NT - 09.11.1985, Blaðsíða 1
Haukafell dró Hafberg GK til hafnar:
Mikil slagsíða
var á skipinu
- þegar það náði höfn á Seyðisfirði
■ Síldarbáturinn Hafberg GK
var hætt kominn í gær, þegar
báturinn var staddur á Seyðis-
fjarðarflóa út af Borgarnesi.,
Báturinn var orðinn fullur af
síld og var verið að ganga frá,
áður en halda átti heimleiðis.
Þegar verið var að draga síldar-
nótina í síðasta skiptið kom ólag
á hana og fór báturinn hér um
bil á hliðina, og flaut mikill sjór
yfir lunninguna. Þetta gerðist
um klukkan 11.30ígærmorgun.
Haukafell frá Hornafirði kom
skipinu til aðstoðar. Skipverjar
voru þegar fluttir um borð í
Haukafellið og Hafbergið tekið
í tog. Skipin lögðust að bryggju
við Seyðisfjörð klukkan 19.15 í
gærkvöldi og var þá orðin mikil
slagsíða á skipinu. Þegar NT fór
í prentun seint í gærkvöldi var
verið að reyna að rétta skipið
við svo lunningin kæmi upp úr.
Til þess var notaður krani sem
staðsettur var á bryggjunni.
Slökkvilið Seyðisfjarðar og
Björgunarsveitin ísólfur voru
til taks og unnu við áð koma
dælum í Hafbergið. Dælur
höfðu ekki undan, á meðan
ekki var búið að rétta skipið af.
Hljóðið í mönnum fyrir austan
var gott, þar sem enginn meiðsli
urðu á áhöfn. Lögregluþjónn á
varðstofunni á Seyðisfirði sagði
við NT í gærkvöldi að skipið
yrði ekki látið sökkva við |
bryggjuna. Svo mikið væri víst.
NEWS SUMMARYIN ENGLISH SEEP. 7 _
Haughúsið opnast hægt og hægt:
Tveir lögf ræðingar
og verðbréfasalar
- meðal þeirra sem ávöxtuðu fé sitt með okurlánum
Amfetamínsmyglið:
Fjórði
maðurinn
- í gæsluvarðhald
■ Tíu daga gæsluvarð-
haldsúrskurður var kveðinn
upp í gær í sakadómi
Reykjavíkur. Maðurinn
sem úrskurðaður var í
gæslu tengist umfangs-
miklu amfetamínsmygli
sem komst upp um nú
fyrir skömmu. Alls sitja
nú fjórir menn í gæslu-
varðhaldi vegna
smyglsins. Eins og NT
skýrði frá reyndu mennimir
að smygla amfetamíni til
landsins með því að koma
því fyrir um borð í togur-
um, sem staddir voru í
Þýskalandi.
■ Haughúsið hefur verið opn-
að upp á gátt. Okurlánamálið
verður stöðugt umfangsmeira.
Áhrifamenn í þjóðfélaginu eru
nefndir sem fjármagnsaðilar að
meintri okurlánastarfsemi Her-
manns Björgvinssonar. NT hef-
ur áreiðanlegar heimildir fyrir
því að tveir þekktir lögfræðing-
ar í Reykjavík hafi ávaxtað fé
sitt á okurlánamarkaðinum. Þá
eru tveir verðbréfasalar, hjá
smærri verðbréfafyrirtækjum
orðaðir við þessa starfsemi.
Bankastjóri í Stykkishólmi hef-
ur verið yfirheyrður vegna
málsins, þó óljóst sé hvernig
hann tengist því.
í frétt NT í gær var sagt frá
sjálfstæðum atvinnurekanda
sem missti fyrirtæki sitt vegna
okurlána og yfirgengilegra afborg-
ana. Nú hefur NTgrafið upp tvö
fyrirtæki sem hafa tekið lán hjá
okurlánurum. Annað fyrirtæk-
ið, sem hefur lagt upp laupana,
starfaði á sviði tískufatnaðar,
en hitt fyrirtækið, sem er meðal-
stór matvöruverslun, á í miklum
erfiðleikum. Hjá versluninni
starfa um sex manns. Það eru
því jafnt einstaklingar sem fyrir-
tæki sem hafa leitað til okurlán-
ara.
Rannsóknarlögregla verst
allra frétta af málinu og einstök-
um atburðum sem tengjast því.
■ Hið gamla vígi smáauglýsinga og afgreiðslu DV stóðst ekki lengur kröfur nútímans og var rífið í gær. í bakgrunninum
má sjá nýja húsið, en þar munu hinar ýmsu deildir blaðsins verða undir einu og sama þaki. NT-mynd Róbert
Hjón seldu 770 þúsund króna skuldabréf með 27% afföllum:
Tapa 220 þúsund krónum
miðað við sama bankalán
Fjármagnseigendur fá mismuninn
■ Er um „okurlán“ að ræða að greiða af því 70-80 þús.
eða ekki þegar maður sem í króna hærri upphæð í afborg-
sumar tók 545 þús. króna un, vexti og verðbætur.
