NT - 31.08.1985, Síða 8
Máisvari frjalslyndis,
samvinnu og felagshyggju
LJtgefandi: Nútíminn h.f.
Ritstj.: Helgi Pétursson
Framkvstj.: Guðmundur Karlsson
Auglysingastj.: Steingrimur Gislason
Innblaðsstj: Oddur Ólalsson
Skrifstofur: Síðumúli 15, Reykjavik.
Simi: 686300. Auglýsingasími: 18300
Kvöldsimar: Áskritt og dreifing 686300, ritstjórn
686392 og 687695, íþróttir 686495. tækmdeild
686538
Setning og umbrot: Tæknideild NT.
Prentun: Blaðaprent h.f.
Kvöldsímar: 686387 og 686306
Verð i lausasölu 35 kr. og 40 kr. um helgar. Askritt 360 kr.
Landshlutarnirþinga
■ Nú stendur yfir í Laugum í Reykjadal Fjórðungs-
þing Norðlendinga. Nú eru liðin 40 ár frá stofnun þess
og hefur Fjórðungssambandið á þessum árum sannað
gildi sitt og látið margt gott af sér leiða fyrir norðlenskar
byggðir.
Aðalmál þingsins að þessu sinni eru atvinnu- og
menntamál á Norðurlandi og einnig tillögur frá Fjórð-
ungsráði um ný lög fyrir sambandið.
An efa verður mikið rædd kennsla á háskólastigi á
Akureyri en fyrir því réttlætis- og hagsmunamáli er
mikill áhugi hjá Norðlendingum. Svo sem komið hefur
fram hjá ýmsum aðilum sem málið best þekkja er
ekkert því til fyrirstöðu að hefja þar kennslu á
háskólastigi og er það undir stjórnvöldum og ekki síst
menntamálaráðherra komið hvort af því verður eða ekki.
NT skorar á þá aðila að bregðast nú skjótt við og afgreiða
þetta mál á þann hátt að háskólaútibú á Akureyri taki
til starfa á Akureyri. Þetta er eitt af réttindamálum
Norðlendinga og liður í þeirri baráttu að jafna aðstöðu
landsmanna og dreifa valdinu um landið.
Fjórðungsþingið hefur sýnt það í gegnum árin að
hlutverk þess er stórt og að með þrýstingi sínum hefur
það komið mörgum góðum málum fram. Má þar nefna
rekstur ríkisútvarpsins á Akureyri sem öllum finnst nú
sjálfsagt og mikil ánægja ríkir um. Pá hefur Fjórðungs-
sambandið unnið að skipulagi samgangna á Norður-
landi, staðið að kynningu ferðamála, séð um iðnráðgjöf
svo eitthvað sé nefnt að ógleymdu miklu starfi varðandi
mennta- og menningarmál og kostnaðarskiptingu ríkis-
og sveitarfélaga í þeim málaflokki.
Fjórðungssambandið spannar yfir stórt svæði allt frá
Langanesi í Hrútafjörð. Sjónarmið þeirra sem á þessu
svæði búa eru mismunandiií ýmsum málum og alveg
ljóst að í sumum tilfellum falla hagsmunir ekki saman.
A þessu svæði eru stórir byggðakjarnar sem keppast um
að halda sínum hlut og fámennir hreppar með misjafna
aðstöðu. En á sama hátt og nauðsynlegt er að þjóðin
standi saman í mikilvægum málaflokkum er brýnt að
Norðlendingar nái samstöðu um sín hagsmunamál.
Þá stendur einnig yfir á Reyðarfirði aðalfundur
Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Meginmál þess
fundar eru samstarf sveitarfélaganna á Austurlandi um
verkmenntaskóla og byggðamál fjórðungsins.
Þar ekki síður en annars staðar eru menn uggandi um
sinn hag og óttast afleiðingar þess mikla fólksflótta sem
á sér stað frá landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins
sem stafar af erfiðri stöðu undirstöðuatvinnugreinanna,
sjávarútvegs og landbúnaðar.
Frá báðum þessum fundum má búast við samþykkt-
um og tillögum til úrbóta í mörgum málum og vert er
fyrir þingmenn og aðra ráðamenn að taka vel eftir þeim
og vinna að framgangi þeirra svo sem kostur er.
