NT - 09.11.1985, Blaðsíða 10

NT - 09.11.1985, Blaðsíða 10
Heilbrigðisfulltrúi Staða heilbrigðisfulltrúa við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkursvæðis er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 15. des. nk. Laun sam- kvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar. Um menntun, réttindi og skyldur fer samkvæmt reglugerð nr. 150/ 1983 ásamt síðari breytingum. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í heilbrigðiseftirliti eða skyldum greinum svo sem líffræði, matvælafræði, hjúkrunarfræði eða hafa sambærilega menntun. Umsóknir ásamt gögnum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist formanni svæðis- nefndar Reykjavíkursvæðis (borgarlæknin- um í Reykjavík) fyrir 1. desember nk., en hann ásamt framkvæmdastjóra heilbrigðis- eftirlits veitir nánari upplýsingar. Borgarlæknirinn í Reykjavík Útboð Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum i lagningu Eyjabrautar vestri um Saurbæ. (Lengd 2,0 km, magn 17.000 m3). Verki skal lokið 1. júlí 1986. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Akureyri og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 11. nóvember n.k. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 18. nóvember 1985. Vegamálastjóri. Útboð Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagningu Djúpvegar - Álftafjörður I. (Lengd 6,4 km, magn 65.000 m3). Verki skal lokið 15. júlí 1986. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á ísafirði og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 13. nóvember n.k. Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14:00 þann 25. nóvember 1985. Vegamálastjóri Vantar mann eða konu til vinnu á kjúklingabúi. Samviskusöm og þurfa að geta unnið sjálfstætt. Upplýsingar í síma 99-6053 og 99-6051. Beitusíld Til sölu er úrvals beitusíld. Til afgreiðslu nú þegar. Allar nánari upplýsingar veittar í síma 97-8880. Búlandstindur hf. 765 Djúpavogi FÉLAGSMÁLASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR DROPIAUGARSTAÐIR — SNORRABRAUT 58 — SIMI 25811 Droplaugarstaðir heimili aldraðra Snorrabraut 58 Hjúkrunarfræðingar og sjúkraliðar óskast á hjúkrunardeild heimilisins. Dag- heimilispláss fyrir börn 2-6 ára laus. Nánari upplýsingar á staðnum eða í síma 25811 virka daga. 1 Pfl? Laugardagur 9. nóvember 1985 10 LkJJ Bridge Bridgesambandið hugar að landsliðsmálum ■ Landsliðsmál hafa alltaf verið vinsælt umræðuefni hjá bridgemönnum, líkt og hjá öðr- um íþróttahópum, og stefna yfirvaída um það hvernigstanda eigi að landsliðsvali, æfingum og öðru í þessu sambandi, eroft umdeild. Stefna Bridgesambandsins í landsliðsmálum hefur hingað til í rauninni verið sú að láta hverj- um degi nægja sína þjáningu, þ.e. hvcrt alþjóðlegt mót fyrir sig er tekið fyrir og ákveðið hvort, hverja og hvernig eigi að senda til að spila. Árangur íslendinga á alþjóð- legum mótum hefur alltaf verið viðunandi, frá því að vera góður, eins og t.d. á undanförn- uni tveim Norðurlandamótum, niður í að vera slakur, eins og á undanförnum Evrópumótum. Við verðum þó að horfast í augu við að íslendingar eru, hvað getu' varðar, í neðri hluta annars þriðjungs, Evrópuþjóða (vonandi er þetta ekki óskiljan- leg setning). Sú var tíðin að íslendingar voru í 1. þriðjung og um ástæður þess að sá tími er liðinn má endalaust deila. Bridgesamband íslands gerir sér grein fyrir að það stendur á nokkurskonar tímamótum nú. Um er að velja að halda áfram að senda lið á erlend