„Ián“ þarf þegar á næsta ári (54.500 kr. auk vísitölu), en
l'safjörður:
Kviknaði í
kaupfélaginu
■ Slökkvilið ísafjarðar var
kallað að kaupfélaginu í fyrri-
nótt. Eldur kom upp í reykofni,
sem er í sama húsnæði og versl-
un kaupfélagsins. Ekki var um
mikinn eld að ræða, og var það
fyrir sakir reyks sem eldurinn
uppgötvaðist. Þegar slökkvilið
opnaði reykofninn gaus upp
mikill reykur úr honum, og
urðu skemmdir á húsnæðinu af
völdum reyks. Lögreglan á ísa-
firði sagði NT að slökkvistarf
hefði gengið vel og skeinmdir
voru ekki það miklar að loka
þyrfti kaupfélaginu í gær.
ef hann hefði fengið jafn hátt
lán í banka? Og auk þess að
skulda líklega undir næstu jól
um 915 þús. krónur af eftir-
stöðvum lánsins í stað 670 þús.
króna eftirstöðva af banka-
láninu. Þetta er raunar mis-
munurinn sem þeir standa
frammi fyrir sem brugðið hafa
á það ráð að afla sér lánsfjár
með því að selja skuldabréf
hjá almennum verðbréfasöl-
um í borginni undanfarna
mánuði.
NT hefur raunverulegt
dæmi af hjónum sem um Jóns-
messu í vor ákváðu, eftir
ráðgjöf hjá einni virtustu
verðbréfasölu borgarinnar,
að losa sig úr lausaskuldum
með því að selja skuldabréf til,
5 og hálfs árs með 1. greiðslu
eftir ár og síðan á 6 mán.
fresti. Hjón þessi seldu bréf
að verðmæti 766.725 krónur.
Eftir sölu þeirra með afföllum
(gengi 72,74) og 11 þús. króna
þóknunar til verðbréfasalans
fengu þau 546.561 krónu í
hendur fyrir bréfin. Nú 5
mánuðum síðar cr skuld
þeirra (bréfin) komin í um
890 þús. kr. með vöxtum og
vísitölu, en væri tæplega 652
þús. hefðu þau átt þess kost
að fá sömu upphæð (545 þús.)
lánaða í banka eða t.d. lífeyr-
issjóði. Munurinn rúm 237
þús. krónur nú í nóvember. í
báðum tilfellum er miðað við
hæstu lögleyfðu vexti - nú 5%
á ári, auk lánskjaravísitölu.
Til þess að fá sömu upphæð
í hendur (um 545 þús.) í
bankanum hefðu hjónin
aðeins þurft að skrifa undir
550 þús. króna skuldabréf í
stað tæplega 767 þús. króna
bréfa hjá verðbréfasalanum.
Það heitir að gengi bréfanna
var 72,74. Mismunurinn fer
að mestu til þeirra sem lofað
er í auglýsingum fyrirtækj-
anna að kaupi þeir núna bréf
fyrir 1 húsverð eigi þeir orðið
verðmæti 2ja húsa eftir 4 ár,
og 4urra húsa eftir átta ár.
Til þess að standa undir
afborgunum og vöxtum þurfa
hjónin næstu árin að leggja
fyrir um 15 þús. krónur á
hverjum mánuði auk vísitölu-
hækkana á hverjum tíma. Það
dæmi hafa þau þegar séð að
gengur ekki upp. Því má svo
bæta við, að þau bréf sem
„hamingjusamir" kaupendur
nýrra bfla eru þessa dagana
að skrifa undir hjá sumum
bílaumboðum borgarinnar
eru á svipuðum kjörum og
hér er fjallað um.
Bjórsmygl í Svani
frá Grundarfirði:
Yfirmenn
játuðu
■ Yfirmenn á flutninga-
skipinu Svanur frá Grund-
arfirði hafa játað aðild að
bjórsmygli sem upp komst
á Akureyri í fyrrinótt.
Skipverjar, sem eru sjö
talsins, eru flestir tengdir
málinu. Svanur var að
koma frá Frakklandi með
viðkomu á Eskifirði.
Skipverjar voru staðnir
að verki þegar verið var
að skipa rúmlega tvö
hundruð bjórkössum í
trossum frá borði í skjóli
myrkurs. Miklar yfir-
heyrslur stóðu yfir hjá
rannsóknarlögreglu á Ak-
ureyri í gær. Ölafur Ólafs-
son fulhrúi bæjarfógeta á
Akureyri sagði í samtali
við NT í gær að alls hefðu
15-20 manns verið yfir-
heyrðir vegna þessa máls.
Hann sagði ennfremur að
rannsókn hefði miðað að
því að kanna hvort smygl
hefði verið stundað í
lengri tíma.
Bjórinn var falinn undir
þiljum og var svo að segja
á einum stað. Þá var kann-
að hvort dreifingaraðilar
og flutningsmenn væru'
einhverjir.