NT - 31.08.1985, Side 15

NT - 31.08.1985, Side 15
engin leiðindastopp verði þenn- an tíma. Meðan hljómsveitirnar eru að koma sér fyrir mun , vídeótjaldið sjá til þess að eng- um leiðist, auk þess verða alls- ,konar uppákomur á hinum ólíklegustu stöðum. Svo verða seldar pylsur, gos og minjagripir á staðnum. Hljómsveitirnar sem troða upp á Rykk-Rokkinu eru sex, bæði þekktar og óþekktar. Pær eru Dynamite, Sweet Pain, Falskir tónar, The Voice, Tic Tack, Þetta er bara kraftaverk og síðan mun Megas ganga til liðs við Kuklið og saman syngur hópurinn nokkur vinsæl lög. Kjörorð Rykk-Rokksins ’85 er „Gegnum geimið til stjarn- anna“. Laugardagur 31. ágúst 1985 15 Rykk-Rokk Útitónleikar við Fellahelli ■ Gamli maðurinn mun syngja vinsæl lög fyrir unglingana í Breiðholtinu, á tónleikunum Rykk-Rokk. NT-mynd - Sverrir ■ Það fer enginn snemma að útitónleikana Rykk-Rokk. sofa í Breiðholtinu í nótt, Tónleikarnir hefjast klukkan krakkarnir í Fellahelli sjá til 18 og standa þeir linnulaust til þess. Pau halda annað árið í röð klukkan 23. Það er ábyrgst að umsjón: ! Þorsteinn G., Gunnarsson Kate Bush - rýfur þriggja ára þögn með nýrri plötu ■ í hvert sinn sem Kate Bush sendir frá sér nýtt efni vekur það mikla athygli og hana verðskuldaða. Sviðsframkom- an og vídeómyndirnar hafa heldur ekki spillt fyrir henni og það er í raun maicalaust hvað þessi listakona getur gert með röddinni og líkamanum. Ekkert hefur heyrst frá Kate Bush liðin 3 ár og svo löng þögn jafngildir dauðadómi í poppinu, enda eru þeir ófáir sem telja Kate Bush útbrunna stjörnu, en nú verður breyting þar á. Sú breyting er kærkomin dyggum aðdáendum Kate, en þeir sem aldrei hafa heyrt á hana minnst eiga ugglaust eftir að leggja eyrun við. Kynslóða- skiptingin er nefnilega mjög ör í poppinu og margir unglingar sem vel hafa fylgst með öllu því sem gerst hefur liðin 2-3 ár hafa vel getað komist hjá því að heyra nefnt nafn þessarar konu. En hvað hefur Kate Bush verið að gera síðustu 3 ár? „Ég hef hvílt mig. Að vísu ekki allan þennan tíma, en ég tók það rölega eftir að öll vinnan við síðustu plötu mína var búin. Ég var að kynna hana með tónleikum, viðtöl- um, sjónvarpsupptökum og annarri auglýsingastarfsemi, allt til ársloka 1982. Þetta var mjög erfiður tími og mikið af ferðalögum, svo hvíldin var mér nauðsynleg. Ég lifði mjög öfgakenndu lífi á þessum tímum og geri að sumu leyti ennþá. Stúdíóvinn- an er einmanaleg og reyndar kýs ég að vera einangruð þegar ég er að vinna að plötu. Það er því stórt stökk yfir í mjög opinbert og áberandi líf, sem krafist er af poppstjörnurii, eftir að plata er komin út. Þennan tíma notaði ég alger- lega fyrir mig og ég gerði hluti sem ég hafði ekki komið í framkvæmd lengi. Vinir voru heimsóttir, ég innréttaði mér nýtt stúdíó og fann mér nýjan og góðan danskennara, sem gaf mér mikinn kraft og ég fór að semja og vinna aftur við tónlist.” Þú fórst að semja og nýja lagið Running up the Hill hljómar öðruvísi en fyrri plöt- ur þínar. Er von á miklum breytingum þegar nýja platan „Hounds of Love“ kemur út í haust? „Já, ég leitað nýjunga þegar ég vann að „Hounds of Love“ og til að byrja með var það mjög erfitt. Mér þótti allt sem ég samdi líkjast því efni sem var á síðustu plötu og ég hef aldrei séð neinn tilgang í því að endurtaka það sem ég hef áður gert, svo þau lög voru öll lögð á hilluna. Reyndar tel ég það hættulegt hverjum listamanni að leita ekki nýrra leiða í listsköpun sinni. Allt of margir sitja bara á rassinum og segja að þetta komi yfir þá, en það þarf virkilega að nálgast hlutina. Fjallið kom ekki til Múham- eðs. Ég samdi mikið af lögum og valdi þau bestu á plötuna, sem ég vann mjög hægt og rólega, miðað við fyrri plötur mínar. Núna var ég í eigin stúdíói og hafði nægan tíma. Áður hafði ég miklar áhyggjur af því hvað stúdíótíminn kostaði mikið og hvað öll vinnan var dýr, þessar hugsanir gerðu mig óstyrka. í rnínu stúdíói var ég miklu yfirvegaðri og gat unnið hlut- ina eins og ég vildi hafa þá. Á síðustu plötu var allt of mikið um að fólk væri fengið til að spila með mér lag, eða hluta úr lagi, svo var það rokið og nýtt komið í þeirra stað. Mér líkar ekki þessi hraði. Reyndar halda margir að lítið sé fengið með því að vinna hægt og margyfirfara sömu hlutina, en ég verð ekki ánægð nema ég viti að ég hafi gert eins vel og kostur er, og til þess að vera viss um að svo sé, þarf ég að liggja yfir hlutunum dögum saman.