mót og sætta sig við árangur aðeins fyrir neðan miðju og gleðjast yfir öllu þar fyrir ofan, eða þá að taka þátttöku íslands erlend- is föstum tökum, byggja upp gott landslið og stefna í hóp þeirra bestu. Og slíkt er ekki óraunhæfur möguleiki. íslend- ingar eiga óvenju stóran hóp bridgespilara sem með mark- vissri þjálfun gætu staðið þeim bestu á sporði, og hafa raunar gert það á undanförnum árum. Ýmsar hugmyndir hafa verið reifaðar um hvað eigi að gera. Stungið hefur verið upp á að fá erlenda spilara eða þjálfara til námskeiðahalds; að marka stefnu fyrir 2-3 ár í senn og velja ákveðinn landsliðshóp sem liðið verði valið úr eingöngu á þess- um árum; reyna að auka þátt- töku íslendinga í erlendum mótum, markvissari og harðari þjálfun fyrir landsliðsspilara, og ýmislegt fleira. Ekkert hefur verið ákveðið í þeim efnum en stjórn Bridge- sambandsins hefur óformlega leitað eftir áliti þeirra spilara sem helst eru taldir koma til greina í landsliðshóp. Það verð- ur spennandi að fylgjast með þessu í framtíðinni og vonandi tekst Bridgesambandsstjórn að gera fastmótaða landliðsáætlun sem flestir geta sætt sig við. Guðmundarmót á Skagaströnd Ingi Þór Ingvason og Ingi- bergur Guðmundsson sigruðu á helgarmoti sem haldið var á Skagaströnd um síðustu helgi. Mótið er kennt við Guðmund Kr. Sigurðsson og að sjálfsögðu stjórnaði hann mótinu af mikilli röggsemi. Bræðurnir frá Siglufirði, Ás- grímur og Jón Sigurbjörnssynir urðu í 2. sæti á mótinu. Það vakti athygli að synir Jón, Ólaf- ur og Steinar sem aðeins eru 12 og 13 ára gamlir, voru lengi í öðru sæti á mótinu en duttu aöeins niður í lokin. Sjálfsagt eru þeir bræður yngstu keppnis- spilarar landsins. 28 pör tóku þátt í mótinu, og komu þau allt frá Borgarfirði til Siglufjarðar. Tafl-& Bridge- klúbburinn Aðalsveitakeppni T.B.K. hófst s.l. fimmtudag með þátt- töku 12 sveita, spilaðir eru tveir 16 spila leikir á kveldi og eftir fyrsta kvöldið er staðan þessi: Sigfús Sigurhjartarson 42 Agnar Hanson 40 Gestur Jónsson 40 Hermann Erlingsson 39 Keppninni verður fram hald- ið n.k. fimmtudag 14. nóv. að Domus Medica kl. 19.30, eins og venjulega. Fimmtudaginn 31. okt. s.l. var spilað til úrslita í „hrað- sveitakeppni" klúbbsins og sig- urvegari var sveit Gests Jóns- sonar, en hana skipa auk Gests, þeir: Sigfús Ó. Arnason, Sig- tryggur Sigurðsson, Hrólfur Hjaltason og Sverrir Kristins- son. En annars urðu úrslit sem hér segir: Gestur Jónsson 2246 Ingólfur Lilliendahl 2195 Þórður Sigfússon 2168 Guðni Sigurbjarnason 2113 Frá Bridgesambandi Reykjavíkur: Dagskrá Bridgesambands Reykjavíkur fyrir starfsárið 1985-1986 verður þannig: Undanrásir fyrir Reykjavíkur- mótið í tvímenning verða: Sunnudaginn 24. nóvember kl. 13 og 19.30 (tvær umferðir) Sunnudaginn 1. desember kl. 13. (ein umferð) Úrslitakeppnin (28 para baro- meter) verður svo helgina 14. -15. desember (ein umferð á laugardegi og tvær umferðir á sunnudegi) Undanrásir fyrir Reykjavík- urmótið í sveitakeppni verða: 1. dagur: Mánudaginnó. janúar í Domus Medica kl. 19.30 2. dagur: Miðvikudaginn 8. janú- ar í Hreyfils-húsinu kl. 19.30 3. dagur: Fimmtudaginn 9. janú- ar í Domus kl. 19.30 4. dagur: Sunnudagur 12. janú- ar í Hreyfli kl. 13.00 5. dagur: Miðvikudaginn 15. janúar í Hreyfli kl. 19.30 6. dagur: Sunnudaginn 26. janú- ar í Hreyfli kl. 13.00 7. dagur: Mánudaginn 27. janú- ar í Domus kl. 19.30 8. dagur: Laugardag 1. febrúar í Hreyfli kl. 13.00 9. dagur: Sunnudagur2. febrúar í Hreyfli kl. 13.00 Spilaðar verða 17-19 umferðir (eftir þátttöku), 16 spila leikir allir v/alla. 6 efstu sveitir úr undanrásum, komast síðan í úrslitakeppni Reykjavíkumóts- ins, sem verður helgina 8.