 60-100 fer-
metrar að stærð og afhentar
fullbúnar. Við þetta verð á eftir
að bætast fjármagnskostnaður,
sem ekki er vitað hvað verður
hár.
Lögvernd
opnar
skrifstofu
Að sögn Arnórs Arnórsson-
ar, skrifstofustj. Verslunar-
mannafélags Reykjavíkur-sem
stendur í byggingu 60 íbúða
fyrir aldraða félagsmenn sína -
er framangreint verð eingöngu
framreikningur eftir byggingar-
vísitölu á þeirri kostnaðaráætl-
un sem gerð var í upphafi.
Félagið hafi ekki farið út í að
gefa upp annað verð fyrr en
betur verður séð hver endanleg-
ur byggingakostnaður verður,
en íbúðirnar eru seldar á kostn-
aðarverði. Að mun hærra verð
sé á þessum íbúðum en notuð-
um íbúðum á almennum mark-
aði sagði Árnór eiga sér eðlileg-
ar skýringar. Á sama tíma og
byggingarkostnaður hafi rokið
upp úr öllu valdi (t.d. 25% frá
des. 1984 til ágúst 1985) hafi
verð á fasteignamarkaðinum
nær staðið í stað eða hækkað
sáralítið. Arnór sagði verðið
mjög svipað hjá öðrum íbúða-
byggjendum í Nýja-Miðbænum
og einnig á íbúðum þeim sem
verið er að byggja fyrir aldraða
annarsstaðar í borginni.
íbúðirnar, sem áætlað er að
verði afhentar í mars n.k., sagði
Arnór allar seldar, og raunar
nokkra kaupendur á biðlista ef
einhverjir skyldu hætta við, en
engin hreyfing hafi verið í þá átt
að undanförnu. Kaupendur
greiddu í byrjun ákveðið stað-
festingargjald, en síðan er áætl-
að að greiðslur hefjist um tveim
mánuðum áður en fólk fær íbúð-
irnar afhentar, þannig að það
geti selt sínar núverandi íbúðir
undir áramótin og flutt síðan
beint á milli í þær nýju.
■ Nú er þriðji dagur heimilis- eflaust nota margir tækifærið þar fer fram.
sýningarinnar runninnupp og yfir helgina til að skoða hvað Á hverjum degi er mikið um
«4* .**■
w
„Eins og í draumi“
■ Mæðginin Þóra Sigurgeirs-
dóttir og Sigurður Flosason sem
koma að norðan voru mjög
ánægð með sýninguna enda væri
hægt að sjá útrúlega margt á
sama stað.
„Ég var nú í og með að litast
um eftir baðinnréttingum og
gróðurhúsum líka,“ sagði Sig-
urður „annars er spennandi að
Gífurleg-
ur kennara-
skortur
■ Mjög alvarlegur kenn-
araskortur blasir nú við
grunnskólunum í upphafi
skólaárs og í mörgum tilfell-
um er ekki spurt um stöður
þótt margauglýstar séu. í
mörgum skólanna er reynt
að bjarga því sem bjargað
verður með aukinni kennslu
og yfirvinnu hvers kennara.
Þetta er niðurstaða af
skyndikönnun sem starfs-
maður Kennarasambands-
ins framkvæmdi dagana 27,-
29. ágúst sl.
Könnunin náði til 44 skóla
af 221 og þessa skóla vantaði
50 kennara. Þegar höfðu
verið ráðnir 120 réttinda-
lausir kennarar, þar af eru
48 nýráðningar. 181 kennari
frá þessum skólum hefur
hætt störfum eða farið í leyfi
og 175 ráðnir í staðinn.
í Reykjavík náði könnun-
in til 13 skóla af 29 og þá
vantar um 15 kennara. Að-
eins 7 réttindalausir kennar-
ar hafa verið ráðnir að þeim
skólum í Reykjavík sem
könnunin náði til, en 113
utan höfuðborgarinnar.
skoða allt hérna. Það er líka
lífsreynsla fyrir móður mína
sem er komin á níræðisaldur og
man tímana tvenna en hefur
aldrei farið á svona heimilissýn-
ingu áður.“
„Mér finnst þetta bara alveg
eins og í draumi,“ sagði Þóra.
„Þetta er svo huggulega saman-
sett og skipulagning svo til fyrir-
myndar að mér finnst þetta
beinlínis fallegt, svo ég tali ekki
um hvað mér finnst gaman að
vera innan um allt þetta fólk.“
„Tölvurnar og
kúlubíóið það
skemmtilegasta“
■ „Þetta er þriðja heimilissýn-
ingin sem ég fer á og mér finnst
alltaf jafn gaman,“ sagði Valur
Gunnlaugsson 12 ára, er blaða-
maður spurði hann álits.