Mikil umræða hefur farið fram um þann aðstöðumun
sem er hjá fólki sem býr á höfuðborgarsvæðinu og hinna
sem úti á landi búa. Vissulega er aðstaða ekki hin sama
en við megum vara okkur á að kynda undir óánægju
meðal landsmanna um þessi mál því auðvelt er að ala
á sundrungu og telja mönnum trú á að grasið sé grænna
á öðrum stað en þeir búa á.
NT leggur á það áherslu að í landinu býr ein þjóð og
hefur ekki efni á öðru en að standa saman en þeim mun
meiri nauðsyn ber til að sjálfsögð réttindamál nái fram
að ganga og að flokkspólitík spilli þar ekki fyrir.
Sá fólksflótti sem varð til höfuðborgarsvæðisins á
dögum Viðreisnarstjórnarinnar leiddi m.a. af sér að
fjöldi íslendinga fluttist úr landi. Það má ekki endurtaka
sig. Þann fólksflótta tókst að stöðva í tíð með átaki í
uppbyggingu landsbyggðarinnar. Nauðsynlegt er að
ráðamenn átti sig á því að framtíð þjóðarinnar felst í
því að byggja landið allt og aðstaða til búsetu sé sem
jöfnust. NT óskarFjórðungssamböndunum velfarnaðar
í starfi og árangursríkra funda.
Laugardagur 31. ágúst 1985 8
Vettvangur
Ingvar Gíslason fyrrverandi menntamálaráðherra:
„Umsköpun“ efna-
hagssamstarfs þjóða
forsenda lífvænlegrar
framtíðar mannkynsins
„Umsköpun“ efnahagssam-
starfs þjóða
forsenda lífvænlegrar fram-
tíðar mannkynsins.
Úr bókinni Heimsástandi
1984.
■ í Washington, höfuðborg
Bandaríkjanna, hefur í all-
mörg ár starfað félagsskapur,
sem nefnist Worldwatch Instit-
ute og hefur það meginhlut-
verk, eins og nafnið bendir til,
að „horfa á heiminn" með
gagnrýnum augum og sjálf-
stæðu hugarfari gagnvart ráða-
mönnum og ríkjandi stefnum.
Worldwatch Institute gefur
sérstakan gaum að matvæla-
og efnahagsástandi á heims-
byggðinni og hverjar horfur
séu um afkomu mannkynsins í
framtíðinni, hvort þjóðirnar
„fái staðist" - svo notað sé
orðalag Abrahams Lincolns af
öðru tilefni, - hvort heimurinn
geti lifað af þá ógn sem auð-
lindaþurrð, uppblástur, gróð-
ureyðing, vatnsskortur og
mengun, auk offjölgunar
fólks, hefur f för með sér.
Þetta eru ógnir, sem World-
watch Institute leiðir öðru
fremur hugann að.
Stofnun þessi hefur notið,
fjárstuðnings ýmissa
amerískra styrktarsjóða s.s.
Rockefeller Brothers Fund o.
fl. f stjórn stofnunarinnar eru
heimskunnir menn. Formaður
stjórnarinnar er Orville Free-
man, sem eitt sinn var ríkis-
stjóri í Minnesota og landbún-
aðarráðherra í ríkisstjórnum
Kennedys og Johnsons.
Á síðari árum hefur Orville
Freeman gefið sig að barátt-
unni gegn hungrinu í heimin-
um og ritað um það efni bækur
og blaðagreinar. Worldwatch
Institute hefur á sér virðulegan
amerískan heldrimannablæ, ef
út í það er farið, og verður síst
kcnnd við róttæklinga á vinstri
kanti stjórnmála.
