NT - 31.12.1985, Page 16

NT - 31.12.1985, Page 16
iltlHH Fréttir ársins 1985 I 1 Hi Þriðiudagur 31. desember 1985 16 Arna, Björg og Hildur: Fyrirmyndarbörn ■ Þær Arna, Björg og Hiltlur voru tcknar mcö kcisaraskurði í júlímánuði og voru þriðju þríbur- arnir scm fæddust á árinu. Foreldrar þcirra, Sigfús Ö. Erl- ingsson og Guðbjörg Gunnarsdótt- ir Itafa haft ærinn starfa í barna- ræktinni cnda áttu þau tværstúlkur fyrir og síðan sitt livort harnið frá fyrra hjönabandi. „Það hcfur lctt mikið undir hvað þríburarnir hafa verið góðir, þær cru farnar að sofa í einum dúr til klukkan tíu á morganana," sagði Guðbjörg þegar NT hafði samband við hana á Þorláksmessu. Til að byrja mcð urðu þær að vera í hitakassa í fjórar vikur cn cg komst hcim á tólfta degi. Við fór- um upp á spítala tvisvar á dag og þetta var svolítið strembið á mcðan á því stóö. Eftir að við fcngum þær hcint hcfur þctta gengið alvcg Ijómandi vel og við vorum einmitt að tala um það í gær livað góðar þær væru. Þær hafa líka vcriö hraustar fyrir utan það að þær fcngu hlaupabólu á fjórða mán- uði.“ Félagsmálastofnun hcfur hlaup- ið undir bagga ntcð fjölskyldunni og grciöir húshjálp sem kentur þrisvar í viku og fyrirtæki Davíðs SchevingThorsteinsson hefurgefið þurrmjólk og barnamat auk þess scm Kristján O. Skagfjörð lagði til bleyjur fyrstu tvo mánuðina. „Það scm er nicst um vcrt cr að litlu stelpurnar okkar þroskast eðli- lcga að visku og vcxti," sagði Guð- björg að lokum. „Þær eru fyrir- myndar börn." ■ Þríburarnir Hildur, Björg og Arna ásamt Sólrúnu stóru systur og for- cldrunum Sigfúsi og Guóbjörgu. Mikil hreyfing á starfsfólki - segir Bergur Felixson framkvæmdastjóri um starfsmannahald á dagvistarheimilum Reykjavíkurborgar Neyðarástand skapaðist á dag- vistarheimilum Reykjavíkurborg- ar í lok sumars. Allt benti til þess að loka yrði deildum á nokkrum heimilum vegna flótta fóstra og þá sérstaklega sóknarstarfsmanna úr illa launuðum störfum sínum. For- eldrar héldu útifund á Lækjartorgi til að leggja áherslu á kröfur sínar um varanlega lausn vandans m.a. að starfsfólk heimilanna fengju launa- hækkanir. Á elleftu stundu tókst að bjarga málunum fyrir horn og barnaheimilin gátu haldið áfram að vera opin, þótt sum hafi verið lok- uð í nokkra daga meðan gengið var frá ráðningum starfsfólks. Davíð Oddsson borgárstjóri og Aðalheið- ur Bjarnfreðsdóttir áttu viðræður og komið var á fót grunnnámskeiði í haust fyrir sóknarkonur sem hækkaði þær örlítið í launum. „Þetta hefur gengið, það hefur ekki komið til lokana á neinu heim- ili. Það vantar að vísu ennþá fóstr- ur og það hefur verið mikil hreyfing á starfsmönnum," sagði Bergur Fel- ixson framkvæmdastjóri dagvist- arheimila Reykjavíkurborgar. Fyrsta svæðisútvarpið á íslandi: r Utvarp Akureyri Um mánaðamótin febrúar og mars hófst fyrsta staðbundna svæðisútvarpið á íslandi norður á Akureyri undir stjórn Jónasar Jón- assonar. Útvarp þetta útvarpaði einn klukkutíma á dag til að byrja með, hálftíma á morgnana og hálftíma á kvöldin. Starfsmenn voru í byrjun sjö og náði sendingin til Akureyr- ar, Eyjafjarðar og Mývatnssveitar. Útvarpið átti að vera tilraun fram í júní og skyldi þá endurskoð- ast en það reyndist svo vel að á- kveðið var að halda því áfram. Sendingar hófust aftur eftir sumarleyfi í október og var þá út- sendingartíminn lengdur í einn og hálfan tíma á dag og samfelldur frá klukkan 17-18:30 frá mánudegi til föstudags. Að sögn Jónasar Jónassonar út- varpsstjóra á Akureyri eru nú starf- andi um tíu manns við stöðina og sjá þeir einnig um dagskrárgerð fyrir Rás 1 í Reykjavík ásamt svæð- isútvarpinu. Aðalhlutverk þessa svæðisút- varps er að flytja fréttir af fólki á svæðinu og af atburðum sem þar gerast og ekki eru taldir eiga erindi í landsútvarp. Sagði Jónas að þeir reyndu að hafa cfnið sem fjöl- breyttast og þar með að ná til sem flestra. að ná til sem flestra. Sú nýjung var tckin upp í haust þegar útsendingatíminn var lcngd- ur að bjóða skólanemum fjögurra skóla á Akureyri, Menntaskólans, Verkmenntaskólans, Tónlistar- skólans og Myndlistarskólans að hafa hálftíma þátt á hverjum degi og segja frá skólalífinu, náminu og hvað væri að gerast innan veggja skólans í víðum skilningi. Hver skóli útnefndi útvarpsráð sem sér um þættina eða útvegar fólk til starfans. Jónas sagði að þessi nýung hafi aukið skilning fólks á starfsemi skólanna og sagði þetta mjög merkilega samvinnu sem þarna hefði náðst og vonaðist jafn framt til að geta boðið öðrum skólum á svæðinu þátttöku þegar fram líða stundir. Jónas sagði að lokum að enginn vafi væri á því að svæðisútvarpið á Akureyri ætti langa framtíð fyrir sér og sagðist frekar búast við að fleiri slík fylgdu í kjölfarið með nýjum útvarpslögum eftir áramót- ín. ■ Starfsmcnn fyrsta svæðisútvarpsins á Islandi norður á Akurcyri að undirbúa útsendingu. ■ Stoltir forcldrar ásamt keisurunum þremur í júlí í sumar.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.