NT - 31.08.1985, Blaðsíða 19
Tjallarúr leik
■ í NT í gær birtum við úrslit
á HM-unglinga í knattspyrnu
sem nú stendur yfir í Moskvu.
Ekki tókst okkur að koma inn
stöðunum í riðlunum en verður
bætt úr því hér. Þetta er loka-
staðan í riðlunum og í undan-
úrslitum mætast: Brasilía og
Kólumbía, Mexíkó og Nígería,
Kína og Sovétríkin og Spánn og
Búlgaría. Brassarnir eru taldir
sigurstranglegastir í keppninni
en Sovétmenn og Mexíkanar
munu ekki verða lömb að leika
sér við. Lokastaðan í riðlunum:
A-riðill:
Búlgaría................ 3 1 2 0 4-2 4
Kólumbía................ 3 1 2 0 5-4 4
Ungverjal .............. 3 1 2 0 5-4 4
Túnis...... ............ 3 0 0 3 2-6 0
B-riðill:
Brasilía ............... 3 3 0 0 5-1 6
Spánn .................. 3 1 1 1 4-4 3
SaudiArab .............. 3 1111-13
írland.................. 3 0 0 3 3-7 0
■ Þau hjónakornin sem á þessari mynd sjást máttu bíta í sitt hvort eplið á Opna-bandaríska meistaramótinu í tennis sem nú fer fram í
New York. Þetta eru þau Chris Evert Lloyd og John Lloyd eiginmaður hennar. Chrís sigraði Raffaella Reggi frá Ítalíu nokkuð auðveldlega
í annarri umferð á meðan John var sleginn úr keppninni af Tim Mayotte frá Bandaríkjunum eftir nærri þriggja tíma baráttu.
HM-unglinga í knattspyrnu:
Laugardagur 31. ágúst 1985 19
íþróttir
„Jónsmálinu“
er lokið
■ Dómstóll íþróttasam-
bands íslands tók fyrir
kröfu Þróttar um að öll
málsmeðferð í „Jónsmál-
inu“ svokallaða skyldi vera
ómerk og urðu dómsorð
dómstólsins eftirfarandi:
Krafa áfrýjanda um
ómerkingu allrar meðferð-
ar máls fyrir dómstóli KSÍ
16.8.1985 í málinu: Knatt-
spyrnufélag Reykjavíkur
gegn Knattspymufélaginu
Þrótti, R. og um heimvísun
til löglegrar meðferðar fyr-
ir dómstóli KSÍ er ekki
tekin til greina. Undir þetta
ríta Jón Ingimarsson,
Hreggviður Jónsson og
Stefán Kristjánsson.
Þar með er væntanlega
endanlega lokið þessu
svokallaða „Jónsmáli“ og
halda KR-ingar stigunum í
leiknum sem þeir unnu 4-3
í 1. umferð íslandsmótsins
í knattspyrnu.
íslandsmótið í knattspyrnu 2. deild:
Ekkert mál hjá KA
C-riðill:
Sovétr ................. 3 2 1 0 7-1 6
Nigería ................ 3 2 0 1 6-4 4
Ástralía................ 3 0 2 1 2-3 2
Kanada ................. 3 0 1 2 0-7 1
D-riðill:
Mexíkó ................. 3 3 0 0 6-1 6
Kína.................... 3 2 0 1 5-4 4
Paraguay................ 3 0 1 2 3-6 1
England................. 3 0 1 2 2-5 1
UBK ......... 15 9 4 2 28-13 31
ÍBV........ 15 8 6 1 37-13 30
KA .......... 15 9 3 3 32-14 30
KS......... 15 7 3 5 21-19 24
Völsungur .. 15 6 3 6 24-22 21
ÍBÍ ......... 16 3 7 6 15-26 16
Njarðvík ... 14 4 4 6 10-17 16
SkaUagr. ... 16 4 4 7 19-34 16
Fylkir..... 14 3 3 8 12-18 12
Leiftur.... 15 2 3 10 10-31 9
Frá Gylfa Kristjánssyni á Akureyri:
■ KA átti ekki í vandræðum
með slaka ísfirðinga í norðan
garra.hér á Akureyri í gær-
kvöldi. Er yfir lauk þá höfðu
KA-menn gert fjögur mörk en
ísfírðingar eitt. Staða KA í
deildinni er nú ágæt. Þeir eru
með 30 stig einu stigi á eftir
toppliðinu. Breiðablik og jafnir
ÍBV í 2-3 sæti. KA og ÍBV eiga
eftir að mætast á Akureyri.
Leikurinn í gær var ekki gam-
all er Steingrímur Birgisson
skoraði gott mark fyrir KA eftir
einstaklingsframtak. Hann var
síðan aftur á ferðinni eftir kort-
ers leik og skoraði þá eftir
fyrirgjöf Bjarna Jónssonar, 2-0.
Þannig var síðan staðan í leikhlé
og voru menn strax orðnir kaldir
á áhorfendapöllunum.