Merk bók
Á vegum þessarar stofnunar
hefur nýlega komið út 250 bls.
rit í stóru broti undir nafninu
State of the World 1984
(Heimsástandið 1984) ogerað
formi til skýrsla um það hvar
mannkynið er statt á Íeið sinni
til samfélags án vistkreppu,
þess samfélags þar sem auð-
Íindir tæmast ekki, þar sem
ekki þekkist hungur, þar sem
varanlegt atvinnuöryggi jarð-
arbúa er tryggt, eða eins og
segir svo skýrt í frumtexta:
„...toward a sustainable soc-
iety“, til þess samfélags sem
stenst. Aðalhöfundur og rit-
stjóri skýrslunnar er maður
að nafni Lester R. Brown, sem
verið hefur einn af helstu ráða-
mönnum Worldwatch Insti.tute
frá stofnun. Hann er búnaðar-
hagfræðingur að mennt og
starfaði í landbúnaðarráðu-
neyti Bandaríkjanna í ráð-
herratíð Orvilles Freemans, en
er nú fyrst og fremst kunnur
sem rithöfundur og sérfræðing-
ur hvað varðar matvælafram-
leiðslu í heiminum, ástand
auðlinda jarðar almennt og þá
ógn sem vofir yfir mannkyni
vegna rangrar grundvallar-
stefnu í efnahagsmálum heims-
ins alls.
Bók sú sem hér um ræðir,
State of the World 1984, er
fyrsta rit í sérstakri ritröð sem
ráðgerð er og út mun koma á
næstu árum. Meginefni bókar-
innar skiptist í 11 kafla auk
formála, skýringa við einstaka
kafla og nafna- og atriðisorða-
skrár. Kaflaheitin gefa til
kynna hvað um er fjallað í
bókinni.
1. Yfirlit
2. Um takmörkun fólks
fjölda
3. Um að daga úr olíunotk
un
4. Um jarðvegsvernd
5. Um vernd skóga
6. Um endurnýtingu efna
7. Um endurmat á hag
kvæmni kjarnorku
8. Um þróun orkugjafa,
sem ekki þrýtur
9. Um framtíð bílaiðnaðar
10. Um matvælaframleiðslu
11. Um gerbreytta stefnu í
efnahagsmálum.
Samspil auðlinda og
efnahagskerfis
í formála segir ritstjórinn að
í bókinni sé fyrst og fremst
leitast við að varpa ljósi á það
samspil sem óhjákvæmilega
verður að vera milli raunveru-
legra auðlinda jarðar og ríkj-
andi efnahagskerfis í heimin-
um. Milli þessa tvenns þarf að
vera jafnvægi. Felst í því í
stuttu máli að framleiðslustarf-
semin í heiminum verður að
vera í samræmi við viðhalds-
þrótt þeirra auðlinda, sem
kerfið er reist á, að öðrum
kosti hlýtur kerfið að hrynja
saman fyrr eða síðar. M.ö.o.:
Nauðsynlegt er að miða fram-
leiðsluhætti, landbúnað, veið-
ar, orkuframleiðslu og hvers
kyns iðnað, við ástand auð-
linda jarðar, jarðargróður,
gögn lands og gæði, allt það
sem jörðin gefur af sér án
rányrkju. Grundvallaratriði
þess að mannkynið geti lifað af
er því auðlindavernd í víðtæk-
um skilningi þess orðs og það
að finna og nýta nýjar
orkulindir í stað þeirra sem
þrýtur áður en langt um líður.
Framtíð mannkynsins hvílir
hvað mest á því að mönnum
lærist að nýta orkugjafa sem
endurnýja sig í sífellu. I þessu
felst einnig og ekki síður jarð-
vegsvernd, vatnsvernd,
skógarvernd og hvers kyns
önnur gróðurvernd.
Framlag til
mikilvægrar umræðu
Nú má með réttu segja að
ekki komi margt nýtt fram í
þessum orðum, heldur sé hér
aðeins um að ræða áréttingu
þess sem um hefur verið fjallað
í ýmsum ritum síðustu 12-15
ár, s.s. Limits to Growth eftir
D.L. Meádows o.fl. 1972 (ísl.
