NT - 31.08.1985, Page 7
Laugardagur 31. ágúst 1985
Pólland:
Fimm ár liðin frá
stofnun Samstöðu
Samstöðuleiðtogar endurnýja samvinnutilboð
■ Zbigniew Bujak er
einn helsti leiðtogi neðan-
jarðarhreyfingar Sam-
stöðu. Hann er eftirlýstur
vegna andstöðu sinnar við
stjórnvöld en víðtækur
stuðningur almennings við
Samstöðu hefur gert hon-
um kleift að sleppa undan
handtöku. Þessi mynd var
tekin af honum fyrir
skömmu þegar vestrænir
blaðamenn tóku viðtal við
hann. Bujak segir að
50.000 til 70.000 Pólverjar
taki þátt í neðanjarðar-
starfi Samstöðu.
Gdunsk-Kcutcr.
■ Nú eru liðin nákvæmlega
fimm ár frá því að Lech Walesa
leiðtogi verkalýðssambandsins
Samstöðu undirritaði sam-
komulag við pólsku stjórnina
um stofnun óháðra verkalýðsfé-
laga. Óháðu verkalýðsfélögin
voru síðan bönnuð í desember
1981 eftir að pólski herinn tók
völdin undir forystu Wojciech
Jaruzelskis.
í tilefni af stofnafmælinu
sendu fyrrverandi leiðtogar
Samstöðu frá sér ítarlega grein-
argerð þar sem þeir hvetja
stjórnvöld m.a. til að taka aftur
upp samvinnu við óháðu verka-
lýðsfélögin.
Greinargerðin, sem er 500
blaðsíður, er skrifuð af ýmsum
fyrrverandi leiðtogum og ráð-
gjöfum Samstöðu. Hún er harð-
orð gagnrýni á stefnu núverandi
stjórnvalda. Höfundar grein-
argerðarinnar krefjast þess að
stjórnvöld láti alla pólitíska
fanga lausa, hætti kúgunar-
stefnu og haldi aftur inn á braut
sátta og samvinnu.
Walesa skrifar meðal annars:
„Enginn getur einokað hugsun
í Póllandi og enginn getur bann-
að okkur að tala og hugsa um
Pólland." í greinargerðinni seg-
ir að markmiðið með henni sé
að hvetja til sjálfstæðra um-
ræðna um ástandið í landinu,
ýta undir skoðanaskipti og
endurspegla afstöðu fólks í öll-
um starfstéttum.
Greinargerðinni er skipt í
fimm hluta. Hún hvetur til
endurreisnar óháðra verkalýðs-
félaga, fjallar um mannréttindi,
efnahagsmál, lífskjör í Póllandi,
þjóðlega menningu og í lokakafl-
anum draga höfundar saman
afstöðu sína. Þeir segja m.a:
„Grundvallarorsökin fyrir
kreppunni í Póllandi er eyði-
legging gagnkvæms trausts á
milli almennings og stjórn-
valda.“
t skýrslunni er því haldið
fram að rauntekjur hafi lækkað
um sextán prósent á undanförn-
um árum og að næstum 30%
pólskra fjölskyldna lifi í fátækt.
Pólsk blöð hafa þagað um
fimm ára afmæli Samstöðu. En
talsmaður stjórnarinnar, Jerzy
Urban, sagði fyrr í þessari viku
að sú stefna stjórnarinnar að
semja ekki við Walesa eða aðra
leiðtoga Samstöðu myndi ekki
breytast.
Bretland:
Skotinn heiguil
alltaf heigull
■ Lech Walesa hefur ekki misst trú á hugsjóninni. Hann vonast
til þess að stjórnvöld í Póllandi sjái að sér og taki upp viðræður við
sig og aðra Samstöðuleiðtoga.
London-Rcutcr.
■ Varnarmálaráðuneyti Bret-
lands hefur hafnað beiðni sam-
taka gamalla stríðsmanna um
að endurskoða mál hermanna,
sem voru skotnir fyrir hugleysi í
heimsstyrjöldinni fyrri, og veita
þeim uppreisn æru.