í síðari hálfleik komu Isfirð-
ingar nokkuð ákveðnir til leiks
og Rúnari Vífilssyni tókst að
minnka muninn í 2-1 með ágætu
marki. Við þetta héldu menn að
ísfirðingar myndu hressast en
svo var nú ekki og KA tók öll
völd á vellinum. Þeir sóttu stíft
og markvörður ÍBÍ varð að taka
á á stundum. Tryggva Gunnars-
syni var brugðið inní teig á 72
mín. og Njáll Eiðsson skoraði
örugglega úr vítinu sem dæmt
var. Staðan orðin 3-1 ogTryggvi
hafði ekki skorað. Hann bætti
úr því með fallegu marki rétt
fyrir leikslok er hann lék snyrti-
lega á tvo ísfirðinga og renndi
tuðrunni í netið, 4-1 og leikur-
inn úti.
ísafjarðarliðið er slakt og á
við falldraug að berjast með
slíku áframhaldi. KA slæst við
Blika og Eyjamenn á toppnum.
Einar þriðji
Sigurður fimmti
■ Einar Vilhjálmsson og Sigurð-
ur Einarsson kepptu á Grand Prix
frjálsíþróttamóti í Brússel í gær-
kvöldi. Einar hafði upphaflega ætl-
að sér að keppa á heimsleikum
stúdenta í Kobe í Japan en hann
hætti við það þar eð sýnt var að
hann kæmist ekki þangað í tæka
tíð. í staðinn þá keppti Einar í
Brussel í gær. Hann varð í þriðja
sæti með kast uppá 85,60 en Sigurð-
ur náði góðum árangri og varð
fimmti með 73,58 m kast.
Sigurvegari í spjótkastinu í gær-
kvöldi varð Bandartkjamaðurinn
Duncan Atwood en hann kastaði
87,14 m. Annar varð landi hans
Tom Petranoff með aðeins átta
sentimetra lengra kast en Einar
eða 85,68. Fjórði í röðinni varð
síðan Roald Bradstock frá Bret-
landi með 81,98 og Sigurður kom
síðan fimmti eins og áður segir.
Nokkuð var um skemmtilegar
greinar á mótinu í gær og má nefna
að Mary Decker Slaney sigraði í
1500 m hlaupi kvenna og var þar
rétt á undan helstu keppinautum
sínum í millivegalengdunum þeim
Maricica Puica og Zolu Budd.
Puica varð önnur en Budd þriðja.
Slaney fékk tímann 3:57,24, Puica
var á 3:57,73 og Budd kom í
markið á 3:59,96. Sannkallað
spennuhlaup.
Þá sigraði Doina Melinte í 800 m
hlaupi kvenna en Jarmila
Kratochvilova varð að láta sér
nægja þriðja sætið.
Bandaríkjamaðurinn Sidney
Maree sigraði nokkuð auðveldlega
í míluhlaupi karla og kom í mark á
undan Sovétmanninum Yakovlev
á tímanum 3:50,54. Einn skæðasti
keppinautur Maree í millivega-
lengdunum, Marokkóbúinn Said
Aouita sigraði létt í 3000 m hlaupi
á 7:32,94 en Thomas Wessinghage
varð annar á 7:42,61.
Mikil keppni var í 200 m hlaupi
karla en þar kom Bandaríkjamað-
urinn Kirk Baptiste fyrstur í mark
á 20,38 en Calvin Smith landi hans
varð annar á 20,41. Þá stökk Willie
Banks 17,58m íþrístökki ogsigraði
að sjálfsögðu.
Stúdentaleikhúsið
á hringferð með rokk-söngleikinn
EKKÓ -
guðirnir ungu
eftir Ciaes Anderson,
þýðing: Ólafur Haukur Símonarson,
tónlist: Ragnhildur Gísladóttir,
leikstjórn: Andrés Sigurvinsson.
Búðardalur .................. 31. ágúst kl: 21
Patreksfjörður.................... 2. sept. kl 21
Þingeyri .................... 3. sept. kl. 21
Bolungarvík ................. 4. sept. kl. 21
Hnífsdalur....................... 5. sept. kl. 21
Hvammstangi .................. 6. sept. kl. 21
Blönduós......................... 7. sept. ki. 21
Erum meö extra breiða og
djúpa bekki meö mjög góö-
um andlitsperum: GÓDUR
ÁRANGUR EFTIR AÐEINS 5
SKIPTI. Sér klefar og góö
sturtu- og snyrtiaöstaöa.
Tónlist á staðnum.
Sólbaðstofan
Hléskógum 1.
ATH:
Bjóðum upp á ókeypis
krem eftir sólböó.
VERIÐ VELKOMIN
Opið:
Mánud.—föstud. 8—22
Laugardaga 8—20.
Sunnudaga 14—20.
Ennfremur má sérpanta jafnt
karla- sem kvennatíma.
'Canalis KLN
RAFSKINNU:
RENNURFRA
Hentugar m.a. fyrir verslanir,
iðnfyrirtæki,frystihús,
sláturhús og íþróttasali.
Einfalt og fljótlegt í uppsetningu
nflTUI\ll\l r
HÖFÐABAKKA 9 REYKJAVÍK
SÍMI: 685656 og 84530