-9. febrúar (sennilega í Hótel Hofi v/Rauðarárstíg). Þar verða spil- aðir 5x16 spila leikir, allir v/ alla. Leikir allra sveitanna í undanrásum munu gilda sem fyrri hálfleikur, þannig að í raun verða spiluð 32 spil milli sveita í úrslitum (í útreikning). Opna Samvinnuferða- mótið á Húsavík: Útlit er fyrir að hátt í 50 pör taki þátt í I. Opna Samvinnu- ferða/Landsýnar mótinu sem verður um þessa helgi á Húsa- vík. Er það mjög góð þátttaka, miðað við allar aðstæður. Spila- mennska hefst kl. 13 á laugar- deginum og verða spilaðar tvær umferðir þá um daginn. Á sunnudeginum verðurspiluðein umferð. Mótið verður tölvu- reiknað og sér Vigfús Pálsson um þá hlið mála. Keppnisstjóri er Ólafur Lárusson. Frá Bridgedeild Skagfirðinga Rvk: Eftir 6 umferðir í aðalsveita- keppni deildarinnar, er staða efstu sveita orðin þessi: Björn Hermannsson 125 Magnús Torfason 114 Hjálmar Pálsson 101 Sigmar Jónsson 98 Ný stjórn var nýlega kjörin hjá deildinni, á almennum fé- lagsfundi fyrir skömmu. í henni eiga sæti: Sigmar Jónsson for- maður, Karólína Sveinsdóttir, Guðni Kolbeinsson, Hjálmar Pálsson, Haukur Hannesson og Ólafur Lárusson. Opið hús: 22 pör mættu til leiks í Opnu húsi sl. laugardag í Borgartúni 18. Spilaður var tvímenningur og urðu úrslit þessi (efstu pör): N/S: stig Ragnar Björnsson - Þórarinn Árnason 292 Guðmundur Pétursson - Magnús Torfason 243 Hermann Erlingsson - Eymundur Sigurðsson 229 A/V: stig Guðjón Jónsson - Friðrik Jónsson 263 Baldur Árnason - Sveinn Sigurgeirsson 263 Albert Þorsteinsson - Sigurður Emilsson 241 Enn á ný er minnt á það, að regluleg spilamennska hefst kl. 13.30 (hálf tvö). Öllu spilaá- hugafólki, svo og öðrum er gaman hafa af leiknum er vel- komið að vera með, í afslapp- aðri og rólegri keppni. Bridgedeild Breiðfirðinga Eftir 10 umferðir af 19 er staða efstu sveita í aðalsveita- keppninni þannig: stig Alison Dorosh 194 Ólafur Valgeirsson 192 Árni Scheving 191 Jóhann Jóhannsson 185 Ingibjörg Halldórsdóttir 180 Hans Nielsen 177 Stjórnandi er Isak Örn Sig- urðsson og er spilað í húsi Hreyfils við Grensásveg. Bridgefélag Breiðholts Síðastliðinn þriðjudag lauk Swiss sveitakeppni með sigri sveitar Antons R. Gunnarsson- ar. Með honum í sveitinni voru Friðjón Þórhallsson, Ragnar Ragnarsson ogStefán Oddsson. RÖð efstu sveita varð þessi: Anton R. Gunnarsson 171 Björn Jósefsson 156 Bergur Ingimundarson 148 Eiður Guðjohnsen 147 Næsta þriðjudag verður spil- aður eins kvölds tvímenningur en þriðjudaginn 19. nóv. hefst þriggja kvölda Butler-tví- menningur. Spilað er í Gerðu- bergi kl. 19.30 stundvíslega. Bridgefélag Hafnarfjarðar Eftir tvö kvöld af þremur í Mitchell-tvímenningnum eru þessir með hæstu skor: Halldór - Óskar 623 Ásgeir - Guðbrandur 621 Bjarni - Magnús 609 Frá Bridgefélagi Reykjavíkur Síðastliðinn miðvikudag var spiluð 5. umferð í aðalsveita- keppninni og er staðan þannig: Delta 96 Ólafur Lárusson 91 Samv.ferðir/Landsýn 89 Stefán Pálsson 88 Úrval 86 Jón Hjaltason 86 Næsta miðvikudag verður bridgekeppni stofnana á dagskrá og 6. umferð verður því ekki spiluð fyrr en 20. nóv. ■ Sigurvegarar Guðmundarmótsins á Skagaströnd, Jón Ingi Ingvarsson og Ingibergur Guðmundsson taka við verðlaunum sínum. NT-mynd Öm Þ.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.