þýðing Endimörk vaxtarins,
útg. Menningarsjóður 1974),
enda draga höfundar Heims-
ástands 1984 ekki dul á að þeir
eru samherjar og skoðana-
bræður ýmissa annarra höfunda
sem ritað hafa um þessi efni,
og þeir ætla sér þann hlut hvað
helst, að séð verður, að fylla
best þann flokk, sem kenna
má við Rómarsamtökin. Þeir
sem þar eiga hlut að máli hafa
ekki verið „kveðnir í kútinn",
eins og einhver sagði nýlega,
heldur er málstaður þeirra í
fullu gildi og nýtur stuðnings
manna um allan heim. En
Framtíð mannkynsins hvílir hvað mest á
því að mönnum lærist að nýta orkugjafa
sem endurnýja sig í sífellu. í þessu felst
einnig og ekki síður jarðvegsvernd,
vatnsvernd, skógarvernd og hvers kyns
önnur gróðurvernd
Herskylda í nánd?
■ í 75. grein stjórnarskrár
íslands, segir: „Sérhver vopn-
fær maður er skyldur að taka
sjálfur þátt í vörn landsins,
eftir því sem nákvæmar kann
að verða mælt fyrir í lögum.“ í
lögum um almannavarnir frá
1962 segir, í 10. grein: „Það er
borgaraleg skylda þeirra sem
eru á aldrinum 18-65 ára að
gegna, án endurgjalds, starfi í
þágu almannavarna í umdæmi
þar sem þeir dveljast, sam-
kvæmt fyrirmælum, er lög-
reglustjóri gefur, aö fengnum
tillögum almannavarnanefnd-
ar.“
Fyrsti hermaðurinn
Fyrsti íslenski hermaðurinn
hefur verið kallaður tii starfa.
Tveir aðrir munu fljótlega
fylgja í kjölfarið. Það var Arn-
ór Sigurjónsson úr norska
hernum sem ráðinn var sem
„varnarmálafulltrúi". Hlut-
verk hans verður m.a. að
leggja mat á varnarþörfina og
fylgjast með æfingum og bún-
aði hjá varnarliðinu. Það er
viðbúið að varnarliðið láti ekki
hvern sem er vera með nefið
niðri í þeirra koppi í grennd
við Keflavík. Það er þó viðbúið
að Arnór sem er einn af
„þeim“ eigi greiðari samskipti
við herliðið. Hann talar þeirra
tungu og hefur þeirra innsæi í
hernaðarumsvif. Því er viðbú-
ið að hann muni eiga auðveldar
með að átta sig á hlutunum.
Varnarmála-
skrifstofan í Brússel
Nú mun ísland í fyrsta skipti
eignast fulltrúa á varnarmála-
skrifstofunni í Brússel. Því ber
að fagna. í fyrsta skipti getum
við fylgst með því innanfrá
hvað er verið að skipuleggja,
og hver hlutur íslands er í
hernaðaráætlunum Atlants-
hafbandalagsins. Allar stærri
nágrannaþjóðir okkar eiga
fulltrúa í Brússel, og hafa því
haft tækifæri til þess að tryggja
sín lönd, svo framarlega sem
unnt er, á stríðstímum. Norð-
menn hafa verið mjög ötulir
við að tryggja sitt land, með
tilliti til liðsflutninga. Ekkert
slíkt hefur verið gert á íslandi.
Þó er vitað að talsverð umsvif
verða við landið ef til átaka
kemur.
Kjarnorkuvopn
Annað slagið hefur verið
umræða um það hvort kjarn-
orkuvopn séu staðsett á ís-
landi. Enginn ætti að vera
betur í stakk búinn til þess að
leita svara við þessari spurn-
ingu, en maður með menntun
í hernaði, sem getur lagt mat á
þau umsvif sem fara fram á
Keflavíkurvelli. Það ætti að
vera fyrsta verkefni Arnórs,
að ganga úr skugga um hvort
svo sé. Varnarmálafulltrúi er
sameiginlegt hagsmunamál
fyrir íslendinga og bandaríska
herliðið á Keflavíkurflugvelli.
Eins og áður segir er hann einn
af þeim, þ.e.a.s. hermaður.
Með svipaðan bakgrunn, þjálf-
un og hugsunarhátt. Þessi
þekking er örugglega betur
nýtt í því starfi sem hann hefur
bráðlega með höndum, heldur
en sem aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn í lögreglunni.
Vísir að
íslenska hernum
Með tilkomu varnarmála-