Hvað finnst þér skemmtileg-
ast á þessari sýningu?
„Tölvurnar í básnum hjá
Bókabúð Braga. Ég hef nefni-
lega ofsalegan áhuga á tölvum
og á eina sjálfur með allskonar
leikjum og svoleiðis. Svo fannst
mér líka frábært að fara í kúlu-
bíóið. Það er alveg eins og
maður taki sjálfur þátt í því sem
er að gerast á tjaldinu, eins og
að vera inní miðri atburðarás.
Þetta er í fyrsta skipti sem ég sé
svona kúlubíó."
Finnst þér jafn mikið gert
fyrir krakkana eins og fullorðna
á sýningunni?
„Já, það finnst mér. Mér
finnst jafnvel eins og sýningin sé
frekar gerð fyrir krakka en full-
orðna.“
■ Valur Gunnlaugsson,
„Tölvurnar mest spennandi...“
NT-mynd: Sverrir
■ Samtökin Lögvernd hafa nú
opnað skrifstofu í Reykjavík,
þar sem félagsmenn geta leitað
upplýsinga og ráðgjafar í ýms-
um málum, jafnframt því sem
Lögvernd mun reyna að hjálpa
fólki við að ná rétti sínum.
Algengast er að fólk leiti til
Lögverndar vegna ýmissa
vandamála sem upp koma í
sambandi við húsnæðiskaup og
vaxtamál og jafnvel okurlán í
því sambandi, segir í frétt frá
samtökunum. En þau hyggjast
m.a. aðstoða félagsmenn við
gerð samninga um íbúðarhús-
næði.
Eitt af markmiðum Lög-
verndar er að vekja almenning
á íslandi til umhugsunar um
„hina óvægilegu misnotkun
verðtyggingar sem gerir fólki
ókleift að lifa mannsæmandi lífi
af óverðtryggðum launum“.
Til þessa hafa samtökin eink-
um starfað í Reykjavík, en
vinna nú að því að koma á
umboðsmannakerfi hringinn í
kring um landið. Er stefnt að
því að umboðsmenn verði 25
talsins. Skrifstofan í Reykjavík
~er til húsa að Ármúla 19.
Magnús Magnússon, Borgarfirdi:
■ Netaveiði er hafin á Arn-
arvatnsheiði. Þá er jafnframt
hætt að selja stangaveiði-
leyfi. Netaveiðin hófst 20.
ágúst.
Hvert lögbýlí sem á at-
kvæðisrétt í Veiðifélagi Arn-
arvatnsheiðar getur keypt
netaveiðileyfi í allt að þrjár
nætur fyrir þrjú net, og greið-
ir fyrir það 650 krónur.
Margir urðu fljótir að bregða
við, og að sögn kunnugra var
óvenju mikil aðsókn í ár.
Fréttaritari NT í Borgarfirði
brá sér í einn veiðitúrinn.
Veiðin var góð og meðal
annars veiddist 11 punda urr-
iði, sem var geysilega falleg-
ur.
Koddaefni
■ Veiðimaður úr Borgar-
firði fór til gæsaveiða nú fyrir
skömmu. Hann hafði með
sér riffilinn sinn, sem er cal.
243. Ein gæs varð fyrir skoti.
Þegar farið var að kanna
fuglinn kom í ljós að hann
var orðinn að ruslatunnu-
mat. Skotið fór í gegnum
fuglinn og kom út um bring-
una, sem klofnaði og var
harla lítið eftir af kjötinu
gómsæta. Eini möguleikinn
var að nýta restina í kodda-
efni, þ.e. fiðirið.
Mikill silungurí
Breiðdalsá
Óhemju góð silungsveiði
hefur verið í Breiðdalsá upp
á síðkastið. Sérstök aflahrota
kom núna tvo daga í röð, og
voru teknir 48 vænir silungar
á þrjár stangir annan daginn
og 45 daginn eftir. Silungur-
inn var mjög vænn, allt upp í
fjögur pund. Þá hefur lax-
veiði gengið vel í ánni eftir
nokkurra ára deyfð. Tæplega
70 fiskar eru komnir á land.
Það verður að tjalda því
n til er. Þegar sá ellefu
nda? var kominn á land,
rfti að vigta fiskinn. Ekki
r vigt meðferðis, en með
stoð ýmissa hluta gekk
:mið upp. Við verðum að
ia því að hann sé ellefu