NT - 31.12.1985, Síða 4
Utlönd
■ Andstæðar fylkingar hafa barist í Líbanon í rúman áratug. Nú hafa byssurnar loksins þagnað og margir vona að
nýtt tímabil l'riðar og enduruppbyggingar sé tekið við.
Sættir í Líbanon?
Damaskus-Beirút-Keuter.
■ Leiðtogar stríðandi fylkinga í
Líbanon skrifuðu undir sáttmála síð-
astliðinn laugardag sem menn vona
að verði til að binda enda á borgara-
stríðið sem nú hefur staðið í nær tíu
ár.
Samkomulagið felur m.a. í sér uð
valdacinokun stjórnmálastunlaka
kristinna í stjórnkerfinu lýkur og
múhameðstrúarmenn fá aukin áhrif á
stjórn landsins. Gert er ráð fyrir að
Sýrlendingar, sem nú þegar hafa um
25.000 manna herliö í Norður-Líb-
anon, aðstoðað við að halda uppi
lögum og reglu á ákvcðnum svæðum
fyrst um sinn.
Talið cr aö yfir 100.000 menn hafi
fallið í borgarastríðinu undanfarin
áratug. Margir hafa látið í ljós efa-
semdir um að samkomulagið dugi til
að koma á friði en það var undirritað
af Nabih Berri leiðtoga Amal-sveita
shita, Walid Jumblatt leiðtoga drúsa
og Elie Hobeika leiðtoga herliðs
kristinna.
Þrátt fyrir þessar efasemdir var
samkomulaginu fagnað mjög í Líb-
anon og ríkisstjórnir annarra ríkja
hafa látið í í Ijós ánægju með það.
Margir telja að með samkomulaginu
fæðist nýtt Líbanon og útvarpsstöðv-
ar í Beirút spiluðu lagið „Það á af-
mæli í dag“ (Happy birthday).
Verkamannabústaðir
S J?n\)lrin\)íLr Suöursandsbraut 30, 105
l M\eyí\JUVltt Reykiavlk. Simi 81240
UMSOKNIR
Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík óskar eftir
umsóknum um kaup á 108 tveggja til fjögurra her-
bergja íbúðum, sem eru í byggingu í Grafarvogi í
Reykjavík.
Ennfremur er óskað eftir umsóknum um ca. 100 eldri
íbúðir sem koma til endursölu síðari hluta árs 1986
og fyrri hluta árs 1987.
Um ráðstöfun, verð og greiðsluskilmála þessara
íbúða gilda lög nr. 60/1984.
Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu
V.B. Suðurlandsbraut 30, frá og með mánudeginum 6. janúar
og verða þar einnig veittar allar almennar upplýsingar. Skrif-
stofan er opin mánudaga - föstudaga kl. 9-12 og 13-16. Um-
sóknum skal skila eigi síðar en 7. febr. 1986.
Stjórn verkamannabústaða í R.vík.
Þríðjudagur 31. desember 1985 4
Time velur mann ársins:
Deng breytir
rás sögunnar
New York-Reuter
■ Alþjóðatímaritið Time hefur til-
nefnt kínverska leiðtogann DengXi-
aoping (frb. Döng Sjápíng) mann
ársins fyrir „áframhaldandi umbætur
í Kína og á marxisma sem virðast
hafa meiri möguleika á að breyta rás
sögunnar en nokkuð annað sem
gerðist 1985“.
Þetta er í 59. skipti'sem Time velur
mann ársins. Tímaritið valdi Deng
einnig mann ársins árið 1978 og er
hann níundi maðurinn sem hefur
fengiö þennan titil tvisvar.
Samkvæmt Time hefur Deng nú
þegar „breytt daglegu lífi samborg-
ara sinna meira en nokkur annar
þjóðarleiðtogi.“ Breytingarnar eru
sagðar svo miklar að útlendingar
sem heimsæki Kína aftur eftir nokk-
urra ára fjarveru eigi erfitt með að
átta sig á því að þetta sé sama landið.