Trefgarne lávarður, sem fer
með málefni hersins innan varn-
armálaráðuneytisins, sagði að
hann gæti í sjálfu sér fallist á að
sumir hermannanna hefðu
þjáðst af stríðslosti og þreytu.
En það væri óréttlátt gagnvart
þeim sem börðust af hugrekki
við þessar erfiðu kringumstæð-
ur, að veita þeim sakaruppgjöf
sem hefðu verið dæmdir fyrir
hugleysi.
Pað er talið að 18 til 35 menn
liafi verið skotnir fyrir hugleysi
í heimsstyrjöldinni fyrri. Fyrir
skömmu var sýnd heimildar-
mynd í breska sjónvarpinu þar
sem því var lýst hvernig þessir
menn voru dæmdir fyrir hug-
leysi og skotnir án þess að
sérmenntaðir læknar hefðu at-
hugað þá og án möguleika á
lögfræðilegri vörn.
Filippseyjar:
Blóðugirfréttamenn
krefjast málfrelsis
Manila-Kcutcr
■ Um tuttugu fréttamenn,
sem starfa við blöð og útvarp á
Filippseyjum, skrifuðu í gær
undir áskorun með eigin blóði
þar sem þess er krafist að stjórn-
völd tryggi raunverulegt mál-
frelsi og refsi þeim sem að
undanförnu hafa myrt fjölda
blaðamanna.
Mörg þúsund manns horfðu á
þegar fréttamennirnir skáru á
æðar á höndum sér með hnífum
og rakvélablöðum á torgi í mið-
borg Manila. Að minnsta kosti
Portúgal:
Hasshringur í
légregluhöndum
Lissabon-Reutcr
■ Portúgalska lögreglan
hefur skýrt frá því að tek-
ist hefði að stöðva starf-
semi öflugs smyglhrings
sem hefði smyglað hassi
frá Marokkó til Norður-
Evrópu.
Fjórtán Portúgalar og
einn Spánverji voru hand-
teknir í hafnarbænum
Tavira við Algarveströnd
Portúgals þar sem smygl-
ararnir höfðu höfuðbæki-
stöðvar sínar. Lögreglan
lagði hald á einn flutn-
ingabíl, tíu bíla og fimm
smábáta. Ein vélbyssa og
nokkrar skammbyssur
fundust heima hjá smygl-
urunum.
tólf fréttamenn hafa verið myrt-
ir á síðustu níu mánuðum og frá
því 1979 háfa 22 blaðamenn,
ritstjórar og fréttamenn út-
varpsstöðva látið lífið.
Blóðundirskrift fréttamann-
anna var liður í einnar viku
baráttuherferð fyrir raunveru-
legu málfrelsi. Fréttamennirnir
segja að stjórnvöld tali gjarnan
fjálglega um fréttafrelsi. Þrátt
fyrir slíkar yfirlýsingar hafi lítið
sem ekkert gerst til ,að vernda
blaðamenn og útvarpsfrétta-
menn fyrir morðárásum.
í yfirlýsingu, sem fimm
hundruð blaðamenn og út-
varpsfréttamenn skrifuðu undir
og birt hefur verið í öllum
helstu blöðum Manila, er þess
krafist að hlutlæg rannsókn
verði gerð á því hvers vegna
fréttamennirnir hafi verið
myrtir.
Marcos forseti á Filippseyjum
hefur lofað að láta rannsaka
morðin. Hann hefur þegar til-
kynnt að hann muni setja á fót
rannsóknarnefnd með fulltrú-
um leynilögreglu hersins, lögf-
ræðingum og fulltrúum dóms-
Ónæmistær-
ing á Græn-
landi
Nuuk-Rcutcr.
■ Starfsmaður,semvinnur
við heilsugæsluna á Græn-
landi, skýrði frá því í gær að
læknar þar hefðu nú í fyrsta
skipti greint ónæmistæringu
úr blóðsýni sem tekið var úr
homma.
Við rannsókn á blóðsýn-
inu fannst mótefni við
ónæmistæringu. Reynslan
sýnir að um 20% allra sem
hafa slíkt motefni sýkjast af
þessum banvæna sjúkdómi
innan þriggja ára. Líklegt
þykir að hlutfallið sé enn
hærra ef miðað er við lengri
tíma.