“ Lög og saga „Þessi nýja plata er í raun og veru tvö aðskilin og ólík verk. Önnur hliðin er „Hounds of Love", hin hliðin er samfelld saga sem ég kalla „The 9th Wave“. Það tók miklu lengri tíma að gera söguna heldur en lögin á „Hounds of Love“. Sagan mátti ekki verða lengri en 30 mínútur og hún varð að renna vel áfram og það tók langan tíma að gera hana sam- fellda og snurðulausa. Sagan er lík draumi. Hún fjallar um mann sem fellur af skipi og velkist um í sjónum heila nótt. Þar gefst honum nægur tími til þess að hugsa líf sitt og tilgang. í lokin nálgast maðurinn upphafið og það má segja að hann gangi í gegnum einskonar endurfæðingu. Já, ég trúi á framhaldslíf og draumar hafa mikla merkingu fyrir mig. Mínir draumar eru oft hinir furðulegustu og þeir hafa oft áhrif á það sem ég er að gera, bæði tónlistina og vídeóið. Mig dreymir oft fólk sem ég af einhverjum ástæðum lít upp til. Leikarinn Peter O’Toole snæddi með mér kvöldmáltíð í draumi, ekki alls fyrir löngu, trommarinn sálugi Keith Moon hefur heimsótt mig, það sama má segja um aðra sem ég hef dálæti á, svo sem Oscar Wilde, Bryan Ferry, Billie Holiday og Hitchcock." Geitamjólk „Ég held að margir noti tónlistina til að lýsa tilfinning- um og oft veitir tónlistin áhrif sem samfélagið getur ekki gefið. Tónlistin er því margs- konar hjálparmeðal og ekki síst gegn einsemdinni." En margir segja þína tónlist frábrugðna öllu öðru, er það rétt? „Ég veit satt að segja ekki af hverju fólk segir mín lög svona mikið öðruvísi, ætli það sé vegna þess að ég baða rnig í geitamjólk! Nei, í alvöru talað, þá ætti ekki að spyrja mig um þetta, það væri nær að leggja þessa spurningu fyrir mömmu, því ástæðan liggur kannski í bernsku minni.“ Vinsældalistar Vinsældalistar Vinsældalistar Rás 2 i Grammið Fálkinn: 12 tommur 1. (1) Into The Groove.......................Madonna 2. ( 2) We Don’t Need Another Hero .... Tina Turner 3. ( 5) Tarzan Boy...................... Balti Mora 4. ( -) Dancing In The Streets . D.Bowie & M. Jagger 5. ( 4) Money For Nothing .............. Dire Straits 6. ( 6) Á rauðu Ijósi............ Mannakorn 7. ( 3) Live Is Life ............................Opus 8. (13) PeepingTom ..........................Rockwell 9. ( 9) Endless Road....................Time Bandits 10.(7) Hittlagið.............................Fásinna 1. ( 1) LowLife ....................... NewOrder 2. ( 2) Kona....................... Bubbi Morthens 3. ( 4) Skemmtun .....................Með Nöktum 4. ( 7) The Fishborn Is Dead ................... ............ Nick Cave And The Bad Seeds 5. ( 3) Litle Creatures ..........Talking Heads 6. ( -) And A Time To Dance..........Los Lobos 7. ( -) ThemesTwo .................... PsychicTV 8. ( 5) I Put A Spell On You . Screaming Jay Hawkins 9. (10) First Circle .......... Pat Metheny Group 10. ( -) Don’t Forget That Beet ........FatsComet 1. ( 1) Into The groove ..................Madonna 2. ( 5) I Got You Baby ....................... UB 40 3. ( -) My Too Too ................... Denise Lasalle 4. (10) You Are Only A Human..............BillyJoel 5. ( 1) We Dont Need Another Hero.........Tina Turner 6. ( -) This Is Not America........................... .............D. Bowie & Pat Metheny Group 7. ( -) Slave To Dance....................Bryan Ferry 8. (7) Act Of War...........Elton John & Millie Jacson 9. ( -) Drive................................. Cars 10. ( 6) Money For Nothing ................ Dire Straits

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.