Glæpirborga sig:
Þjónar, kavíar
og nýr Volvo
Bonn-Reuter
■ Hansjoachim Tiedge, fyrrver-
andi deildarstjóri í v-þýsku gagn-
njósnaþjónustunni, nýtur vellyst-
inga í A-Berlín. Tiedge ávann sér
heimsathygli síðastliðið haust er
hann tlúði austur um járntjald vegna
ótta við að yfirboðarar sínir hefðu
komist að gagn-gagnnjósnum í þágu,
A-Þjóðverja.
Þrjár dætur hans á unglingsaldri
fengu nýlega lcyfi til þess að heim-
sækja föðursinn. Þærsögðu að hann
hefði verið hraustlegur í útliti og
glaður í bragði. Hann býr í einbýlis-
húsi er stendur við stöðuvatn í ná-
grenni A-Berlínar og á að eigin sögn
von á því að fá afhenta nýja Volvo-
bifreið innan skamms. Dæturnar
sögðu að húsið væri búið ríkulegum
húsgögnum þ.á m. persncskum
teppum. Þjónarannast Tiedge.
Það var þýska dagblaðið Bild sem
flutti fréttir af heimsókninni. Þar
kemur fram að feðginin snæddu kaví-
ar og drukku freyðivín frá Krím við
hlið tveggja jólatrjáa.
■ Deng Xiaoping hefur beitt sér
fyrir breytingum sem hafa áhrif á líf
þúsund milljóna Kinvcrja og breyta
jafnvcl framtíö alls mannkynsins.
Pakistanar fá
mannréttindi
Islamabad-Reutcr.
■ Mohamad Zia ul-Haq forseti
Pakistans og yfirhershöfðingi aflétti í
gær herlögum rúmlega átta árum eft-
ir að hcrinn tók völdin í hallarbylt-
ingu 1977.
Zia, sem verður áfram forseti og
yfirmaður herráðsins til ársins 1990,
afnam herdómstóla, endurreisti
stjórnarskrána og felldi úr gildi nær
öll lög og tilskipanir sem herinn sctti
á valdatíma sínum.
Stjórnarandstæðingar tók tilkynn-
ingunni um afnám herlaga og endur-
reisn lýðræðis með varúð og al-
menningur þorði á fæstum stöðum
að láta í Ijós fögnuð sinn með hátíð-
arhöldum enda hefur Zia áfram mik-
il völd sem forseti og yfirmaður
hersins.
Zia, sem er 61 árs gamall, sagði í
ræðu sem hann hélt í gær að bylting
hersins gegn stjórn Ali Bhutto árið
1977 hefði verið nauðsynleg því að
annars hefði verið hætta á borgara-
styrjöld í Pakistan.
Sænskir gyðingar
fá bréfasprengjur
Gautaborg-Rcuter.
■ Sænska lögreglan varaði gyðinga
í Svíþjóð við bréfasprengjum um
helgina eftir að sænsk kona fékk
sprengju senda í pósti.
Talsmaður lögreglunnar sagði í út-
varpsviðtali að sprengjan. sem var í
þykku umslagi, hefði verið svo öflug
að hún hefði getað drepið konuna.
Hún slapp samt þar sem henni þótti
bréfið grunsamlegt og fór með það til
lögreglunnar sem lét sprengjusér-
fræðing gera það óvirkt.
Lifði 10OOm fall
Osló-Rcuter
■ Norskur fjallgöngumaður, sem
hrapaði niður þúsund metra hengi-
tlug slapp með brotinn ökla að sögn
lögreglunnar í gær.
Maðurinn, sem er 28 ára, lenti í
snjóskriðu sem sópaði honum fram
af hengiflugi nálægt Ándalsnesi.
Leitarflokkar leituðu í gær að
kunningja mannsins sem talið er að
hafi grafist í skriðunni.