■ Rísavaxin steinstytta af
höfði Ferdinands Marcosar
forseta Filippseyja og einvalds.
Hann hefur lofað að rannsaka
morð á fréttamönnum en þeim
hefur fjölgað mjög að undan-
förnu. Margir fréttamannanna
voru myrtir eftir að þeir skrif-
uðu greinar þar sem stjórn Mar-
cosar var gagnrýnd.
málaráðuneytisins til að rann-
saka þessi morðmál. Marcos
kveðst sjálfur munu v'eita rann-
sóknarnefndinni forstöðu.
£
S
Þeytingur
á dönskum
póstmönnum
Kaupmannahöfn-Rcutcr.
■ í könnun á póstþjónustu
Evrópuríkja kom í Ijós að danska
póstþjónustan var fljótust að
koma bréfum á leiðarenda en sú
ítalska gekk hægast.
Það voru vestur-þýsk neyt-
endasamtök sem áttu frumkvæði
að könnuninni sem náði til Dan-
merkur, Noregs, Bretlands, Vest-
ur-Þýskalands, Hollands,
Frakklands, Austurríkis og ítal-
íu.
Af 194 bréfum sem voru látin í
póst í Danmörk komu 95% til
móttakanda strax daginn eftir.
Norðmenn voru næstfljótastir en
þar komust 82,5% bréfanna til
móttakanda næsta dag og Bretar
voru í þriðja sæti með 79%.
~NEWS IN BRIEF-]
August 30 Reuter.
CAPE TOWN - South
African police firing
shotguns from armoured
vehicles fought running
battles with rioters in no-
white suburbs in some of
the worst violence the area
has secn this century. In
the Zambian capital Lu-'
saka, the African National
Congress (ANC) Guerr-
illa movement said it
planned to meet a group
of South African business-
men for talks on dismantl-
ing apartheid but declined
to name companies or
individuals who would
attend.
•
BONN - Chancellor Hel-
mut KohÞs government
came under growing po-
litical pressure over West
Germany's spy scandal as
the opposition stepped up
demands for the dismissal
of the Interior Minister
and for new details of the
damage caused.
BAGHDAD - Iraq said
its warplanes hit Iran’s
Ul main oil terminal at
^ Kharg Island in the Nort-1
hern gulf for the third
time in two weeks. A
military spokesman said
the aircraft dropped 12
bombs of 500 kg (1,100
pounds) on the terminal.
•
BOMBAY - One person
was killed and hundreds
were affectcd by chlorine
gas which leaked twice
from a Bombay chemical
factory during a protest
demonstration by plant
workers, police said.
UJ
s
HARARE - Rebels att-
acked a farm and burned
down a school in Southern
Zimbabwe, killing 17 pe-
ople and wounding four, a
government spokesman
said.
•
GDANSK - Poland’s
banned solidarity free
trade union marked the
fifth anniversary of its
birth by publishing a long
report sharply critical of
communist rule and app-
ealing to the government
for reconcilation.
FRANFURT, WEST
GERMANY - West
German forensic experts
need at least another
month to decide whether
nazi war criminal Josef
Mengele is dead. Fra-
U. nkfurt public prosecutor
lij Hans Eberhard Klein said
today. For nearly two
^ months. Experts have been
5 examining remains ex-
</> humed ih Brazil widely
S believed to be those of the
infamous Auschwitz conc-
entration camp doctor.
•
NEW ORLEANS, Louis-
iana - Hurricanc Elena
changed course and head-
ed for the beaches of Al-
abama and Northern Flor-
ida, weathcr forecasters
1 said, as more than 200.000
residents of coastal areas
fled in search of higher
1 ground.
MADRAS, India - Police
arrested more than 3,500
people during a rail block-
ade in India’s Tamil Nadu
state when rocks were
I placed on tracks and signal
I lines were cut in protest at
the deportation of two Sri
j Lankan Tamil guerrilla
, leaders.
NEWSINBRIEF.